Morgunblaðið - 06.01.1977, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1977
r i
Jólamót IR og Armanns:
Jöfn keppni Ingunnar og Láru
- mörg ný íslandsmet
EKKI verður annað sagt en að frjáls-
íþróttafólk hafi kvatt árið 1976 með
ágætum, þvi á siðasta innanhúss-
mótinu voru mörg ný islandsmet
sett og nokkur jofnuð, auk þess sem
flestir keppenda náðu sínum bezta
árangri. Vonandi er sá ágæti árangur
sem náðist á mótinu aðeins for-
srnekkur þess sem koma skal á þvi
ári sem nú er nýhafið.
Hetja þessa jólamóts ÍR og Ármanns
var áreiðanlega Ingunn Einarsdóttir ÍR.
að öðrum ólöstuðum. en hún setti alls
þrjú ný íslandsmet í 50 m hlaupi
bætti hún eigið met um 1/10 úr sek
með því að hlaupa á 6.3 sekúndum,
en sá tími verður að teljast mjög fram-
bærilegur í þessu hlaupi kom Lára
Sveinsdóttir. Á. eiginlega meira á óvart
með því að hlaupa á 6.5 sekúndum
Hennar bezti árangur var áður 6.7
sekúndur. en vafalaust á þessi nýja
sprettharka hennar eftir að koma henni
til góða í langstökki og öðrum
greinum Þrjár stúlkur hlupu svo á 7,0
sek . þær Þórdis Gísladóttir, ÍR. Lilja
Guðmundsdóttir, ÍR (hafði hún reyndar
nýlokið 10 km æfingahlaupi er keppn-
in fór fram) og Katrin Sveinsdóttir. Á.
en hún er systir Láru
Næsta met Ingunnar leit dagsins Ijós
að loknu 50 m grindahlaupinu í þeirri
grein var einnig um gífurlega harða
keppni að ræða milli Ingunnar og Láru,
og mátti vart milli sjá fyrr en á síðasta
metranum Fékk Ingunn timann 7,1
sek og bætti eldra íslandsmetið um
1/10 úr sek . en það met átti Lára
Lára fékk svo 7.2 sek eða sama tima
og eldra met hennar hljóðaði upp á. en
sumir töldu að hún hefði átt að fá sama
tíma og Ingunn
Þriðja einvigi þeirra stallnanna var
svo langstökkið Þegar upp var staðið
hafði Ingunn borið sigurorð af Láru og
enn sá nýtt íslandsmet dagsins Ijós.
Stökk Ingunn 5.54 metra sem er 2
sentimetrum betra en eigið eldra met.
sett fyrr i haust Lára náði sinum bezta
árangri með þvi að stökkva 5,51 m
Það verður að segjast ems og er að
eiginlega slapp Ingunn með skrekkiin
frá þessari grein. þvi Lára átti þrjú
stökk um 5,80 metra. mæld frá tá. en
þau voru hárfint ógild
Aðspurðar sögðust þær Ingunn og
Lára æfa vel og hafa gert svo það sem
af er hausti Báðar eru þær að undir-
búa sig fyrir fimmtarþraut, og ef þær
halda áfram á sömu braut má búast við
skemmtilegum keppnum þeirra í milli i
sumar Hefur Ingunn haft nokkuð um-
fram Láru i hlaupagreinum fimmtar-
þrautar, en Lára svo verið betri í stökk-
um og köstum. en árangur þeirra á
jólamóti ÍR og Ármanns virðist benda
til þess að það sé að draga saman með
þeim, og verður að telja það fagnaðar
efni. því jöfn og hörð keppni er það
eina sem líklegt er til að bæta árangur
Þótt það hafi verið Ingunn og Lára
sem voru mest i sviðsljósinu þá voru
aðrir sem náðu einnig mjög góðum
árangri Ber þar langhæst afrek
Magnúsar Jónassonar. Á. í 50 metra
hlaupi karla Ekki bætti Magnús aðeins
sinn fyrri árangur heldur jafnaði hann
íslandsmetið i greininni með því að
hlaupa á 5.8 sekúndum Eru þá alls
fjórir menn handhafar íslandsmetsins í
50 m hlaupi karla
Nokkrir fleiri náðu sinu bezta eða
voru alveg við það. en annars urðu úrslit mótsins sem hér segir
50 m grind karla: sek.
Björn Blondal, KR 7,1
Ásgeir Þór Eiríkss. ÍR 7,8
Óskar Thorarensen, ÍR 8,0
Langstökk karla mtr.
Friðrik Þ. Óskarss. ÍR 6.80
Jóhann Péturss. UMSS, 6,43
Björn Blöndal, KR 6.12
Guðni Tómasson, Á. 5.60
50 m hlaup karla sek.
Magnús Jónass. Á, 5,8
Guðlaugur Þorsteinsson, ÍR 6.1
Guðni Tómasson, Á, 6.2
50 m hlaup kvenna sek.
Ingunn Einarsdóttir, ÍR 6,3
Lára Sveinsdóttir, Á, 6.5
Þórdís Gfsladóttir, ÍR 7,0
Lilja Sveinsdóttir, ÍR 7,0
Katrfn Sveinsdóttir, Á 7.0
50 m grind kvenna sek.
Ingunn Einarsdóttir, ÍR 7.1
Lára Sveinsdóttir, Á, 7.2
Þórdfs Gfsladóttir, ÍR 8.0
Langstökk kvenna mtr.
Ingunn Einarsdóttir, ÍR 5.54
Lára Sveinsdóttir, Á, 5.51
ágás
Fréttir frá
Vouge
heimilisdeild
á hliðargluggatjöldum
og eldhúsgardínum.
Geysilegt úrvai af bútum
25-50% afsláttur
um verð/ækkun:
áður 2096 nú 1090
1636 850
1458 850
2089 1450
1646 1090
Ath.: útsalan stendur aðeins í
örfáa daqa
Arftaki Hartono
burstaði Detfs
INDÓNESÍUMENN virð-
ast nú hafa eignazt verðug-
an arftaka hins fræga bad-
mintonleikmanns Rudy
Hartono, sem um árabil
var he'msmeistari f þess-
ari íþróttagrein. Sá heitir
Liem Swee King, og nýj-
asta afrek hans f íþrótt
sinni var að gjörsigra
Evrópu- og Norðurlanda-
meistarann Flemming
Delfs í úrslitaleik mikils
badmintonmóts sem fram
fór í Málmey í Svíþjóð ný-
lega. Sigraði King 15—6 og
15—2 í úrslitaleiknum og
bar öllum saman um að
Delfs hefði enga mögu-
leika átt gegn honum. Það
sem Indónesinn hafði eink-
um fram yfir Danann var
mikill hraði, en hann sent-
ist eins og skopparakringla
eftir vellinum, og var sama
hvað Delfs reyndi — alltaf
var King mættur á rétta
staðinn.
Mjög hljótt hefur verið um
Rudy Hartono að undanförnu, en
líklegt þykir að hann hafi nú
ákveðið að leggja spaðann á hill-
una, og verði ekki með I fyrstu
opinberu heimsmeistarakeppn-
inni sem fram á að fara í Sviþjóð I
vetur. Hartono hefur nýlega
gengið i hjónaband, og auk þess
mun hann önnum kafinn við
verzlunarrekstur í heimalandi
sínu. Við þetta bætist svo að
Hartono hefur stofnað badmin-
tonfélag, og veitir þar ungum
Indónesum tilsögn I íþróttinni,
endurgjaldslaust. Fer í það mikill
tfmi hjá honum.
Hinnnýi badmintonkonungur
Indónesa, Liem Swee King, er 21
árs að aldri. Hann hefur æft bad-
minton frá þvf að hann var 10 ára,
en var orðinn 15 ára þegar hann
fór að æfa með það fyrir augum
að keppa. Sfðan hefur hann æft
stöðugt, venjulega famm klukku-
stundir á degi hverjum. Á morgn-
ana tekur hann létta æfingu, um
miðjan daginn er æfð tækni og
sendingar og á kvöldin er sfðan
erfið keppnisæfing. Kang stundar
einnig nám í viðskiptafræði, en
viðurkennir að slíkt sé sér algjört
aukaatriði.
I keppninni f Svfþjóð varin
King alla andstæðinga sfna næsta
auðveldlega. Sá sem mest stóð í
honum var landi hans, Sumirat,
sem fékk 11 punkta á móti hon-
um.
Eftir ósigurinn sagði Flemming
Delfs, að ekkert efamál væri að
King væri frábær badmintonmað-
ur, en hann hefði samt unnið sig
of auðveldlega. Kenndi Delfs að-
stæðunum aðallega um að honum
gekk ekki betur, og sagði að bolt-
arnir sem notaðir hefðu verið f
mótinu hefðu verið mjög slæmir
fyrir sig. — En ég á eftir að mæta
King aftur f keppni og þá vinnur
hann ekki svona auðveldlega,
sagði Delfs.
Sem fyrr greinir verður fyrsta
opinbera heimsmeistaramótið í
badminton haldið i vetur. Auk
þess er svo útlit fyrir það að flest-
ir — ef ekki allir beztu badmin-
tonmenn heims — mæti til
keppni í „All England" keppn-
inni, sem hingað til hefur verið
óopinber heimsmeistarakeppna
badmintonmanna.
Armenningar
Árshátíð
félagsins verður að Hótel Sögu Átthagasal 8.
janúar og hefst með borðhaldi kl. 1 9.00. Uppl.
í símum 30841 — 85649 — 85775.
Miðasala verður í Brauðskálanum, Langholts-
veg 126. Stjórnin.