Morgunblaðið - 06.01.1977, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1977
Kína:
Hong Kong 5. janúar — NTB.
AÐ MINNSTA kosti 655.237 manns missti lifið og önnur
779.000 særðust i jarðskjálftanum, sem varð í norðurhluta
Kína 28. júli i fyrra, samkvæmt skýrslum, sem embættis-
menn í umræddum landshluta hafa gert og látið birta.
Skjálftinn var 8.3 stig að styrkleika á Richterkvarða og er einn af þeim
mestu sem mælzt hafa síðustu 10—12 ár. Fram til þessa var ekki vitað
um manntjón, sem varð í skjálftanum, en Hua Kuo-feng, flokksleiðtogi,
sagði i ræðu fyrir jól að skjálftinn hefði leitt til meiri mannskaða en áður
hefði þekkzt.
Skýrslan. sem inniheldur upplýsingar um látna og særða, er gerð af
flokksnefnd og byltingarnefnd Hopeh héraðs
Samkvæmt heimildum innan leyniþjónustunnar er ekki ástæða til að
draga þessar upplýsingar í efa. Mun leyniþjónustan hafa svipaðar upplýs-
ingar með höndum.
Ef upplýsingar skýrslunnar eru réttar, var jarðskjálftinn í fyrra sá næst
mesti, sem sögur fara af og að minnsta kosti sá mannskæðasti á þessari
öld. Alvarlegasti jarðskjálfti, sem vitað er um. varð f Kína 1 556 og fórust f
honum meira en 800.000 manns.
Kínversk yfirvöld hafa hvorki viljað staðfesta eða neita þessum upplýs-
ingum. Opinber embættismaður í Peking sagði í dag, að hann ætlaði að
athuga málið, þegar upplýsingarnar voru bornar undir hann og sagði, að
engra nákvæmra upplýsinga væri að vænta í dag.
FRÁ PEKING: Sjúkrastofa eftir jarðskjálftana si. sumar.
655 þúsundir f ór-
ust í jarðskjálfta
Olíuskips
saknað und-
an strönd
Nova Scotia
Boston, 5. janúar. Reuter. NTB.
FLUGVÉLAR og skip frá
bandarfsku og kanadfsku
strandgæzlunum hafa
vegna veðurs orðið að
hætta leit sinni að olíu-
skipi frá Panama, með 32
manna áhöfn og 30 þúsund
lestir af olíu, sem ekkert
hefur spurzt til í 6 daga.
Síðast heyrðist frá skipinu
sl. fimmtudag, er það til-
kynnti að versta veður
væri skollið á skammt fyr-
ir sunnan Nova Scotia, þar
sem það var á siglingu.
Bandarfskt strandgæsluskip
fann f gær litla olfubreiöu, um 20
m í þvermál á þessum slóðum en
ekki er vitað hvort olían er frá
Panamskipinu, eða Argo
Merchant, sem sökk fyrir jól und-
an strönd Massachusetts, Á að
efnagreina oliuna til að reyna að
ganga úr skugga um hvaðan hún
er komin. Skipið var skráð í Pan-
ama, en áhöfnin var 32 Kínverjar.
EPC
Ný Reiknivél
Nýtt verð
Frábær gæði
EPC 121
EPC 122
EPC 123
Strimill, grand total, sjálf- Strimill, grand total, geymslu- Bæði strimill og Ijósatölur, grand
virkur prósentureikningur, verk sjálfvirkur prósentureikn- total, geymsluverk, sjálfvirkur
tólf stafa vinnsla ingur, tólf stafa vinnsla prósentureikningur, tólf stafa
VERÐ: Kr. 34.100“ VERÐ: Kr. 39l800“ vinnsla
VERÐ: Kr. 477100—
Skrifstofuvélar h/f geta nú boðið yður þrjár gerðir af
hinum nýju og fullkomnu EPC reiknivélum á sérstaklega
góóu verði.
Komið, skoóið k
Þér fáið ekki sambærilega vél á betra verði. I SKRIFSTOFUVELAR H.F.
Romanishin
enn efstur
Hastings, 4. janúar. Reuter.
SOVÉZKI stðrmeistarinn Oleg
Romanishin hélt forystu sinni yf-
ir landa slnum og fyrrverandi
heimsmeistara Vassily Smyslov
eftir 6. umferð alþjóða skákmóts-
ins í Hastings f Engalndi, en báð-
ir gerðu þeir jafntefli f skákum
sfnum.
Aðeins einn maður náði vinn-
ingi, Englendingurinn Tony
Miles, sem sigraði Ungverjann
Ivan Farago, með lítt þekktu af-
brigði af Fianchetto drottningar-
vörn. Jafntefli varð í öllum örðum
skákum.
Urslit i 6. umferð urðu þessi:
Farago O, Miles 1. Smyslov
(Sovétr.) ‘A, Adorjan
(Ungverjal.) ‘A. Vukecevic
(Bandar.) 'A, Romanishin
(Sovétr.) 'A. Webb (Engl) 'A,
Damjanovic (Júgósl.) )4.Þessar
skákir fóru f bið Kaplan
(Bandar.) gegn, Kraidman
(ísrael). Tarjan (Bandar.) gegn
Zwaig (Noregi). Kagan (Israel)
gegn, Rumens (Engl.).
Eftir 6. umferð er staðan þessi:
Romanish 4 vinningar af 5.
Smyslov 4 vinningar af 6. Miles
3lA af 6. Zwaig og Tarjan 3 og eina
biðskák af 6.
4000
Gyðingar
bíða í Róm
Washington 5. janúar — Reuter.
UM ÞAÐ bil 4.000 Gyðingar
bíða nú f Róm eftir að fá að
flytjast tfl Bandaríkjanna að
sögn bandarfska þingmannsins
Joshua Eilberg. Sagði hann að
allt þetta fólk hefði farið frá
Sovétríkjunum 1976 með út-
flutningsáritun til Israels en
sfðan hefði það sagzt vilja fara
til Bandarfkjanna. Kvaðst þing-
maðurinn hafa fengið þær upp-
lýsingar að bandarfsk yfirvöld
ætluðu að greiða fyrir þessu
fólki þannig að það gæti komizt
fi' Bandarfkjanna.