Morgunblaðið - 12.01.1977, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.01.1977, Blaðsíða 32
Sjö hross voru hætt komin við Geldinganes A gangi í garranum f Hljómskálagarðinum. Staða ríkissjóðs um áramót; Greiðsluafkoma er já- kvæð um 1100 milljónir Rekstrarjöfnuðurinn hagstæður GREIÐSLUAFKOMA rfkissjóðs varð jákvæð á sl. ári um 1100 milljónir króna. Þótt endanlegar tölur liggi enn ekki fyrir er einnig gert ráð fyrir þvf að rekstrarjöfn- uður rfkissjóðs á sfðasta ári verði hagstæður. Þetta kemur fram f fréttatilkynningu, sem fjármálaráðuneyt- ið sendi frá sér f gær. Samkvæmt henni eru höfuðdrættir f afkomu ríkissjóðs á árinu 1976 þessir: 0 Greiðsluafkoma rfkissjóðs varð jákvæð um 1100 milljónir króna á árinu 1976 en til samanburðar má geta þess að á árinu 1975 var hún neikvæð um 6400 milljónir króna. 9 Rekstrarjöfnuður rfkissjóðs verður hagstæður á árinu 1976 en til samanburðar skal þess getið að árið 1975 varð rekstrarhalli að upphæð um 7500 milljónir króna. 0 Ekki varð um að ræða skuldaaukningu hjá rfkissjóði á árinu, þegar á heildina er litið þ.e. gagnvart Seðla- banka og viðskiptamönnum. Skuldir rfkissjóðs við Seðlabanka jukust á árinu um 1,5 milljarð króna en skuldir rfkissjóðs við viðskiptamenn lækkuðu um 1.6 milljarða króna. Fréttatilkynning fjármálaráðuneytis fer hér á eftir í heild: Bráðabirgðatölur liggja nú fyrir um greiðsluafkomu A-hluta ríkissjóðs á árinu 1976. Inn- heimtar tekjur ríkissjóðs munu nema 68.3 milljörðum króna en greidd gjöld 68,4 milljörðum króna eða 100 milljónum króna umfram innheimtar tekjur. Jöfn- uður lánahreyfinga utan Seðla- banka sýndi 1,2 milljarða króna innstreymi fjár, og samkvæmt því varð greiðsluafkoma ríkissjóðs jákvæð um 1,1 milljarð króna á árinu 1976. Innheimtar tekjur á árinu voru við framlagningu fjárlagafrum- varps 1977 áætlaðar 68,9 milljarðar króna en reyndust hins vegar um 600 milljónum króna lægri. Greiðsluáætlanir gjalda gerðu ráð fyrir 68,0 milljarða króna útstreymi og eru þvi greidd Alþýðubanka- málið á ný til saksóknara FRAMIIALDSRANNSÓKN Alþýðubankamálsins lauk hjá sakadómi Reykjavíkur skömmu fyrir áramót. Hefur málið nú ver- ið sent rfkissaksóknara að nýju til ákvörðunar. Vænn bunki máls- skjala var fluttur milli sakadóms og ríkissaksóknaraembættisins í sambandi við þetta mál. gjöld um 400 milljónir króna umfram þær áætlanir. Á árinu 1975 var mismunur greiddra gjalda og innheimtra tekna, ásamt jöfnuði lánahreyf- inga utan Seðlabanka neikvæður um 6,4 milljarða króna í saman- burði við jákvæða hreyfingu nú um 1,1 milljarð króna. Greiðsluhreyfingar við Seðla- banka sýna skuldaaukningu að fjárhæð 800 milljónir króna. Ennfremur nam skuldaaukning vegna gengisbreytinga lána í SJÖ hrossum var í gærkvöldi bjargað úr pramma, sem þau voru f og hafði strandað á norðaustan- verðu Geldinganesi. Var verið að flytja hrossin úr Þerney og í Vlði- nes á prammanum, sem Iftill hraðbátur dró. Er komið var fyrir Gunnunes hvessti mjög á móti og komst báturinn ekkert áfram með prammann f togi. Gripu þeir sem f bátnum voru þá til þess ráðs að leysa prammann aftur úr til að bjarga sér f land. Er mennirnir komu í land báðu þeir um hjálp til að bjarga hross- unum. Var hafnsögubáturinn Magni fenginn til að fara á stað- inn undir stjórn Jóhannesar Magnússonar og oliubáturinn Héðinn Valdimarsson undir stjórn Lofts Hafliðasonar bauð að- stoð sina. Auk þess var Björgun- Seðlabanka i erlendri mynt 700 milljónum króna, þannig að skuldaaukning ríkissjóðs við Seðlabankann varð um 1,5 milljarðar króna á árinu 1976. Hliðstæðar fjárhæðir frá árinu Framhald á bls. 18 arsveitin Kyndill í Mosfellssveit fengin til að kanna fjörur. Leituðu bátarnir Leirvoginn milli Geldinganess og Gunnuness. Framhald á bls. 18 Jóhanna var karl- kyns þeg- ar til kom FYRIR skömmu var háhyrn- ingurinn, sem undanfarna mánuði hefur dvalið f sædýra- safninu Marineland, skammt fyrir utan Nice f Frakklandi, kyngreindur og þá kom f ljós að um karldýr var að ræða, en ekki kvendýr eins og menn héldu lengi vel. Sem kunnugt er var háhyrningurinn kallað- „ur „Jóhanna“ strax eftir að hann var veiddur, en Frakk- arnir f Marineland hafa nú gefið honum nýtt nafn og cr hann kallaður „Kim“. Konráð Júlíusson skipstjóri á Sigurvon SH, bátnum sem veiddi háhyrninginn, er ný- kominn til landsins frá Frakk- landi, en eigandi Marinelands, Roland De Ia Poype, bauð hon- um þangað. Konráð var i nokkra daga I Marineland og Framhald á bls. 19 Bandaríkja- maðurinn í 30 daga gæzlu YFIRHEYRSLUR eru byrjaðar á Keflavfkurflugvelli yfir varnar- liðsmanninum, sem tengdur er ffkniefnamálinu mikla. Eins og fram kom i Mbl. á sfnum tfma, óskaði bandarfski herinn eftir lögsögu yfir manninum, og var það heimilað af rfkissaksóknara og maðurinn fluttur frá Reykja- vfk til Keflavfkurflugvallar. Framhald á bls. 18 Dr. Max Euwe, forseti FIDE, í samtali við Morgunblaðið: 90% líkur á því að Hort og Spassky tefli á tslandi Kvedst úrskurða ísland sem keppnisstað á laugardaginn, ef málið verður þá óútkljáð Dr. Max Euwe, forseti FIDE. FORSETI Alþjóðaskáksam- bandsins, dr. Max Euwe, sagði f samtali við Morgunblaðið f gær að hann teldi allar lfkur vera á að einvígi þeirra Spassky og Horts mundi fara fram á ís- landi. „Ef skákmennirnir geta ekki komið sér saman um keppnisstað fyrir lok þessarar viku mun ég úrskurða hvar teflt verður og úrskurður minn verður: Tefiið á Islandi." „Spassky hefur þegar stað- fest að hann vilji tefla á Is- landi, en við biðum eftir svari frá Hort. Hann hefur fengið frest til að ákveða sig til 15. janúar, sem er næsta laugar- dag.“ Aðspurður um hvort hann teldi að Hort myndi vilja tefla á tslandi sagði dr. Euwe að hann vissi það ekki enda væri ákvörðun einvígisstaðar oft erfið þegar skákmenn ættu i hlut. „Hort vill ekki tefla I Frakk- landi þar sem Spassky er þar um þessar mundir og eiginkona hans er frönsk. Spassky vill hins vegar ekki tefla á Bermuda því þar eru verðlaun- in of lág. Varðandi ísland þá getur Hort ekki haft aðrar mót- bárur en að þar sé of kalt, en ég held að það sé alveg eins kalt i Tékkóslóvakíu. Ef svo fer að skákmennirnir Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.