Morgunblaðið - 05.02.1977, Síða 11

Morgunblaðið - 05.02.1977, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRUAR 1977 11 2. Ef upphæðin er um 15 millj. kr. hverjir voru þá eigendur fjársins og hvar eru peningarnir? 3. Hvað var upphæðin há, sem Olafur Finsen greiddi Pétri Péturssyni vegna ábyrgða fyr- irGuðbjart? 4. Hvað var heildarsöluverð bif- reiðanna, sem Pétur Péturs- son lét selja og tók siðan upp í skuldir, sem bílaleigan Bíll- inn hafði stofnað til við Pét- ur? 5. Hvernig var stofnað til lán- veitingarinnar um kaup á bil- um frá S.I.S. Var jafnvel lán- veiting Samvinnubankans baktryggð með fjármunum lífeyrissjóðs starfsmanna S.l.S? Greiddi síðan Ölafur Finsen bæði Samvinnu- bankanum og tryggingarvíxla, sem tilheyra áttu lífeyris- sjóðnum (þ.e. tvöfalt)? 6. Treystir Guðbjartur Pálsson sér til að leggja fram útskirft- ir ávisanareikninga sinna við Samvinnubankann? Kristján Pétursson. 7. Er það satt, að Samvinnu- bankinn hafi lánað Guðbjarti fjármuni til að kaupa skulda- bréf með afföllum, en síðan eignfært sömu bréf á nafn- verði á reikninga Guðbjarts við bankann? 8. Nú er vitað, að Guðbjartur hefur látið ýmsa ábyrgðar- menn greiða víxilskuldir sín- ar og aðrar skuldir við banka og einstaklinga. Er Guðbjart- ur tilbúinn til að leggja fram skrá yfir þessa aðila og jafn- framt tilgreina hve háa upp- hæð hver ábyrgðarmaður hef- ur greitt fyrir hann? 9. Nú er ljóst, að ef hér er um að ræða fjármuni, sem skipta milljónatugum og Guðbjartur er eignalaus, hvar eru þá peningarnir? Er Guðbjartur jafnvel útsendari einhverra fjárspekúlanta, sem nota hann? 10. Mörg undanfarin ár hafa ýmsir orðið fyrir stórum áföll- um fjárhagslega vegna Guðbjarts, en hvað hefur hann gert til að greiða skuldir sínar við þá og ábyrgðarm. fyrrgreindu? Eins og framangreindár spurn- ingar bera með sér virðist hin einstaka og óviðjafnanlega fyrir- greiðsla, sem Guðbjartur fékk í bönkunum, sérstaklega þó Sam- vinnubankanum, hafa á einn eða annan hátt orsakað gjaldþrot Vá- tryggingafélagsins. Þá virðist einnig, að lífeyrissjóður starfs- manna S.I.S., sem geymdur var í Samvinnubankanum, hafi einnig verið notaður til víxlakaupa af Guðbjarti fyrir háar fjárupphæð- ir. Allslaus og skuldum vafinn Frá því máli mun ég reyna að skýra sérstaklega síðar, svo og ávísana, tékka- og veðskulda- bréfaviðskiptum hans við fjölda aðila. Nú er það staðreynd, að Guðbjartur er eignalaus og skuld- um vafinn og Olafur Finsen hefur tapað mestum hluta eigna sinna, svo sem fyrr greinir. Þá vaknar sú stóra spurning hvað orðið hafi af þessum miklu fjármunum, sem Guðbjarti tókst að ná út úr banka- kerfinu og m.a. Vátryggingafélag- ið var ábyrgt fyrir. Reynt verður á næstu mánuðum að kanna þá hlið málsins nánar og skýra frá niðurstöðum. Við þær athuganir, sem ég hefi gert, hefur ennfremur komið í ljós, að Olafur Finsen og Vátrygg- ingafélagið virðast hafa skuldað Pétri Péturssyni nokkrar millj. kr. á þessum tíma, en til þeirrar skuldar mun Olafur Finsen hafa stofnað án heimildar stjórnar félagsins. Vonandi getur Ölafur Finsen upplýst, hvernig og af hvaða orsökum var stofnað til þeirrar skuldar og hvernig því fé var varið? Þá verður ekki hjá því komist að krefja bankaráð Samvinnu- bankans um skýringar og ástæður fyrir framangreindri lánafyrir- greiðslu við Guðbjart, sem um áratugaskeið hefur verið þekktur fyrir f járglæfrastarfsemi. At- vinnurekstur Guðbjarts á sínum tíma er engin réttlæting fyrir slíkri fyrirgreiðslu, enda virðist augljóst, að umræddum fjármun- um hafi að mestu leyti verið varið til annarrar starfsemi. Einnig væri eðlilegt og reyndar sjálfsagt, að bankaráð Samvinnubankans gæfi skýr og afdráttarlaus svör um hver eða hverjir hafi gefið Guðbjarti á þessum tima og síðar óeðlilega háar yfirdráttarheimild- ir á hans viðskiptareikningum við Samvinnubankann, en þessar upphæðir námu fleiri millj. kr. eða tugmilljónum kr. miðað við núverandi verðlag. Þá hlýtur bankaráð Samvinnubankans að upplýsa hvers vegna bankinn keypti margsinnis skuldabréf af Guðbjarti fyrir millj. kr. til að jafna yfirdráttarskuld hans við bankann. Okurstarfsemi Ýmsar fleiri spurningar vakna við könnun á þessu máli. Hafa t.d. skattayfirvöld kannað þrotabús- mál Vátryggingafélagsins h.f.? Ef svo er ekki, hvers vegna? Er hugsanlegt að eitthvað af þessum fjármunum hafi verið notað til okurlánastarfsemi? Vonandi gefst nú öllum tækifæri á að svara fyrir sig af fullri einurð og hreinskilni, allar hálfkveðnar vís- ur og dylgjur ber að fordæma eins og hinn réttsýni ritstjóri Tímans kemst að orði. Ef til vill þekkir þessi sami ritstjóri þá aðila, sem geta upplýst almenning um hvað varð af þessum fjármunum, sem Guðbjartur náði út úr bankakerf- inu þó aðallega Samvinnubankan- um, vonandi lætur ritstjórinn ekki standa á sér að opinbera þær upplýsingar, ef svo er. Þá vekur það einnig mikla athygli, að eng- inn virðist hafa kært í þessu máli á sínum tíma og beðið um saka- rannsókn, enda þótt öflugt tryggingafélag hafi skyndilega orðið gjaldþrota. Þetta mál mun hafa verið til meðferðar hjá Saka- dómi Reykjavíkur í rúmt ár, von- andi fara niðurstöður þess að sjá dagsins Ijós. Mjög brýna nauðsyn ber til bæði frá þjóðhags- og lagalegu sjónarmiði, að mál þetta verði upplýst til fulls og jafnframt verði niðurstöðu málsins birtar í fjölmiðlum, þar sem hér eiga hlut að máli opinberar þjónustustofn- anir. Sérstaklega tel ég samvinnu- menn og bændur eiga ótvíræðan rétt á að fá fulla vitneskju um mál þetta, enda eru þeir aðalsparifjár- eigendur Samvinnu- og Búnaðar- bankans og stofnendur þeirra. Um þetta atriði hljótum við Þór- arinn Þórarinsson, ritstj. Tímans, að vera sammála og því treysti ég á fulla samvinnu hans við upp- ljóstrun málsins. Enskir skattheimtumenn við innheimtustörf. Myndin er frá um 1130. Hér sést að silfrið er vegið, en þannig var ávallt farið að f þá daga. Peningarnir voru svo misþungir, þótt sama verðgildi væri slegið á þá, að þeir voru sjaldnast taldir. Silfurþunginn réði. ÞAÐ segir fyrst frá því er ég varð andvaka nótt eina í október s.l. Varð mér það þá til afþreyingar, eins og oft áður, að skrúfa frá útvarpinu mínu og leita eftir erlendum stöðv- um. Datt ég þá niður á þá frásögn i BBC , brezka út- varpinu, að sagt var frá nýstár- legu uppátæki, sem ergði brezka skattinnheimtumenn mjög. í blaðagrein, sem ég síðar sá, var þessi frásögn staðfest. Sagan er sem hér segir. Nokkrir prentmyndasmiðir hyggjast sleppa við að borga skatta. Þeim eru greidd laun í gullpeningum, sem hljóða upp á 1. Sterlingspund en hægt er svo að selja þessa gullpeninga aftur á 25—30 pund. Það er prentsmiðjustjóri i Croydon á Englandi, sem borgar sér og sex starfsmönnum sínum þetta eitt til tiu Sovereign í vikulaun. (Sovereign er 1 sterlingspund i gulli). Fara launin eftir stöðu — yfirvinnu og sliku. Gullpeningar eru lögleg mynt á Bretlandi og nú vita skattayfir- völd þar ekki sitt rjúkandi ráð. Þannig er nefnilega mál með vexti þar i landi að einhleypir eru með skattfrjálsar tekjur á 735 pundum á ári og giftir að 1085. Auk þess eru greiddar bætur á tekjum undir £ 13 á viku. Gullmynt allar götur frá 1838 er enn í gildi. Um 511 milljón sovereigns peningar hafa verið slegnir allt i allt og undanfarin ár hefir konung- lega enska myntsláttan slegið milli 2 og 8 milljónir sovereign peninga á ári. Ekki til notkunar innanlands, heldur til utan- ríkisviðskipta og sem hluta af gullforða Englandsbanka. Mér var svona rétt að detta það í hug hvað skatturinn hér segði, ef greitt væri í 500 krónu gullpeningunum frá 1961 (Jóns Sigurðssonar gullpeningur) eða 10.000 krónu gullpeningunum frá 1974. Nú er sá fyrri þetta 40—50.000 krónu virði og sá sfðari er Enskur gullpeningur 1 pund, Elísabet II, 1974 og tfuþúsund króna gullpeningurinn fslenzki frá sama ári. eftir RAGNAR BORG seldur á 25.—30.000 krónur!!?? Gullverð erlendis fer hækkandi með lækkandi verði á dollarn- um. Hún var komin i 133 doll- ara gullúnsan, sfðast þegar ég vissi. Og báðir islenzku gullpeningarnir eru skráðir lögleg mynt. Milton Friedman, bandariski hagfræðingurinn, sem fékk Nóbelsverðlaunin á síðastliðnu ári, hefir enga trú á þeim efna- hagsráðstöfunum sem Jimmy Carter er að gera. Þær muni einungis leiða af sér aukna verðbólgu í Bandaríkjunum og vernsandi stöðu dollarans. Gullið mun þvf liklega enn halda áfram að stfga i verði, ef Friedman hefir rétt fyrir sér. Að maður minnist nú ekki á púðurtunnuna, sem nú er í Suður-Afríku. Þaðan hefir komið megnið af öllu gulli á heimsmarkaðinum. Nú getur vel svo farið að þaðan komi minna gull, ef órói éykst meðal svertingja þar, bylting verður gerð og hinir svörtu taka völd- in. Ef svo verður hlýtur verð : gulli að þjóta upp úr öllu valdi. Þetta er nokkuð sem vert er að vekja athygli á, þvi þrátt fyrir uppboð Alþjóða gjaldeyris- sjóðsins á gulli, sem nú eru haldin mánaðarlega og þar með auknu framboði á gulli, má samt búast við þvi að gullverð stigi. □ ELDHÚSINNRÉTTINGAR AF LAGER nú getum við afgreitt heilu eldhúsin af lager með nokkurra daga fyrir- vara Staðlaðar skápaeiningar ( úr- vali. Tvö útlit. — brúnbæsuð fura ^^^^^exklusiv" og eikarlíki úr plasti. □ KLÆÐASKAPAR OG BAÐSKAPAR Ennfremur fyrirliggjandi 40 og 50 cm fataskápar. Hæðin er 210 cm Mismunandi innréttingar Baðskáp- ar með frönskum hurðum úr Ijósri furu. □ VIÐ mælum, skipuleggjum og teiknum ykkur að kostnaðarlausu og án allra skuldbindinga af ykkar hálfu Kalmar innréttingar hf. Intertör Grensásvegi 22 Reykjavik simi 82645

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.