Morgunblaðið - 27.11.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÖVEMBER 1976
29
hennar jafnvel enn hærra i list-
um, en það hefur lækkað veru-
lega við aukið framboð. Lág-
marksboð þessarar f jórblokkar,
sem mynd fylgir af hér i
þættinum, er þrátt fyrir allt 50
þús. krónur. Þá verður boðin
upp fjórblokkasería af Gull-
fossmerkjum frá 1931/32, og er
hún metin á 80 þús. kr., enda
eru f jórblokkir sumra verðgild-
anna afar sjaldséðar. Fjöldi
annarra fjórblokka verður
boðinn upp, en of langt mál er
að greina nákvæmlega frá
þeim. Vonandi hafa lesendur
þessa þáttar, margir hverjir
a.m.k. þegar haft tækifæri til að
glugga sjálfir i uppboðsskrána.
A uppboðinu er mikið af
stökum frímerkjum,
stimpluðum og óstimpluðum,
og eins í tvenndum (pörum).
Hér eru stimpluð 2, 3 og 8 sk.
merki frá 1873, en öll eru þau
eftirstimpluð — sem svo er
kallað, þ.e. stimpluð eftir þann
tima, sem þau giltu til burðar-
gjalds. Er mikill fjöldi slíkra
eftirstimplaðra skildinga-
frímerkja til, þvi að töluvert
var óselt af þeim, þegar þau
voru tekin úr umferð 1876—77.
Áður fyrr söfnuðu menn helzt
ekki óstimpluðum merkjum og
þá var ekki annað að gera en fá
þessi ógildu merki stimpluð á
pósthúsunum. Þess var hins
vegar ekki gætt, að merkin
voru fyrir bragðið oft stimpluð
með póststimplum, sem teknir
voru í notkun mörgum árum
eftir gildistima merkjanna. Er
yfirleitt vandalítið að þekkja
eftirstimpluð frlmerki frá
raunverulega póststimpluðum
merkjum. Af sjálfu sér leiðir,
að hin fyrrnefndu eru í miklu
Frimerki
eftir JÓN
AÐALSTEIN
JÓNSSON
lægri verðflokki en þau
frfmerki, sem eru sannanlega
með ekta stimpli. Engu að siður
er verð þeirra allhátt. T.d. er 8
sk. merkið metið á 36 þús. kr.
og3 sk. á25 þús. kr.
Allmargt svonefndra aura-
frimerkja verður boðið upp, en
þau tóku við af skildinga-
merkjunum 1876 og eru sum
hver mjög sjaldgæf. Dýrast
þeirra er yfirprentað 5 aura
frímerki frá 1897, þrir/3,
stimplað, sem hér er metið á 80
þús. kr. en i Facit er það verð-
lagt á um 145 þús. ísl. kr. Saga
þessarar bráðabirgðaútgáfu
1897 er um flest hin sér-
stæðasta í íslenzkri frimerkja-
sögu og á ýmsa lund torráðin.
Sama er að segja um yfir-
prentuðu auramerkin frá 1902.
I GILDI ’02—’03 en á uppboð-
inu er töluvert af þeim, t.d. I
óstimpluðum örkum og arkar-
hlutum og svo tvenndir (pör)
og stök. Þá eru lfka alls konar
afbrigði í yfirprentun, þar sem
vantar stafi t.d., og svo með
yfirprentun á hvolfi. Allt er
þetta áhugavert fyrir sérsafn-
ara en þó má vissulega efast um
uppruna sumra yfirprentan-
anna. Hér hætti ég mér ekki út
í umræðu um það efni, þvi að
það yrði allt of langt mál I þess-
um þætti. Margs konar önnur
afbrigði frimerkja verða boðin,
upp, t.d. merki með öfugu
vatnsmerki.
Nokkur hversdagsbréf verða
boðin upp frá árunum milli
1920—40, en ég ræddi dálítið
um slik bréf síðast. Verður
vissulega fróðlegt að fylgjast
með boðum i þau, enda má
búast við alimikilli eftirspurn.
Þau eru flest virt á 1500—4500
kr., en mér kæmi ekki á óvart,
þótt sum þeirra færu á allmiklu
hærra verði en það, og miða ég
þá við reynslu fyrri uppboða.
Fyrstadagsumslög verða boð-
in hér upp, og eru sum þeirra
frá því fyrir 1940. Þessum lin-
um fylgir mynd af skemmtilegu
umslagi frá 1939 með Heim-
sýningarmerkjunum. Margur
miðaldra Reykvikingur og
þaðan af eldri man vel hinn
landskunna þolhlaupara,
Magnús Guðbjörnsson, en hann
var einnig vel þekktur póst-
maður. Hér sendir hann sjálf-
um sér þetta ábyrgðarbréf. Hef-
ur hann notað umslag Iþrótta-
félags sins, og mun það ylja
gömlum K.R.-ingum að sjá það
hér. Fyrstadagsbréf frá þessum
árum eru næsta sjaldséð.'enda
voru þá ekki margir byrjaðir að
hugsa um slíka stimplun. Þá
var ekki heldur farið að nota
sérstaka stimpla í þessu skyni.
Ef ég man rétt gerðist það ekki
fyrr en 1949, er Líknarmerkin
komu út. Til þess að sýna, að
hér væri um fyrstadagsumslag
að ræða var notazt við annan
stimpil, svo sem sjá má á þessu
umslagi.
Ekki kæmi mér á óvart, þótt
stimplasafnarar fyndu eitthvað
á þessu uppboði, bæði kórónu-
og tölustimpla, og eins toll-
stimpla.
Ekki verður skilizt svo við
þennan þátt, að ekki verði getið
hins nýja 100 króna frímerkis,
>*■*** • a a á > > ft.l
sem gefið verður út næsta
fimmtudag, 2. desember.
Kemur það út í tilefni þess, að
Alþýðusamband íslands varð
60 ára 12. marz. sl. Var það
stofnað sem stjórnmálaflokkur
og samband verkalýðsfélaga.
Fékk það fyrst mann kjörinn á
Alþing 1923. Árið 1940 var
ákveðið að skilja i sundur
stjórnmálastarf og kjaramál. í
upphafi voru félagar I Alþýðu-
sambandinu 600, en þeir eru nú
um 43 þúsund. Þing þess er
haldið hér I Reykjavik um þess-
ar mundir, og fer þvi vel á, að
minningarfrímerkið komi út
um það leyti.
Ekki hef ég séð sjálft
frímerkið, en í tilkynningu
póststjórnarinnar er það sagt
marglitt. Það er teiknað af
Eddu Sigurðardóttur á Auglýs-
ingastofu Gisla B. Björnssonar,
en prentað hjá Courvoisier S/A
í Sviss. Merkið er að sjá
stilhreint, en fallegt finnst mér
það ekki eftir myndinni að
dæma. Þau frimerki, sem aug-
lýsingateiknarar hafa teiknað
fyrir íslenzku póststjórnina,
bera að mínum dómi of mikinn
keim af auglýsingateikningum.
En ég skal fúslega játa, að hér
geta litir mgrkisins skipt veru-
legu máli, þegar dæma á um
fegurð þess eða ljótleika.
Myndin er tekin hjá bridgefélaginu Ásunum f vetur. Ármann J.
Lárusson (f lopapeysu) spilar hér við son sinn Sverri. Andstæðing-
ar þeirra að þessu sinni voru sveitarfélagar Ármanns hjá BK,
Ragnar Björnsson og Haukur Hannesson. Á næsta borði lengst til
hægri er spilafélagi Ármanns hjá BK, Lárus Hermannsson, en sveit
Ármanns er sem kunnugt er f efsta sæti i aðalsveitakeppni BK.
Sigurður Sigfússon —
Þórarinn Sigþórsson 128
Ólafur Jóhannesson —
Ásmundur Pálsson 126
Meðalárangur 110
Heildarstaðan í yngri flokkn-
um:
Tryggvi Bjarnason 259
Jóhann Sveinsson 250
Jóhannes Gislason 244
Skúli Einarsson 241
Vigfús Pálsson 240
Ásmundur Pálsson er efstur i
eldri flokknum með 252 stig.
Eftir þetta kvöld höfðu útgefin
meistarastig BR dreifst á 109
spilara. 22 spilarar hafa hlotið
yfir 100 stig og eru eftirtaldir
einstaklingar efstir:
Ásmundur Pálsson 231
Stefán Guðjohnsen 195
Guðmundur Pétursson 189
Simon Simonarson 188
Guðlaugur R. Jóhannsson 172
örn Arnþórsson 172
Guðmundur Arnarson 170
Jón Baldursson 168
25 spilarar höfðu 50—99 stig
en aðrir hafa minna.
Stigatafla BSÍ
fyrir 32 spila leik
EBL-stig IJrslit
0 - 2 — 10 - 10
3 - 6 — 11 - 9
7 - 10 — 12 - 8
11 - 14 — 13 - 7
15 - 19 — 14 - 6
20 - 24 — 15 - 5
25 - 29 — 16 - 4
30 - 35 — 17 - 3
36 - 41 — 18 - 2
42 - 48 — 19 - 1
49 - 64 — 20 - 0
65 - 74 — 20 - mínus 2
75 - 84 — 20 - mínus 3
85 - 99 — 20 mfnus 4
100 og yfir 20 -mínus 5
Þakkarorð
Sr. Óskar J. Þorláksson, fyrrv.
dómprófastur, hefur beðið
Morgunblaðið að flytja eftir-
farandi þakkarorð:
„Flyt öllum vinum minum og
velunnurum, nær og fjær, hug-
heilar þakkir fyrir alla vinsemd
og virðingu, er ég lét af embætti
1. nóv. s.l. Ennfremur þakka ég af
hrærðu hjarta allan hlýhug, gjaf-
ir og góðar kveðjur i sambandi við
afmæli okkar hjónanna, þann 5.
og 12. nóv. s.l.
Sendum öllum vinum okkar
innilegustu kveðjur og blessunar-
óskir.
Elfsabet Arnadóttir
Óskar J. Þorláksson."
ara andlita sjást að ári, segir
Guðmundur, og það stenst fylli-
lega. Því hlýtur það að vera
hlutverk Bridgesambandsins
að taka að sér hlutverk uppeld-
is og forfrömunar I þessari
íþrótt sinni. Við hinir, undir-
staða BSI, getum verið nánustu
ættingjar sem ávallt erum til
staðar, ef þörf er fyrir okkur.
Bridgesambandið hefur verið
blessunarlega laust við nefnda-
fargan og pappirsvesen, en á
stundum getur verið þörf fyrir
slíkt, sérstaklega þegar virkni
stjórnar er I lágmarki. Á fundi
BSI I spet. sl. var fjallað um
ýmis málefni þess, en flestu vis-
að til stjórnar. Ein tillagan var
um erindreka á vegum BSI,
sem gæti farið um landið, til
þeirra staða sem þess óskuðu,
og leiðbeint og útskýrt. Þetta er
nauðsyn, og hefur verið I fjölda
ára. Við sem studdum þessa til-
lögu fyrir 2 mánuðum, styðjum
hana enn. Það sem okkur vant-
ar að vita, er áhugi og vilji
félaganna úti á landi. Einnig
hef ég saknað skrifa frá þeim,
fréttir berast ekki frá félögun-
um og enginn veit neitt í sinn
haus. Hvar er félagskenndin og
samstaðan?
Hvernig væri að heyra í full-
trúum félaganna úti á lands-
byggðinni? Það eru áreiðanlega
margir, sem fýsir að frétta af
hinum óliku stöðum, og um-
fram allt gagnrýni og betri til-
lögur til handa íþróttinni.
Skrifið nú, Isafjörður, Horna-
fjörður, Siglufjörður, Skaga-
fjörður, Egilsstaðir, Dalvík,
Vopnafjörður, Húsavík og allir
hinir staðirnir.
Með þökk fyrir birtinguna,
Ólafur Lárusson BÁK
BRU.
Tryggvi Bjarnason
efstur yngri spil-
ara í blönduðu
keppninni hjá BR
önnur umferð í hinni svo-
kölluðu blönduðu keppni
Bridgefélags Reykjavfkur var
spiluð á þriðjudaginn var og
urðu úrslit þessi:
A-riðill:
Tryggvi Bjarnason —
Högni Torfason 137
Jóhann Sveinsson —
ViðarJónsson 124
Steiiiberg Ríkarðsson —
PállBergsson 119
B-riðill:
Jóhannes Gislason —
Hjalti Elíasson 136
Jólasundmót öryrkja 1976
25. nóv. - 13. des.
(nafn)
(aldur)
I
l Sundstaður:_______
I
l ..
l^Ororka vegna:_
l
I Sendist
] til Í.S.Í.
I Box 864, Reykjavík.
(heimilisfang)
(tilgreinið t.d. lömun, fötlun, blinda, vangefni p.s.frv.
Þátttöku staðfestir