Morgunblaðið - 12.01.1977, Page 21

Morgunblaðið - 12.01.1977, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1977 21 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Óska eftir 3ja til 4ra herb. góðri ibúð til leigu í Voga- eða Heimahverfi. Þrennt i heimili. Uppl. i sima 1 6034. Ný kjólasending Allar stærðir. Gott verð. Dragtin, Klapparstíg 37. Get tekið ungabörn í gæzlu 5 daga vikunnar. Er á Melunum. Sími 23022. Hef leyfi. hljóðfæraleik. Viktoríu tríó. Simi 13332. Val. sala og mat LISTMUNA Aðstoð við val, sölu og mat listmuna, málverka, gull og silfurmuna, hljómplötusafna, frí frímerkjasafna og fl. Sími 13468 daglega, aðeins kl. 10—1 1 f.h. Skattframtöl 1977 Sigfinnur Sigurðsson hag- fræðingur Bárugata 9, Reykjavík, s. 14043 og 85930. Gaffallyftarar Getum útvegað diesel-gas eða rafmagnslyftara, með stuttum fyrirvara. Perkins vél, sjálfskipting, vökvastýri og hagstætt verð. Leitið nánari upplýsinga. Vélar og þjónusta h.f., Smiðshöfða 2 1, simi 83266. Einstaklingsibúð til leigu í Seljahverfi i Reykja- vík. Tilboð sendist Mbl. fyrir 17. janúar merkt: Einstakl- ingsíbúð — 4683. 3ja herb. kjallaraibúð til leigu í Skerja- firði Tilboð sendist Mbl. merkt: „T-1 296 '. Volvo 144 '68 mjög göður til sölu. Má borg- ast á 1. ári eða eftir sam- komulagi. Aðeins góð trygg- ing kemur til greina. Simi 22086 IOOF 1 = 15811 2816 = IOOF 1 1 = 1 581 1 3 8 Vi = I00F9 =15811 2816 = Hörgshlíð 12 Samkoma i kvöld, miðviku- dag kl. 8. Kristniboðssambandið Samkoma verður haldin i Kristniboðshúsinu, Betania, Laufásvegi 13 í kvöld kl. 20.30. Frú Filippia Kristjáns- dóttir, talar. Allir eru velkomnir. I.O.G.T. Stúkan Einingin Fundur i kvöld miðvikudag 12. janúar. Vigsla embættis- manna. Mynnst merkis- afmæla félaga á liðnu ári. Æ.T. Frá Sálarrannsóknar- félaginu í Hafnarfirði Fundur verður í Iðnaðar- mannahúsinu við Linnetsstig fimmtudaginn 13. janúar og hefst kl. 20.30. Dagskrá: Dr. Erlendur Haraldsson, ræða. Sigurveig Hanna Eiriksdóttir. upplestur. Sigriður Ella Magnúsdóttir, söngur. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna. Stjórnin. Félagið Anglia til- kynnir að innritun fyrir enskutalæf- inganámskeið, fer fram á Ara- götu 14, laugardaginn 15. janúar n.k. kl. 15—17. Kennslan byrjar mánudaginn 24. janúar allar upplýsingar eru veittar í síma 1 3669. Stjórn Anglia. Aðalfundur KR kvenna verður i KR-heimilinu mið- vikudaginn 12. janúar kl. 8.30. Venjuleg aðalfundar- störf. Mætið vel og stundvis- lega. Stjórnin. Athugasemd vegna minka- búsins á Sauðárkróki Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Sig- urjóni Jónssyni Bláfeld, minka- ræktarráðunauti, vegna fréttar i blaðinu 4. janúar sl. þar sem greint var frá því, að tvö minkabú í landinu væru að hætta starfsemi sinni. Athugasemd Sigurjóns er svohljóðandi: „í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins 4. janúar s.l. seg- ist Jón vilja benda á að eitt minkabúið, búið á Sauðárkróki, sem algjörlega hafi fylgt tillögum mlnum með fóðrun, hefði haft lélegri frjósemi og I heild léleg- ustu útkomuna af minkabúunum f landinu. Engan veginn er rétt að minka- búið á Sauðárkróki hafi haft lélegri frjósemi af völdum fóðurs- ins. Við athugun á skertri frjó- semi, sem var 0.3 hvolpar frá — Náttúran.... Framhald af bls. 13. strendingar lifað flestu örðu fremur I minni minu allt frá því að ég dró þar nyrðra fyrsta fisk úr sjó, fjórtán ára gamall, og hafði nokkur kynni af öðrum eins mönnum og Eliasi á Horni og Betúel í Höfn. Og ekki dái ég síður en áður forspjallið að bindinu Dimma og dulmögn, þar sem Þórleifur freistar að vekja skilning á því, að fólk á Hornströndum og í heimabyggð minni, Arnarfirði, var að lik- indum næmara fyrir dulmagni og dularverum en flestir aðrir landsmenn — og fengu á sig galdraorð öðrum fremur. Ég gæti skrifað langt mál um Hornstrendingabók og höfunda hennar, en læt hér staðar num- ið með þvf að óska þess, að sagnaskáldinu Þórleifi Bjarna- syni megi endast heilsa til að skrifa lokabindið af sínum mikla sagnabálki, en það bindi landsmeðaltalinu, fannst að hún var tengd of mörgum ófrjóvgum högnum sem notaðir voru við pör- un, skyldleikarækt, breytingum á hreiðurkössum á meðgöngutima og auk þess virussjúkdómur (plasmacytosi) sem veldur ófrjó- semi. Hvað varðar hvolpa sem koma til nytja í haust, voru þrjú bú með fleiri hvolpa á hverja lif- læðu og önnur þrjú með færri. Þá eru hrein öfugmæli að segja að I heild hafi útkoma búsins ver- ið lélegust af minkabúunum f landinu. Fóðrun, vaxtarhraði og þrif hvolpa voru það góð, að að- eins I erlendum tilraunum hef ég séð jafn góðan árangur hvað þetta varðar. Einnig er stærð skinna og gæðaflokkun þeirra það góð, að ekkert hérlent minkabú hefur komist til jafns við Sauðárkróks- búið. Jafnframt sýna söluskýrslur hygg ég að muni bera heitið: Mannaþefur i helli minum. Nú hefur tröllinu orðið að ósk sinni, en heillandi dulmagn hvilir ekki síður nú en áður yfir hinu fagra og hrikalega landi, þar sem „náttúran talar nú ein við sjálfa sig“ Guðmundur Gfslason Hagalfn — Eigum við ekki að segja Framhald af bls. 13. fara ekki sjálfir úr hárunum, því þeir eru ræktaðir með það í huga að þeir séu klipptir. Ég hef fengið hunda alls staðar að af landinu og það hefur greinilega vantað fólk, sem tæki þessa þjónustu að sér, því sumir hundanna voru orðnir eins og flókatryppi. Þá hef ég tekið að mér að klippa gogga og klær á heimilisfuglum og á nag- dýrum hef ég þurft að klippa af tönnunum. Þetta er nauðsynlegt að gera annað slagið, því á sumum nagdýrum vilja tennurnar vaxa endalaust. Að lokum var svo vikið að þvi vandamáli sem dýraverndunar- félög eins og flest önnur félög eiga við að stríða fjárskorti. — Peningaleysi hamlar mjög allri starfsemi okkar og ég vil að lokum fá að benda fólki á giró- reikning dýraspítalans sem er nr. 44.000 Þeir sem áhuga hafa á að styrkja þessa^ stofnun mega vita það að full not eru fyrir öll fram- lög, smá og stór, segir Sigfríð að lokum. — áij uppboðshaldanna, að margoft hafa skinn frá Sauðárkróki verið boðin upp i svo kölluðum „TOPP“ bunktum, sem aðeins fyrir- myndarbú með áratuga reynslu að baki geta státað sig af. Það sem mest hefur háð Sauðár- króksbúinu er áð búið er of lítið (aðeins 1000 læður, best 2500— 3000), til að standa undir kostnaði sem fylgir fóðureldhúsi. Úr þessu er nú verið að bæta með stækkun búsins með lífdýrum af stofni Jóns Ásbergssonar og félaga. Sigurjón Jónsson Bláfeld, minkaræktarráðunautur.“ — Sjúkra- flutningar Framhald af bls. 23 faglegu hlið á framkvæmdum. Með þekkingu þeirra og auknu fjárframlagi hlyti besti og farsæl- asti árangur að nást, segja bruna- verðir. Jafnframt telja brunaverðir að viðbrögð þeirra, sem viðstaddir eru slys eða skyndileg hjartatil- felli skipti miklu máli: „Fyrstu mínúturnar sem oftast eru dýrmætastar fara venjulega til einskis vegna þess, að viðstadd- ir bregða ekki strax við og hefja blástursaðferð og hjartahnoð, sem getur hjálpað til að halda blóðstreymi til heilans lengur en ella. Þessa meðferð þarf að kenna almennt, taka slíka fræðslu ann I námskerfið betur en gert hefur verið.“ — Bíðið þið eftir að læknir komi á staðinn, sé þess þörf? „Það fer eftir ástandi sjúklings- ins. Sé hann t.d. I dái er ekki eftir neinu að bíða. En komi læknir í tæka tið getur það flýtt fyrir að sjúklingurinn komist á sjúkrahús. Læknir getur lagt hann beint inn á vaktsjúkrahús en við verðum að flytja hann á slusavarðstofu. Sé hægt að koma því við er öruggast að læknir fylgi sjúklingi i neyðar- tilfelli beint inn á sjúkrahús.“ Þjálfun brunavarða við sjúkra- flutninga — Hve mikla þjálfun fáið þið fyrir þetta starf? „Námskeið eru haldin fyrir okkur í sjúkrahjálp. Auk þess höfum við fengið fræðslu á deild- um sjúkrahúsanna, t.d. slysa- deild, hjarta- og skurðdeild og fæðingardeild. En alltaf eru að koma til nýjungar og framfarir. Segja má að við fáum aldrei of mikla þjálfun." — Hafið þið tök á að beita þeim tækjum sem i sjúkrabifreiðum eru? „Við reynum að nota þau eftir þörfum hverju sinni. Hjartaraf- loststækið notum við ekki, það er ekki meðfæri annarra en lækna. Við gefum ekki lyf né blóð, meg- um t.d. ekki gefa sprautu þótt með þurfi, það geta læknar og hjúkrunarfræðingar einir gert.“ — Álítið þið mögulegt og æski- legt að þið yrðuð þjálfaðir til þess? „Þá er komið að spurningu um það, hvað mikið á að kenna okkur, hvað er ætlast til að við verðum færir um að framkvæma. Það er spurning, sem varðar fjármagn og skipulag. Því getum við ekki sjálf- ir svarað. Það verða aðrir að gera.“ Alag — Gagnrýni — Launakjör — En víkjum nánar að persónu- legri reynslu ykkar í starfinu. Eg hef heyrt að dæmi séu til þess að mönnum reynist þetta starf of- raun og verði að leita annarra starfa? „Þess eru einhver dæmi að menn þoli ekki álagið. Þó er það fremur vegna líkamlegrar áreynslu. Mikil áreynsla getur fylgt slökkvistörfum, við sjúkra- flutninga, björgun fólks úr bíl- slysum o.fl. Þetta hefur stundum leitt til bakskemmda og menn orð- ið að hætta þess vegna. — I hverju felst mesta álagið? „Mesta álagið er að verða annan vinnutimann að vera viðbúinn hinu versta. Með því komumst við síður úr jafnvægi þegar á reynir. Reiknaðu alltaf með því versta, þá verður það oftast heldur skárra, sagði reyndur brunavörð- ur við annan yngri, sem var að byrja. Þó kemur alltaf illa við okkur, þegar tilkynnt er um slys á börnum. En oftast er okkar reynsla önnur en áhorfenda, sem ekki taka þátt í því, sem gera þarf. Okkur gefst minni tími til að hugsa, verðum að framkvæma það sem undir öðrum kringunv stæðum væri nær óhugsandi. — Verðið þið oft fyrir gagn- rýni? „Gagnrýni verður ekki oft vart, en heldur ekki viðurkenningar. Við erum ekkert hafnir yfir gagn- rýni sé hún sanngjörn. En já- kvæðar undirtektir mundu einnig gleðja, ef vel tekst. En okkar starf gefur ekki tilefni til þess. Við komum oftast fyrstir á staðinn og skilum sjúklingnum í hendur hjúkrunarliðs á sjúkradeild. Við höfum fyrirmæli um að gefa sem gleggstar upplýsingar um atburð- inn og hinn slasaða eða sjúka. En oft gefst enginn tími ti að safna þessum upplýsingum enda eru þeir, sem eiga að veita þær stund- um ekki i sálarástandi til þess. Okkar hlutverki lýkur svo án þess að nokkur veiti athygli hvort vel eða illa hefur tekist. — Eru launakjör I samræmi við sérstöðu starfsins? „Það fer eftir því hvernig á það er litið. Sumir álíta að við séum allt að því byrði á þjóðfélaginu, höfum margan daginn lítið annað að gera en hafa það huggulegt hér á stöðinni. Við höfum í fastakaup 85 þús. kr. á mánuði og kr. 200.00 álag á vinnustundir utan dag- vinnutíma. Við erum í sama launaflokki og strætisvagnastjór- ar. Ef við getum ekki lifað á þess- um launum verðum við að afla þeirra tekna utan stofnunarinnar. Þótt miðað sé við 30 útköll við sjúkraflutninga á dag auk slökkvistarfa, er það enginn mæli- kvarði á vinnuálag, svo misjafn tími og erfiði felst í hverju út- kalli. Með þeim starfsmanna- fjölda sem nú er, eykst spenna og álag, þegar vixla þarf starfliði á milli slökkvibila og sjúkrabíla eft- ir þörfum. Hér er það okkar höfuðverkur að standa ef til vill uppi með engan sjúkrabíl eftir á stöðinni og hugsanlega yrði stór- slys á næstu mínútu. Sama gerist þegar menn vantar á brunabílana vegna þess að þá hefur orðið að taka á sjúkrabílana. Hvað skeður ef stórbruni verður á meðan svo stendur á? Það tekur tima að kalla út varalið og margt getur skeð á meðan.“ — Hvað um starfsaldur? „Menn fá að vera á vöktum til 65 ára aldurs. Starfið krefst oft mikillar snerpu og viðbragðsflýt- is. öllum er fyrir bestu að menn séu ekki of gamlir í þessu starfi." Fáein lokaorð: Laun og kjör brunavarða er að visu málefni útaf fyrir sig en þó til umhugsunar hverjum þeim, er kann að þurfa á þjónustu þeirra að halda þegar mestu varðar. Eins og sjúkraflutningum er nú háttað verður ekki fram hjá því gengið, að líf ófárra borgara hlýtur að verða í þeirra höndum. Á meðan svo er, skiptir það skattgreiðend- ur nokkru máli hve miklu af al- mannafé er varið til að veita þeim þekkingu og skilyrði til að valda svo mikilli ábyrgð. Af framangreindum upplýsing- um er ljóst að fjármál ráða miklu um framkvæmd þessarar velferð- arþjónustu. Telja má eðlílegt að farið sé að dæmi stærri og auð- ugri þjóða í þessum efnum. En minna má á, að hvert mannslíf er verðmætara smáþjóð en milljóna- þjóðum. Ennfremur er talið að þær þjóðir hafi á að skipa við sjúkraflutning starfsliði, sem hlotið hefur fullkomna sjúkra- þjálfun á stríðstimum. Islendingar hafa sýnt að þeir kunna að fara eigin leiðir i heilsu- gæslumálum. Með farsælum árangri í baráttu við berklaveiki var bjargað ótöldum mannslifum og forðað ófyrirséðu heilsutjóni. Hugsanlega má finna svo far- sæla leið til aukins öryggis á fleiri sviðum velferðar- og heilbrigðis- mála. Desember 1976 Þuríður J. Árnadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.