Morgunblaðið - 12.01.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1977
Skjálft-
unum
jölgar
Undanrennuduftið:
JL
SÍDASTA sólarhring mældust 42
skjálftar á jarðskjálftamælum I
Reykjahllð. Stærstu skjálftarnir
mældust rúmlega 2 stig á Richter-
kvarða og fannst einn þeirra I
búðunum við Kröflu, enda voru
upptök hans ekki langt frá. Stfg-
andi hefur verið I skjálftum á
Kröflusvæðinu síðustu daga, sfð-
ustu 5 daga voru þeir að meðaltali
30,6 á dag, en voru 5 daga þar á
undan 26,6 að meðaltali á dag.
Land virðist enn vera að rísa
við Kröflu, en þó brá svo við i
fyrrinótt að stöðvarhúsið lækkaði
um tíma. í gær fór húsið svo aftur
að hækka og gerði enn síðast þeg-
arvitaðvar.
Liðlega 100 þús*
und atvinnuleys-
isdagar á landinu
á síðastliðnu ári
ATVINNULEYSISDAGAR á
landinu á sfðasta ári voru samtals
106.374 talsins og var atvinnu-
leysið mest á landinu f janúar-
mánuði, en þá voru 1165 skráðir
atvinnulausir. Mest var atvinnu-
leysið f Reykjavík en alls voru
skráðir liðlega 28 þúsund at-
vinnuleysisdagar f borginni á ár-
inu. A Húsavfk voru skráðir 6450
atvinnuleysisdagar, 6504 á Blldu-
dal, 5877 á Akureyri og 6631 á
Þórshöfn.
I desembermánuði voru 58 karl-
ar og 38 konur skráð atvinnulaus í
Reykjavík eða 96 alls. 30 voru
skráðir atvinnulausir í Siglufirði,
35 í Hafnarfirði, 35 á Selfossi, 33 f
Hrísey og hvorki fleiri né færri
en 86 voru skráðir atvinnulausir á
Vopnafirði í síðasta mánuði, þar
af 55 verkamenn og sjómenn.
Hráefnisskort-
urinn veldur at-
vinnuleysinu hjá
Vopnfirðingum
UM áramótin sfðustu voru 86
manns skráðir atvinnulausir á
Vopnafirði og aðeins í Reykjavík
var þá meira atvinnuleysi.
Ástæðan fyrir þessu atvinnuleysi
á Vopnafirði er sú að sögn
Kristjáns Magnússonar, sveitar-
stjóra á Vopnafirði, að afli skut-
togarans Brettings var tregur f
sfðasta róðri fyrir jól og milli jóla
og nýárs var ekkert unnið að fisk-
verkun á Vopnafirði.
Framhald á bls. 18
Ansans kuldi er nú þetta.
Rafmagnsveita Reykjavíkur:
Tekur um 500 milljón króna
lán til að lengja eldri lán
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
heimild til Rafmagnsveitna
rfkisins að taka tilboði Hambros
Bank f London varðandi lántöku
að upphæð tæplega 500 milljónir
króna, en láninu skal varið til að
greiða niður ýmis lán sem Raf-
magnsveitan hefur tekið á síðustu
árum til skamms tfma að þvf er
Aðalsteinn Guðjohnsen rafveitu-
stjóri skýrði Morgunblaðinu frá f
gær.
Aðalsteinn sagði að fyrirhuguð
lántaka væri þannig til komin að
á seinasta ári hafi Rafmagnsveit-
an ekki treyst sér til að mæla með
meiri hækkun gjaldskrár við gerð
fjárhagsáætlunar 1977 en sem
svaraði 10% en á þessu ári þyrfti
Rafmagnsveitan að greiða af
ýmsum lánum sem tekin hefðu
verið til skamms tíma, og slíkt
hefði þýtt verulega hækkun gjald-
skrár. Hafði því orðið úr að brúa
þetta bil með því að taka nýtt lán,
sem notað yrði til að lengja þessi
eldri lán, sem flest hver væru til
um 5 ára. Hambros Bank í
London hefði milligöngu um lán-
Samdráttur í fram-
leiðslunni gæti
leitt til smjörskorts
EKKI hefur verið tekin um það
endanleg ákvörðun, hvernig
undanrennudufti þvf sem Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins hefur
ákveðið að selt verði bændum til
fóðurs, verður jafnað niður á þá.
Pétur Sigurðsson, mólkurtækni-
fræðingur hjá Framleiðsluráði
sagði að f þvf sambandi þyrfti
meðal annars að taka tillit til þess
undanrennudufts, sem bændur
keyptu nú þegar í formi kálfa-
fóðurs, en ef gert væri ráð fyrir
að allt að 150 tonnum yrði jafnað
niður i samræmi við mjólkur-
framleiðsluna f fyrra, kæmu 1,5
kfló á hverja 1000 lítra af mjólk.
Hver meðalbóndi með 35 þúsund
lítra framleiðslu á ári þyrfti því
að taka á sig um 50 kíló af undan-
rennudufti.
Undanrennuduft er nú fram-
leitt f fjórum mjólkurbúum í
landinu og sagði Pétur að sú
framleiðsla væri f beinum tengsl-
um við smjörframleiðsluna.
Smjörbirgðir hefðu verið í lág-
marki i fyrra og því hefði allt
kapp verið lagt á að auka smjör-
framleiðsluna. I fyrra, sagði
Pétur að vegna framleiðslu á
rjóma og smjöri hefðu fallið til 41
milljón lftrar af undanrennu. Þar
Framhald á bls. 19
Loðnuaflinn yfír
20 þúsund lestir
Bræla var á miðunum í gær
LOÐNUAFLINN var oróinn
20840 lestir f gærkvöldi eða frá
þvf að veiðar hófust þann 4.
janúar s.l. Um 40 skip hafa nú
byrjað loðnuveiðar, og f gær
höfðu yfir 30 fengið einhvern
afla. I fyrrinótt gerði brælu á
loðnumiðunum og leituðu skipin
þá vars. 1 gærkvöldi var enn vond
spá fyrir miðin NA af Kolbeinsey
og átti enginn von á veiði f nótt.
Enn er rými fyrir 3400 lestir af
loðnu á Siglufirði og smápláss á
Bolungavfk. Nokkur sýni hafa
borizt til Rannsóknastofnunar
Framhald á bls. 19
Fyrirtæki í Ártúns-
höfða stofna samtök
I ÁRTUNSHÖFÐA f Reykjavík
:r nú risið stærsta iðnaðarhverfi
t landinu og á þessu ári munu
ðnaðarfyrirtæki þar verða um
00 talsins. Sfðan f júlf á síðasta
iri hefur staðið yfir undirbúning-
ir að stofnun samtaka þessara
yrirtækja og fulltrúar flestra
leirra voru meðal stofnenda
,Artúnshöfðasamtakanna“ á
undi f gærkvöldi.
Kristmundur Sörlason hjá Stál-
eri var formaður undirbúnings-
efndar þessara samtaka og tjáði
hann Morgunblaðinu í gær að
verkefni þessa félagsskapar
mætti skipta i 4 þætti.
1. Að koma fram gagnvart opin-
berum aðilum, fjölmiðlum o.fl. f
sameiginlegum hagsmunamálum
fyrirtækjanna á svæðinu.
2. Að stuðla að fegrun og betri
umgengni í hverfinu.
3. Að gæta hagsmuna fyrirtækj-
anna gagnvart utanaðkomandi aó-
ilum.
4. Að annast sameiginlega
næturvörzlu á félagssvæðinu.
Landsvirkjunarraf-
tnagnið norður í gær
veitinguna en það væri að upp-
hæð um 2.6 milljónir Bandaríkja-
dala til 7 ára en afborgunarlaust
fyrstu tvö árin. Aðalsteinn sagði
að þessi lántaka yrði þannig ekki
til að auka lánabyrði Rafmagns-
veitunnar frekar en orðið væri.
1AMTENGING á orkuveitusvæði
.andsvirkjunar og orkuveitu-
væði Laxárvirkjunar hófst f
fyrrinótt til reynslu, en verið er
að reyna samtenginguna áður en
formleg tenging fer fram á
fimmtudaginn kemur. Sam-
kvæmt'upplýsingum Sigmars Sig-
urðssonar hjá Rafmagnsveitum
rfkisins á Akureyri var ekki
annað að sjá f gær en hin form-
lega tenging gæti átt sér stað á
tilsettum tfma. 1 nótt tókst að ná
norður nálega 5 megawöttum, en
það var hámarkið, og aðeins
skamman tfma.
Sigmar Sigurðsson sagöi að i
fyrrinótt hefði verið unnið að
samtengingunni alla nóttina og
um klukkan 06 var endanlega
tengt saman i Eyjafirði. Hann
kvað ekki komna nægilega
reynslu á þetta enn og kvað aflið
rokka talsvert til. Færi það að
sjálfsögðu eftir álagi á Vestur-
landi og Norð-Vesturlandi, en
linan fer úr Borgarfirði, norður
Holtavörðuheiði og áfram austur
til Akureyrar.
— Það eru ýmis smávandamál
sem koma upp við samkeyrslu á
svo stórum veitum, sagði Sigmar
og kvað menn þurfa einhvern
tíma til þess að átta sig á hlut-
unum, sérstaklega þegar um svo
litið afl væri að ræða sem raun
hæri vitni.
Venus geislar lágtí vestri
VENUS hefur verið
mjög skær á himni
undanfarin kvöld, en á 9.
timanum hefur hún verið
mjög lágt á lofti vestur-
himinsins. Á 10.
tímanum hefur stjarnan
sézt.
Venus hefur verið miklu
bjartari en Júpiter sem er önn-
ur bjartasta stjarnan nú og báð-
ar hafa þær sézt mjög vel.
Margir hafa haldið að Venus
væri einhver furðuhlutur á
lofti, vegna þess hve vel stjarn-
an hefur sést í sjónauka. Rauð-
um bjarma hefur slegið af
henni, en við góð veðurskilyrði
getur hún borið af sér alla liti.
Margir íbúar á Hamrinum i
Vestmannaeyjum fylgdust með
stjörnunni f fyrrakvöld en um
kl. 9 það kvöld var hún að sjá
frá Hamrinum í 3ja, gráða hæð
og 10 gráður hægra megin við
Álsey.
Slysavarnadeild
kvenna stofnuð 1
Grindavík í kvöld
Grindavfk, 11. janúar
ÁKVEÐIÐ er að stofna Slysa-
varnadeild kvenna hér f Grinda-
vfk. Kynningarfundur verður
haldinn miðvikudagskvöld kl. 21 f
Félagsheimilinu Festi.
A fundinum mætir Hannes
Ilafstein framkvæmdastjóri
Slysavarnafélags tslands og
Hulda Sigurjónsdóttir formaður
Hraunprýði f Hafnarfirði ásamt
fleiri félagskonum hennar. Þau
munu kynna störf slysavarna-
deilda kvenna á þessum
kynningarfundi, sem jafnframt
verður stofnfundur ef næg þátt-
taka verður.
— Guðfinnur