Morgunblaðið - 12.01.1977, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1977
25
félk í
fréttum
+ Fyrrverandi forsætisráð-
herra Breta, Edwvard Heath,
hefir gefið út bók um mústk
er heitir „A joy for life" eða
„Lifsgleði" gætum viS
kannski kallað hana. Poul
Hartling skrifar i Politiken
um þessa nýútkomnu bók
og segir meðal annars:
„Músík og pólitik, þetta
tvennt á ef til vill ekki
margt sameiginlegt og
sumir halda því jafnvel
fram, að það séu algjörar
andstæður. Það er orðinn
vani að tala illa um stjórn-
málamenn og þvi talið al-
gerlega fráleitt að þeir geti
sungið og verið skemmti-
legir eins og annað fólk, en
f nýútkominni enskri bók er
sagt frá dönskum utanrikis-
ráðherra, sem var á leið til
Helsingfors á ráðstefnu.
Klukkan tvö um nóttina
stóð hann uppi á stól i
borðsal skipsins og söng
við mikinn fögnuð áheyr-
enda. Fjölskylda Edwards
Heath er, eftir því sem
um, og á meðan var Ed-
ward Heath duglegur að
spila. Auðvitað var hann
lika i kirkjukórnum og þeg-
ar hann var í Oxford-
háskóla var hann meðlimur
i Bach-kórnum þar og áður
en langt um leið var hann
farinn að stjórana kórum og
semja lög. En þegar að þvf
kom að velja sér Iffsstarf
varð lögfræðin og pólitfkin
tónlistinni hlutskarpari."
Heath hefur áður gefið út
bók um annað aðal áhuga-
mál sitt en það eru sigling-
ar.
hann segir sjálfur, ekki
nema í meðallagi
músikölsk. Þó var hann
settur i spilatima og þegar
hann varð nfu ára fékk
hann píanó i afmælisgjöf.
Það kostaði 42 pund, sem
var há upphæð fyrir fjöl-
skyldu sem var ekki allt of
vel stæð. Upphæðin var
greidd með 24 afborgun-
+ Sá sem engar buxur á, verð-
ur að ganga með botninn ber-
an. En það gerir ekki svo mik-
ið til, þegar maður lftur svona
út. Myndin er tekin á baðfata-
sýningu f Perth í Ástralíu.
+ Þessi mynd af Glorfu
Swanson, sem nú er orðin 78
ára, og James Mason er tekin á
Italfu, þar sem þau fengu hin
svokölluðu „Golden Valen-
tino“ kvikmyndaverðlaun,
styttu af kvennagullinu og
kvikmyndaleikaranum Valen-
tfno. Verðlaunin hlutu þau
fyrir að hafa leikið f meira en
eitt hundrað myndum.
+ OOPS! — Óhöppin gerast, jafnvel uppi á annarri hæð. í
þessu tilviki gerðist það i bifreiðageymslu i Tokfó. Ökumað-
urinn sýndi ekki nægilega aðgæslu þegar hann var að snúa
bifreið sinni — og þvi fór sem fór.
— Minning
Þorbjörg
Framhald af bls. 29
jafnlega mikið þó. Síðar hefi ég
hugleitt hvað hún hlýtur að hafa
gefið af fátækt sinni.
Mér fannst Þorbjörg einn
skemmtilegasti gestur er kom á
heimili foreldra minna. Alltaf
glöð og kát, talaði eins og lffið
hefði brosað við henni alla tíð.
Mig langaði mikið til að geta likst
henni. Árið 1929 kynntist hún
Jóni Árnasyni á Siglufirði. Þau
eignuðust saman eina dóttur,
Hjördfsi f. árið 1930. Þær mæðgur
slitu aldrei samvistum, nema um
stundar bil! Síðasta áratuginn f
lífinu dvaldi Þorbjörg að heimili
dóttur sinriar og tengdasonar
Ragnars að Krókahrauni 8, Hf.
Þar kom ég sem gestur og dáðist
mjög að þvf í huganum, hve mikla
umhyggju og ástúð Hjördfs sýndi
móður sinni.
Enginn veit hvað tekur við eftir
dauðann en ég er einna trúuðust
að þá kenningu að okkar bfði
fleiri vistir á þessari jprð, von-
andi þó með hvildum og einnig
vistir á öðrum tilverustigum. Þar
með vil ég kveðja Þorbjörgu Guð-
mundsdóttur með orðum lista-
skáldsins góða er hann orti eftir
vin sinn látinn:
Flýt þér vin í fegri heim,
krjúptu að fótum friðarboðans,
fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim.
Svanlaug Danfelsdóttir
Afmælis- og
minningar-
greinar
Að marggefnu tilefni skal
athygli vakin á þvf, að af-
mælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á f
miðvikudagsblaði, að berast
f sfðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera f sendibréfs-
formi eða bundnu máli.
Sé vitnað til Ijóða eða sálma
skal höfundar getið. Grein-
arnar þurfa að vera vélrit-
aðar og með góðu Ifnubilí.
SÍMI í MÍMI er 10004
Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám
efni til að spá í
pigi illi
Ibáta
ogverstöðvar
Lystadún dýnurnar henta
ekki síður i bátum og verstöðvum,
en í heimahúsum.
Við bjóðum þær tilbúnar eða
eftir máli, klæddar ýmsum áklæðum,
eða án áklæðis, alveg
eins og þér óskið
-og ekki spillir verði