Alþýðublaðið - 07.10.1958, Page 12
VEÐRIÐ: A- og NA-gola éða kaldi skýjað .
Alþýíiublaðií)
Þriðjudagur 7. október 195$
>ATAI
5 smíðaðir í Austur-Þýzkalandi
hinir í Vestur-Evrópu
AKVEÐIÐ hefur verið að
veita innflutnings- og gjald-
eyrisleyfi fyrir 18 nýjum bát-
>um, 70—135 tonna. Verða
ifimm þeirra smíðaðir í Aust-
ur-Þýzkalandi, en heimiit er
að smíða hina 13 vestan járn-
íjaldsins.
STEFNA STJÓRNARINNAR
í FRAMKVÆMD
Akvörðun þessi um nýsmíði
. íiskibáta er í samræmj við
stefnu ríkisstjórnarinnar um
auka fiskiskipafiotann. Eru
sem kunnugt er tólf 250 lesta
fiskiskip í smíðum erlendis og
fara þau fyrstu þeirra senn að
koma til landsins.
Slys í Hafnarfirði
ÞAÐ slys vildi til í Hafnar-
firði um kl. 10 í gaermorgun,
að bifreið ók á dreng á skelli-
nöðra á móts við fiskgeymslu-
hús Bæjarútgerðar Hafnarfjarð
ar. Drengurinn meiddist mikið
á höfði og var fluttur á spítala.
Drengurinn heitir Hlöðvar Að-
alsteinsson og er innan við tví-
tugsaldur Ekki er enn ljóst með
hvaða hætti slysið vildi til
Bók um landhelgiiia
send á þing S. Þ.
UTANRÍKISRÁÐUNEYT.
IÐ hefur sent fulltrúum Alls-
herjarþingi SÞ. bók um land-
helgismál íslendinga. Eru í
henni rakin helztu rök íslend
j ing'a fyrir útfærslu fiskveiði
landhelginnar og áhezla lögð
á hvérsu þýðingarmiklar fisk-
veiðarnar eru fyrir þjóðina. I
bókinni eru allmörk linurit til
skýringar......
Heimsfrægur guitar-
leikari væntanlegur
HINN heimsfrægi guitarleik
ari, Sogovia, er væntanlegur
hingað til lands í næsta mán.
og mun hann halda hér hljóm
leika á vegum Tónlistarfélags-
ins.
Fann bókasafn og
skrautmuni í
lílnum sínum
SÍÐASTLIÐINN laugardag
ikom maður að máli við rann-
sóknarlögregluna og sagðí frá
því, að er hann ætlaði að aka
lbíl sínum af stað þá um morg-
uminn, komst hann ekki undir
fstýri fyrir bókastafli, sem var
í framsætinu.
Var hér um erlcndar fræði-
hækur að ræða, tólf bindi £
skinnbndi og ellefu óbundnar
bækur.
Enn fremur voru £ bílnum
ívær skrautstyttur, önnur af
hesti og hin af fíl.
I.ögreglan tók ba:knrnar og
stytturnar í sína vörzlu.
Samkvæmt upplýsingum
írannsóknarlögreglunnar t gær
Ikvöldi hafði enginn kært yfír
Jpjófnaði þessara hluta og því
ókunnugt um eiganda.
Bíllinn stóð á Hrefungötu
®r þetta skeði og teluv löregl-
an líklegt að ókyrrð hafi kom
iizt að þjófnum og hann þv£
íekið það ráð að losa sig við
Mfið inn í næsta bíl.
María elfir fogara
Á SVÆÐINU frá Straumnesi
að Kópanesi voru í gær 16 tog-
arar í fiskveiðilandhelgi. en
ekki allir að veiðum, þvú að veð
u>r hefur farið versnandi á þess-
uni slóðum.
Snemma í gærmorgun kom
varðskipið María Júlía að
brezka togaranum Kingston
Emerald, þar sem hann var að
veiðum einn síns liðs innaií tólf
uiílna markanna við Glettinga-
nes.
Hóf varðskipið þegar aðföi
að togaranum og skaut að hon-
um þremur lausm skotum, en
hann flýðj til hafs og komsf
undan.
Slolinn bíll fannsf í HIjómsfcálagarðinum
verið farið með hann ian í
Hljómskálagarð og honum lagt
á bak við minnismerki Thor-
valdsens. Þykir augljóst að hér
sé um hreinan prakkaraskap að
ræða. , i
TVEIM bílum var stolið hér í I
bænum um helgina. Oði’um frá
Tjarnarbíó á laugardagskvöld,
meðan á sýningu stóð. Hann
fannst í gærdag í Smálöndum
og hafði þá verið stolið úr hon-
um, tjakk, kveikjara og tveim
hjólbörðum. Að öðru Ieyti var
bílinn óskemmdur.
Aðfaranótt sunnudags var
ungur maður, Arnar Andésson,
á leið austur Skothúsveg í bif-
reið sinni, sem er fjögurra
manna Renault bifreið. —
Skammt frá horni Fríkirkju-
vegar bilaði bíllinn og skildi
eigandi þar við hann.
Þegar hann ætlaði að vitja
bílsins fyrir hádegi í gær, var
bíllinn horfinn og var stuldur-
inn kærður til Iögregluniiar. Síð
degis í gær fannst bíllinn. Hafði
Það vakti nokkra furðu þeirra er áttu leið um Hljómskála-
garðinn að siá bifreið á þessum óvenjulega stað. Myndin er
tekin er Ingólfur Þorsteinsson yfirvarðstjóri í rannsóknarlög-
reglunni og Arnar Andrésson, eigandi bílsins koma til þess að
skoða hann. — Ljósm. Sv. S.
Ammoniakrör sprakk; stúlkurnar féllu í öngvit
Sögulegur atburður ísbirninum í gær
ÞAÐ óhapp vildi til í frysti
húsinu Isbirninum í gær-
morgun, að animoniakrör
sprakk. Varð loftið þegar
niengað ammoníaki.
Margar stúlknanna, er voru
að vinna þarna, kenndu óþæg-
inda snemma vegna þessa og
vildu út að fá sér frískt loft,en
verkstjórinn rak þær þá inn
aftur. Féllu þá tvær þeirra í
yfirlið. Voru þær sóttar af
sjúkrabílum.
Var þá stöðvuð vinna um
hríð meðan loftið var hreins-
að. Var tiltölulega fljótgert að
gera við bilunina. Mikil vinna
er í ísbirninum núna, er,da
berst þangað mikill fiskur.
Hefur frystihúsið fengið nokk
uð af skólafólki til vinnu
Þórunn Jóhannsdótfir hefur lokið náaí
í London; hlauf verðlaun fyrir prófið j
Heldur tvenna hljómleika fyrir styrktarfélÐgg
Tónlistarfélagsins J
ÞÓRUNN JÓHANNSDÓTT-
IR píanóleikari hefur dvalizt
hér á landi undanfarið. Lauk
hún prófi við Royal Academy
o.f Music í London sl. vor með
mikilli prýði. Var hún yngst
þeirra; er þá luku prófi og hlaut
gullverðlaun fyrir frammistö.)-
una, en aðeins þrjú slík verð-
Ja-un voru veitt.
Þórunn ræddí í gger við blaða.
menn og skýrði þe m. frá þessu,
ásamt því, er framundar. væri.
HYGGUR Á
FRAMH ALDSN ÁM
Þórunn hóf nám við. Roya!
Academy of Music aðeins 11
ára gömul og settist þá í efri
deild skólans. Var hún þá að-
eins 11 ára og var bað óvenju-
legt, að svo ungur nemandi
fengi að setjast í efri de'ldina.
Hefur hún verið 8 ár vio nám
í skólanum. 60 þreyttu burtfar.
arpróf við skólann nú og var
Þórunn langyngst, en sá næst-
yngsti var 23 ára. Hiaut Þór-
unn gullverðlaun sem fyrr seg-
ir og auk þess 200 punda styrk
Hyggst Þórunn nota síyrkinn
til framhaidsnáms Ow ætiar sér
að fara annaðhvort til Moskvu
eða Parísar og vera eitt ár við
nám til viðbótar.
HEFUR HALDIÐ
YFIR 300 HLJÓMLEIKA
Þórunn er fædd í Reykjavík,
en fór utan með föður sírum 7
■ára gömul. Hefur hún síðar aS
mestu dvalizt erlendis, en t?"ai
, , ' - •• f
þó lýtalausa íslenzku,. erdsi
sagði Þórunn í viðtalinu í gæ:,
að alltaf væri töluð íslenzk^
heima hjá sér. jí
V
Þórunn Jóhannsdóttir,
Þórunn heldur hljómleika á
vegum Tónlistarfélagsins í
kvöld fyrir styrktarmeðlim: i'é-
lagsins_ og aftur annað kvöld.
klukkan 7 í Austurbæjarbíó „
Hún lék nýlega á Akureyri og
verið getur, að hún leilki á
fleiri stöðum, Á efnisskrán ; i
kvöld verða verk eftir B c
Beethoven, Taniev, Prokct e/,
Liszt, Rawsthorne og Cho ún.
Kosning í Hreyfli hefst f da ;s
Listi andstæðinga kommúnista A-l-á;í
ALLSHERJARATKVÆÐA-
GREIÐSLA um kjör fulltrúa á
þing ASÍ £ Bifreiðastjórafélag-
inu Hreyfli fer fram í dag og á
morgun. Tveir listar eru í kjöri.
Andstæðingar kommúnista
bera fram A-Iista, en kommún-
istar bera fram B-lista.
A-listann skipa Þessir menn:
Bergsteinn Guðjónsson, Óli
Bergholt Lúthersson, Andrés
Sverrisson, Bergur Magnússon,
Bjarni Bæringsson, Ármann
Magnússon og Sveinn Sveins-
son. Varafulltrúar: Ingimundur
Ingimundarson, Kári Siguv-'
jónsson, Gísli Sigurtryggsson,
Arnljótur Ólafsson, Guðmann
Heiðmar, Jens Pálsson og Jóti
Vilhjálmsson.
FYLKIÐ YKKUR
UM A-LISTANN
Kosningin hefst kl. 1 í dag
og stendur til kl. 11 í kvöld og
kosið verður á sama tíma á
morgun. Er kosið á skrifstofu
félagsins, Freyjugötu 26. —
Stuðningsmenn A-listans cra
hvattir til þess að kjós.i
snemma. Fylkið ykkur um A-
listann og gerið sigur hans scna
glæsilegastan.
X A-listinn.
Bridgefél. Hafnar- !
fjarðar byrjar
AÐALFUNDUR Bridgefélags
| Hafnarfjarðai- var haldinn ný
I lega. Formaður var kosinn Ein
ar Halldósson og aðrir í stjórn
Sveinn Bjarnason, Sigurður
Emilsson, Gunnlaugur Guð-
mundsson og Sigmar Björns-
son.
Ákveðið hefur verið, að vetr
arstarfsemin hefjist að þ assu
sinni annað kvöld með tví-
menningskeppni. Keppnisstjórs
í vetur er Reynir Eyjólfsson og
skulu þáttttökutilkynniiigar
sendar til hans sem fyrst.
í Hafnarfirði eru að hefjasf
SPILAKVÖLD Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði eru
nú í þann veginn að hefjast. Verður það fyrsta n.k. fimmtudags
kvöld £ Alþýðuhúsinu við Strandgötu og hefst það kl. 8,30. Verð
ur tilbögun svipuð og áður. Fyrst verður spiluð félagsvist og
verðJaun veitt. Síðan verður dansað. Ekkj er að efa, að Hafn-
firðingar munu fjölmenna á þessi spilakvöld í vetur eins og
undanfarna vetur enda hafa spilakvöldið notið óskiptra vin-
sælda.