Morgunblaðið - 05.02.1977, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.02.1977, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1977 BENEDIKTSSON: Sagnfrœði Halldórs Laxness Svala og eiginmaður hennar Kern Moyse. Myndin var tekin f Frakklandi vorið 1928. í nýjustu bók Halldórs Laxness, Ungur eg var, drepur höfundurinn m.a. á kynni sin af Éinari Benediktssyni og fjöl- skyldu hans. Með því að ég var gift Má, syni Einars, og frásögn Halldórs er í mörgum atriðum röng og illkvittnisleg, þykist ég naumlega geta látið hana fara fram hjá mér athugasemda- laust. Var ég raunar fyrir all- löngu búin að skrifa stutta grein að þessu tilefni, þó að af sérstökum ástæðum hafi dreg- izt fyrir mér að birta hana. En nú sé ég að í Mbl. hinn 29. janúar sl., hefur Jóhann Friðriksson frá Efri-Hólum tek- ið svari Einars Benediktssonar og fjölskyldu hans af röggsemi og drengskap, og kann ég hon- um miklar þakkir fyrir það. Get ég því að sinni látið mér nægja að víkja nokkrum orðum að Svölu mágkonu minni og róg- burði Halldórs um föður henn- ar f því sambandi. En hver voru þá kynni Halldórs af Einari? Að eigin sögn var hann „aðeins einu sinni í stofu með Einari Benediktssyni“. Var hann þá boðinn heim til hans í Þrúð- vang við Laufásveg með Tómasi Guðmundssyni, „á dauðum tíma milli hádegis og nóns“. Er svo að sjá sem Hall- dóri hafi þótt gestgjafinn heldur þurr á manninn, en „vera má að Tómas Guðmunds- son hafi aðra sögu að segja af viðskiptum sínum við skáldið", bætir hann við. Nú var Tómas heimilisvinur þessarar fjöl- skyldu um árabil, en hvers- vegna leitaði Halldór þá ekki til hans um upplýsingar, ef hann kaus að hafa fremur það, er sannara reyndist um það atriði, sem hér verður minnzt á nokkru nánar? Á árunum um og eftir 1920 hafði Einar Benediktsson all- mikil umsvif og ferðalög vegna fyrirhugaðs námurekstrar í landi Miðdals f Mosfellssveit, en nokkur erlend námafélög höfðu að undangengnum frum- rannsóknum látið f ljós áhuga á Svala, dóttir Einars Benedikts- sonar. málmvinnslu á þessum stað. Haustið 1923 brá Einar sér enn til Þýzkalands og átti það að verða skyndiferð, en það fór á aðra leið. I Hamborg fékk Einar höstuga blóðeitrun i vinstra handlegg og varð að leggjast á spitala, og liðu svo mánuðir að honum var vart hugað líf. Kona hans, frú Val- gerður, var daglega hjá honum, en Einari dugði það ekki. Hann hafði jafnan haft hið mesta dálæti á Svölu dóttur sinni, sem um þær mundir hafði lokið fyrri-hluta prófi í læknisfræði við Lundúnaháskóla, og var hún nú kvödd til Hamborgar. Voru sfðan þær mæðgur báðar yfir Einari, unz hann um vorið hafði öðlazt þann bata, að hann gat flutzt af spitalanum. En hvernig segist Halldóri frá þessu? Hann hefur það eftir kunningja sínum (látnum, auð- vitað), að brottför Svölu hefði borið svo bráðan að vegna þess, að „hún hefði verið lofuð þýzk- um viðskiptavini föður sfns og kvödd á vettvang þeirra erinda að eiga hann.“ Það er með öðrum orðum gefið í skyn, að Einar hafi ætlað að fórna eftir- lætisdóttur sinni fyrir fjárhags- lega hagsmuni (hét það ekki að selja mansali?) og þarf þá engan að furða þó að, eins og Halldór segir orðrétt, „að lfk- legt sé að hún hafi aldrei sfðan borið sitt bar, en horfið til Ameríku og látizt þar úr berklaveiki." Hið sanna er, að Svala lauk prófi í læknisfræði við háskólann í Berlín. Þar var þá við nám ungur bandarískur lögfræðingur, Kern Moyse, (Halldór nefnir hann Mr. Muir.) Felldu þau Svala hugi saman, giftust og settust að í New York, þar sem Halldór kveður Svölu hafa látizt úr tær- ingu. Þetta er ekki heldur rétt. Þau hjónin, Svala og maður hennar, munu hafa veríð að koma af hljómleikum og biðu nokkra stund eftir vagni sínum. En það var hörkufrost og varð Svala innkulsa. Tók hún þá höstuga lungnabólgu, sem leiddi hana til dauða á fáum dögum, árið 1929. Frú Svala var frábærlega gáf- uð og glæsileg kona, og varð hún manni sínum mjög harm- dauði. Hefur hann sýnt minn- ingu hennar mikla ræktarsemi. M.a. hafði hann á einni ferð sinni til Islands meðferðis mjög vandað og dýrt pfanó, sem Svala hafði lengi átt og skildi ógjarna við sig. Fyrir tilmæli konu einnar sem um áratuga skeið vann hér að lfknarmálum, gaf Mr. Moyse hljóðfærið til hælisins í Kópavogi. Áletrun á silfurskildi greinir frá því, að hann hafi fært hælinu þessa gjöf til minningar um elskaða eiginkonu sfna, Svölu. (Presented by Kern Moyse in memory of his beloved wife Svala). Ég hef hripað þessar línur f þeirri trú, að mannorð látins fólks eigi líka nokkurn rétt á sér. Sigrfður Benediktsson. Strandríkið sjálft er fær- ast um verndun fiskstofna Á þingi Evrópuráðsins í Strassbourg 24.—27. janúar s.I. voru hafréttar- og fiskverndar- mál á dagskrá. Var um að ræða tvær þingsályktunartillögur um þessi efni. Annars vegar var tillaga frá laganefnd þingsins um hafrétt- arráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna, þar sem m.a. var lagt til við ráðherranefnd Evrópuráðs- ins, að haldinn yrði sérstakur fundur fulltrúa aðildarrfkja ráðsins í þeim tilgangi að sam- ræma og sætta sjónarmið ríkjanna, en þennan fund skyldi halda áður en 6. fundur þriðju hafréttarráðstefnunnar yrði haldinn. Framsögumaður þessarar tillögu var brezki þingmaðurinn W. Percy Grieve. Tillagan var samþykkt með mótatkvæðum. Hins vegar var tillaga frá landbúnaðarnefnd þingsins um fiskverndarmál, en nefnd þessi fer með sjávarútvegsmál. Framsögumaður þessarar til- lögu var írski þingmaðurinn Mark Killilea. Tillagan var sam- þykkt einróma. Tillögur þessar komu til um- ræðu sameiginlega á fyrsta degi þingsins og héldu umræð- ur áfram daginn eftir. Var svo mikill áhuga á þessum málum, að 24 þingmenn frá 12 rfkjum Evrópuráðsins tóku til máls. Leiddi þetta til þess að ræðu- tími var þegar í upphafi um- ræðna takmarkaður umfram venju. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son tók fyrstur til máls að lokn- um framsöguræðum og mælti á þessa leið: Ég verð að hefja mál mitt með því að mótmæla þeim niðurskurði á umræðum, sem hér hefur verið ákveðinn. Við verðum að hafa í hug, að hér er um að ræða sameiginlegar um- ræður um tvær mikilvægar til- lögur. Ég tef ekki tímann með því að orðlengja frekar mót- mæli mfn. I þingsályktunartillögu og greinargerð um þriðju hafrétt- arráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna gerir hr. Griev mikið úr þvf, að hafréttarráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna hafi ekki enn tekist að koma á alþjóðasam- komulagi um hin vfðtæku verk- efni, sem ráðstefnan hefur ver- ið að fást við. Þetta breytir ekki þeirri staðreynd, samt sem áð- ur, að siðan fjórða hluta ráð- stefnunnar lauk hefur legið fyrir frumvarp að hafréttarsátt- mála, sem mælir fyrir um ein- hliða rétt strandrikis til að t'aka sér 200 mílna efnahagslögsögu. Hafa þessi ákvæði verið óbreytt síðan í meðferð hafréttarráð- stefnunnar. Með þetta í huga er ég and- vígur þeirri tillögu að setja á fót sérstaka ráðstefnu með full- trúum aðildarríkja Evrópuráðs- ins, þar sem það væri ekki ein- ungis vafasamt heldur og ónauðsynlegt. Ef slík ráðstefna skyldi vera kölluð saman, hefði hún þann eina tilgang að sætta sjónarmið aðildarríkja okkar um atriði, sem þriðja hafréttar- ráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefur ekki enn náð fullu sam- komulagi um. Hér er sérstak- lega um að ræða hið erfiða við- fangsefni að ná samkomulagi um heildarstjórn alþjóðasvæða utan lögsögu strandríkja og hagnýtingu hinna miklu auð- æfa, sem þar finnast í hafinu og í hafsbotninum. Það er ef til vill að bera í bakkafullan lækinn fyrir mig I þessu sambandi að minna á, að á síðustu þremur áratugum eða þar um bil hefur ísland verið i fararbroddi i baráttunni fyrir auknum rétti strandríkja. I raun var það svo, að það var fyrir frumkvæði íslands, að fyrsta hafréttarráðstefna Sam- einuðu þjóðanna var kölluð saman árið 1958, sem síðar leiddi til annarrar og þriðju hafréttarráðstefnunnar. Til- gangur islands var ekki einung- is að tryggja verndun sinna þýðingarmestu efrfúhagsverð- mæta, grundvöll síns stjórn- málalega- og efnahagslega sjálf- stæðis, heldur einnig að vernda eina af þýðingarmestu upp- sprettum eggjahvíturikra fæðu- tegunda fyrir sveltandi þjóðir heims. En uppspretta þessi fór hraðminnkandi vegna ofveiði með stöðugt fullkomnari tækni- búnaði við fiskveiðar. Þetta leiðir hugann að hinu mikilvæga hlutverki fiskvernd- ar, sem er annað meginefnið í þessum sameiginlegu umræð- um. Þingsályktunartillagan svo og greinargerðin um fiskvernd, sem Mr. Killelea mælti fyrir, er ákaflega vel unnin og skýrir á Þorvaldur Garðar Kristjánsson framúrskarandi hátt vandamál og úrræði tengd hinu þýðingar- mikla málefni, sem fiskivernd- in er. Ég flyt Mr. Killelea þakk- ir mínar og óska honum til hamingju með þetta verk. Auðvitað er það, sem segir í greinargerð þessari um fisk- vernd, ekkert nýmæli fyrir okk- ur íslendinga. Þvi að yfir hálfa öld höfum við beitt í mismun- andi ríkum mæli þeim aðferð- um, sem fjallað er um í þessari greinargerð. Við erum því ekki án nokkurrar reynslu í þessum efnum. Raunhæfasta leiðin til fisk- verndar er fólgin í þeirri stefnu að gera viðkomandi strandriki sjálf ábyrg fyrir aðgerðum í þessu efni, þvi að hvað sem má segja um kosti alþjóðasam- vinnu, þá hefur reynslan sýnt og sannað, að þetta hefur gefið bestan árangur, sem langtíma- stefna, einnig fyrir önnur lönd en strandrikin sjálf. í raun er það einmitt þessi stefna, sem nú, góðu heilli, sýnist hafa hlot- ið framgang á hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna. i þessu sambandi er mikil- vægt að hafa í huga, að við hverja útfærslu fiskveiðilög- sögunnar hafa islendingar fengið meíra olnbogarúm til að koma á nauðsynlegum friðun- arráðstöfunum, er hafa stöðugt aukizt vegna hins hættulega ástands fiskistofnanna. En þetta ástand hefur í sjálfu sér gert útfærslu fiskveiðilögsög- unnar að hinu mesta nauð- synjamáli. i fiskverndarmálum verður meginstefnan að vera fólgin i verndun ókynþroska fisks. Við islendingar höfum gengið stöð- ugt lengra i þessa átt. A siðasta ári var umfangsmikil löggjöf sett, sem kveður á um strangar verndunaraðgerðir varðandi allar greinar islenskra fisk- veiða. Þessi löggjöf gengur lengra en nokkur önnur fyrri fyrirmæli um fiskvernd. Ég vona að það, sem ég hef núna sagt, nægi til að sýna, að íslendingar fagna þeirri stefnu, sem i tillögu þessari og greinar- gerð felst. Ég tel þingsályktun- artillöguna bæði tímabæra og gagnlega og styð hana af heil- um hug. Ræða ÞORVALDS GARÐARS KRISTJÁNSSONAR á þingi Evrópuráðsins í Strasbourg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.