Morgunblaðið - 27.11.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1976
27
Laundóttirin''
eftir Morten Korch
KOMIN er út þýdd skáldsaga,
„Laundóttirin", eftir Morten
Kroch. Er það önnur bók
höfundar, sem þýdd hefur verið á
fslenzku.
A kápusiðu segir m.a.: „Laun-
dóttirin hefur orðið ákaflega vin-
sæl I heimalandi höfundar og
selst þar I stórum upplögum. Hér
er lika um frábæra sögu að ræða,
bæði spennandi og hugþekka.
Hún segir frá óðalsbóndanum
Kláusi Munk og baráttu hans við
að halda erfðalandi sinu óskiptu.
Hann er ókvæntur eftir þvl sem
bezt er vitað, en ýmislegt kemur á
daginn áður en sögunni lýkur og
m.a. að hann á laundóttur."
Ólafur H. Einarsson islenzkaði
bókina. — Utgefandi er Sögusafn
heimilanna.
Mýrargata verður nú þjónustugata fyrir höfnina en ekki tengigata og þarf þvf ekki að fjarlægja eins
mörg hús og gert var ráð fyrir I skipulaginu frá 1967. Þessi fremst til vinstri eiga þó samt að fara.
innar I SV, verði sú skerðing um-
fram ákveðið mark.
Fossvogsbraut
óákveðin
Fossvogsbraut, sem er I fram-
haldi af Hllðarfótavegi, hefur enn
ekki verið felld niður á kortum,
enda lagt til að ákvörðun um
breytingu á braut á mörkum
kaupstaðanna i Fossvogsdal verði
skotið á frest. En I gildi er sam-
komulag milli Reykjavíkur og
Kópavogskaupstaðar ^þar sem
ákveðið er að Fossvogsbraut verði
ekki lögð nema með samþykki
beggja. Frestinn átti að nota til að
endurskoða umferðarkerfi höfuð-
borgarsvæðisins, sérstaklega til ¦
athugunar á nauðsyn Fossvogs-
brautar, með hvaða hætti mætti
gera hana svo úr garði að hún
valdi sem minnstri röskun á um-
hverfi Fossvogsdals, ef nauðsyn-
legt reynist að leggja hana, og
athugun á samtenginu útivistar-
svæðanna I dalnum báðum megin,
skógræktarstöðvar Skógræktar-
félags Reykjavlkur og útivistar-
svæðis í landi Lundar. Enn eru
menn ekki sannfærðir um að
hægt verði að fella niður braut-
ina, eins og hún var fyrirhuguð.
Valkostir yrðu þá kannski þeir að
auka mjög umferð um Bústaða-
veg, sem fer i gegnum Ibúða-
hverfi, eða gera sex akreinar á
Miklubraut, sem ekki getur þó
orðið alla leið, I vestur vegna
byggðar.
Eitt af meginverkefnum við
endurskoðun Aðalskipulags
Reykjavikur hefur verið gerð
nýrrar umferðarspár fyrir
Reykjavik. Hefur I Þróunarstofn-
un verið gert til þess reiknilikan
af umferð bifreiða á höfuðborgar-
svæðinu, sem er litið á sem eina
heild'. I reiknillkaninu má rann-
saka umferðarlegar afleiðingar
mismunandi landnotkunar og
gatnakerfa. T.d. hefur verið rann-
sakað, hvaða afleiðingar það hefði
I för með sér fyrir umferðina að
sleppa Fossvogsbraut úr gatna-
kerfi Reykjavíkur. En það mál
liggur sem sagt ekki enn ljóst
fyrir, og því er Fossvogsbraut enn
á kortum, eins og verið hefur síð-
an síðasta aðalskipulag var gert.
Þess má geta hér, að I umferðar-
spá aðalskipulags Reykjavlkur
1975—1995 er gert ráð fyrir að
fólksbllar á hverja 1000 Ibúa
verði 466 árið 1995, en þeir voru
305 í árslok 1975 I Reykjavik.
Fólksbílar á höfuðborgarsvæðinu
verða þá um 73.000 árið 1995
(miðað við 157.000 íbúa á höfuð-
borgarsvæðinu), en þeir voru
36.000 I árslok 1975. Umferð
fólksbíla er um 80% af heildar-
umferð og eru vaxandi hluti af
umferðinni.
Nýjar
aðalbrautir
I tillögu skipulagsnefndar er
lagt til að gerð verði ný stofn-
braut milli Suðurlandsvegar og
Vesturlandsvegar. Og hvað nýjum
tengibrautum viðvikur, þá er lagt
til að Klapparstigur og Vitastlgur
komi í stað Frakkastígs, Vonar-
stræti i stað Kirkjustrætis, fram-
hald Tryggvagötu verði tengi-
braut, en það yrði þá ný gata milli
Mýrargötu og Nýlendugötu, Og
loks að Stekkjarbakki, milli Alfa-
bakka og framhalds Fossvogs-
brautar, verði tengibraut.
Á nýjum byggðasvæðum er
bætt við 4 nýjum tengibrautum
og tekin frá svæði fyrir stofn-
braut og tengibrautir, sem álitið
er að þurfi að koma eftir næsta
skipulagstlmabil. Auk þess er tek-
ið frá landsvæði fyrir ónefnda
stofnbraut frá Suðurlandsvegi við
Rauðavatn austan við Breiðholts-
byggð til suðurs.
Ofanbyggðavegur
Þessi vegur, sem kallaður hefur
verið til bráðabirgða Ofanbyggða-
vegur, kemur af Suðurlandsveg-
inum við Rauðavatn og tekur
sveig til vesturs hjá hesthúsun-
um. Siðan sveigir hann aftur til
suðurs við Breiðholtsbyggðina og
fer að austanverðu við Breiðholt
II.
Háaleitisbraut
ekki lengri
Inni I borginni er nú lagt til að
ýmsum fyrri áformum um tengi-
brautir verði breytt eða þau felld
niður. Má þar nefna:
Samfelld tengibraut um Kirkju-
stræti, Amtmannsstlg og Grettis-
götu, sem áformað var, að breytist
þannig að hver þessara gatna um
sig verður að safngötu eða húsa-
götu. Þá er hætt við að gera
Frakkastlg að tengibraut.
Fyrirhuguð Dalbraut milli
Sundlaugavegar og Holtavegar,
neðan við Laugaráshúsin, er felld
út og Dalbrautin þaðan og út á
Kleppsveg verður ekki gerð að
tengibraut eins og ætlazt var til
fram að þessu.
Háaleitisbraut er felld út milli
Bústaðavegar og Fossvogsbraut-
ar. Flókagata verður ekki tengi-
braut milli Lönguhlíðar og
Snorrabrautar, eins og áformað
hafði verið.
Framhald Breiðholtsbrautar,
austur fyrir Breiðholt III, fellur
alveg niður. Og ónefnd tengibraut
í Breiðholt II er líka alveg felld
niður.
Þá eru ónefndar tengibrautir I
Borgarmýrarhverfi-og Lónsbraut
alveg felldar niður sem tengi-
brautir.
Loks má geta þess, að hætt hef-
ur verið við brautina, sem einu
sinni var gert ráð fyrir að lægi
upp Elliðaárdalinn, en kapp var
lagt á að losna við hana til að
halda þessu útivistarsvæði frið-
sælu, en Höfðabakki mun liggja á
brú yfir árnar og tengja saman
Árbæjarhverfi og Breiðholtin.
Hér hefur í stórum dráttum
verið gerð grein fyrir þeim breyt-
ingum, sem Skipulagsnefnd
Reykjavíkur leggur til að gerðar
verði á áður samþykktu aðal-
gatnakerfi Reykjavlkur, þ.e.
stofnbrautum og tengibrautum. Á
meðfylgjandi korti munu menn
geta áttað sig á aðalgatnakerfinu
eins og lagt er til að það verði á
næstu 20 árum.
Hérmeð tilkynnist að BRAUN AG,
Kronburg, V-Þýzkalandi,hefur
veitt okkur undirrituöum
einkaumboö á íslandi fyrir
neðangreindar framleiösluvörur
sínar:
Leifturlampa
Sýningarvélar fyrir skyggnur
Nizo kvikmyndatökuvélar
Kvikmyndasýningarvélar
Höfum fyrirliggjandi 5 geröir af þessum
heimsþekktu leifturlömpum.
BRAUN hefur leifturljós fyrir alla, jafnt
þyrjandann sem atvinnumanninn. .
Þá höfum vió fyrirliggjandi hina fráþæru D-300
sýningarvél fyrir skyggnur
Lítið inn til okkar og skoðið
BRAUN vörurnar
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI
S 20313
GLÆSIBÆ
S 82590
Jólamarkaður — Jólamarkaður
Aðventukransar — Aðventukransaefni
Mikið úrval þurrskreytinga.
KRIN6LHMVIRfmBRfíUT
GRR9SH0RN
OPIÐ ALLA DAGA
FRÁ KLUKKAN 10 TIL 22
Kertamarkaður —
Pottaplöntumarkaður
Fallegar ódýrar jólastjörnur.
GARÐSHORN
Við Reykjanesbraut
Fossvogi
Sími 40500
T
27. og 28.
nóvember
frá kl.1000-1800
ufod
FORD UMBOÐIÐ
Sveinn
Egilsson hf
SKEIFUNNI17
SiMI 85100