Morgunblaðið - 17.12.1976, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.12.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1976 23 Þjóðhagsstofnun Framhald af bls. 27 Gengi íslenzku krónunnar hef- ur heldur farið lækkandi á öðrum og þriðja fjórðungi þessa árs. Á sl. ári var meðalverð erlendra gjald- miðla 56,5% hærra í krónum en árið á undan, og réði þar mestu 20% verðhækkun vegna gengis- lækkunar krónunnar í ágúst 1974 og 25% verðhækkun við gengis- lækkunina í febrúar 1975. Eftir gengisbreytinguna í febrúar 1975 var meðalgengi krónunnar all- stöðugt fram á haust, en lækkaði siðan nokkuð, einkum vegna hækkunar á gengi Bandaríkja- dollars. í árslok 1975 var meðal- verð erlends gjaldeyris um 5% hærra í íslenzkum krónum en í marz 1975, en verð á dollar var hins vegar um 14% hærra. Gengi krónunnar var tiltölulega stöðugt á fyrsta fjórðungi ársins 1976, en gengissig á öðrum og þriðja árs- fjórðungi hefur haft i för með sér verðhækkun erlends gjaldeyris um rúmlega 11% að meðaltali frá desember 1975 til nóvember 1976, en meðalverð á dollar hefur þó hækkað heldur meira, eða um tæp 12%. Meðalverð erlends gjaldeyr- is fyrstu ellefu mánuði ársins var 13,5% hærra gagnvart ísl. krón- unni en á sama tíma i fyrra, og fyrir árið allt má búast við að meðalverðhækkun erlends gjald- eyris verði um 13%. Vöruskiptajöfnuðurinn við út- lönd var hagstæður um tæplega 1,1 milljarð króna fyrstu tíu mán- 1 Utanríkis viðskipti 1975-1976. Milljónir króna Breyting frá fyrra ári.% I Braðab. 1975 Spá 1976 Magn Vero 1975 ’ 1976 1975 1976 1 ■ Otflutningsframleiósla i\ Sjávarafuröir 37.030 52.000 2,5 4,0 36,5 35,0 1 V Al 6.810 10.300 -14,0 12,0 52,5 35,0 I Annað 5.565 8.000 0,6 20,0 55,2 20,0 1 | Samtals 49.405 70.300 0,0 6,9 40,5 33,3 1 1 Birgöabreyting1^ -1.965 ♦1.500 1 Vöruútflutningur 47.440 71.800 2,7 13,5 40,5 33,3 1 1 Innflutningur sérstakrar 1 fjárfestingarvöru 8.420 10.300 -21,9 -1,5 64,9 24,1 1 | Skip og flugvelar 6.960 5.500 -29,5 -36,0 65,0 23,3 I ® Landsvirkjun 1.160 2.500 26,3 72,5 64,0 25,0 I | Kröfluvirkjun 300 2.300 25,0 I 1 Innflutningur til álverksmiöju 6.475 6.400 7,4 -18,0 85,0 21,0 I I Almennur vöruinnflutningur 53.145 62.400 -14 ,4 -1,3 64,3 19,0 I I Vöruinnflutningur, alls 68.040 79.100 -14,0 -2,9 66,2 19,7 I I Vöruskiptajöfnuöur -20.600 -7.300 I Þjónustuútflutningur 24.750 30.700 0,0 3,4 62,8 20,0 I I Þjónustuinnflutningur 25.530 32.200 -3,0 5,1 64,1 20,0 I I Viöskiptajöfnuöur -21.380 -8.800 I Viðskiptajöfnuöur sem % af I vergri þjóöarframleiöslu -11,5 -3,6 I 1) Birgöaaukning -; birgöaminnkun +. 2) Veröbreyting f kronum. Viftskiptajöfnuftur - grei»slujöfnuSur. Meéalgengi 1975 Meðaigei igi 1976 I milljónum króna. 1975 1975 1976 Viðskiptajöfnuftur -21.380 -24.160 - 8 . 8.0 0 Fjármagnshreyfingar Erlent lánsfé til langs tíma ♦ 21.060 ♦23.800 ♦ 20.200 Afborganir af erlendu lánsfé -5.905 -6.675 -8.400 Erlent einkafjármagn, nettó + 6.460 ♦7.300 ♦ 1.250 Aðrar hreyfingar, nettó -5.035 -5 .690 -750 Fjármagnsjöfnuður ♦16.580 ♦18.735 ♦ 12 . 300 Greiðslujöfnuöur - breyting gjaldeyrisstöðu -4 . 800 -5.425 ■»3.500 Gengisvísitala 100 113 113 uði þessa árs, en á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um tæplega 18 milljarða króna, reikn- að á sambærilegu gengi. Vöruút- flutningur (f.o.b.) nam 60,7 millj- örðum króna, en það var um 38% meira í erlendri mynt og um 16— 18% meira að magni en á sama tímabili 1975. Vöruinnflutningur- inn hafði hins vegar dregizt sam- an um 3% í erlendri mynt og um 6—7% í magni og nam i heild 59,6 milljörðum króna (f.o.b.) fyrstu tíu mánuði þessa árs. Hin miklu umskipti i utanríkis- verzluninni í ár stafa að verulegu leyti af aukningu álútflutnings og samdrætti, i innflutningi til ál- verksmiðju. Þessar breyttu að- stæður í álviðskiptum skýra u.þ.b. 8 milljarða króna af heildarbreyt- ingunni á vöruskiptajöfnuðinum, sem nemur 19 milljörðum króna. Að auki hefur útflutningur sjávarafurða aukizt um 7.9 millj- arða króna (22%) á föstu gengi, einkum vegna verðhækkana, en einnig að nokkru leyti vegna magnaukningar. Annar vöruút- flutningur hefur einnig aukizt verulega. Auk samdráttarins í innflutningi til álversins hefur einnig farið miklu minna fyrir innflutningi sérstakrar fjárfest- ingarvöru fyrstu tiu mánuði þessa árs en á sama tíma í fyrra, eink- um vegna samdráttar í skipainn- flutningi. Þess ber þó að gæta, að talsverður hluti innflutnings til virkjunarframkvæmda kemur ekki fram i verzlunarskýrslum Geróu kröfur og þú velur Philishave Philishave — nafnið táknar heimsfrægt rakhnífakerfi. Þrjá hringlaga,fljótandi rakhausa. Þrisvar sinnum tólf fljótvirka hnífa,sem tryggja fljótan, þægilegan og snyrtilegan rakstur. Þrisvar sinnu níutíu raufar, sem grípa bæði löngogstutt há í sömu stroku. Er ekkikominn tími til,aðþú tryggir þérsvo frábæra rakvél? Philishave 90-Super 12,hefur stillanlega rakdýpt, sem hentar hverri skeggrót. Vegnahinna nýju 36 hnífa, rakar hún hraðar og þægi- legar. Níu dýptarstillingar auka enn á þægindin. Bartskerinn er til snyrtingar á skeggtoppum og börtum. Þægilegur rofi og auðvitað gormasnúra. Vönduð gjafaaskja (HP1121). Hleðsluvél með stillanlegri rakdýpt. Á einni hleðslu tryggir þessi Philishave 90- Super 12,þér rakstur í tvær vikur. Níu dýptarstillingar og ein þeirra hentar þér örugglega.Teljari sýnir hve oft vélin hefur verið notuð frá síðustu hleðslu. Bart- skeri og gormasnúra og í fallegri gjafaöskju (HP 1308) Philishave 90-Super’12. Hraður og mjúkur rakstur, árangur 36 hnífa kerfisins. Rennileg vél sem fer vel i hendi. Bartskeri og gormasnúra og í fallegri gjafaöskju (HP1126). Rafhlöðuvél. Tilvalin í ferðalög, í bátinn, bílnum, og hjólhýsinu. Viðurkenndir rakstrareiginleikar. Fórar rafhlöður, tryggjafjölmarga hraða og þægilega rakstra. í þægilegri ferðaöskju (HP 1207). Philips kann tökin á tækninni. Nýja Philishave 90-Super 12 3x12 hnífa kerfið. PHILIPS Fullkomin þjónusta tryggir yðar hag. fyrr en á síðustu mánuðum þessa árs, enda þótt innflutningurinn hafi þegar átt sér stað, og í reynd gæti því hafa verið nokkur halli á vöruskiptunum við útlönd fyrstu tíu mánuði ársins. Heildarvöruútflutningurinn á þessu ári er nú talinn verða um 71,8 milljarðar króna en heildar- vöruinnflutningurinn 79,1 millj- arður króna. Samkvæmt þessu yrði halli á vöruskiptunum við útlönd, sem næmi 7,3 milljörðum króna, samanborið við 23 millj- arða króna halla á sl. ári, reiknað á meðalgengi ársins 1976. Vöru- skiptahallinn á þessu ári kemur allur fram á síðasta ársfjórðungi, að hluta vegna þess, hve skýrslur um innflutning sérstakrar fjár- festingarvöru berast seint, en einnig vegna hins, að ekki er unnt að reikna með, að útflutningurinn siðustu tvo mánuði ársins aukist i sama mæli og tímabilið janúar— október. Umskiptin í vöruskipt- unum við útlönd á síðustu tveim- ur mánuðum ársins, stafa þvi af árstiðasveiflum og öðrum sérstök- um þáttum, en fela ekki í sér neina merkjanlega breytingu í þróun utanríkisviðskipta. Viðskiptajöfnuðurinn á árinu 1976 er talinn verða heldur óhag- stæðari en vöruskiptajöfnuður- inn, vegna um 1.500 m. kr. halla á þjónustujöfnuði. Viðskiptahall- inn yrði því um 8,8 milljarðar Framhald á bls. 18 Til jólagjafa KL barnaöryggisstólar hafa hlotiS sérstaka viSurkenningu. Farangursgrindur Hjólkoppar — sportkoppar Krómlistar — plast Krómlistar á rennur Króm felguhringir Ljóskastarar Speglar margar gerSir Útvarpsstengur RAC mælar allskonar RúSusprautur og aukahl. i þær Rafmagnsþurrkur Aukamælar hverskonar Gir stokkar Gúmmimottur Hnakkapúðar, svartir, brúnir. rauSir Innispeglar StýrisáklæSi Öryggisbelti Oskubakkar Þokuljós 6, 12 og 24v Þvottakústar ÞurrkublóS og armar Oryggisbelti. Þar sem úrvalið er mest í bílinn Athugið vinsælu gjafabréfin SlDL austkf SlDUMúLi 7-9 SSmi. 82722

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.