Morgunblaðið - 12.01.1977, Page 30

Morgunblaðið - 12.01.1977, Page 30
?0 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1977 MARGIR TVISYNIR LEIKIR GETRAUNAÞATTUR MORGUNBLAÐSINS EFTIRTALDIR leikir eru á seðl- ii um þessa vikuna og víð skulum v >na, að veðurguðirnir leyfi þeim ö lum að fara fram, þvi að annars nýtur getspeki okkar sín ekki til fulls. Arsenal — Norwich. 1. Þetta ætti að vera nokkuð öruggur heimasigur, en varla verða stórar tölur. Heimasigur (2—1). Aston Villa — Manchester City, tvöfaldur 1 eða x. Hér er mikið í húfi fyrir bæði liðin, þar eð þau eru bæði við toppinn á deildinni og mega sjá af sem fæstum stigum ef ekki á að heltast úr lestinni. Aston Villa er geysilega sterkt lið í sókn og vörn, en Manchester-liðið hefur lagt meira upp úr varnarleiknum en það gerði t.d. í fyrra. Þeir munu þvi áreiðanlega gera sig ánægða með eitt stig og leika eftir því. Spáin er sú, að Man. City nái jafntefli (1—1) en til vara spáum við heimasigri (2—0). Ipswich — Everton 1. Svo virðist, sem fátt geti stöðv- að Ipswich-liðið um þessar mund- ir og þar sem Everton er langt frá því að vera með góðan árangur á útivelli í vetur, teljum við af og frá að þeir geri einhverjar rósir á Portman Road. Heimasigur (3—1). Leeds — Birmingham. I. Leeds-liðið hefur verið ákaflega upp og niður í vetur, en við telj- um, að það fylgi eftir hinum myndarlega bikarsigri sinum gegn Norwich síðasta laugardag og sigri Brimingham nokkuð ör- ugglega. Heimasigur (2—0). Leicester — Sunderland, tvöfald- ur 1 eða x. Með tilliti til deildarstöðu þess- ara tveggja liða ættu úrslitin aug- Ijóslega að vera heimasigur, en taka verður tvennt með í reikn- inginn. Leicester hefur gengið frekar illa i síðustu leikjum sín- um og Sunderland náði merkum áfanga á laugardaginn var, þá skoraði liðið mark og ekki bara eitt heldur tvö og er aldrei að vita nema þetta afrek þeirra verði þeim lyftistöng til að gera betur á næstunni. Heimasigur eða jafn- tefli (1—0 eða 1 — 1). Liverpool — WBA, tvöfaldur 1 eða x. Nei, því fer fjarri að Liverpool hafi verið sannfærandi undan- farnar vikur, þó að þeir hafi halað inn stigin á heimavelli og auk þess hefur lið WBA reynst afar illsigranlegt. Aðalspáin er stein- dautt jafntefli en til vara heima- sigur (1—0). Manchester Utd — Coventry. 1. Manchester-liðið hefur náð sér bærilega á strik undanfarnar vik- ur og erum við því í engum vafa hér. Heimasigur (2—0). Middlesbrough — Derby. X. Það er einlæg skoðun okkar, að hér sé í uppsiglingu hrútleiðing- legt og steindautt jafntefli. 0—0. Newcastle Utd. — Tottenham, tvöfaldur, 1 eða X. Newcastle er ósigrað á heima- velli og það er engin heppni. Að- alspáin er heimasigur (3—3). Tottenham hefur nú verið slegið út úr öllum bikarkeppnum og geta þeir því úr þessu farið að hugsa óskipt um bágborna deild- arstöðu sína, sem sannarlega er Ijót. Aukaspáin er sú að þeir lagi dálítið stöðu sína og kríi út jafn- tefli þvl að þeir geta leikið góða knattspyrnu ef þeir reyna það, það hafa þeir a.m.k. sýnt. QPR — West Ilam. 1. Þó að hér fari fram leikur milli tveggja liða af neðri hæðinni I deildinni gæti leikurinn þó orðið allgóður því að bæði liðin, einkum QPR, geta tekið upp á því að leika mun betur en staða þeirra gefur til kynna. Spáin er sú að QPR reynist sterkara og sigri (2—1). Stoke C. — Bristol C. X. Hér bítast einnig fallkandídatar um bitann, en að öðru leyti á hér við umsögn okkur um leik Middlesboro og Derby. Jafntefli án lifsmarks (0—0). Notts County — Chelsea. X. Svo segir okkur hugur um, að leik þessum lykti sem jafntefli og verður þvi ekkert um það deilt. Jafntefli (1 — 1). —gg- IRovminWníHít iirrflniira L.c.ivn. ivuppeii — vann giæsuegan sigur I viöureign sinni vio uuiian Gilks. Stenmark sigraði í svigi, en Heidegger í stórsvigi DeHs átti ekki möguleika gegn hinum snjalla King 19 ára Austurríkismaður, Klaus Heidegger, hefur tekið forystu I heimsbikarkeppninni á skfðum, eftir frábæra frammistöðu slna I svigi og stðrsvigi á mótum sem fram fóru I Garmisch Partenkirchen um helgina. Sigraði Heidegger I stórsvigs- keppninni á sunnudag og varð annar á eftir sænska heimsbikar- hafanum Ingemar Stenmark I svigkeppninni á mánudag. Er talið mjög llklegt að Heidegger biandi sér verulega I baráttuna um bikarinn I vetur, en hann er sama marki brenndur og lngemar Stenmark að taka helzt ekki þátt I brunmótum, og skerðir það vitan- lega nokkuð möguleika hans. Ingemar Stenmark hafði ekki heppnina með sér I stórsvigsmót- inu á sunnudaginn. Hann „keyrði" út úr brautinni og varð að hætta keppni. Klaus Heidegger sigraði á timanum 3:22,29 mín., en naumari gat sigur hans ekki verið þar sem Svisslendingurinn Heini Hemmi sem varð I öðru sæti fékk tímann 3:22,30 min. Þriðji varð svo Willi Frommelt frá Líechenstein á 3:23,19 mín. og Bandarikjamaðurinn Phil Mahre varó fjórði á 3:23,55 mín. I svigkeppninni mánudaginn tókst Stenmark hins vegar vel upp. Hann fór báðar ferðirnar af míklu öryggi og náði um hálfri sekúndu betri tíma en Heidegger sem varð í öðru sæti. Mikið mann- fall varð i þessari keppni, enda brautin sérstaklega erfið. Af um 100 keppendum sem hófu keppni komust aðeins 29 klakklaust báð- ar feóirnar, og var timi þeirra siðustu nær mínútu slakari en tími Stenmarks. Eftir keppnina á mánudaginn hefur Heidegger hlotið 90 stig, en Ingemar Sten- 'mark er kominn í annað sætið. I þriðja sæti er svo Franz Klammer frá Austurríki sem er með 75 stig, en hann tók ekki þátt i umrædd- um mótum. DANSKA Norðurlandameistaran- um I badminton Flemming Delfs mistókst að hefna fyrir tap það sem hann varð fyrir I leik sínum við Indónesfumanninn Liem Swie King á dögunum, er þeir mættust I opna sænska meistaramótinu sem fram fór um helgina. Eftir ósigurinn fyrir King á dögunum hafði Delfs það á orði, að boltarn- ir sem keppt var með I þvl móti hefðu verið ómögulegir, og það væri fyrst og fremst þeim að kenna að hann tapaði. En i mótinu um helgina sýndi Indónesiumaðurinn að hann virð- ist vera algjör ofjarl Dananna. I undanúrslitum keppti hann við Svend Pri, fyrrverandi heims- meistara í þessari grein. Vakti leikur þeirra óskipta athygli allra er fylgdust með keppninni, og stóð fyrri hrinan i tæplega klukkustund. Lauk henni með sigri King 15—12. 1 seinni hrin- unni var það rétt fyrst sem Pri stóð í Indónesiumanninum, en eftir að staðan var 9—8 réð King lögum og lofum og sigraði 15—9. 1 hinum undanúrslitaleiknum sigraði svo Flemming Delfs aðra nýja stjörnu frá Indónesíu Iie Sumirat í mjög skemmtilegum leik 15—8, 11 — 15 og 15—6, og þótti sá leikur benda til þess að Delfs væri í góðu formi. Sjálfur kvartaði hann yfir eymslum í fæti, eftir leikinn og í úrslita- Reynolds áfram hjá Þór - Magnús Jónatansson sennilega með Reyni Knattspyrnufélögin Norðanlands sem leika i 1. og 2. deild eru nú ýmist búin að ráða sér þjálfara eða eru að ganga frá samningum. Nýlega gengu Þórsarar á Akur- eyri sem eru eina norðlenzka félagið sem á sæti I 1. deild, frá samningum við Douglas Reynolds, en hann þjálfaði liðið einnig f fyrra, og var þá mjög mikil ánægja með störf hans hjá leikmönnum og áhangendum félagsins. Mun Reynolds koma til starfa um miðjan febrúar og ætla Knattspyrnuþjálfari óskar eftir að gerast þjálfari hjá 2. eða 3. deildar liði, ásamt yngri flokkum. Upplýsingar gefur Sævar Tryggvason, sími 98-2503. Þórsarar þá að hefja æfingar af fullum krafti. Verður verkefni þeirra næsta keppnistlmabil ugg- laust hið erfiðasta, en þeir sýndu það I fyrra að þeir eru til alls Ifklegir. Litlar mannabreytingar munu verða hjá Þór á næsta keppnis- tímabili. Þó er fullvist að Magnús Jónatansson mun leggja skóna á hilluna, en hann hefur nú leikió með meistaraflokki IBA og Þórs i 16 ár. Verður örugglega skarð fyrir skildi hjá Þórsliðinu. Líklegt er að Magnús taki að sér þjálfun hjá 2. deildar liði Reynis á Árskógsströnd, en fleiri félög m.a. ÍBÍ hafa sýnt mikinn áhuga á að fá Magnús til þjálfarastarfa. Eins og áður hefur komið fram mun svo Jóhannes Atlason þjálfa 2. deildar lið KA næsta keppnis- tímabil. Jóhannes mun þó ekki koma til starfa fyrr en i apríl, en hann dvelur ytra við nám á knatt- spyrnuþjálfaraskólum. Er líklegt að Matthias Ásgeirsson íþrótta- kennari muni sjá um KA-liðið unz Jóhannes kemur, en mikill hugur er nú i KA-mönnum og ætla þeir sér að hefja æfingar hið fyrsta. Hörður Hilmarsson, fyrrum landsliðsmaður, sem lék með KA í fyrra, mun ekki verða með liðinu í vetur. Ætlar hann sér að dvelja í Reykjavik næsta sumar og þá væntanlega leika með sínu gamla félagi Val. 2. deildar lið Völsunga á Húsa- vik hefur enn ekki gengið frá ráðningu þjálfara en félagið er að reyna að fá John McKearnan til starfa hjá sér. McKearnan þjálf- aði Völsunga í fyrra og náði mjög athyglisverðum árangri með liðið. I vetur hefur hann leikið með bandarisKu atvinnuknattspyrnu- félagi, en mun væntanlega koma til landsins innan tiðar til samningaviðræðna við Hús- víkinga. Ekki er vitað um neinar mannabreytingar hjá Völsungum, en lið þeirra er nú að stofni til skipað ungum og mjög efnilegum piltum leiknum kom fljótlega i ljós að hann átti enga möguleika gegn hinum fljóta og örugga King. King komst strax i 8—1 og vann síðan fyrri hrinuna 15—4. í seinní hrinunni var auðséð að Delfs tók á öllu sem hann átti til, en samt sem áður tapaði hann 15—8. Þótti hraði og tækni Indó- nesans með ólikindum, og náði hann auðveldlega jafnvel hinum föstustu „smössum" frá Delfs. Sagði Delfs eftir þessa keppni, að hann hefði ekki getað beitt sér sem skyldi vegna meiðslanna, en hitt léki þó ekki á tveimur tung- um að King værí enn betri bad- mintonleikmaður en Rudy Hartono var nokkru sinni, en sem kunnugt er þá varð Hartono oft- sinnis heimsmeistari. Spáði Delfs því einnig að King yrði heims- meistari, en fyrsta opinbera heimsmeistarkeppnin i badmin- ton fer fram i Svíþjóð í vetur. Danir fóru þó ekki gullverð- launalausir heim frá mótinu i Stokkhólmi. Lene Köppen, sú er varð Norðurlandameistari hér í einliðaleik kvenna keppti til úr- slita i einliðaleiknum við ensku stúlkuna Gillian Gilks, en sú sigr- aði í siðustu „All England" keppni. Hafði Köppen yfirburði í þessum leik og vann 11—5 og 11—2. Til úrslita i tvíliðaleik kepptu sænsku heimsmeistararnir Fröman og Kihlström, sem margir muna eflaust eftir frá Norður- landamótinu i Laugardalshöll- inni, og Indónesiumennirnir Chandra og Tjung Djun. Var þar um að ræða jafnasta og skemmti- legasta leik þessa móts. Indónes- arnir unnu fyrstu hrinu 18—17, Sviarnir þá næstu 17—16 og í oddahrinunni unnu Indónesarnir svo eftir mikla baráttu og stór- kostleg tilþrif 15—11. Sigurvegarar i tviliðaleik kvenna urðu Gillian Gilks og Bar- bara Giles sem sigruðu hollenzku stúlkurnar Ridder og Neusekom i úrslitaleik 15—5 og 15—8. I tvenndarleik sígruðu svo Derek Talbot og Gillian Gilks frá Englandi þau Steen Skovgaard og Lene Köppen frá Danmörku 15— 6 og 15—9.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.