Morgunblaðið - 14.10.1976, Side 23

Morgunblaðið - 14.10.1976, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1976 23 viku, á mánudagskvöldum, og lýk- ur mótinu seinni hluta vetrar. Hlé verður um jól og einnig meðan Skákþing Reykjavíkur stendur yfir, enda er leitast við að mótið rekist sem minnst á önnur stærri skákmót á Reykjavíkursvæðinu. INNLENT SAMBAND Vestfirzkra kvenna hefur fyrir nokkru haldið sinn 46. fund og sátu hann 40 konur. Var hann á Þingeyri í síðasta mánuði og voru þar samþykktar nokkrar ályktanir. Einnig lét fundurinn í ljós stuðn- ing sinn við ýmis menn- ingarmál. Samþykkt var ályktun þess efn- is að öll sveitarfélög á Vestfjörð- um komi upp heimilum eða að- stöðu fyrir þá aldraða borgara sem þess óska og þurfa, svo þeir þurfi ekki að yfirgefa sínar heimabyggðir, er aldurinn færist yfir þá. Fundurinn telur nauðsyn- legt að vegna áfengis-, tóbaks- og fikniefnaneyzlu þjóðarinnar legg- ist allir á eitt og vinni af alefli gegn hinni sívaxandi neyzlu þess- ara efna og skorar á alia lands- menn að mynda raunhæft og sterkt almenningsálit gegn þess- ari óheillaþróun. Þá lýsir fundurinn yfir ánægju sinni með frjálsa verzlun á mjólk, sem á öðrum vörum. Einnig var látin í ljós ánægja með að á liðnu sumri var stofnað félag.á Vest- Magnús Sólmundarson sig- urvegari í skákmóti Mjölnis VETRARSTARF Skákfélagsins Mjölnis er senn að hefjast af full- um krafti. Lokið er hraðmóti, sem haldið var til fjáröflunar vegna væntanlegrar komu stórmeistar- ans M. Taimanovs, en hann mun þjálfa skákmenn á vegum félags- ins. Þátttakendur voru um 30, heldur færri en búizt var við, en hugsanlega hefur það haft áhrif að Haustmót T.R. hófst á sama Skákstjóri verður Sigurður Þor- steinsson og fer mótið fram í Fellahelli. Öllum er opin þátt- taka, svo sem í annarri starfsemi félagsins. Á fimmtudagskvöldum er félag- ið með „15 mínútna-mót“ i Skák- stofunni við Hagamel og á laugar- dögum kl. 2 er það með unglinga- starfsemi á vegum æskulýðsráðs I Fellahelli. Þá mun Mjölnir taka þátt i deildarkeppni Skáksambands Is- lands eins og í fyrra, en þá sigraði félagið með þvi að vinna alla and- stæðinga sína. Samband vestfirzkra kvenna: Tívolítrall á Sögu í kvöld Stuðmenn hafa að undan- förnu verið á „sjóðandi túr um föðurlandið“, eins og þeir sjálf- ir nefna það, þar sem þeir hafa skemmt landsmönnum við góð- ar undirtektir. Er hér um að ræða skemmtikvöid með fjöl- þættum skemmtiatriðum auk dansieikja en rammi efnis- skrárinnar er gamla Tfvolí og eru sviðsútbúnaður og búning- ar miðaðir við það. Auk Stuðmanna koma fram á Tívolitrallinu dansparið Sæmundur Pálsson og Brynja Nordquist en Sæmi er frægur rokkari frá gamalli tíð. Þá gefst samkomugestum sjálfum og tækifæri til að taka þátt i trall- inu með þátttöku i spurninga- keppni og fegurðarsamkeppni karla svo eitthvað sé nefnt. í kvöld gefst íbúum á höfuð- borgarsvæðinu kostur á að sækja Tívolítrallið á Hótel Sögu og á morgun halda Stuðmenn skemmtun sína á Stykkishólmi. Föðurlandstúrnum lýkur svo á Borg í Grimsnesi á laugardags- kvöldið n.k. Vilhjálmur Bergsson sýnir í Grindavík fjörðum til styrktar vangefnum og heitir fundurinn samtökunum stuðningi sinum. Að lokum segir i frétt frá Sambandi vestfirzkra kvenna að fundur sambandsins skori á landsmenn að kaupa og nota fyrst þær vörur sem framleiddar eru I landinu og islenzkar megi teijast og standist samanburð við það sem er erlent. VILHJÁLMUR Bergsson listmál- ari opnar I dag málverkasýningu I samkomuhúsinu Festi I Grinda- vlk, en sýningin er haldin f boði Grindavíkurdeildar Norræna fé- lagsins og bæjarstjórnarinnar. Verður hún opin á föstudags- kvöld frá kl. 8—11 og á laugardag og sunnudag frá kl. 14—22 báða dagana. Á sýningunni er 16 oliumál- verk, máluð á sl. þremur árum. Þetta er sölusýning og er verð myndanna frá 65 þúsund krónum til 190 þús. kr. Aðgangur er hins vegar ókeypis. Vilhjálmur er fæddur og uppal- inn í Grindavík, og mun vera eini Grindvikingurinn, sem gert hefur málaralist að atvinnu sinni. Hann stundaði á sinum tíma nám í Kaupmannahöfn og Paris, og hef- ur haldið fjölmargar einkasýning- ar í Reykjavik og Kaupmanna- höfn og tekið þátt í fjölda samsýn- inga heima og erlendis. Þetta er í fyrsta sinn sem Vilhjálmur sýnir verk sín opinberlega í Grindavík. Bæ jarstjórn Akureyr- ar heiðrar íþróttamenn Akureyri, 6. október. BÆJARSTJÓRN Akureyrar hef- ir heiðrað knattspyrnumenn íþróttafélagsins Þórs með 100 þúsund króna peningagjöf fyrir að vinna sig upp úr 3. deild f 1. deild á tveimur árum. Helgi M. Bergs, hinn nýráðni bæjarstjóri Akureyrar, afhenti heiðursgjöfina í hófi, sem bæjar- stjórn hélt knattspyrnumönnum og forystumönnum Þórs i bæjar- stjórnarsalnum á fimmtudags- kvöld. Haraldur Helgason, for- maður Þórs, veitti gjöfinni við- töku fyrir hönd félags síns. Er myndin frá þeirri athöfn. Þá samþykkti bæjarstjórn á fundi sfnum í gær að veita Björg- vin Þorsteinssyni, Islands- meistara i golfi, heiðursgjöf vegna íþróttaafreka hans á und- anförnum árum. Sv.P. tíma. Sigurvegari varð Magnús Sólmundarson með 6H vinning af 7 möguiegum og I öðru sæti varð Stefán Þormar með 6 vinn- inga. Vetrarmót Mjölnis hefst mánudagskvöldið 25. okt., en það er einn af megin þáttum starfsem- innar. Teflt verður einu sinni i Hvetur til stuðnings við íslenzkan iðnað MYS þjóðráð við þorsta Skyrmysa hefur um aldir veriö þjóöráö viö þorsta, og er þaö enn. Mysan er bætiefnaríkur drykkur en ekki fitandi (aöeins 10 h.e. í 100 g) og hún er ódýr (kr. 7,50 glasiö). Þaö er þvi þjóöráö aö hafa mysu við hendina i kæli- skápnum, kalda og svalandi. MJÓLKURSAMSALAN í REYKJAVÍK 2 liTRAR ji.' '• i i SJ; ■ kHH'. v •( .’-s * : MfSl Vír-Ixv, • • 1 * •

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.