Morgunblaðið - 17.12.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1976
27
B Fiármunamyndun 1974 - 1976.
Milljónir króna Verölag hvers árs Magnbreytingar | frá fyrra ári, % ö
1974 1975 Spá 1976 1974 1975 Spá I 1976 I
1 Fiármunanr/ndun, alls 45.150 63.560 75.300 10,8 -8,4 -4,9
1 Þjórsárvirkjanir, Kröfluvirkjun ■ og jámblendiverksmiðja 1.740 6.620 11.280 158,2 146,5 38,5
1 Innflutt skip og flugvélar 5.980 6.960 5.500 18,3 -29,7 -35,2
■ önnur fjárnunamyndun 37.430 49.980 58.520 6,0 -11,6 -6,5
1 I. At vinnuveKÍmir 20.800 25.810 29.070 16,2 -21.8 -9.5
£ 1. Lartdbúnaður 2.920 3.850 4.570 11,2 -12,3 -4,4 I
| 2. Fiskveiöar 4.910 4.880 4.350 -19,3. -40,4 -28,3
3. Vinnsla sjávarafuröa 1.920 2.640 3.270 7,4 -5,5 0,0 I
g 4. Alverksmiðja 170 200 20 -50,0 -28,6 -92,5 I
8 5. Jámblendiverksmiöja - 650 500 . - - -38,5 j
| 6. Annar iönaður (en 3.-5.) 2.600 3.650 4.380 20,0 -3,7 -4,1 I
| 7. Flutningatæki 3.650 4.550 6.350 100,0 -26,6 14,2 I
% 8. Verzlunar-, skrifstofu- | og gistihús o.fl. 2.710 2.930 3.380 42,6 -24,1 -7,8 I
6 9. Ýmsar velar og tæki 1.920 2.460 2.250 59,2 -24,6 -30,1 I
I II. tbúöarhús 10.200 13.460 15.480 -13,4 -7,0 -8,0 I
I III. Byggingar og martnvirki ;■ hins opinbera 14..150 24.290 30.750 22.9 15,9 1,7 1
1. Rafvirkjanir og rafveitur 4.100 9.960 14.220 59,8 69,4 15,7 I
I 2. Hita- og vatnSveitur 1.350 2.600 3.300 34,4 37,2 1,5 I
3. Samgöngumannvirki 5.450 7.250 8.030 4,9 -19,3 -12,0 I
I 4. Byggingar hins opinbena 3.250 4.480 5.200 18,2 -2,9 -7,1 I
Aths.: Magnbreytingar 1974 og 1975 en nagnbreytingar 1976 eru eru miðaöar viö fast verðlag ársins 1969, miöaöar viö fast verölag ársins 1975.
ar nema vinnslu sjávarafurða,
sem verður að líkingum svipuð og
á sl. ári, og ennfremur mun fjár-
munamyndun í flutningatækjum
verða talsvert meiri en í fyrra,
eingöngu vegna flugvélakaupa
Flugleiða. Byggingarframkvæmd-
um við járnblendiverksmiðjuna
að Grundartanga í Hvalfirði hef-
ur seinkað. Þó er gert ráð fyrir
nokkrum umsvifum þar undir lok
ársins, en heildarframkvæmdir á
árinu verða mun minni en áður
var reiknað með. Innflutningur
skipa og flugvéla verður líklega
um 35% minni en á sl. ári og 55%
minni en á árinu 1974, er hann
varð mestur. Opinberar fram-
kvæmdir verða heldur meiri í ár
en í fyrra. Raforkuframkvæmdir
aukast, hitaveituframkvæmdir
verða svipaðar og í fyrra, en um-
svif við byggingar og mannvirki
hins opinbera og samgöngu fram-
kvæmdir verða talsvert minni í ár
en í fyrra. Nokkuð dró dr umsvif-
um við íbúðabyggingar á árinu
1975 og í ár hefur enn dregið úr
íbúðabyggingum. Er reiknað með,
að fjármunamyndun i íbúðum
verði um 8% minni í ár en í fyrra.
Ibúðabyggingar verða þó enn á
svipuðu stigi og á árinu 1973, ef
Viðlagasjóðshúsin á því ári eru
talin frá.
Utanríkisviðskipti
Vöruinnflutningur. Fyrstu tíu
mánuði þessa árs var almennur
vöruinnflutningur líklega nálægt
1—2% minni að magni en á sama
tima í fyrra. Innflutningsþróunin
í ár hefur hins vegar einkennzt af
miklum sveiflum. Þannig dróst
innflutningur saman um meira en
10% á fyrsta fjórðungi ársins
miðað við sama tímabil 1975, jókst
um svipað hlutfall á öðrum árs-
fjórðungi en hélzt siðan óbreyttur
á þriðja fjórðungi ársins. I spám í
júní var gert ráð fyrir að í ár yrði
almennur vöruinnflutningur um
6% minni í heild en á sl. ári. Sé
gert ráð fyrir svipuðum sam-
drætti í magni almenns vöruinn-
flutnings á f jórða ársfjórðungi og
fyrstu þremur fjórðungum ársins,
má búast við 1—2% samdrætti
fyrir árið allt. Þessi áætlun kem-
ur einnig heim við hina endur-
skoðuðu spá fyrir innlenda eftir-
spurn.
Fyrstu tíu mánuði þessa árs var
innflutningur olíuvöru (að
undanskildu þotueldsneyti, sem
er háð miklum sveiflum) nær 4%
minni að magni en á sama tíma í
fyrra. Á fyrra helmingi ársins
dróst olíusala (einnig að þotuelds-
neyti undanskildu) saman um
6—7%. Fyrir árið allt má búast
við, að innflutningur olíuvöru
dragist saman um 4—5%, en það
felur í sér um 10% samdrátt í
magni frá árinu 1974. Það veldur
einkum þessum samdrætti, að
hitaveita hefur komið í staðinn
fyrir olíukyndingu húsa, og
benzínneyzla hefur staðið í stað.
Innflutningur skipa og flugvéla
verður sennilega röskum þriðj-
ungi minni í ár en i fyrra. Hér eru
þó meðtalin flugvélakaup Flug-
leiða, að verðmæti 2.000 m.kr.
Skipainnflutningur verður að lík-
indum ekki nema 38% þess, sem
hann var í fyrra og aðeins um
23% þess sem hann var á árinu
1974, er hann varð mestur. Inn-
flutningur til virkjunarfram-
kvæmdanna við Sigöldu verður
nær tvöfált meiri í ár en í fyrra og
að auki verða fluttar inn vörur til
Kröfluvirkjunar fyrir rúma 2
milljarða króna samanborið við
300 m.kr. árið 1975. Innflutningur
til álversins verður hins vegar
minni en á árinu 1975, en þá
safnaði Álverksmiðjan veruleg-
um birgðum af súráli.
Samtals er reiknað með, að sér-
stakur vöruinnflutningur verði
tæplega 9% minni í ár en á sl. ári.
I heild er því talið, að vöruinn-
flutningur verði u.þ.b. 3% minni
á árinu 1976 en í fyrra, eða um
16!4% minni en á árinu 1974.
Viðskiptakjör gagnvart útlönd-
um voru á fyrstu þremur fjórð-
ungum þessa árs nálægt 11%
betri en að meðaltali á árinu 1975.
Á þriðja ársfjórðungi 1976 höfðu
viðskiptakjörin batnað um 23%
frá því á síðasta ársfjórðungi 1975
er þau voru lökust, en voru engu
að síður um 17'á% lakari en þau
urðu hagstæðust á fyrsta fjórð-
ungi ársins 1974. Hækkun út-
flutningsverðs sjávarafurða á
mestan þátt í bata viðskiptakjar-
anna í ár, en verð annars útflutn-
ings hefur einnig hækkað tals-
vert. Þar sem útflutningsverð
fyrstu níu mánuði þessa árs var
um 15% hærra í erlendri mynt en
að meðaltali á árinu 1975, eru
taldar horfur á, að í ár verði það
að meðaltali um 18% hærra í er-
lendri mynt en á árinu 1975. Það
jafngildir um 33% verðhækkun í
íslenzkum krónum. Innflutnings-
verð var hins vegar einungis
4—5% hærra fyrstu níu mánuði
ársins en að meðaltali á árinu
1975. Nú er spáð, að innflutnings-
verð hækki að meðaltali um 5—
6% i erlendri mynt frá fyrra ári,
en það svarar til um 19—20%
hækkunar í íslenzkum krónum.
Samkvæmt þessu má ætla, að við-
skiptakjörin batni um 11—12%
að meðaltali á árinu 1976 eftir
nær fjórðungs rýrnun undan-
gengin tvö ár.
Framhald á bls. 23
Jólamarkaður
Nýlega hefur verið opnaður Jóla-
markaður að Njálsgötu 44. Mark-
aður þessi er framtak margra ein-
staklinga til að koma framleiðslu
sinni á framfæri. Þar eru á boð-
stólum ýmiss konar annar fatn-
aður, handunnar leðurvörur, þar
má nefna töskur, buddur, belti,
spegla og aðra smáhluti, einnig
málverkaeftirprentanir, smá-
myndir og margt fleira til jóla-
gjafa.
Jólamarkaðurinn er opinn frá
kl. 1 — 6 alla virka daga og á
laugardögum eins og aðrar versl-
anir fram að jólum.
Nýjar bækur
frá ísafold
MORG UNBLAÐINU hafa borizt
fjórar nýútkomnar bækur fri
bókaútgáfu Isafoldar. Er hér um
að ræða endurprentun á Islands-
ferðinni eftir Svenn Poulsen og
Holger Rosenberg og Hörpu
minninganna. en hinar bækurnar
tvær eru nýjar og heita FÓIkið á
Steinshóli eftir Stefán Jónsson og
Tveggja kosta völ eftir Anítra.
íslandsferðin, sem er frásögn
um för Friðriks áttunda og rikis-
þingmanna til Færeyja og tslands
sumarið 1907, var fyrst gefin út
árið 1958. Harpa minninganna
var fyrst gefin út árið 1955, en
það eru minningar Árna Thor-
steinssonar, sem Ingólfur
Kristjánsson hefur fært í letur.
Fólkið á Steinshóli er barna- og
unglingasaga, skreytt myndum
eftir Jón Reykdal. Tveggja kosta
völ er hins vegar skáldsaga úr
norsku þjóðlifi á átjándu öld, en
hanaþýddi Hersteinn Pálsson.
Ú rval j ólagj afa
Þrífætur
Sjónaukar í úrvali
Sýningartjöld, blá,
þau bestu í bænum
Leifturljós í úrvali
Myndaalbúm
Konica myndavélar
4 tegundir
BorS fyrir sýningarvélar
Skuggamyndaskoðarar
Kvikmyndatökuvélar,
margar gerðir
Kvikmyndasýningavélar
Töskur undir myndavélar,
mikið úrval ,
í ieHwScopor H 31
JÆu
sturstrceti 6
&
nu 22955