Morgunblaðið - 12.01.1977, Page 23

Morgunblaðið - 12.01.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1977 23 Nokkrar stað- reyndir um fram- kvæmd og rekstur sjúkraflutninga Slökkviliðsmenn að störfum á slysstað. Þótt merki Rauða krossins á sjúkrabifreiðum beri daglega fyr- ir augu borgarbúa má draga í efa að hinum almenna vegfaranda sé ljóst hvern þátt þau samtök eiga í þessari velfeðarþjónustu. Hve mörgum er kunnugt að innan Reykjavíkurdeildar Rauða kross- ins er starfandi nefnd, sem hefur á hendi rekstur sjúkrabifreiða? Taka má fram að nefndin er ólaunuð. Fjármál eru í höndum Jónu Hansen og var mér bent á að ræða við hana um rekstur og fjárhag starfseminnar. Um þetta segir hún: „Sjúkrabílarnir eru eign Rauð krossins. Verkefni hér í nefnd- inni er að sjá um rekstur þeirra. Um það höfum við samráð við sjúkraflutninganefnd Reykja- víkurborgar en í henni eiga sæti læknar, sem eru fulltrúar sjúkra- húsanna, slökkviliðsstjóri, borg- arlæknir og fleiri. Fulltrúi Rauða krossins í nefndinni er Árni Björnsson læknir. Sú nefnd legg- ur á ráðin um það hvernag sjúkra- bíl skúli kaupa hverju sinni, hvernig hann skuli vera úr garði gerður, hvernig tækjabúnaður verði í honum o.s.frv. Reykjavíkurdeild R.K. leggur til sjúkrabafreiðar á Reykjavíkur- svæðinu, Kópavogi, Seltjarn- arnesi og Mosfellssveit, einnig við móttöku sjúkraflutninga utan af landi. Sjúkrabifreiðunum er ætl- að að standa undir eigin rekstri fjárhagslega.“ — Hver er rekstrargrundvöll- ur? Hverjir tekjustofnar og út- gjaldaliðir? „Tekjustofnar eru greiðsla fyr- ir notkun sjúkrabila, skyndihapp- drætti og tekjur af spilakössum, sem settir hafa verið upp á sam- komustöðum. Utgjöld eru dagleg- ur rekstur og viðhald sjúkrabíl- anna, eldsneyti og viðgerðakostn- aður, sem oft er mikill vegna óhappa í umferðinni og þess að notast hefur verið við bílana leng- ur en æskilegt er. Reksturinn stendur engan veg- inn undir sér fjárhagslega. Ekki er hægt að nefna upphæð rekstr- arútgjalda i ár, þar sem endanleg- ar tölur eru ekki fyrir hendi. Þó er ljóst að ekki blæs byrlega um tekju- og greiðslujöfnuð á þessu ári. Áætlaður taprekstur á árinu er 3,8 milljónir króna. Þessi upp- hæð skiptist þannig: 1,8 milljónir kr. vegna slysa er verða á götum úti eða sjúklingur hefur látist á staðnum en í þeim tilfellum er ekki krafist greiðslu; 2 milljónir kr. er áætlað tap vegna þeirra, sem ekki hafa greitt flutning strax en neita að greiða reikning þegar þeir fá hann sendan." — Hver greiðir mismuninn? „Mismunurinn fellur á Rauða krossinn. T.d. fer ágóði af 3 skyndihappdrættum á árinu til að jafna þennan taprekstur. Á næstu árum má gera ráð fyrir vaxandi greiðsluhalla. Kostnaður eykst árlega. Umdæmissvæðið stækkar, íbúum fjölgar, fleiri sjúkrahús taka til starfa. I því sambandi má nefna að einn sjúkrabíll er nú nær eingöngu við flutninga milli sjúkrahúsa frá kl. 8 að morgni til kl. 4 e.h. Endur- nýjun sjúkrabíla er æskileg á þriggja ára fresti, en það þýðir kaup á einum bíl á hverju ári og tveimur bílum þriðja hvert ár. Fyrirsjáanlegt er að R.K. getur ekki lengur staðið straum af kostnaðinum. Fyrirhugað er að taka það mál til gagngerðrar endurskoðunar nú strax eftir ára- mótin. Kanna á hvort sveitar- félögin vilja taka þátt í rekstri sjúkrabílanna. Þess hefur þegar verið farið á leit við Reykjavíkur- borg og hefur borgarstjóri tekið málinu vel, sömuleiðis forsvars- menn Tryggingastofnunar. Leitað hefur verið til Sjúkrasamlags Reykjavíkur en það reyndist ekki aflögufært til þátttöku í þeim kostnaði. (Þess má geta að sum- staðar úti á landi greiða sjúkra- samlögin sjúkraflutninga en hér í Reykjavík eru þeir á kostnað sjúklingsins í flestum tilfellum nema þegar flutt er milli sjúkra- húsa). Náist ekki samkomulag um þátttöku viðkomandi aðila til reksturs þessara þjónustutækja í samvinnu við R.K. er ekki um annað að velja en að R.K. afhendi þá sjúkrabíla, sem fyrir eru þeim bæjar- og sveitarfélögum, sem þurfa á þjónustu þeirrra að halda. En þö svo fari mun R.K. halda áfram :ð starfa við þessi mál og taka þátt i hverri aðstoð sem veita má, þar sem meginsjónarmið sam- takanna er að veita öllum mann- úðarmálum lið; hjá þeim þekkjast engin landamæri. I því sambandi má láta þess getið, að allt starf er unnið f sjálf- boðavinnu. Kvennadeild R.K. vinnur mikið og lagði m.a. fram eina milljón króna til kaupa á nýjum sjúkrabíl, sem nýbúið er að taka í notkun. Það var mikil- vægur liður í því, að gera kaup á þeim vagni möguleg en hann kost- aði um 3 milljónir króna, þegar aðflutningsgjöld höfðu verið felld niður. Gert er ráð fyrir að tollalögin nýju kveði á um niðurfellingu á aðflutningsgjöldum og jafnvel einnig söluskatt af sjúkrabifreið- um og yrði það mikill stuðningur. Ég vil einnig geta þess að Trygg- ingastofnun lánaði 2 milljónir kr. til kaupa á nýjum torfærubíl, sem keyptur var síðastliðið vor. Af honum fengust einnig felld niður aðflutningsgjöld og lækkaði það kaupverðið úr nálægt 6 milljón- um króna 14,3 milljónir. En aðalforsenda þess að Rauði krossinn geti framvegis sem hing- að til annast rekstur sjúkrabif- reiðanna er sú, að ríkisvaldið og þeir aðilar, sem hafa þörf fyrir þjónustu þeirra sýni skilning á því, að skyndihappdrætti og af- rakstur af spilakössum er ekki nægilega trygg kjölfesta til að byggja á svo mikilvæga þjónustu. Fróðlegt er að heyra álit læknis um það hverjar kröfur má sann- gjarnlega gera um öryggi við sjúkraflutninga. Líklegt er að Árni Björnsson læknir hafi hvað víðstækasta yfirsýn um þau mál en hann á sæti í báðum þeim nefndum, sem starfa að sjúkra- flutningamálum á höfuðborgar- svæðinu. Eins og lýst hefur verið hér að framan sér nefnd á vegum Rauða krossins um fjárhagslegan og framkvæmdalegan rekstur sjúkraflutningatækja; hins vegar er sjúkraflutninganefnd Reykja- víkurborgar ætlað að skipuleggja búnað sjúkrabifreiða, ákveða fjölda þeirra hverju sinni og fylgjast með þvf að þjónustan sé í viðunandi horfi. — Er sú þjónusta eins og best verður á kosið? Því svarar Árni Björnsson læknir: „Ekkert er fullkomið. En miðað við þær aðstæður er hér hafa ver- ið og reynt hefur verið að bæta, má segja að þetta sé f góðu lagi“. — Eru nauðsynleg tæki í sjúkrabílum? „Nú eru til tveir sérhæfðir sjúkrabflar. Annar er torfærubfll og búinn tækjum að vissu marki, en hinn svonefndi „hjartabíll" er sá eini, sem kallast getur neyðar- bíll. I honum er m.a. hjartaraf- loststæki". — Er hægt að koma við blóðgjöf í sjúkrabílum? „Gefa má blóð og vökva í sjúkrabíl, ef tæki eru til þess og maður til taks að framkvæma það. Einn bíll þyrfti að vera til með slíkum tækjum, sem mætti nota á ferðum, er tækju lengri tíma t.d. ofan úr Mosfellssveit". — Er ekki mögulegt að fullnýta þau tæki, sem fyrir eru sé hjúkr- unarfólk ekki til staðar? „Um það má deila. Þar er meginmálið: Hvað viljum við greiða fyrir endurbætur, sem koma varla að notum nema í ein- stökum tilfellum? Það kostar geysimikið fé að láta lækni fylgja sjúkrabíl að staðaldri. Að minú áliti gæti það einnig stundum taf- ið fyrir. Hér er meðalflutnings- tími til sjúkrahúss einhvers stað- ar nálægt 7 mínútum. Hjúkrunar- fræðingur gæti ekki alltaf komið í stað læknis, enda yrði það lika dýrt“. — En ekki hafa aðrir en læknir og hjúkrunarfólk leyfi til að gefa lyf og nota viss neyðartæki? „Hugsanlega mætti gefa leyfi til þess eftir læknisráði, ef sjúkra- flutningamenn hefðu nægilega menntun til þess og beint fjar- skiptasamband væri úr bifreið á sjúkrahús. Þá mætti einnig meta hvort senda bæri lækni á staðinn. Nú er í athugun að bæta fjar- skiptasamband við sjúkrahúsin. Til hjartasjúklinga er eðlilegast að kalla lækni. Aðstandendur þyrftu þá að hafa tök til að ná beinu sambandi við vaktsjúkra- hús. Mætti hugsa sér að þar væri til staðar viss vakt, sem gegndi þessu verki. Þetta ætti að mega samræma öðrum læknavöktum. Slík þjónusta gæti komið að miklu leyti í stað þess að láta lækni fylgja neyðarbílum. En þetta hlyti að byggjast á bættu fjarskiptasambandi." Endurnýjun sjúkrabifreiða „Mikið áhugamál okkar hjá Rauða krossinum er endurnýjun sjúkrabílanna, sem ekki hefur verið eins hröð og æskilegt væri. Við æskjum þess að stjórnvöld tryggi niðurfellingu á að- flutningagjöldum og söluskatti af sjúkrabifreiðum. Framlag R.K. til þjónustunnar sýnist vera þess virði. Sjúkrabifreiðar þurfa að vera vel búnar og ekki eldri en þriggja ára, menntun sjúkra- flutningamanna í góðu lagi og fullkomið fjarskiptasamband milli þeirra aðila er annast sjúkraflutninga og sjúkrahúsa, er taka eiga á móti sjúklingum. Þetta er grundvallaratriði að minum dómi. Hitt er umdeilan- legt, hvort læknar eða hjúkrun- arfræðingur skuli fylgja sjúkra- bílum." — Hvernig er þessum málum háttað I öðrum löndum t.d. á Norðurlöndum? „Það er mjög mismunandi I hin- um ýmsu löndum. Mest samband höfum við haft um þessi mál við Noreg en þar er Rauði krossinn tengdur þeim á sama hátt og hér. Við höfum keypt sjúkrabíla það- an og fengið menn frá norska Rauða krossinum til að þjálfa sjúkraflutningamenn okkar eins og gert er þar. Norðmenn hafa nú samþykkt reglugerð um búnað sjúkrabíla og menntun sjúkra- flutningamanna. Reynt er að nýta þá menntun vel, tekið er tillit tii þarfa á meiri menntun þeirra manna er starfa á fjölmennum stöðum en hinna er minna mæðir á i strjálbýli. En um þetta gegnir ekki allstað- ar sama máli. Til dæmis framleiða Austur-Evrópulöndin mikið af læknum og geta leyft sér að hafa lækna með sjúkrabifreiðum. Þetta hefur víðar verið reynt en ekki þótt gefa nægilega góðan árangur. En þar kemur til sú spurning: Hvað vill fólk borga fyrir ákveðna þjónustu? Vill skattgreiðandinn taka það á sinar herðar? Segja má að útgjöld við heil- brigðisþjónustu séu orðin mikið Ihugunarefni hér sem annarstað- ar. Fáum við þetta endurgreitt, ekki aðeins í lengra lífi heldur I bættu mannlífi. Að lengja lifið er eitt, að.“ Starfsmenn við sjúkraflutn- inga Ekki er öllum Ijóst að brunaverðir hafa einnig sjúkra- flutninga á hendi. Þess eru dæmi að fólk segi, þegar svarað er í sima á Slökkvistöð: „Þetta hlýtur að vera skakkt númer, ég ætlaði að hringja á sjúkrabíl.“ Eftirfarandi samtal við nokkra brunaverði gefur hugmynd um þann vanda, er þeir eiga við að etja í starfi sínu, einkum er við kemur sjúkraflutningum: „Fólk rennir litinn grun i þettp starf, enda erfitt frá almennu sjónarmiði að setja sig inn i það sem upp getur komið, hvort held- ur er í slökkvistarfi eða við sjúkraflutninga þegar mikið ligg- ur við. Svo alvarlegt getur ástand- ið orðið t.d. á slysstað, að við fyrstu sýn verði mönnum okkar I starfi á að spyrja: Hvað er hægt að gera? En það verða þeir oftast að segja sér sjálfir. Við sjúkraflutning verða flutn- ingsmenn að meta ástand sjúklingsins og haga sér eftir því. Er t.d. um hryggbrot að ræða, slagæðablæðingu, avarleg bruna- sár eða hjartatilfelli þar sem hugsanlega mætti koma í veg fyr- ir blóðrásartruflun til heila? 1 slíkum tilfellum hættir fólki til að safnast saman og tefja fyrir eða sýna óþolinmæði vegna þess að seint sýnist ganga. Oft mismet- ur almenningur ástandið, sést í sumum tilvikum yfir alvarleg ein- kenni en ofmetur hin.“ — Finnið þið aldrei til vanmátt- ar þegar þið komið á slysstað eða þurfið að veita hjartasjúklingi fyrstu meðferð? „Þó svo væri megum við ekki láta undan þeirri tilfinningu. Allt getur oltið á að við höldum jafn- vægi. Hugsunin snýst fyrst um það, sem lífsnauðsyn er að gera i hverju alvarlegu tilfelli. Margt getur þurft að gera íeinu svo sem að halda opnum öndunarvegi, gefa hjartahnoð og beita blásturs- aðferð eða súrefnisgjöf á meðan ferðinni er hraðað eins og frekast er unnt til slysadeildar." — Er i reynd framkvæmanlegt fyrir einn mann, að veita sjúk- lingi skyndihjálp með tilætluðum árangri á meðan ekið er á fyllsta hraða, þar sem annar maðurinn verður að sjá um aksturinn? öku- manninum sýnist heldur ekki veita af góðu jafnvægi til að hafa talstöðvarsamband við slökkvi- stöð, gefa upplýsingar um ástand og komu sjúklings á slysadeild og jafnframt forðast að óhöpp hljót- ist i umferðinni eins og fyrir kem- ur í þeim hraðakstri. Er ekki nauðsyn að þriðji maður sé til aðstoðar í neyðartilvikum? „Tveir menn standa verr að vígi en þrír eins og gefur að skilja. En öruggasta leiðin er að hafa lækni í bílnum. Um það hljóta allir að vera sammála." Þegar þetta er rætt kemur í ljós að brunaverðir telja æskilegast að hjartabfllinn/ neyðarbíllinn væri staðsettur við slysavarðstofu eða vaktsjúkrahús. Þar eru læknar til taks að senda á staðinn i neyðar- tilfellum og einnig hjúkrunar- fólk; venjulega taka þar 8 til 10 manns á móti sjúklingum þótt tveir sjúkraflutningamenn eigi að sinna þeim á leiðinni þangað, sem reynist oft úrslitatími. En þá reynir á fjármálin. Með því fyrirkomulagi yrði að ráða sérstakan bílstjóra á neyðarbíl- inn. En þetta er mál lækna að tjá sig um og ráða fram úr, þ.e. hinni Framhald á bls. 21 eftir ÞURÍÐI J. ÁRN ADÓTTUR SÍÐARI HLUTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.