Morgunblaðið - 05.02.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.02.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRUAR 1977 3 Belgar vilja fá fisk frá íslandi FISKKAUPMENN í Belglu hafa óskað eftir því við Landssamband ísl. útvegsmanna að það hlutist til um að einhver íslenzk fiskiskip sigli á næstunni með Isvarinn fisk til Belgfu og selji þar, en sem kunnugt er hafa fslenzk fiskiskip ekkert selt af fiski f Belgfu sfðan markaðurinn f V-Þýzkalandi opn- aðist á ný eftir að fiskveiðideila þjóðanna var til lykta leidd. Jónas Haraldsson, skrifstofu- stjóri L.í.tJ sagði i samtali við Morgunblaðið í gær, að augsýni- legt væri að mikill fiskskortur væri um þessar mundir í Belgíu, því að undanförnu hefði ferlgist mjög hátt verð fyrir fisk þar. Alls hefðu átta skip selt fisk I Belgíu í janúar og meðalverð á kíló hefði verið kr. 195, og eitt skipanna hefði fengið 250 kr. meðalverð. Hins vegar sagði Jónas að mark- aðurinn i Belgiu væri frekar lítill og þyldi því vart stóra farma i einu. Framhald á bls 22 Við höfnina á Höfn i Hornafirði. Ljósm. Mbl. Jens Mikaelsson. Loðnan gefur góða raun: Línubátur frá Höfn fær allt að 17 lestir LÍNUBÁTURINN Gissur hvfti frá Höfn f Hornafirði hef- ur notað loðnu f beitu sfðustu þrjá róðrana og hefur báturinn fiskað vel. 1 fysta róðrinum kom hann með 15 lestir, 16 f þeim næsta og f gær fékk bátur- inn 17 lestir. Gissur hvíti er eini Ifnubáturinn, sem gerður er út frá Höfn, aðrir bátar það- an eru á trolli eða eru að byrja netaveiðar. Að sögn Jens Mikaelssonar, fréttaritara Mbl. á Höfn, þá hef- ur Gissur hviti róið með linu frá þvi I byrjun janúar og var báturinn búinn að fá milli 170 og 180 lestir i gær, á meðan trollbátarnir hafa sama og eng- an afla fengið. Sagði Jens að útgerðarmenn trollbátanna neru nú á sér hendurnar, vegna þess að þeir hefðu ekki gert sína báta út á linu. Fiskurinn, sem Gissur hviti hefur fengið, hefur að mestu verið þorskur og ýsa t.d. voru um 8 tonn af aflanum i gær ýsa, 1 tonn var keila og tindabikkja, en hitt þorskur. Tveir loðnubátar biðu eftir löndun á Höfn i Hornafirði i gær, og biðu eftir löndun. Eiga þeir að landa í dag, og er þá búið að landa 7000 lestum af loðnu á Höfn. YerðurMaí seldur úr landi og skuttogari keyptur frá Noregi? STJÓRN Bæjarútgerðar Hafnar- fjarðar hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvað gert verður við sfðutogarann Maf, en Morgun- blaðinu er kunnugt um að talað hefur verið um að selja skipið úr landi og kaupa f þess stað skuttog- ara, sem er í smfðum hjá Storvik mekaniske verksted f Kristian- sund f Noregi. Guðmundur Ingvason, fram- kvæmdastjóri BÚH, sagði i sam- tali við Morgunblaðið i gær, að það væri rétt að hann hefði farið til Kristiansund og skoðað togar- ann sem væri þar i smíðum, en hann verður tilbúinn í april n.k. Sá togari væri samskonar og Gull- berg, sem keypt var til Seyðis- fjarðar fyrir skömmu frá Storvik. Að öðru leyti sagðist Guðmundur ekki geta tjáð sig um málið, enda engin ákvörðun verið tekin enn. Hann kvað þó nauðsynlegt fyrir Bæjarútgerðina að fá nýja togara til að frystihús fyrirtækisins hefði nægilegt hráefni. Fjarðarheiði: Raflínurnar að f ara á kaf í sn jó MIKIL snjóalög eru nú víða á Norður- og Austurlandi, og á Fjarðarheiði eru raflinur þvi sem næst komnar á kaf á nokkrum stöðum. Samkvæmt þvi, sem Er- ling Garðar Jónasson, rafveitu- stjóri Austurlands, tjáði Morgun- blaðinu I gær, liggja raflinurnar milli Héraðs og Seyðisfjarðar þvi sem næst á kafi í norðanverðri Fjarðarheiði, þar sem kallað er Snæfell. Að raeðaltali munu lín- urnar vera í 1,5 metra hæð yfir snjónum á þessum slóðum en á einum stað eru þær svo til komn- ar á kaf. Vegna þessa hafa Raf- magnsveiturnar á Austurlandi varað fólk við að koma of nálægt raflinunum, enda er öllunt bráður bani vis, er koma við þær. RANNSÓKNARSTOFNUN BYGGINGARIÐNAÐARINS A KELDNAHOLTI — Nýja skrifstofuálman er til hægri á myndinni. Rannsóknastofnun bygg- ingariðnaðarins aflient ný skrifstofubygging NYBYGGINGIN AFHENT — Guðmundur Magnússon, formaður stjórnar Rannsóknastofnunar bygg- ingariðnaðarins, býður gesti velkomna. Sitjandi talið frá vinstri Steingrímur Hermannsson, Haraldur Asgeirsson, Gunnar Thoroddsen, Halldóra Einarsdóttir, kona Haralds og Vilhjálmur lljálmarsson. Ljósm. Mbl. RAX. RANNSÓKNASTOFNUN bygg- ingariðnaðarins var I gær af- hent ný skrifstofuálma á Keldnaholti. Með tilkomu þessa nýja húsnæðis breytist til muna starfsaðstaða á stofnun- inni en húsnæðisþrengsli hafa að sögn forráðamanna stofn- unarinnar hamlað eðlilegum vexti og verkefnaaukningu stofnunarinnar. Við afhend- ingu nýbyggingarinnar flutti m.a. ávarp Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra og kom þar m.a. fram að áætlað væri að brúttó-framleiðsluverðmæti byggingariðnaðarins hefði á ár- inu 1976 verið 45 milljarðar króna og sagði ráðherrann, að mönnum mætti þvf vera ljóst að áríðandi væri að þeim fjár- munum, sem varið væri til byggingarstarfs, væri varið á réttan hátt og það væri best tryggt með rannsóknarstarf- semi I þágu þessarar iðngrein- ar. Afhending nýbyggingár Rannsóknarstofnunar bygg- ingariðnaðarins fór fram að við- stöddum iðnaðarráðherra, menntamálaráðherra, fjárveit- ingarnefnd Alþingis, Rann- sóknaráðs ríkisins og ýmsum aðilum byggingariðnaðarins. Guðmundur Magnússon, verk- fræðingur og stjórnarformaður stofnunarinnar lýsti fyrir við- stöddum þeirri breytingu, sem yrói á starfsaðstöðu við stofn- unina með tilkomu þessa nýja húsnæðis. Sagði hann, að vegna þrengsla hefði frá því að lokið var byggingu rannsóknastofu- álmu stofnunarinnar árið 1969 oróið að innrétta skrifstofuhús- næði fyrir sérfræðinga og ann- að starfslið stofnunarinnar í öðrum enda þeirrar álmu. Þessi þrönga starfsaðstaða hefði haft það i för með sér að ekki hefði verið hægt að fjölga starfs- mönnum og sinna ýmsum verk- efnum, sem aðkallandi væri að taka til meðferðar. Ekki sagði Guðmundur, að þó væri nóg að fá húsnæði fyrir stofnunina, þvi bæði þyrfti að vera til stað- ar mörkuð stefna fyrir rann- sóknarstarfsemina og veita yrði fé til ráðningar á nýju starfs- fólki. Steingrimur Hermannsson, framkvæmdastjóri Rannsókna- ráðs ríkisins greindi frá þeim hugmyndum, sem legið hefðu að baki uppbyggingu þess rann- sóknarhverfis, er væri að rísa á Keldnaholti. Varðandi Rann- sóknastofnun byggingariðnað- arins, sagði Steingrimur að i fyrstu hefði verið fyrirhugað að reisa strax bæði rannsókna- stofubyggingu og skrifstofu- álmu en vegna takmarkaðs fjár- magns til framkvæmdanna hefði ekki reynst unnt að hefja framkvæmdir við skrifstofu- álmuna fyrr en í júni 1974. Forstjóri Rannsóknastofnun- ar byggingariðnaðarins, Har- aldur Ásgeirsson, gerði grein fyrir byggingunni og sagði að ýmsar tilraunir á sviði bygging- arstarfsemi hefðu farið fram samhliða byggingu skrifstofu- álmunar. Haraldur sagði að frumhönn- un hússins hefði verið gei^ð af Skarphéðni heitnum Jóhannes- syni arkitekt, en við fráfall hans tóku arkitektarnir Ólafur Sigurðsson og Guðmundur Kr. Guðmundsson við. Nefndi Har- aldur að á árinu 1968 hefði verið áætlað að skrifstofuálman kostaði 15 milljónir króna og væri sú áætlun framreiknuð til núverandi verðlags svaraði það til 113 milljóna króna. Raun- verulegur kostnaður við bygg- ingu varð hins vegar 75,4 milljónir, sem framreiknað á verðlagi í janúar 1977 jafngild- ir 101,8 milljónum króna. Að siðustu minnti Haraldur á að byggingarkostnaður væri stór þáttur i framfærslukostn- aði og þar með hækkaðra launa. Nýlegar spár sýndu að auka þyrfti framleiðslu íbúða I land- inu um 25% en á árinu 1985 ætti að nást það mark að ein íbúð yrði á hverja 3 ibúa. Hér væri varið helmingi fleiri manntimum til að koma upp meðalíbúð en þekktist hjá grannlöndum okkar. Allt væru þetta staðreyndir, sem þyrfti að rannsaka og það væri verkefni Rannsóknarstofnunar bygg- ingariðnaðarins. Menntamálaráðherra, Vil- hjálmur Hjálmarsson, afhenti iðnaðarráðherra bygginguna fyrir hönd Rannsóknaráðs rikisins og sagði menntamála- ráðherra m.a. að rannsóknir i þágu byggingariðnaðarins væru sérstaklega mikilvægar fyrir Islendinga bæði með tilliti til veðráttu og verðmæta, sem færu til bygginga. Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra veitti byggingunni viðtöku og minnti á þá breytingu, sem orð- ið hefði á aðstöðu til rannsókna í þágu byggingariðnaðarins frá þvi að sú starfsemi hafði til umráða 10 fermetra í Rann- sóknastofnun atvinnuveganna og þar til nú að 1700 fermetrar væru til umráða fyrir þessa starfsemi. Sagði ráðherrann, að mikið fjármagn færi til bygg- ingarstarfsemi og verkefnin framundan hjá Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins væri ekki sist að leita leiða til lækkunar á byggingarkostnaði, þvi það jafngilti kjarabót fyrir landsmenn og þá hefði komið í ljós að ísland væri auðugra af hráefnum til byggingariðnaðar en haldið hefði verið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.