Morgunblaðið - 17.12.1976, Blaðsíða 1
I
64 SÍÐUR
278. tbl. 63. árg.
FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Samstaða um hækkun
olíuverðs 1 siónmáli
Yamani olíurádherra Saudi Arabiu
kom aftur til fundarins í gærkvöldi
Doha, Gatar, 16. des. Ntb. Ap. Reuter.
VERÐ A OLtU mun að öllum
lfkindum hækka á næsta ári um
10—15% að þvl er forseti OPEC-
ráðstefnunnar f Gatar greindi
fréttamönnum frá f kvöld. Hann
sagði að formleg samþykkt hefði
ekki verið gerð en hann undir-
strikaði að hækkunin yrði aldrei
minni en tfu prósent, en færi
Alvarleg líd-
an Gilmore
Salt Lake City, 16. des. Ntb.
LÍÐAN Garys Gilmores
var alvarleg i kvöld og
hann var sagður í lífs-
hættu, eftir að hafa gert
enn eina tilraun til að
svipta sig lífi með því að
taka of stóran skammt
lyfja.
Dómstóll f Utah ákvað í gær
að Gilmore yrði leiddur fyrir
afstökusveit hinn 17. janúar,
en Gilmore hefur sjálfur kraf-
izt þess að verða tekinn af lífi
sem fyrst. Hann er nú á sjúkra-
húsi i Salt Lake City. Gilmore
hefur hvað eftir annað itrekað
að hann vilji frekar deyja en
eyða því sem eftir er ævinnar í
fangelsi.
heldur ekki yfir 15%. Meirihluti
fulltrúa vilja að oliuverð hækki
um 15% og ýmsir meira. Ollu-
málaráðherra Saudi Arabiu,
Ahmed Zaki Yamani, fór hins
vegar f fússi heim af ráðstefn-
unni f morgun, þegar ljóst var að
hann stóð einn með þá tillögu að
olíuverð yrði fryst f sex mánuði
með tilliti til efnahagserfiðleika
Vesturlanda. Hefur Yamani hald-
ið þvf fram að eðlilegt væri að
bfða með hækkun meðan Vestur-
Iönd hefðu ekki yfirstigið efna-
hagserfiðleika sfna, þvf að of mik-
il olfuverðshækkun myndi á end-
anum bitna harðast á olfuríkjun-
um sjálfum. Seint f kvöld kom
Yamani svo aftur til Gatars.
Áreiðanlegar heimildir á ráð-
stefnunni töldu þó að enda þótt
Saudi Arabia hefði risið mjög
öndverð gegn olíuverðshækkun
mundi hún að lokum fallast á
málamiðlun. Yamani hefur sagt
áður að hann myndi af tillitssemi
við önnur Opec-ríki vera tilleiðan-
legur til að sættast á oliuhækkun
af hún færi ekki yfir 10 prósent. 1
kvöld var jafnvel búist við því að
stjórn Saudi Arabiu myndi óska
eftir þvf að Yamani færi aftur til
ráðstefnunnar eftir að hann hefði
Framhald á bls. 15
SlÐUSTU FRÉTTIR
SEINT f kvöld barst sú tilkynning
frá OPEC-fundinum að ellefu af
þrettán rfkjum hefður ákveðið að
hækka olfuverð um 10%, en
Saudi Arabia og Sameinuðu arab-
isku furstadæmin myndu aðeins
hækka olíuverð um 5%.
Ford verður
prófessor
Washington, 16. des. Ntb. Reuter.
GERALD Ford Banda-
rikjaforseti sagði í dag að
hann hefði ákveðið að
ganga að tilboði sem hon-
um hefur borizt um að
verða gestaprófessor við
háskólann í Michigan, en
þar nam hann sjálfur á
sínum tima. Ford vildi
ekki tjá sig um það hvaða
greinar hann myndi
kenna „en það verður
varla í sögu Austur-
Evrópuþjóða," sagði
hann og átti þar við hina
óheppilegu yfirlýsingu
sem hann gaf í sjónvarps-
einviginu við Carter um
að Austur-Evrópa væri
ekki á áhrifasvæði Sovét-
ríkjanna.
Spænska stjórnin vann
algeran yfirburðasigur
Madrid, 16. des. AP. Reuter.
AODOLFO Martin Villa innan-
rfkisráðherra tilkynnti f dag að
umbótaáætlun spænsku stjórnar-
Forsætisráðherra Líbanons, dr. Salim Al Hoss, sést hér ásamt eigin-
konu sinni Leilu. Dr. Hoss sem er hagfræðingur hefur þegar tekið til
óspilltra málanna við að reisa við efnahag landsins og þótti jákvætt
hversu fljótur hann var að mynda rfkisstjórn. Um hálf milljón
líbanskra flóttamanna eru nú komnir heim aftur og bendir það til að
borgarar hafi og trú á þvf að friður sé nú tryggður í landinu.
innar hefði verið samþykkt með
94.2% greiddra atkvæða f þjóðar-
atkvæðagreiðslunni f gær og kall-
aði úrslitin „dæmi um frábæran
þegnskap“.
98.8% atkvæða höfðu verið tal-
i:i þegar Martin Villa innanrfkis-
ráðherra skýrði frá þessu. 22.25%
spænskra kjósenda, sem eru 23
milljónir, höfðu setið heima,
2.6% greitt atkvæði gegn áætlun-
inni og 2.5% skilað auðum eða
ógildum kosningaseðlum.
Stjórnmálasérfræðingar köll-
uðu úrslitin glæsilegan sigur fyrir
Adolfo Suarez íörsætisráðherra
og Juan Carlos konung. Vinstri-
leiðtogar kváðust ánægðir með
fjölda þeirra sem sátu heima, en
kommúnistaleiðtoginn Simon
Sanchez Montero sagði að þeir
sem hefðu samþykkt áætlunina
„hefðu fremur kosið lýðræði en
umbætur." Martin Villa kvað
stjórnina hæstánægða með 75%
kjörsókn sem hann kvað mjög
mikla í kosningum sem þessum.
Stjórnin itrekaði í dag að bann-
inu við starfsemi kommúnista-
flokksins yrði ekki aflétt fyrir
þingkosningarnar sem eiga að
fara fram i vor. Hins vegar sagði
Andreas Reguera Guajardo upp-
lýsingaráðherra að nýkjörið þing
mundi taka afstöðu til bannsins.
Jafnframt stendur stjórnin
frammi fyrir erfiðri ákvörðun í
máli forseta ráðgjafanefndar
ríkisstjórnarinnar, Antonio Maria
de Oriol y Urquijo sem vinstir-
sinnaðir hryðjuverkamenn hóta
að myrða á miðnætti á morgun ef
stjórnin sleppir ekki 15 vinstri-
sannum úr fangelsi og sendir þá
flugleiðis til Alsir.
Rauði krossinn skoraði eindreg-
ið á mannræningjana í dag að
Framhald á bls. 15
Adolfo Suarez
Niðurskurður
fordæmdur
Vidrædunum vid
EBE lvkur í dag
VIÐRÆÐUFUNDUR fulltrúa
lslendinga og Efnahagsbanda-
lagsins um fiskveiðimál hófust
I Briissel í gærmorgun og eins
og ráð hafði verið fyrir gert er
Tómas Tómasson sendiherra
formaður fslenzku nefndar-
innar, en Finn Olof Gundelach
form. viðræðunefndar Efna-
hagsbandalagsins. Fundir
munu einnig verða á föstudag.
Morgunblaðið reyndi án
árangurs að ná í Tómas Tómas-
son sendiherra til að spyrja um
gang viðræðnanna og sömu-
leiðis var reynt að ná í Finn
Olof Gundelach, en dagurinn
mun hafa verið mjög anna-
samur njá Gundelach þar sem
hann átti einnig viðræður við
fulltrúa Norðmanna eins og
segir frá siðar I fréttinni.
Yfirmaður á einkaskrifstofu
Gundelachs, Petersen, sagðist
ekkert um fundina geta sagt.
Hann sagði að aðilar hefðu
neitað að gefa nokkrar yfir-
lýsingar til fjölmiðla, en hann
tók fram að þeir Gundelach og
Tómas Tómasson hefðu einnig
átt með sér einkaviðræður og
siðan hefðu sendinefndirnar
komið saman til fundar.
Einar Ágústsson utanrikis-
ráðherra sagði aðspurður við
Framhald á bls. 15
London, 16. des. Reuter. AP.
SPARNAÐARRÁÐSTAFANIR
brezku stjórnarinnar sættu
harðri gagnrýni verkalýðshreyf-
ingarinnar í dag en leiðtogar
hennar kváðust mundu standa við
loforð sin um að gæta stillingar í
kaupkröfum.
Reiðin beinist mest gegn hækk-
uðu matvælaverði og lækkun út-
gjalda til húsnæðismála og
menntamála en þó er viðurkennt
að sparnaðarráðstafanir séu nauð-
synlegar til að tryggja lán frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
(IMF) að upphæð tæplega fjóra
milljarða punda.
Len Murray, aðalritari verka-
lýðssambandsins (TUC), sagði að
samstarfinu við ríkasstjórnina
yrði haldið áfram en það felst í
því að verkalýðshreyfingin gæti
hófs í kaupkröfum gegn þvi að
stjórnin taki jákvæða afstöðu til
velferðarmála.
Murray tók fram að þetta sam-
starf mundi ekki reynast eins
auðvelt og áður og spáði hörðum
samningum þegar samkomulagið
rennur út í ágúst. Hann taldi úti-
Framhald á bls. 15
Þjóðaratkvæði
um sjálfsstjórn
London 16. des. Ntb.
BREZKA rikisstjórnin kunn-
gerði I dag að ákveðið hefði
verið að halda þjóðaratkvæða-
greiðslu I Skotlandi og Wales
um tillögur rikisstjórnarinnar
um takmarkaða sjálfsstjórn
þessum löndum til handa.
John Smith, aðaltalsmaður
stjórnarinnar I þessu máli,
skýrði frá þessu við umræður í
Neðri málstofunni. Rösklega
150 þingmenn tveggja stóru
flokkanna höfðu krafist þess
að þjóðaratkvæði yrði haldið
um tillöguna.