Morgunblaðið - 05.02.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRUAR 1977
5
KLUKKAN 21.15 er á dagskrá sjónvarpsins þátturinn (Jr einu I annað.
Umsjónarmenn þáttarins eru þau Björn Vignir Sigurpálsson og Berg-
lind Ásgeirsdóttir, sem sjást hér á meðfylgjandi mynd.
í þættinum verður Magnús Ingimarsson hljómsveitarstjóri að vanda
og upptöku stjórnar Tage Ammendrup.
Klukkan 21.55:
„Flughetjan”
brezk bíómynd frá 1953
Dagskrá sjónvarpsins f kvöld
lýkur með brezkri bíómynd frá
1953. Myndin heitir á frummál-
inu „Appointment in London“ en
hefur á fslenzku hlotið heitið
„Flughetjan". 1 aðalhlutverkum
eru Dirk Bogarde og Dinah
Sheridan.
Myndin á að gerast á flugstöð f
Lincolnshire f Bretlandi árið
1943. Tim Mason, sem Dirk Bog-
arde leikur, er yfirmaður flug-
sveitar og hefur farið fleiri
árásarferðir á Þýzkaland en nokk-
ur annar flugmaður f hersveit-
inni. Talið var ólfklegt að nokkr-
um tækist að fara fleiri en tutt-
ugu til þrjátfu árásarferðir en
Mason hafði sett sér það mark að
fara nftfu ferðir, hvað sem það
kostaði.
Myndin lýsir svo lífi flugmanna
og yfirmanna á þessari flugstöð.
Vélarnar, sem þeir flugu, voru
Lancaster-sprengjuflugvélar,
f jögurra hreyfla og var klefi fyrir
skytturnar undir flugstjórnar-
klefanum.
Mason er orðinn mjög slæmur á
taugum og yfirmaður hans hvetur
hann eindregið til að hætta og
hefja störf á jörðu niðri. En Ma-
son lætur ekki segjast og stefnir
eindregið að þvf að ná settu tak-
marki. Auðvitað blandast róman-
tfk inn f myndina. Mason verður
ástfanginn af ekkju manns, sem
þegar hafði fallið f strfðinu. Hún
heitir frú Canyon og er háttsett f
flotamálaráðuneytinu. En hann
er ekki einn um hituna, þvf frú
Canyon á gnótt aðdáenda.
Ákveðið er að heiðra Mason
ásamt fleirum fyrir vasklega
framgöngu f loftárásunum á
Þýzkaland og á orðuveitingin að
sjálfsögðu að fara fram f
Buckingham Palace og af þvf
dregur myndin nafn sitt.
Að sögn þýðanda hennár, Ósk-
ars Ingimarssonar, er myndin
sæmileg en skortir hálft f hvoru
alla spennu, að þvf er hann sagði,
þar eð ekki er sýnt neitt af loft-
árásunum eða bardögunum við
þýzku orrustuflugvélarnar.
Bogarde sagði hann vera ágætan í
hlutverki Masons, þó þetta væri
lfklega eitt af hans fyrstu hlut-
verkum.
Leikarinn Dirk Bogarde er
fæddur f London árið 1921 og er
af þýzkum ættum. Ferill hans tók
skjótum framförum f kjölfar sfð-
ari heimsstyrjaldarinnar, eftir að
hann lék aðalhlutverkið f „Esther
Waters" árið 1948, þá hafði hann
sjálfur lokið herþjónustu. Frami
hans var skjótur og komst hann
fljótlega f röð fremstu leikara
Breta.
Hlutverk hans tóku að breytast
upp úr 1960 eftir að hann lék
aðalhlutverkið f myndinni „Vict-
im“. Ein af hans nýrri myndum
er „Dauði f Feneyjum", sem gerð
var á Ítalfu undir stjórn Luchino
Visconti árið 1970. Þar lék hann
miðaldra mann, sem var kynvillt-
ur, og hlaut sú mynd og leikur
hans mjög góða dóma.
Dirk Bogarde er nú viður-
kenndur sem einn af beztu núlif-
andi skapgerðarleikurum f kvik-
myndaheiminum.
EH^ hbI HEVRH
Klukkan 17.30:
Helga Valtýsdóttir.
„Kötturinn
Kolfinnur”
KLUKKAN 17.30 er á dagskrá
útvarpsins fyrsti þáttur fram-
haldsleikritsins „Kötturinn Kol-
finnur" eftir Barböru Sleigh.
Leikriti þessu var áður útvarpað
veturinn 1957—58. Leikritið
þýddi Hulda Valtýsdóttir og leik-
stjóri var Helga Valtýsdóttir.
Persónur og leikendur i fyrsta
þætti eru: Helgi Skúlason, Kristin
Anna Þórarinsdóttir, Helga
Valtýsdóttir og þulur er Jóhann
Pálsson.
Sjötugs-
afmœli
SJÖTUGUR er í dag Eirikur
Benedikz, sendifulltrúi við sendi-
ráð islands í Bretlandi og ræðis-
maður. Eiríkur er fæddur hér i
Reykjavík 5. febr. 1907, sonur
Benedikts S. Þórarinssonar
kaupmanns og konu hans,
Hansinu Eiríksdóttur. Stúdent
varð Eirlkur við MR vorið 1925 og
fór þegar til útlanda til fram-
haldsnáms i Kaupmannahöfn og
siðan stundaði hann nám við
brezka háskóla. Hér heima var
hann við kennslustörf fram yfir
1940, en gekk þá i utanríkisþjón-
ustuna og fór til starfa við sendi-
ráðið i Bretlandi, en þar hefur
hann starfað siðan, en á löngum
starfsferli hefur hann áunnið sér
mikið traust og virðingu hér-
lendra sem erlendra manna. Kona
Eiríks er Margaret Simrock og
eiga þau fimm' syni. Heimili
Eiriks og konu hans er I Oxford- |
shire og er utanáskriftin: 18
Talbot Road N. Home Farm, |
Bamton, Oxfordshire.
íslenzkir
radíóama-
törar kynna
starfsemi
sína í dag
KLUKKAN 14:00 I dag munu ís-
lenzkir radlóamatörar, I.R.A.,
halda kynningu á starfsemi sinni
I húsi Slysavarnafélagsins á
Grandagarði. 1 ársbyrjun 1947
voru fyrstu leyfisbréfin fyrir
radíóamatöra gefin út af Póst- og
simamálast jórninni og er því
félagið 30 ára um þessar mundir.
Á kynningunni verður reynt að
sýna radióamatöra á sem breið-
ustum grundvelli, fullkomin fjar-
skiptastöð verður starfrækt og
gefst fólki tækifæri til að fylgjast
með samböndum við radíóama-
töra viðs vegar um heiminn. Sýnd
verða heimasmiðuð tæki félags-
manna, sagt frá gervitunglum
radíóamatöra og helztu nýjung-
um.
Fyrsti formaður Í.R.A. var Ein-
ar Pálsson og núverandi formað-
ur er Jón Þóroddur Jónsson verk-
fræðingur.
Yngsti radióamatörinn á íslandi,
Yngvi Harðarson.
Opnum í dag
sýningu á ýmsum teiknistofuvörum.
Komið og sjáið nýjungar
í teikniborðum og teiknivélum.
Opiö í dag kl. 10 — 4
og í næstu viku kl. 10 — 5 alla daga.
Komið og skoðið.