Morgunblaðið - 12.01.1977, Page 18

Morgunblaðið - 12.01.1977, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1977 Mörg glæsileg málverk boðin upp á herrakvöldi Njarðar HIÐ ÁRLEGA herrakvöld Lionsklúbbsins Njarðar verður haldið I Lsekjarhvammi, Hðtel Sögu, föstudaginn 14. janúar n.k. kl. 19. Lionsklúbburinn Njörður hefur um árabil haldið herrakvöld og eru þau orðin fastur liður I starfsemi klúbbs- ins, en þetta kvöld eru ávallt málverka- og listaverkauppboð. Að þessu sinni rennur ágóði af herrakvöldinu allur til líknarmála, má þar nefna að Njarðarfélagar hafa gefið háls- nef- og eyrnadeild Borgar- spítalans sérstök heyrnarmæl- ingatæki, sem ekki hafa verið hér til á landi og eru þessi tæki væntanleg til landsins um næstu mánaðamót. Verð tækj- anna án tolla og aðflutnings- gjalda er um 3 milljónir króna. Á málverkauppboðinu n.k. föstudag verða m.a. boðin upp verk eftír eftirtalda málara: Svein Björnsson, Pétur Friðrik, Kristján Davíðsson, Kára Eiriksson, Steinþór Sigurðsson, Örlyg Sigurðsson, Sigurð Steinsson, Einar Hákonarson og Karl Kvaran. Einnig verða á boðstólum happdrættismiðar en vinninga, sem eru fjölmargir og glæsileg- ir, haf a ýmsir aðilar gefið. Ræðumaður kvöldsins verður Friðfinnur Ólafsson, forstjóri, Guðrún Á Simonar og Ómar Ragnarsson munu síðan skemmta, en veizlustjóri verður Sveinn Snorrason. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt i herrakvöldi Njarðar geta snúið sér til Sigurðar Jóns- sonar í 65144, Helga Sigurðs- sonar í 38500 og Björns Theodórssonar i síma 27800. — Sjö hross hætt komin Framhald af bls. 32. Um klukkan 21 komu menn um borð í Héðni Valdimarssyni auga á prammann þar sem hann var strandaður við norðaustanvert Geldinganes. Kyndilsmenn brut- ust yfir Eiðsgrandann, út á Geld- inganesið og komu þeir vír á prammann og drógu hann á land. Voru hrossin blaut og mjög hrak- in þegar þeim var bjargað og svo var af einu þeirra dregið að ganga varð undir þvi upp að björgunar- sveitarbílnum, sem siðan flutti hrossið yfir Eiðsgrandann þar sem aðrir bilar tóku við hrossun- um 7. Það var um klukkan 17 í gær, sem mennirnir lögðu af stað með hrossin úr Þerney, en klukkutíma siðar barst Slysavarnafélaginu beiðni þeirra um aðstoð. Um klukkan 21 fannst pramminn og hrossin voru síðan komin í hús laust fyrir klukkan 23. Mjög hvöss norðaustan átt var síðdegis í gær og skóf þá á Leirvoginum, en með kvöldinu varð veðrið skaplegra. Frost var 10 stig í gær og gaf yfir prammann, sem hrossin voru i. Danir sigruðu AFMÆLISMÓT danska körfuknatt- Loðnuskipin í landvari Grfmsey, 11. janúar. TÓLF loðnuskip liggja nú hér á Sandvíkinni fyrir framan og skip- verjarnir virðast hafa nóg að gera við að berja is af klakabrynjuðum skipum sinum. Á sunnudaginn voru 14 loðnuskip hér fyrir framan, enda ekkert veiðiveður. Nú er hér 10 stiga frost en vind- inn hefur lægt seinni partinn I dag. Veðrið var þó ekki verra en svo i dag að hingað var flogið og sannast sagna höfum við Grimsey- ingar ekki enn orðið varir við neitt skammdegi það sem af er vetri. Snjór er hér sama sem eng- inn og menn keyra hér fram og aftur á traktorum sínum án þess að hafa keðjur. — Airrea — Allon Framhald af bls. 1. tékknesku öryggislögreglunnar. Sagði Havel að yfirheyrslan hefði að mestu snúizt um hina nýstofn- uðu hreyfingu andófsmanna. Hefði hann neitað að svara spurningum um „Mannréttindi 77“ og mundi halda þvi áfram meðan yfirvöld litu svo á að henni væri stefnt gegn lýðveldinu, þar sem i rauninni væri hér að ræða yfirlýsingu sem miðaði að uppbyggingu. leikssambandsins fór fram um helg- ina, með þðtttöku landsliða Skot- lands. frlands og Noregs auk danska landsliðsins. Komu Norðmennirnir inn í keppnina I stað fslendinga, en eins og fram hefur komið áður treysti Körfuknattleikssambandið sér ekki til þess að senda lið vegna fjárskorts. Úrslit I keppninni urðu þau, að Danir sigruðu örugglega i öllum leikjum sinum Kepptu þeir til úrslita við Skota og sigruðu i þeim ieik 78—68, eftir að staðan hafði verið 41—39 i hálfleik. Skotar urðu i öðru sæti, Norðmenn i þriðja sæti og frar rðku iestina — hlutu ekkert stig i keppninni. — Austur-Berlín Framhald af bls. 1. mann lét svo ummælt f dag að þessi ákvörðun frönsku stjórnar- innar mundi hafa hörmulegar af- leiðingar fyrir baráttuna gegn hryðjuverkamönnum, en fulltrúi Bonn-stjórnarinnar sagði hins vegar að v-þýzka stjórnin gæti ekki haft afskipti af málinu þar sem stjórnvöld I Múnchen hefðu ekki farið fram á að Bonn- stjórnin hefði milligöngu um að Daoud yrði framseldur. Abu Daoud var handtekinn í París fyrir nokkrum dögum grunaður um að hafa skipulagt fjöldamorðin á ísraelsku íþrótta- mönnunum I Miinchen. ísraels- stjórn óskaði eftir því að hann yrði framseldur svo hægt væri að leiða hann fyrir rétt, en þessari umsókn var visað á bug á þeirri forsendu að meint afbrot hefðu átt sér stað í Mtinchen og yfirvöld þar væru rétti aðilinn til að fjalla um mál hans., Talið hafði verið að franska stjórnin bjargaði sér úr klípunni með því að framselja — Yfirheyrslur Framhald af bls. 1. dag fram opinber mótmæii við Sovétstjórnina vegna ummæla og ráðstafana sem brytu í bága við samninga fjórveldanna um Berlín en að undanförnu hefur svigrúm Vestur-Þjóðverja til heimsókna austur yfir múrinn minnkað mjög, auk þess sem austur-þýzka stjórnin hefur hvað eftir annað ítrekað þá skoðun sína að undan- förnu, að fjórveldasamningurinn um Berlín gildi aðeins um vestur- hluta borgarinnar. Daoud V-Þjóðverjum, en dómstóll í Paris úrskurðaði í dag, að honum skyldi sleppt og komið úr landi. Yfirheyrslur í málinu tóku aðeins skamma stund, og segja heimildarmenn að bersýnilega hafi verið ætlunin að flýta þeim eins og kostur væri. Daoud neitaði öllum sakargiftum fyrir réttinum og kvaðst ekki heita Abu Daoud, heldur Youssef Raji Ben Hama. Urskurðurinn um að Daoud skyldi sleppt hefur vakið mikla furðu meðal manna, og er talið að með þessu hafi Frakkar viljað koma í veg fyrir að sambúð þeirra við Araba færi versnandi. Frelsis- hreyfing Palestínuaraba (PLO) lýsti ánægju sinni með lyktir málsins, og skoraði um leið á frönsk stjórnvöld að láta einskis ófreistað til að hafa hendur I hári morðingja annars skæruliða- foringja, Mahmoud Saleh. Hann var myrtur i Paris fyrir skömmu og var erindi Abu Douds til Parísar að fylgja honum til grafar. — Greiðsluafkoma ríkissjóðs jákvæð Frá tónleikunum í Safnahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki 4. janúar sfðastliðinn. — Ljósm.: Stefán Petersen. Tónleikar á Saudárkróki >auúárkróki 5. janúar NYTT trió kom í fyrsta sinn fram opinberlega á tónleikum i Safna- húsi Skagfirðinga á Sauðárkróki s.I. þriðjudag. Tríóið skipa Guðný Guómundsdóttir fióJiíjeikari, Haf- liði Hallgrímsson sellóleikari og Philip Jenkins pianóleikari. Tón- leikarnir voru haldnir á vegum, Tónlistarskólans hér og Tónlistar- félagsins, en þessir aðilar hafa sfóustu ár staöió fyrir nokkrum tónleikum þar sem ýmsir ágætir listamenn hafa komið fram. Tónleikarnir í Safnahúsinu voru vel sóttir og hinu frábæra listafólki mjög vel tekið og það margkaliaó framj lpkin. Kári Framhald af bls. 32. 1975 sýndu skuldaaukningu við bankann, 5,8 milljarða króna, þar af vegna gengisbreytinga 270 milljónir króna og vegna gengis- ábyrgðar ríkissjóðs á Verð- jöfnunarsjóói fiskiðnaðarins 850 milljónir króna. Greiðsluhreyfingar rikissjóðs gagnvart öðrum viðskiptaaðilum fólu f sér útstreymi úr rikissjóði vegna lækkunar á lausaskuldum 'og breytingar útistandandi krafna sem nam 1,6 milljarði króna. Hér er fyrst og fremst um að ræða greiðslur til Viðlagasjóðs og Olíusjóðs fiskiskipa samtals að fjárhæð 500 milljónir króna. Þá var greitt til Tryggingastofnunar rikisins vegna sjúkratrygginga tæpar 600 milljónir króna, vegna skuldar frá fyrri árum. Fjárhagur ríkissjóðs hefur þvi styrkst á síðastliðnu ári borið saman við árin 1974 og 1975. Að vísu tókst ekki eins og áætlað var að grynna á skuldum rikissjóðs hjá Seðlabankanum á s.l. ári g amhiltar rikissjóðs i árslok 1976 11,5 milljörðum króna. Hins vegar lækkuðu lausaskuldir ríkis- sjóðs við aðra, eins og fram er komið, um 1,6 milljarða króna, sem er 100 milljónum króna hærri fjárhæð en nemur skulda- aukningu hjá Seðlabankanum. Þótt endanlegar niðurstöðu- tölur A-hluta ríkisreiknings fyrir árið 1976 séu ekki fram komnar má reikna með hagstæðum rekstrarjöfnuði hjá rikissjóði á árinu 1976. Á árinu 1975 var rekstrarhalli hjá ríkissjóði að fjárhæð 7.5 milljarðar króna. Fjármálaráðuneytið, ,,, , , , Il.janúar 1977 IIDróHirl URSLIT ( ensku knattspyrnunni i gærkvöldi: 1. deild: QPR —Tottenham Hot- spur 2:1 FA-bikarkeppnin: Bristol Rovers — Nott. Forest 1:1 Middlesbrough — Wimbledon 1:0 Orient — Darlington 0:0 Swindon Town—Fulham 5:0 WBA — Manchester City 0:1 Crystal Palace — Liverpool 2:3 í Skotlandi urðu úrslit þau f úrvalsdeildinni að Celtic sigraði Rangers með einu marki gegn engu. Bayern Munchen lék i gær- kvöldi gegn landsliði Israels og fór leikurínn fram I Tel Aviv. I lið Bayern Munchen vantaði sex af beztu leikmönnum þýzka liðsins, sem tapaði 0:2. Andy Gray, markhæsti leik- maðurinn í ensku 1. deildinni, var í gærkvöldi dæmdur i 75 punda sekt af aganefnd enska knatt- spyrnusambandsins. Þá var Alan Mullery dæmdur í 100 punda sekt. 1 gær var dregið um það hvaða lið leika saman f átta liða úrslit- unum f Evrópumótunum. Meðal liða sem leika næst saman eru: Meistarakeppnin: Bayern Munchen — Dynamo Kiev St. Etienne — Liverpool Zurich — Dynamo Dresden Borussia Mönchengladbach — Brugge Evrópukeppni bikarhafa: Atletico Madrid — Levski Spartak Anderlecht — Southampton Feyenoord — Molenbeck Páll Björgvinsson var i gær samþykktur af stjórn HSl sem löglegur leikmaður með mfl. Víkings í handknattleik. — Hráefni Framhald af bls. 2 Sagði Kristján að 60 manns ynnu að öllu jöfnu við fiskvinnslu á Vopnafirði en þar sem Vopn- firðingar ættu aðeins einn skut- togara kæmu slæmar eyður i fisk- vinnsluna og atvinna yrði stopul. Sagði Kristján að unnið væri að þvi á Vopnafirði að fá þangað nýja skuttogara. — Við búum við tilfinnanlegan hráefnisskort og það lagast ekki fyrr en við fáum annað skip, sagði Kristján. — Settur í 30 daga gæzlu Framhald af bls. 32. Þar sem um var að ræða smygl á ffkniefnum, til Keflavfkurflug- vallar og viðtakendur flestir Bandarfkjamenn, búsettir innan vallarhliðsins, þótti réttara að yfirheyrslur færu fram á vegum hersins. Vegna rannsóknar máls- ins var varnarliðsmaðurinn úr- skurðarður f allt að 30 daga gæzluvarðhald af bandarfskum yfirvöldum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.