Morgunblaðið - 14.10.1976, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 14.10.1976, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1976 \ *7 Hrun pundsins — Efnahagsástand í Bretlandi Haftastefna lausn Breta? Hvernig Bretland get- ur uppfyllt kröfur Al- þjóda gjaldeyrissjódsins HVAÐ varð um efnahagsbatann sem okkur var talin trú um að tryggja mundi heiminum þann viðvarandi hagvöxt sem hann áður bjó við og bjarga Bretum úr þeirri kreppu sem yfir þá hefur dunið? Mönnum virðist nú að þessi bati muni ekki koma, að minnsta kosti ekki i jafnmiklum mæli og nauðsynlegt er. Engra skjótra ráðstafana til úrbóta virðist vera að vænta frá þeim rikjum sem búa við traustan efnahag og þvi virðast Bretar og önnur fórnarlömb kreppunnar verða að beita sér fyrir algeru endurmati á afstöðunni til efnahagsbatans ef núverandi ástand á ekki að dragast á langinn. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) varpar skýru Ijósi á það skuggalega ástand sem nú rikir I ársskýrslu sinni. Þar segir að á fyrra helmingi yfirstandandi árs hafi orðið nokkur bati eftir samdráttinn 1974—75, þann mesta sem orðið hefur i fjóra áratugi. En staðhæft er að atvinnu- leysi og verðbólga séu á óvenjulega háu stigi miðað við það að um byrjun nýrrar uppsveiflu sé að ræða og nýting tækja sé svo litil að það sé visbending um geysilega deyfð í efnahagsmálum. Hvað hefur þá farið úrskeiðis? f tizku er að skella skuldinni á tíma- bundna þætti og til dæmis sagt að rikisstjórnir séu tregar til aðgerða vilji aðeins gera varkárar ráðstafanir þar til þeim hafi orðið betur ágengt i þvi að ná tökum á afleiðingum óða- verðbólgu áranna eftir 1970. En ég hef það á tilfinningunni að rætur vandans liggi dýpra. Frá fyrstu tið hefur verið rik ástæða til að ætla að núverandi efnahagskreppa i heiminum eigi sér dýpri rætur en fjórföldun oliuverðs og öldu kauphækkana. Áður en þetta gerðist hafði dregið úr eftir- spurn eftir neyzluvörum og það virtist tengt þróun i þá átt að eftir- sókn eftir lifsgæðum væri að ná hámarki i stórum hluta hins efnaða heims. Þetta og fleiri tilhneigingar benda til þess að kreppan hafi markað upp- haf einnar þeirra stökkbreytinga sem hafa orðið öðru hverju á kerfi kapi- talismans frá fyrstu dögum hans og hætt er við að hafi sinn gang þangað til annar stór þáttur kemur til sögunnar — samanber siðari heims- styrjöldina ef miðað er við kreppuna miklu á árunum eftir 1930. Sé þétta rétt — og skýrsla IMF og fleiri visbendingar — virðast stað- festa það — er eitt Ijóst. Heiurinn kemst ekki aftur inn á braut hag- vaxtar áranna 1950—1970 með þeirri óskhyggju, með þeim vonum, sem forysturíkin hafa gert sér — þeirri kenningu að ef þau stækki markaði sina fyrir vörur annarra þjóða og gangi þannig á undan með góðu fordæmi muni öll önnur lönd geta komið gjaldeyrismálum sinum i svo gott lag að þau geti einnig komizt á rétta braut. Sannleikurinn virðist vera sá að ef þessi sjálfsánægja heldur áfram verði i bezta falli aðeins hægur bati i efnahagsmálum heimsins á næstu árum og í versta falli hnignun jafn- hliða harðnandi viðskiptastriði. Stór hluti jarðarbúa býr við skort og það er þvi hlálegt að stjórn efna- hagsmála heimsins skuli vera léleg og bera vott um getuleysi og hæfi- eftir Gordon Tether leikaskort. Nákvæm og heiðarleg rannsókn á grundvallarorsökum breytinga til hins verra I efnahags málunum kæmi að miklu haldi svo að hægt verði að ákveða mótun þeirrar stefnu sem skuli fylgja og það má heita furðulegt að engin alvarleg tilraun virðist hafa verið gerð til þess. En nú þegar má sjá að nokkrar meiriháttar umbætur eru óm issandi. Meðal annars verður að stefna að þvi að koma á fót traustu gjaldeyris- kerfi í líkingu við það sem samið var um i Bretton Woods og hélzt þangað til Bandarikjamenn kollvörpuðu þvi 1971. Án slíks kerfis mun ástandið mótast æ meir af þeirri martröð fljótandi gjaldmiðla sem menn verða að búa við nú og þeim mikla verð- bólguvaldi sem gjaldeyrismarkaðir Evrópu eru. Sterk rök mæla greinilega með þvi að gull verði notað sem grundvöllur hins nýja kerfis því það er eini gjald miðillinn sem enn nýtur nógu mikils trausts og viðurkenningar þrátt fyrir allar tilraunir Bandaríkjamanna og annarra til að grafa undan þvi og áhrifum þess. Auk þess yrði að gera ráð fyrir sveigjanlegri aðferðum til að fram- fylgja alþjóðlegum reglum um beit- ingu annarra efnahagsvopna. Það væri nauðsynleg hliðarráðstöfun til þess ætluð að milda þann aga sem strangari gjaldeyrisskráning mundi krefjast og aðrar ráðstafanir til að koma alþjóðagjaldeyrismálunum á réttan kjöl. Einkum ætti að hvetja ríki sem búa við stöðuga erfiðleika vegna óhagstæðs greiðslujöfnuðar til þess að innleiða timabundnar hömlur á innflutningi sem þau hafa ekki efni á og gera ráð fyrir þungum sektum svo þær komi að gagni. Umfram allt verður að gera ráð- stafanir til að finna nýjar leiðir til að nýta umfram vinnuafl og fram- leiðslugetu er samrýmist þörfum þróaðra landa. Nýskipunar er ekki aðeins þörf I þróunarlöndunum. Riku löndin kunna bráðlega að komast að raun um að þau hafi engu minni þörf fyrir slíka byltingu og þriðji heimur- inn er eini heimshlutinn þar sem ónýtta markaði er enn að finna. Við ættum heldur ekki að taka góða og gilda þá kenningu að slikar umbætur verði að biða unz örfá efna- hagsstórveldi telji sér þær henta. Allt verður að gera til að fá þau lönd sem hafa orðið harðast úti til sam- stilltra aðgerða f því skyni að koma nýskipan til leiðar. Og ef ekkert miðar i þá átt mæla sterk rök með þvi að gripið verði til einhliða ráð- stafana. Ef Bretar héldu þvf fram — eins og þeir gætu með góðu móti — að þeir væru svo langt leiddir að eina skynsamlega leiðin væri sú að búast til varnar á bak við múra, lýsa yfir umsátursástandi i efnahagsmálum, verðu þeir ekki aðeins eigin hags- munui heldur heilbrigt ástand i efna- hagsmálum heimsins. DR. ARTHUR Burns, forseti banda riska seðlabankans, var eitt sinn spurður að þvi hvort heimurinn ætti að hætta að sjá aumur á Bretum og neita þeim um frekari lán til að betrumbæta búskap sinn. Er Burns sagður hafa svarað þvi til að þess háttar góðgerðarstarfsemi þekktist ekki lengur i okkar veröld. Og það mun satt reynast. Þó að heyra hefði mátt á tali ýmissa banka málaforingja heimsins, sem söfnuð- ust saman á ársfund Alþjóða gjald- eyrissjóðsins f Manilla, að Bretar fengju kannski ekki alla 3.9 milljarð- ana (bandarískir dalir) sem þeir fóru fram á að fá f lán; og hvað sem þeir kunna að fá, muni ekki verða um neina góðgerðarstarfsemi að ræða. Gjaldeyrissjóðurinn gerir lítið af því að blanda sér í innanrikismál ríkja. Ef hann gerði það væri heimur- inn ef til vill ekki jafn fullur af þróunarrikjum, sem státa af velbún- urn flugfélögum og glæsilegum flug- völlum en gjaldþrota rfkiskössum. Þegar sérfræðingar gjaldeyríssjóðs ins koma f næsta mánuði til að fara f gegnum rfkisreiknrnga Bretlands þá munu þeir reka augun i margt, sem er þeim lítt að skapi en þeir munu þó að líkindum taka góða og gilda upp- skrift Denis Healeys fjármálaráð- herra að lausn á efnahagsvandanum í áföngum frekar, en krefjast rótttækra aðgerða, eins og margir bankamenn myndu vilja grfpa til. Þeir munu gera það vegna þess að þeir hljóta að fallast á viðvaranir Healeys um hvað gerast muni í Bret- landi ef lán verður ekki veitt, eða ef harðra aðgerða verður krafist. Fjár- málaráðherrann sagði f sjónvarpsvið- tali nýlega að fengju Bretar ekki lán mundi framfærslukostnaður hækka svo mikið að þrjár milljónir manna myndu verða atvinnulausir (12%) og óeirðir yrðu á götum úti. Möguleik- inn á upplausn f þvi samfélagi i Evrópu sem enn sýnir mestan stöð- ugleika, er ekki þægileg tilhugsun helztu bandamanna f Nato, Banda rikjamönnum og Vestur-Þjóðverjum, og það skýrir ef til vill af hverju Ford forseti fullvissaði James Callaghan forsætisráðherra um að Bandarikin styddu enn Bretland. En hvað sem þvi Ifður, þá mun Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn liklega krefjast einhverra aðgerða að hálfu Breta til að koma lagi á búskapinn. Má búast við að meðal þeirra að- gerða verði ráðstafanir til að draga úr peningamagni (vextir hafa þegar verið hækkaðir i 15%, innskot Mbl.) og minnka opinbera lánsfjárþörf um 3 milljarði punda, annað hvort með þvi að hækka skatta, eða draga úr greiðslum almannatrygginga og öðr- um útgjöldum rfkisins. Margt mælir með þvi að seinni kosturinn verði valinn. Bretlandi er „ofstjórnað", alltof margar skrifstof ur fjalla um sömu málin, sem verður til þess að félagsleg vandamál eru gerð flóknari en ekki leyst. Sem eftir Simon Kent dæmi má nefna að sveitarstjórnir á atvinnuleysissvæðum á skozka mið- láglendinu eru að taka lán til að byggja leiguhúsnæði fyrir atvinnu- leysingja á meðan skortur er á vinnuafli annars staðar f Bretlandi vegna húsnæðisleysis. Og húsnæðis- mál eru siauknum mæli f höndum rikisins, þvi stjórnarstefnan hefur hrakið einkaaðila frá húsbyggingum. Það sem Verkamannaflokkurinn lýsti þvi yfir fyrir skömmu að hann sé mótfallinn frekari niðurskurði á útgjöldum rfkisins, þá er sennilega ekki um annað að ræða fyrir rfkis- stjórnina en að hækka virðisauka- skatt, sem gæti haft alvarlegar af- leiðingar fyrir atvinnuástandið, en nú þegar eru 1.44 milljónir manna án vinnu, sem er það mesta siðan á fjórða áratugnum. Verkalýðsleiðtogar og aðrir vinstri- sinnar innan Verkamannaflokksins, munu snúast gegn þess háttar að- gerðum og krefjast innflutnings- hafta. Með aðeins einni eða tveim undantekningum eru brezkir verka- lýðsleiðtogar blindir fyrir umheimin- um og geta ekki áttað sig á þvf sem öðrum er augljóst: að stundi landið ekki hagkvæma verzlun muni Iffskjör versna verulega. Leiðtogi jámbrautarstarfsmanna, Framhald á bls. 28 Spenna og reiði í brezka þinginu l ond.n, II oklébrr. Rrulrr Denls Hraley. ÍJArmálarM- l^ilands. saxðl I rvAu I fyrsla Stjórnin hefur full tök á málun- iUTLsagði Healey ekki hika virt art gera neinar þa>il rártsiafann. sem hún teldi naurt| svnlegar lil art halda áællunutr. slnum á rétlri stefnu Hann bcxV ’ aði þrt engar nýjar rártslafamr artrar en reglugerð til art hvetja sparifjáreigendur. sem leggja lill fyrir, lil art gera svo. ' á 5 • ^ -M. Æ m m m * -^siriyrir, III art gera Ss&ffiSS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.