Morgunblaðið - 14.08.1976, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.08.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 14. AGUST 1976 11 Er algengt að menn þurfi að vera eftir? ,,Það kemur helzt fyrir um helgar á sumrin. Flestir þurfa flutning á föstudagskvöldum og laugardagsmorgnum og alltaf er líka fullt i ferðirnar frá Akranesi á sunnudagskvöld- um Við höfum bætt aukaferð- um við um helgar en þess gerist ekki lengur þörf þar sem nú fer að dimma fyrr á kvöld- in." Hverjir notfæra sér þessa þjónustu helzt? ,,Það er mjög mikið af Borg- firðingum, og Akurnesingum náttúrlega, og núna fara ná- lega allir mjólkurflutningar frá Borgarfjarðarhéraði um Akra- borgina Auðveldlega er hægt að aka tankbilunum um borð Kevnt er að nýta hvern fersenti- metra og þá verður oft að færa bflana til með handafli. I brúnni. Skipstjórinn (standandi) er Þorvaldur Guðmundsson og hjá honum situr Halldór Guðmunds- son, en hann var áður skipstjóri á gömlu Akraborginni. og ferðin er fljótlegri og þægi- legri á þann hátt, i flestum tilvikum Á sumrin er svo mikið af einkabílum, fólk, sem er að fara vestur og norður um fer oft með okkur, en það er auðvitað minna um það að vetrarlagi. Þess vegna höfum við haft færri ferðir á veturna, þær eru þrjár á dag yfir vetrarmánuð- ina, en fjórar á sumrin Við fáum lika miklu meira af flutn- ingabílum að vetrinum, á sumr- in geta þeir ekki treyst eins mikið á að fá alltaf far Þá ræddi Þorvaldur næst um áhöfn skipsins og hann var spurður um hvort stundum væri vont i sjóinn: „Áhöfn skipsins eru niu menn auk þjónustuliðs i kaffi- teriunni, en að auki eru svo menn sem leysa af i fríum, svo við höfum t d aukavélstjóra, stýrimann og háseta og líka er aukafólk til að skipta í þjón- ustuliðinu Það er stundum slæmt i sjó- inn og þá geta orðið töluverð læti Þetta er grunnsævi og stramkvika og við verðum varir við að fólk vill síður fara með okkur ef slæmt er i sjö. Skipið sjálft er skinandi gott, það er um 10 ára gamalt og var keypt frá Noregi." i þessari ferð sem blaðamað- ur fór með skipinu var sléttur sjór og sólskin, en Þorvaldur sagði að undanfarna daga hefði verið fremur slæmt veð- ur, rok og rigning, eins og Sunnlendingar vita Ein trilla var á leið á ýsumiðin, en Þor- valdur sagði að þær væru oft nokkuð margar og stundum kæmi fyrir að þær og aðrir sem væru á siglingu um flóann héldu sig ekki nógu vel frá skipinu Oftast þarf ekki að binda bílana niður í skipinu, en .það kemur þó fyrir ef veltingur er mikill og það fer lika eftir þvi hvort þeir eru hlaðnir mikið eða ekki Ferðin upp á Akranes tók tæpan klukkutima, en Akra- borgin er heldur lengur að sigla til Reykjavikur þar sem hún þarf að snúa tvisvar á leiðinni Skipið er samt mjög snúnings- lipurt, þar sem það er útbúið skiptiskrúfum og þegar Þor- valdur var að leggjast uppað i Reykjavíkurhöfn mátti líkja snúningum hans með skipið viðsmábil i borgarumferðinni Þegar fullt er ( bflageymslunni eru bflar hffðir upp á dekk. Hestamenn á Snæfellsnesi vígja nýjan skeiðvöll heimsækja hann. Meðan hann dvaldi I vinnubúðum nr. 35 tókst Bukovsky í félagi við ann- an fanga þar, geðlækninn Semyon Gluzman, að semja mjög merkan bækling um hvernig Sovétstjórnin misnotar geðlæknisvísindin i pólitísku skyni til þess að loka inni þá sem berjast fyrir auknum mannréttindum þar í landi og aðra andófsmenn. í innganginum að riti þeirra Bukovskys og Gluzmans, en það heitir „A Dissident’s Guide to Psychiatry" í enski þýðingu sem kalla mætti Handbók um geðlækningar fyrir andófs- menn, segir svo: „Eins og nú standa sakir er vitað um mörg dæmi þess að andófsmenn í Sovétrikjunum hafi verið úrskurðaðir geðveik- ir og ástæða er til þess að óttast að þessari aðferð verði enn frekar beitt í framtíðinni. Þetta er ekki erfitt að skýra. í fyrsta lagi er þessi aðferð mjög þægi- leg fyrir yfirvöldin. Hún gerir þeim kleyft að loka fólk inni um óákveðinn tíma og halda því í algerri einangrun. Þau geta notað geðlyf til að „endur- mennta” þetta fólk og aðferð þessi gerir erfiðari baráttuna fyrir opnum réttarhöldum og því að fólkið verði látið laust (þvi jafnvel óhlutdrægasti maður mun alltaf hafa ein- hverjar efasemdir um andlegt heilbrigði „sjúklings", ef hann þekkir hann ekki persónulega). Með þessu móti er hægt að neita fórnarlambinu sem þessi aðferð er notuð á um þau fáu réttindi sem fangar njóta. Og þetta gerir yfirvöldum kleyft að varpa rýrð á hugmyndir og gerðir andófsmanna. Og þannig mætti halda áfram. En það er einnig um aðra og ekki þýðingarminni ástæðu að ræða. Því enda þótt andófs- menn séu að jafnaði vel að sér um lög og rétt, svo þeir geri ekki mistök meðan rannsókn og réttarhöld fara fram, þá hefur komið i ljós að þeir eru gersam- lega varnarlausir þegar þeir standa frammi fyrir æfðum geðlækni sem hefur fyrirmæli að ofan um að úrskurða þá óábyrga gerða sinna. Þetta hef- ur óhjákvæmilega valdið ótta og ruglingi í röðum andófs- manna. Þetta er ein ástæðan fyrir hinum nýlegu og óvæntu „afneitunum” og afturköllun- um. Óttinn sem áður fylgdi rétt- arrannsóknum og búið var að vinna bug á með þekkingu álög- um og hvernig á að beita þeim hefur endurvaknað vegna þess- arar réttargeðlæknisfræði. Glötunartilfinning — það að vera ekki megnugur þess að gera neitt til að berjast gegn þessari aðferð — er orðin mjög útbreidd. Allt þetta gerir það að verk- um að nauðsynlegt er að skýra frá i lítilli handbók reynslu sem fengizt hefur við margar réttar- geðrannsóknir og jafnframt undirstöðuatriðum i geðlæknis- fræði til að fórnarlömb geti hagað sér á þann hátt sem sízt er til þess fallinn að gefa til kynna að viðkomandi sé ekki sjálfum sér ráðandi. Höfundur þessa rits, fyrrverandi „geð- sjúklingur” og fyrrverandi geð- læknir, vona að sameinuð þekk- ing þeirra og reynsla verði til þess að rit þetta veri gagnlegt. Handbókinni er ekki ætlað að vera endanleg úttekt á vanda- málum geðlæknisfræðinnar. Viss atriði hafa viljandi verið einfölduð þar sem þessi bók er ætluð almenningi til lestrar." MÓÐIR BUKOVSKY HELDUR AFRAM BARATTUSINNI Eftir endurkomuna i Vladi- mir-fangelsið hefur Bukovsky haldið áfram hugdjarfri bar- áttu sinni fyrir réttíndum sam- fanga sinna. Hann hefur neitað að vinna i mótmælaskyni við þær aðstæður sem fangar búa við í nauðungarvinnu þeirri sem þeir inna af hendi. Hann hefur mótmælt brotum á rétt- indum fanganna með þeirri einu aðferð, sem honum var tiltæk: hungurverkfalli. Nina Bukovskya, móðir Bukovskys, og margir þekktir fræði- og visindamenn utan Sovétrikjanna hafa margmót- mælt réttarhöldunum yfir Bukovsky og þeirri meðferð sem hann sætir, og hafa þrábeð- ið sovézk yfirvöld um að láta hann lausan. Nina Bukovskya hefur snúið sér til fjölmargra aðila á Vesturlöndum og beðið þá um að beita áhrifum sínum í Sovétríkjunum til að hjálpa syni hennar. Hún hefur m.a. skrifað Kissinger, Harold Wil- son Helm., Schmidt, Giscard d’Estaing ofc; leiðtoga franska kommúnistaflokksins, George Marchais. Sá eini sem svarað hefur bréfum hennar er banda- ríski verkalýðsleiðtoginn George Meany. I nýlegu viðtali við franska blaðið Le Monde skýrir Nina Bukovskaya frá þvf að henni sé gert að greiða 72 rúblur (16—17000 ísi. krónur) á sex mánaða fresti til fangelsisyfir- valda í Vladimir-fangelsinu, þar sem sonur hennar hafi neit- að að vinna I fangelsinu. Auk þess er henni meinað að heim- sækja hann nema á u.þ.b. átta mánaða fresti og bréf fær hún ekki að senda syni sínum nema á tveggja mánaða fresti. Le Monde virðist hitta nagl- ann á höfuðið þegar blaðið seg- ir, að sovézk yfirvöld hafi aldrei getað fyrirgefið Bukovsky að hafa verið einna fyrstur, ef ekki sá fyrsti, til að afhjúpa misnotkun Sovétyfir- valdanna á geðveikrahælum. (B.vggt á upplýsingum sem aflað var hjá Amncsty International f London fyrir milligöngu íslandsdeildar samtakanna.) HESTAMENN á Snæfellsnesi vfgðu laugardaginn 31. júlf sl. nýjan skeiðvöll og þennan sama dag efndi félag þeirra, Snæfellingur, til hestamanna- móts á nýja skeiðvellinum á Kaldármelum. Auk kappreiða og gæðingakeppni Snæfellings fór fram sérstök gæðingakeppni barna og unglinga og dómnefnd dæmdi nokkurn hóp kynbóta- hrossa. Að aflokinni hópreið hesta- manna um svæðið lýsti Þorkell Bjarnason, hrossaræktarráðu- nautur dómum kynbófahrossa. Einn stóðhestur var sýndur á mót- inu og var það Sörli frá Stykkis- hólmi, eign Jónasar Þorsteins- sonar, Ytra -Kóngsbakka í Helga- fellssveit og hlaut hann einkunn- ina 7,92. Sörli er undan Sörla 653 frá Sauðárkróki og Þotu frá Innra- Leiti, eign Leifs Kr. Jóhannes- sonar í Stykkishólmi, en Þota hlaut fyrstu verðlaun á mótinu fyrir afkvæmi og einkunnina 8.09. Dóttir Þotu Hryðja eign Leifs Kr. Jóhannessonar, stóð efst af hryssum 6 vetra og eldri og hlaut einkunnina 8.00. Af fimm- vetra hryssum stóð efst Assa frá Krossholti, eign Sigurðar Kristjánssonar í Stykkishólmi með einkunnina 7,63, en i flokki fjögra vetra hryssna hlaut beztan dóm Elding, Eysteins Leifssonar i Stykkishólmi. Sýndir voru þrjátíu og sjö gæðingar á mótinu og i flokki alhliða gæðinga stóð efstur Reykur Njáls Þorgeirssonar Stykkishólmi, einkunn 8,16. Af klárhestum með tölti var Bjarna- Skjóni eign Bjarna Einarssonar, Barðastöðum, Staðarsveit, dæmdur bezti klárhesturinn á mótinu og hlaut hann einkunnina 7.81. Úrslit í 250 metra skeiði á mótinu urðu þau að beztan tima hafði Kolbakur Braga Ás- geirssonar, knapi Ragnar Hinriks- son, eða 26,8 sek. önnur varð Nótt Eddu Hinriksdóttur, knapi Ragnar Hinriksson á 28,7 sek., en þriðji Grettir Valentinusar Guðnasonar, Knapi Halldór Sig- urðsson, á 29,5 sek. í 250 m unghrossahlaupi sigraði Goði, eig. og knapi Guðrún Fjeld- sted, á 21.0 sek. og I öðru sæti varð Fluga, eig. og knapi Bjarni Eyjólfsson, á 21,1 sek. I þriðja sæti varð Litli-Asi Hinriks Braga- sonar, knapi Einar Karelsson á 21,2 sek. Eyfirðingur, eig. og knapi Guðrún Fjelsted, sigraði i 300 m stökki á 23,6 sek. og annar varð Trantur eig. og knapi Unnsteinn Tómasson, á 23,8 sek. I þriðja sæti hafnaði Þrasi Eddu Hinriksdóttur á 23,9 sek. Þjálfi Sveins K. Sveinssonar, knapi Guðrún Fjelsted, sigraði i 800 m stökkinu á 69,2 sek. Annar varð Logi, eig. og knapi Halldór Sigurðsson, á 74,6 sek. og þriðji Ljómi, eig. og knapi Svanur Aðal- steinsson á 76,0 sek. í 800 m brokki sigraði Máni Halldórs Sig- urðssonar á 2 mín. 7,1 sek. og annar varð Logi Kristjáns Eyþórs- sonar á 2 min. 11,4 sek., en i þriðja sæti varð Þruma, Ragnars Tómassonar, knapi Tómas Ragnarsson. Að siðustu voru gæðingar ung- linga 16 ára og yngri dæmdir og stóð þar efstur Sprækur eign Kristmanns Jóhannessonar i Ólafsvík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.