Morgunblaðið - 06.01.1977, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1977
21
Hovhanness Pilikian vildi láta
birta mynd af sér f þessum bún-
ing til að mótmæla veðráttunni
á tslandi.
NtJ UM áramótin kom
hingað til lands leik-
stjóri frá Bretlandi, Hov-
hanness Pilikian, til að
leikstýra King Lear eftir
Shakespeare, en það
verður frumsýnt þ. 2.
marz n.k. í Þjóðleikhús-
inu.
Hovhanness Pilikian er
armeniskur að uppruna en hef-
ur um árabil starfað sem leik-
stjóri I Bretlandi og vfðar.
Hann er nú búsettur í London
og er talinn með „frumlegustu
ieikstjórum í Englandi um
þessar mundir", eins og segir i
leikdómi um síðasta leikritið
sem hann hefur sviðsett þar,
Bobok eftir Dostojevsky. Þá
hefur Pilikian einnig starfað
Lér kon-
ungur1
Þjóðleik-
húsinu
fyrir sjónvarp og hlaut m.a.
verðlaun fyrir leikstjórn á
Elektru fyrir brezka sjónvarpið
árið 1971. Pilikian er einnig
fræðimaður á sviði leikbók-
mennta og vinnur nú að
doktorsritgerð um King Lear.
Stefán Baldursson, sem er að-
stoðarleikstjóri við sviðsetn-
ingu Kins Lears, sagði enda að
leikurum Þjóðleikhússins væri
þegar, eftir fárra daga æfingar,
ljóst, að hann legði mjög sér-
stæðan og ákveðinn skilning á
leikritið.
Þá er einnig væntanlegur til
Þjóðleikhússins leikmynda-
teiknari, Ralph Koltae, sem
annast mun leikmynd f leikriti
Shakespeares. Að sögn Stefáns
Baldurssonar er ekki síður
fengur að Koltae en Pilikian,
þar eð Koltae væri nú talinn f
fremstu röð leikmyndateiknara
og hlaut hann verðlaun á al-
þjóðlegri leikmyndasýningu á
síðasta ári.
Eins og fyrr sagði, verður
King Lear frumsýndur í Þjóð-
leikhúsinu 2. marz n.k. Helgi
Hálfdánarson þýddi leikritið og
nefnir það „Lér konungur".
Rúrik Haraldsson mun fara
með hlutverk Lés.
Lýst eftir
1000 marka
seðlum
SEÐLABANKI Islands sendi I
gær frá sér eftirfarandi fréttatil-
kynningu:
„Hinn 14. desember s.l. var
framið mannrán f V-Þýzkalandi
og krafizt lausnargjalds. Mann-
ræningjarnir komust undan með
lausnargjaldið, 21 milljón þýzkra
marka og hefur ekkert af því fé
enn komizt í umferð, svo vitað sé.
Erú þetta allt 1000 marka seðlar.
Interpol hefur sent númer þess-
ara seðla til íslenzkra stjórnvalda
ef vera kynni að þeirra yrði vart
hér á landi.
Það eru þvi tilmæli Seðlabank-
ans til bankastarfsmanna og ann-
arra, sem gjaldeyri hafa undir
höndum, að þeir verði vel á verði
gagnvart 1000 marka seðlum og
leiti upplýsinga um númerin hjá
Seðlabankanum."
KIMAWASA
MJÖG FULLKOMIÐ 0G AFGERANDI
SJÁLFSVARNARKERFI
Námskeiðið í Kimewasa er að hefjast. Kennsla
fer fram í húskynnum Judofélags Reykjavíkur
að Brautarholti 18. Námskeiðið hefst á laugar-
dag kl. 1 2 — 1.
Innritun fer fram í dag fimmtudag frá kl.
11—7 og á morgun frá kl. 11—7 í síma
33035. Aldurstakmark 1 5 ár.
— „Reynsla
Japana,,
Framhald af bls. 3
gefið rétta heildarmynd af
japönsku þjóðfélagi, en ef svo á
að vera, þá verður svona mynd
að fjalla um fleiri þætti þjóð-
félagsins. Það sem myndirnar
fjölluðu um var ákaflega
þröngt svið, og ég skil ekki hver
tilgangurinn var með þvi að
fjalla á þennan hátt um
japanskt þjóðfélag. Allur texti
myndarinnar var afar nerkvæð-
ur fyrir Japan, og verð ég að
segja að það hlýtur að vera
hættulegt að sýna svona mynd-
ir og segja að þær fjalli um
eitthvert þjóðfélag, því þessar
myndir sýndu japanskt þjóð-
félag ekki í réttu ljósi.
Ég get reyndar sagt um þessa
þætti að eftir að þeir voru
frumsýndir varð mikil mót-
mælaalda gegn efni þeirra, þ.e.
að þeir væru táknrænir fyrir
Japan sem heild. Japansk-
enska félagið á Englandi mót-
mælti þeim harðlega, og í
japönskum timaritum var
mikið fjallað um þessa þætti
sem ættu að sýna Vesturlanda-
búum hvernig Japan væri I
raun og veru, og þar sagt að
þeir væru afar neikvæðir og
gæfu mjög ranga mynd af hlut-
unum. I þessu sambandi má
kannski minnast þess að þessi
sami flokkur, undir stjórn sama
stjórnanda, fór áður til Banda-
rikjanna og tindi þar til allt það
neikvæðasta sem hægt var að
finna i þvi þjóðfélagi og gerði
um það mynd, sem átti að vera
táknræn fyrir bandariskt þjóð-
félag.“
Gylfi Jónsson
flugmaður:
„Ég hef ekkert út á þessar
myndir að setja, og það var
ekkert I þeim sem ég ekki
kannaðist við á einn eða annan
hátt. Það sem þær sýndu kom
mér ekkert á óvart, þvi ég hef
sjálfur séð og kynnst flestu þvi
sem hún sýndi. Myndirnar
fundust mér ákaflega
raunsæjar. Þær sýndu vel allan
þann ópersónuleika sem þarna
ríkir og viðfangsefnið er bara
hluti I keðju sem er partur af
ákveðnu kerfi þjóðfélagsins.
Hitt er svo annað mál að það er
vel hægt að gera mynd um
Japan sem dregur upp allt aðra
mynd af þjóðfélaginu en til
þess verður náttúrulega að
sleppa eymdarhliðunum, sem
umræddar myndir fjölluðu um,
og eru hluti af Japan.
Júlíus Sólnes
verkfræðingur:
„Ég get ekki annað sagt en að
ég sé mjög sleginn yfir þessum
myndum sem voru i sjónvarp-
inu. Maður er hreint standandi
hissa því sá boðskapur sem I
þeim var passar alls ekkert við
það sem ég sá sjálfur þar. Þótt
það sé sennilega rétt að það sé
margt sem aflaga fer I landinu,
þá getur maður ekka fallist á
það sem þarna var sýnt, og að
það sé það sem blasir við I Jap-
an. Þá er það örugglega röng
skoðun að þarna sé alls staðar
sú fátækt sem þessar myndir
drógu upp, maður sér slíkt til
dæmis strax I klæðaburði fólks
og hvernig það er almennt til
fara á götum úti.
Það má náttúrulega rífast um
það endalaust hvernig meta á
lífsgæði I Japan eins og t.d. að
segja að hreint andrúmsloft og
vatn sé miklu dýrmætara en
ísskápur og menn komast ekki
að niðurstöðu I slíkum málum.
En hitt er svo annað mál að
svona kvikmyndaflokkur gæti
vel komið til íslands og gert
neikvæða mynd um okkur með
því að taka fyrir eitthvað slæmt
sem kannski mætti finna ef
leitað væri að því. Já, þessar
myndir voru óskaplega nei-
kvæðar að minu mati, annað
getur maður ekki sagt.“
Allt á stórafslætti
nýjar sem nýlegar vörur
Flauelisbuxur
Flauelisvesti
Gallabuxur 5 gerðir
Skyrtublússur
Prjónakjólar
Kápur
Peysur gífulegt úrval.
Hljómplötur
Kodak vasamyndavélar
Myndaalbum
ÁSTÞÓR
BANKASTRÆTI 8