Morgunblaðið - 05.02.1977, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 05.02.1977, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRUAR 1977 Athugasemd við óperuflutning Hr. ritstjóri í heiðruðu blaði yðar 2. febr. er stutt viðtal við þá ágætu söng- konu Sigurveigu Hjaltested, þar sem hún stendur í þeirri meiningu að dregið hafi úr óperu- sýningum í Þjóðleikhúsinu síðast liðin ár. Þar sem tölur sanna að þessar fullyrðingar hennar standast ekki, er rétt að vekja athvgli á því að undanfarin 5 ár hafa verið fleiri óperu- og óperettusýningar í Þjóðleikhús- inu en oftast áður í sögu leikhúss- ins (og aðeins sambærilegt við fyrstu 5 árin sem leikhúsið starf- aði). Veturinn 1973 var frumsýnd óperettan Leiðurblakan og sýnd samtals 50 sinnum og voru sýningargestir 26.290. Árið 1974 var óperan Þrymskviða eftir Jón Ásgeirsson frumflutt. Sýningar urðu samtals 12 og sýningargestir 5.542. Veturinn 1975—76 var óperan Carmen sýnd samtals 51 sinni með 27.266 gestum. Og á Togveiði- bann undan Vesturlandi Sjávarútvegsráðuneytið gaf f gær út reglugerð um bann við togveið- um á svæði fyrir Vesturlandi og verður svæðið lokað um óákveðinn tfma. Bann þetta kemur f kjölfar skyndilokunar, sem leiðangursstjórinn á r.s. Bjarna Sæmundssyni beitti að fengnum upplýsingum eftirlits- manns ráðuneytisins um mikið magn smákarfa á þessu svæði. Var svæðið sfðan kannað meðan á skyndilokuninni stóð og að þeirri könnun lokinni lagði Hafrann- sóknastofnunin til að svæðið yrði áfram lokað um óákveðinn tfma. Bannsvæðið afmarkast af línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta.: 1. 65°25’n.br„ 27t,00'v.lgd. 2. 65°26’n.br„ 36°54’v.lgd. 3. 65°08’n.br„ 26°48’v.lgd. 4. 64°39’n.br„ 26°54’v.lgd. 5. 64°39’n.br„ 27°02’l.lgd. 6. 65°03’n.br„ 27°09’v.lgd. yfirstandandi leikári er í undir- búningi sýningar á óperettunni Helenu fögru eftir Offenbach. Ótalin er Afmælissyrpa leik- hússins, þar sem nokkrir af okkar reyndari söngvurum, sem staðið hafa i fararbroddi á undanförn- um árum, komu fram (þar á meðal frú Hjaltested). Þannig hafa því á undanförnum 4 árum verið samtals 113 sýningar á óper- um og óperettum (þar sem Helena fagra er ekki talið með) og áhorfendafjöldi samtals 59.098. Til samanburðar skulu hér nefndar tölur fyrir 5 árin þar á undan. Þá voru aðeins 13 sýningar á Brosandi landi og 13 sýningar á Brúðkaupi Figarós eða samtals 26 sýningar og áhorf- endur samtals 11.139. Frú Hjaltested segir í viðtali sinu hversu ánægulegt það sé fyrir íslenska söngvara að syngja með heimsfrægum söngvurum og nefnir þar Nicolai Gedda. Ekki skal dregið i efa að svo kunni að vera en hins vegar skal segja sem er, að koma Nicolai Gedda hingað til lands var nokkuð einsdæmi á 27 ára ferli leikhússins, og yfir- leitt hefur það verið stefna for- ráðamanna leikhussins fyrst fé til óperustarfs er af svo skornum skammti sem raun ber vitni, að reyna þá fremur að búa í haginn fyrir þá ágætu innlendu söngvara sem við eigum, en að eyða stórfé til að fá frægar stjörnur til að syngja eitt eða tvö kvöld, enda virðast nú vera kynslóðaskipti og fram eru að koma jtngar og ferskar raddir við hlið þeirra eða í stað þeirra sem borið hafa hita og þunga dagsins í 25 ár. En rétt er enn einu sinni að taka fram eftirfarandi: Það mótast aldrei í fyrsta lagi af duttlungum þeirra sem með stjórn Þjóðleikhússins fara hverju sinni, hve umfangsmikil óperustarfsemi leikhússins er, heldur er það ávöxtur þeirrar menningarstefnu sem rekin er af rikisvaldsins hálfu og þeirra aðstæðna, bæði fjárhagslegra og annarra sem leikhúsinu (eða ein- hverjum öðrum aðilja) eru búnar til að sinna óperustarfsei. Með þökk fyrir birtinguna. Sveinn Einarsson Þjóðleikhússtjóri Rúmlega fimmtfu manns sátu ráðstefnu Æskulýðsráðs, þar sem fjallað var um starfsemi æsku- lýðsfélaga f borginni. Hinrik Bjarnason f ræðustól. Ljósm. Mbl. RAX. Ráðstefna um æsku- lýðsstarf í Reykjavík ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykja- víkur efndi sl. laugardag til ráðstefnu með forráða- mönnum æskulýðsfélaga í Reykjavík í Félagsmið- Lýst eftir ökumanni og vitnum MIÐVIKUDAGINN 2. febrúar klukkan 19.40 var milliblárri Citroénbifreið ekið vestur Miklu- braut. Á gangbrautinni við Eski- hlið lenti kona fyrir bifreiðinni og féll i götuna. Bifreiðin stöðvaði, kona, sem ók henni, skrúfaði niður rúðuna og baðst fyrir- gefningar en ók siðan á brott. Önnur kona var farþegi í bílnum. Er konan sem ók beðin að gef a sig fram við slysarannsóknadeild lög- reglunnar svo og vitni ef einhver eru. stöðinni Bústöðum. Á ráð- stefnunni var fjallað um æskulýðsstarf í borginni og starfsemi æskulýðsfél- aganna og Æskulýðsráðs en ráðstefnuna sátu rúm- lega 50 fulltrúar æskulýðs- félaga í Reykjavík, s.s. skátafélaga, ungtemplara og skólafélaga. Davíð Oddsson, formaður Æskulýðsráðs, setti ráðstefnuna og gerði nokkra grein fyrir verk- efnum hennar og þeim viðfangs- efnum, sem um þessar mundir væru til umfjöllunar hjá Æsku- lýðsráði. Auk almennra umræðna um viðfangsefni ráðstefnunnar hafði Hinrik Bjarnason, fram- INNLENT kvæmdastjóri Æskulýðsráðs, framsögu um starfsemi Æsku- lýðsráði Reykjavíkur og Bessí Jó- hannsdóttir, varaformaður Æsku- lýðsráðs, hafði framsögu um stefnumörkun borgaryfirvalda í æskulýðsmálum. Ráðstefna þessi var haldin f samræmi við ákvæði reglugerðar fyrir Æskulýðrráð en samkvæmt henni skal ráðstefna þessi haldin árlega. Lóðaúthlutun í Vesturbæ BORGARRÁÐ hefur samþykkt lóðaúthlutun til eftirtalinna manna á óbyggðum lóðum við Hofsvallagötu og Ægissfðu: Hofsvallagata 56: Sigurður Haf- stein, Kleppsvegi 144, Höfsvalla- gata 58: Hrafnkell B. Guðjónsson, Kjalariandi 4, Hofsvallagata 60: Hallgrímur Dalberg, Kvisthaga 16, Hofsvallagata 62: Andrés Björnsson, Hagamel 21, Ægisíða 100: Bragi Björnsson, Rauðalæk 26. ..... Til sölu Flyðrugrandi - Meistaravellir Eigum nokkrar 3ja og 5 herbergja íbúðir í hinum glæsilegu sambýlishúsum við Flyðrugranda (verðlaunateikning) Ath.: Opið í dag frá kl. 10-16 og sunnudag frá kl. 13-16 ÍBÚÐIRNAR SELJAST TILBÚNAR UNDIR TRÉVERK, EN SAM- EIGN VERÐUR AÐ FULLU FRÁGENGIN, ÞAR Á MEÐAL ER SAUNA BAÐ FYRIR HVERT STIGAHÚS. BÍLASTÆÐI VERÐA MALBIKUÐ OG LÓÐ AÐ ÖÐRU LEYTI FRÁGENGIN MEÐ TILHEYRANDI TRJÁM OG GRÓÐRI. ÍBÚÐUNUM VERÐUR SKILAÐ SEINNI HLUTA ÁRS 1977, BEÐIÐ EFTIR LÁNI FRÁ HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRN: FAST VERÐ. TEIKNINGAR OG FREKARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOF- UNNI. FASTEIGNAVIÐSKIPTI: Fasteignasalan/Norðurveri Hátúni 4a Símar 21870 - 20998 ^7/0^“°" Jón Bjarnason hrl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.