Morgunblaðið - 14.10.1976, Blaðsíða 40
ai <;i,ysin<;asiminn ER:
22480
Hffor0unbtfibiíi
it}iVi0iiTOlí>I(aííii^
AL'GLYSENGASIMÍNN ER:
22480
jMorgunblatiid
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1976
Laun hækka um
3,11% l.nóvember
Framfærsluvísitalan fór yfir „rauðu strikin”
KAUPLAGSNEFND hefur
reiknað út hve mikil vfsi-
töluhækkun launa á að
verða hinn 1. nóvember
n.k. vegna ákvæða í sfðustu
kjarasamningum um að
laun skuli hækka, ef fram-
færsluvísitalan fer yfir
ákveðin mörk, „rauðu
strikin“ svonefndu. Eru
mörkin miðuð við 1.
október s.l. Niðurstaða
þessa útreiknings Kaup-
lagsnefndar er sú, að laun
þau er hér um ræðir skuli
hækka um 3,11% frá og
með næstu mánaðamótum.
Viðskiptahall-
inn um 4% af
þjóðartekjum
SAMKVÆMT nýjustu
spám Þjóðhagsstofunnar
lítur út fyrir að viðskipta-
hallinn verði um 4% af
1 3. grein rammasamnings aðila
vinnumarkaðarins 28. febrúar
1976 segir meðal annars svo:
„Ef vísitala framfærslukostnað-
ar verður hærri en 586 stig 1.
október 1976 og minnst 5,2%
hærri en visitalan 1. júní 1976,
skulu laun samkvæmt samkomu-
lagi þessu hækka frá 1. nóvember
1976 f hlutfalli við hækkun vísi-
Framhald á bls. 22
50% hækkun
á gjaldskrá
Ríkisskips
GERT er ráð fyrir, að gjald-
skrá Skipaútgerðar ríkisins
hækki um 50% á næsta ári, að
þvf er kemur fram f fjárlaga-
frumvarpi fyrir það ár, og seg-
ir f frumvarpinu að gjaldskrá
útgerðarinnar hafi dregizt
verulega aftur úr öðrum hækk-
unum á undanförnum árum.
Engu að sfður hækka framlög
rfkissjóðs vegna útgerðarinnar
um 34.1 milljón króna á árinu.
KRAFLA:
9 árekstr-
ar í gær
1 gær, miðvikudag, voru gerðar
skýrslur um 9 árekstra. Engin
meiðsl urðu og engir verulega
harðir árekstrar. 1 fyrra urðu 7
óhöpp og tveir slösuðust sama
dag.
Auk þessara óhappa er alltaf
eitthvað af óhöppum þar sem lög-
regla kemur á staðinn, en aðilar
ganga frá tjóninu hjá tryggingar-
félögum án þess að lögreglu-
skýrsla sé gerð, en það er aðallega
Framhald á bls. 22
Lundakallaball. Hann er
búsældarlegur á svipinn hann
Torfi Haraldsson f Vestmanna-
eyjum þar sem hann er-að ham-
fletta lunda f grfð og erg, en
lundakallar f Eyjum öfluðu vel
f sumar. Torfi er einmitt að
hamfletta lunda fyrir árlega
veizlu lundakalla f Eyjum, en
hún verður haldin f Samkomu-
húsinu þar n.k. föstudagskvöld
og hefst að sjálfsögðu með
lundasteik og reyktum lunda.
Sfðan skemmta úteyjamenn
hver öðrum, stfga dans, snarla
brauð, kaffi og súpu er Ifða
tekur á nótt og stfga dansinn
stundarlengi áður en þeir
stinga af með konum sfnum.
Ljósmynd Mbl. Sigurgeir.
þjóðartekjunum í ár, en f
fjárlagafrumvarpinu fyrir
næsta ár er hins vegar gert
ráð fyrir að hallinn verði
5—6% af þjóðartekjunum.
Að sögn Ólafs Davíðssonar, hag-
fræðings hjá Þjóðhagsstofnun var
að mestu gengið frá fjárlagafrum-
varpinu í september og hvað
þetta atriði snertir var byggt á
þjóðhagsspánni frá því í júní, þar
sem gert var ráð fyrir að hallinn
yrði þessi. Hins vegar væri um
þessar mundir verið að vinna að
nýrri þjóðhagsspá og í henni
hefðu línurnar nokkuð skýrzt frá
því um mitt sumar. 1 júníspánni
hefði t.d. verið gengið út frá því
að þjóðartekjurnar yrðu um 235
milljarðar króna en nú liti hins
vegar út fyrir að þær yrðu eitt-
hvað rétt rúmlega 240 milljarðar.
Samkvæmt því verður viðskipta-
hallinn í ár i kringum 10 milljarð-
ar króna.
Almannavamir falla frá
stöðvun framkvæmda
Eðlileg vinna hafin á ný — Jötunn byrjar á holu II
GUNNAR Thoroddsen
orku- og iðnaðarráðherra
sagði í viðtali við Morgun-
blaðið f gær að ráðuneytið
hefði hingað til byggt á
tillögum og umsögn sér-
fræðinga Orkustofnunar
og svo hefði verið gert að
þessu sinni. — Orkustofn-
un hefur á að skipa sér-
fræðingum á öllum sviðum
þeirrar starfsemi, sem
fram fer við Kröflu og
stofnunin hefur frá upp-
hafi haft með rannsóknir f
sambandi við virkjanirnar
að gera. Á niðurstöðum
Orkustofnunar hefur því
verið byggt en ekki á því
hvað einstakir sérfræðing-
ar utan stofnunarinnar
hafa látið f Ijós, sagði ráð-
herra.
— Sérfræðingar frá Orkustofn-
un voru nyrðra í allan gærdag og
eftir að þeir höfðu borið saman
bækur sínar voru niðurstöður
þeirra birtar í greinargerð frá
Boris Spassky í viðtali við Morgunblaðið:
„Kem að tefla á ís-
landi ef boð berst”
Orkustofnun, sem birt var I fjöl-
miðlum í dag. Að þeirri greinar-
gerð stóðu 6 sérfræðingar, sem
fóru norður og könnuðu málið.
Niðurstöður Orkustofnunar voru
að rétt væri að halda framkvæmd-
um áfram.
— Almannavarnaráð ríkisins
hafði ekki samband við Orku-
stofnun eða sérfræðinga hennar
þegar ráðið sendi út sína yfirlýs-
ingu um málið. Almannavarnir
höfðu ekki nægilegar upplýsingar
um málið, en nú hefur verið úr
því bætt og Almannavarnir hafa
fallist á að starfseminni verði
haldið áfram, sagði Gunnar Thor-
oddsen að lokum.
Jakob Björnsson orkumála-
stjóri sagði í samtali við Mbl. í
gærkvöldi að unnið væri að því að
flytja Jötun frá holu 9 og á bor-
stæði holu II og mun borinn
væntanlega hefja vinnu þar eftir
nokkra daga. „Þessi hver kraum-
ar enn,“ sagði orkumálastjóri, „og
það rýkur gufa úr honum, en leir
slettist ekki. Um skjálftavirknina
á svæðinu er það að segja að hún
Framhald ð bls. 22
Útilokað að meta hvor er sterk-
ari, Fischer eða Karpov
ÞEGAR Morgunblaðið ræddi
við Boris Spassky 1 gær þar sem
hann dvelst f leyfi að heimili
tengdaforeldra sinna 1
námunda við Grenoble f Frakk-
landi, sagði hann að útilokað
væri að gera sér grein fyrir því
hvor mundi hafa betur, Bobby
Fischer eða Anatoli Karpov, ef
af einvfgi þeirra yrði á næst-
unni. Spassky kvaðst eiga góðar
minningar frá Islandi, enda
þótt á ýmsu hefði gengið í ein-
vfgi þeirra Fischers, og væri
hann reiðubúinn til að koma t'l
lslands og tefla, fengi hann
slfkt boð.
— Mér skilst, að Fischer æfi
ekki að staðaldri, þannig að það
er ekki vfst, að hann sé undir
það búinn að mæta Karpov nú,
þótt ég vilji ekkert fullyrða um
þetta. En ég get hins vegar
slegið því föstu, að Fischer
hefði sigrað Karpov hefðu þeir
teflt fyrir fjórum árum.
Spassky sagðist ekki hafa
teflt síðan í Manila í júlímánuði
s.l., en æfði þó af kappi um
þessar mundir. Um fyrirætlan-
Boris Spassky. Myndin var tek-
in. þegar eínvígi þeirra
Fischers stóð hér f Reykjavfk
fyrir f jórum árum.
ir sínar á næstunni sagði hann
að allt væri óákveðið, en þó
væri hann ákveðinn f að fara til
Parísar eftir hálfan mánuð.
Um þá ákvörðun sovézka
stjórmeistarans Viktors
Korshnoi að yfirgefa Sovétrfk-
in og setjast að f Hollandi, hafði
Spassky þetta að segja:
— Mér er kunnugt um, að
Korchnoi átti við mikil vanda-
mál að stríða, en hér er um að
ræða einkamál hans, og ég kæri
mig ekki um að tjá mig frekar
um þau. En ég held að þessi
vandamál hafi verið svjpuð
þeim, sem ég átti við að stríða á
sfnum tfma, og ég get líka skýrt
frá því að f febrúarmánuði árið
Framhald á bls. 22
Friðrik og Guðmundun
Jafntefli
hjá báðum
FRIÐRIK Ólafsson gerði jafn-
tefli við Gligoric f 13. umferð
skákmótsins f Júgóslavfu f gær og
Guðmundur Sigurjónsson gerði
jafntefli við Ivkov. 1 13. umferð
eru þau úrslit kunn að Hort vann
Velimirovic, Smejkal og Garcia
gerðu jafntefli, Deze og Notaros
gerðu einnig jafnt, en aðrar skák-
ir fóru f bið.
Framhald á bls. 22