Morgunblaðið - 06.01.1977, Síða 32

Morgunblaðið - 06.01.1977, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1977 VI K> MORötlN-.-pJ RAFF/NtJ U S Gesturinn: Ilvenær haldið þér, að ég fái þessa hálfu önd, sem ég bað um fyrir hálftfma sfðan? Þjðnninn: Ja, þegar einhver annar gestur biður um hinn. helminginn. Okkur er nefni- lega ómögulegt að fara út til þess að skjóta hálfa önd. „Hefi ég sagt þér bráðfyndnu söguna sem ég heyrði f gær ? Ef ég er búinn að þvf, þá stoppaðu mig bara. „Var það fyndin saga?“ „Já, alveg bráðfyndin." „Þá hefurðu ekki sagt mér hana.“ Eg bað þig að vera f hlutverki X-9 fyrir mig en ekki að fara á grfmuball. Hvað gagnar það okkur að þú hafir kveikt eld úr þvf ég kann hvorki að sjóða mat né steikja? Tvær konur hér f bænum sem leigja f sama húsi, ræðast oft við eins og lög gera ráð fyrir. Alltaf er gott milli þeirra, en samtölin æði oft allspaugileg. Hér er sýnishorn: — Við erum nú átta systurnar, og allar eru þær gift- ar nema ég. — Já, þú hefur nú ekki verið að hafa fyrir þvf, blessunin. — Nei, ekki aldeilis. Aldrei hef ég heldur eignazt barn, en mfn heitasta ósk er nú, og vona ég það statt og stöðugt að ég eignist barnabarn til af- þreyingar f ellinni. Láttu mig fá tvö pör af fjall- gönguskóm. Þrælaðu þessu ofanf hann og sóttu svo þúsund kall f vasa hans. Island ferðamanna- og ráðstefnuland? Ferðalangur: — Nú nokkur undanfarin ár hafa fjölmörg samtök og félög, bæði félög sem starfa á öllum Norðurföndunum og jafnvel öllum heiminum, fengið að halda ýmis konar mót og ráðstefnur hér- lendis. Hafa þær verið af öllum stærðargráðum og gerðum og ég held að almennt hafi ríkt ánægja meðal útlendinganna með að hafa komið hingað og séð örlítið af landinu um leið og þingað var um eitthvert heimsvandamálið. Nú mun vera tif fyrirtæki sem hefur það á sinni könnu að greiða fyrir og sjá um slíkt ráðstefnu- hald hér heima, og það er ef til vill upphafið að þvf að Island verði að verulegu leyti ráðstefnu- land. Ég veit ekki til þess, að neinn aðili sjái um þetta, en það ætti að vera á snærum ferðamála- ráðs eða hvað það nú heitir að hafa yfirumsjón með þessu og það ætti að beita sér fyrir þvf að efla landið sem ráðstefnuland. Það getur náttúrlega verið að ráðið hafi þetta á sinni stefnuskrá án þess að ég viti af því, en fróðlegt væri að heyra meira um það. Nú fer í hönd sá tími sem ráðstefnur eru skipulagðar, ef það er þá ekki víðast búið að þvf, en á þessum vettvangi þarf að vinna langt fram í tímann. Það þarf jafnvel mörg ár til þess að undirbúa og skipuleggja ráðstefnur, flug- ferðir, dagskrár, ráðstefnugögn og allt sem þarf — þetta er tíma- frekt að undirbúa. Mér fyndist ekki óeðlilegt að einhver opinber aðili hérlendis tæki forystu um þessi mál og hæfi að skipuleggja og beita sér fyrir því í auknum mæli að hér yrðu haldnar allar mögulegar ráðstefn- ur og fundir. Hér höfum við allt til alls, sali af öllum gerðum, hótel í öllum verðflokkum og sérstæða hluti sem útlendingar hafa gaman af að skoða. Svona ráðstefnuferðir hingað ættu að vera betri „túrismi" að mörgu leyti heldur en almennar hópferðir — og það er hægt að skipuleggja það meira „að ofan“ hvernig og hvert þetta fólk ferð- ast og þá er kannski minni hætta á að náttúran verði fyrir tjóni, eins og margir óttast sem eru á móti ferðamönnum. — Þannig hljóðuðu orð ferða- langsins og hér bætir Velvakandi engu við. Hvað segja lesendur um það að gera Island að ráðstefnu- landi? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson 1 keppni ungra og reyndari spil- ara hjá Bridgefélagi Reykjavfkur I haust komu fyrir mörg skemmti- leg spil. Þó ber þetta spil af. t suður sat Jón Ásbjörnsson, einn af reyndustu spilurum félagsins. Suður gefur, A — V á hættu. Norður S. D76 II. Á6 T. ÁDG75 L. ÁK8 Vestur S. 832 H. 8754 T. K92 L. D53 Austur S. ÁG9 H. KD109 T. 843 L. 1092 Suður S. K1054 H. G32 T. 106 L. G764 Blekkisögn í 1. hendi er mjög sjaldan reynd en Jón brá sér á leik og opnaði á einum tfgli. Áður en hann vissi af var hann orðinn sagnhafi í 6 tíglum og vestur spil- aði út spaða. Austur tók 1. slag á ás og skipti í hjartakóng, sem tekinn var með ás blinds. Jón spilaði nú eins og hann hefði séð allar hendurnar. Lágur spaði frá blindum og tfan fékk slaginn. Tígultíu svínað, aft- ur svínað og teknir tfgulslagirnar. Austur lét tvö hjörtu en sagnhafi mátti missa eatt hjarta og tvö lauf. Nú fór Jón heim á hendina á spaðakóng og spilaði þrettánda spaðanum. Frá blindum lét hann hjarta en hvað átti austur að láta? Hann átti 4 spil á hendi, hjarta- drottningu og 1092 í laufi. Til- neyddur lét hann lauf og þá spil- aði Jón laufgosanum og nú var sama hvað vörnin gerði. I reynd lagði vestur drottninguna á og laufáttan varð tólfti slagurinn. Maigret og þrjózka stúlkan Framhaldssaga aftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 49 Hún er sannfærð um að efn- hver hreyfir sfg niðrf. — Hver er niðrí, Svarið mér... — Morðingann... — Hvað segið þér? Hún hefur stokkið út úr rúm- inu. —Hvað vakir nú fyrir yður... er ætlun yðar að gera mig brjál- aða... og ég hef engan til að verja mig... Hann hefur setzt á rúmstokk- inn og horfir á hana f mestu makindum og virðist ekkert kippa áer upp við æsing henn- ar. Svo hristi hann höfuðíð og andvarpar: Ég var að segja að morðing- inn væri nfðri... mér datt f hug að hann mundin koma aftur. Hann hlaut að átta sig á hvern- ig f pottinn var búíð. Svo að maður tali nú ekki um að auð- vitað hefur ekki hvarflað annað að honum en ég stjórnaði að- gerðunum f Parfs. Honum hef- ur ekki dottið í hug að ég yrði hér um kyrrt... — Og svo hefur hann komið. Svo grfpur hún hönd fyrir munninn. Þvf að hún skilur þetta ekki. Hún gfpur þéttangs- fast um handlegg Maigrets og hrópar. En hver... hver er það... hvernig er mögulegt að.. Hún er svo spennt að vita hver það er að hún þýtur á skræpandi bláa sloppnum sfnum f áttina að skörinni. En nemur svo skyndilega staðar. — Hver er það? — Hatið þér mig enn — Já,-.. nei... ég veit það ekki... — Hvers vegna skrökvuðuð þér að mér? — Af því; — Hlustið nú á mi^, Felicie... — Ég vil ekki hlusta á yður... Eg opna gluggann og hrópa á hjálp... — Hvers vegna hafið þér ekkl sagt mér að mánudags- morguninn þegar þér komuð heim úr búðinni sáuð þér að Jacques Petillon var eínmitt að ganga úr garðinum...? Þvf að ég veit að þér sáuð hann... hann gekk bak við gerðið... það var honum til heiðurs að Lapie gamli sótti glös og flösku... hann hefur Ifklega haldið að frændinn kæmi til að semja frið við hann... biðja hann fyrirgefningar... hvernig skyldi ég vita það? Hún hlustar, hreyfingarlaus og mótmælir ekki. — Og þess vegna hélduð þér að það hefði verið Jacques sem myrti frænda sinn. Þér funduð byssuna f herberginu og f þrjá daga földuð þér byssuna á yður unz yður tókst loks að stinga henni f vasa einhvers ókunnugs manns f sporvagninum... Þér lituð á yður sem sannkallaða hetju... yður lék á þvf hugur að frelsa manninn sem þér elskuðuð — hvað sem það kost- aði. Þó svo að sá hinn sami maður hefði ekki hugmynd um ástinarog aðdáunina. Og vegna lygasagnanna yðar munaði engu að hann yrði handtekinn fyrir glæp sem hann hafði ekki framið. — Af hverju segið þér það? — Af þvf að morðinginn er niðri... — Hver er hann? — Þér þekkið hann ekki... — Enn einu sinni eruð þér að reyna að leiða mig á villigötur. En ég svara ekki fleiru, skiljið þér það ... segi ekkert. Nú farið þér yðar leið, svo að ég geti klætt mig... Nei... verfð kyrr, hvers vegna hefði Jacques átt að koma einmitt þennan mánudagsmorgun...? — Vegna þess að músfkant- inn hafði skipað honum það. — Hvaða músfkant... — Félagi hans... t Parfs skal ég segja yður kynnist maður fólki af ýmiss konar sauða- húsi... sérstaklega þegar maður spilar á saxófón á ómerkilegum næturklúbbi... nú ættuð þér að drekka kaffið yðar áður en það verður kalt. — Hann hefur opnað gluggann og Iftur út. — Þarna er vinstúlka yðar, hún I.eontine, á leiðinni að kaupa brauð... hún Iftur hingað... nú held ég þér hafið eitthvað að segja henni...? — Ég segi henni ekki bofs. — Eigum við að veðja — Ég vil ekki veðja við yður...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.