Morgunblaðið - 05.02.1977, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRUAR 1977 X3
Kjartan Norðdahl:
Nýalssinnar og
fljúgandi diskar
Stundum, sérstaklega í seinni
tíð, hefir verið lögð fyrir mig
þessi spurning: „Hvað álítið þið
nýalssinnar um fljúgandi diska?“
Og þessari spurningu er fljótsvar-
að að mfnu mati. Nýalssinnar eiga
enga „patent" skýringu á þessu
furðulega fyrirbæri. Annað mál
er það, að einstaka menn innan
hreyfingar nýalssinna, t.d. í Fé-
lagi Nýalssinna, telja sjálfa sig
hafa skýringu á reiðum höndum
og það er þeim velkomið.
Á tslandi rikir hugsana- og
prentfrelsi. Hér á landi má hver
sem er segja álit sitt á hverju sem í
er. Mér finnst það samt bera vott
um skort á raunsæi, þegar ein-
staka menn þykjast geta mælt fyr- I
ir munn hóps annarra manna, án
þess að hafa fengið til þess sér- j
stakt umboð.
Þetta er samt algengt, ekki sizt
er varðar stjórnmálamenn. Hver
kannast ekki við orðalagið: „Við
sjálfstæðismenn álftum...“, „Við
í Alþýðubandalaginu...“. Er það
nú múgmennska, segi eg. Auðvit-
að getur einstaklingur gefið út
yfirlýsingar eða sagt sitt álit í
nafni stjórnmálaflokks eða fé-
lagasamtaka, en þá þarf að liggja
fyrir samþykkt frá fundi eða
þingi, þar sem lýðræðislegar leik-
reglur hafa ráðið.
Engin samtök nýalssinna eða
Félag Nýalssinna hafa gert neina
samþykkt um afstöðu sina til
þessa fyrirbæris, sem menn nefna
fljúgandi diska (eftirléiðis
skammst. F.D.)
Það hefir hins vegar gerzt, að
lesnar hafa verið auglýsingar i
Ríkisútvarpinu, þar sem orðalagið
er þannig, að gefið er i skyn, að
Félag Nýalssinna kunni skýringu
á þessum fyrirbærum.
Hér er um að ræða dæmi þess,
er einstaka áhugamenn sjást ekki
fyrir i ákafa sinum, og taka sér
bessaleyfi til að tala og skrifa i
nafni heils félags, enda þótt i þvi
félagi hafi engin sameiginleg
ályktun verið samin. Mælist ég til
þess við velviljaða lesendur, að
þeir taki þessu með skilningi og
láti þessa klaufalegu framkomu
ekki spilla fyrir góðum málsstað
(málsstað Nýals).
Nýalssinnar eru fólk, sem hefir
mikinn áhuga á kenningum dr.
Helga Pjeturss, eins og þær koma
fram í ritum hans sem bera sam-
heitið Nýall. Það, sem vakir fyrir
nýalssinnum, er að fá aðra til að
veita þessum kenningum athygli,
og þá ekki sízt vísindamenn. I
þessu skyni var Félag Nýalssinna
stofnað, ef það mætti verða til
þess að auka samtakamátt
stuðningsmanna Nýals. Atvikin
hafa hins vegar hagað því þannig,
að þetta félag og nýalssinnar yfir-
leitt, hafa fengið orð á sig fyrir að
vera þröngsýnir og jafnvel of-
stækisfullir í skoðunum. Veit ég
eigi gjörla hvað veldur nema ef
vera skyldi það, hversu það fer
yfirleitt i taugarnar á fólki, þegar
einstaklingar eða félög eru að til-
kynna því hver sé hiri eina „rétta“
skýring á ýmsum gátum tilver-
unnar.
Samtök eins og Félag Nýals-
sinna, eiga að vera rannsóknar-
samtök, en ekki sannleiksfélag,
sem gefur út yfirlýsingar og fyll-
yrðingar f sifellu. Við í félaginu
vitum ekkert meira um F.D. en
hver annar og það er mér mjög til
efs, að neinn ávinningur sé að því
að blanda þessum málum saman.
Með þessu er ég alls ekki að
segja, að það se e-ð athugavert við
að hafa áhuga á F.D, enda skortir
vist ekkert þar á. Ötal félög,
greinar og bækur hafa verið
stofnuð og samin vegna þessa
máls. Þó nokkuð margir virtir
vísindamenn hafa gefið sig að
þessu og reynt að rannsaka málið.
Nægir þar að nefna sérstaklega
ameriska stjörnufr. dr. J. Allen
Hynek, sem samið hefir greinar
og bækur um F.D., sem liklegast
eru þær merkilegustu sem enn
hafa sést. Kemur greinilega fram
hjá dr. Hynek, að hann telur
fyrirbærin eiga sér stað og að
skýringin á þeim, þegar hún loks-
ins fáist, muni valda þekkingar-
byltingu isögu visindanna.
HVER ER TILGANGURINN?
Um það, hvers vegna þessir
fljúgandi diskar séu að koma
hingað, hefir margt verið ritað af
ýmsum mætum fræðimönnum.
Mig langar aðeins að vekja at-
hygli á einu atriði, sem mér virð-
ist ekki hafa verið nægur geumur
gefinn.
I þeim blöðum og bókum, sem
ég hef lesið um F.D. hef ég hvergi
rekizt á dæmi þess, að þeir hafi
látið neitt gott af sér leiða, í bezta
Furður Afríku
Samkoma I Aðvent-
kirkjunni Ingólfsstræti
19 Reykjavik kl. 5 á
morgun, sunnudag.
Sigurður Bjarnason
Gestur verður Paul Sundquist
sem var mörg ár trúboði i Afrlku.
Hann talar um kristniboð og
sýnir litskuggamyndir frá Afriku.
Verið velkomin.
falli e-ð alveg hlutlaust. Aftur á
móti er i mörgum þessara frá-
sagna þess getið, að meintir disk-
ar hafi tíaft neikvæð áhrif á þá,
sem urðu þeirra varir, svo ekki sé
meira sagt. Þetta virðist mér
benda til þess, að vitsmunaverur
þær, sem hér kunna að standa að
baki, hafi ekki ýkja mikla samúð
með okkur hér.
HVERNIG KOMAST ÞESSIR
DISKAR HINGAÐ?
Væru þeir frá einhverjum
hnetti innan okkar sólhverfis, t.d.
óþekktri jörð, sem sífellt er hand-
an sólar eins og einhver spákerl-
ing hefir haldið fram, eða tungl-
um Saturnusar eða Júpiters eða
þá frá óþekktri risageimstöð á
braut um sólu, þá ætti að vera
mun auðveldara að fylgjast með
þeim en raun ber vitni.
Séu diskarnir úr öðrum
sólhverfum komnir, þá gerir hin
gifurlega fjarlægð milli stjarna
allar umræður um ferðalög að
markleysu. Enda þótt diskarnir
færu með ljóshraða eða nærri því,
þá tekur slfkt ferðalag mörg ár,
en ef dæma má af sögum
(statistik) af F.d. er þá fjöldi
heimsókna þeirra hér og hvar á
jörðu svo mikill, að hann jafngild-
ir að meðaltali nokkrum á dag.
Getur hver maður séð að þetta
fær ekki staðist.
En geta þeir þá horfið úr einu
sólhverfi og komið fram í öðru, án
þessi í rauninni að fara á milli
stjarnanna? Þetta mun vera skoð-
un einstöku nýalssinna og e.t.v.
fleiri. En þá er þetta að athuga.
Einu dæmin um likamninga, sem
nokkur gaumur er gefandi, eru
þau sem brezku vísimdamennirn-
ir Crookes o.fl. rannsökuðu á önd-
verðri þessari öld. Og samkvæmt
niðurstöðum þeirra og samkvæmt
kenningum Nýals eiga líkamning-
ar að geta átt sér stað. Þeir eiga að
mótast af því aflsvæði, orkusvæði,
sem fyrir er á myndunarstaðnum.
í ljósi þessa hafa sumir þeirra, er
ganga með flugdiksatrú, dregið
þá ályktun að F.D. geti likamnast
I gufuhvolfi jarðarinnar, af þvi að
nú sé menning jarðarbúa komin á
það stig véltækni og tæknihugs-
unar, að slíkt geti átt sér stað.
Tækniþekking jarðarbúa á að
skapa þau orkuskilyrði, móttöku-
skilyrði, að F.D. geti framleiðst í
gufuhvolfinu. Má vera. En i and-
stöðu við þessa skýringu kemur
sú staðreynd, að þessar sögur um
F.D. eiga að ná aftur allar aldir,
jafnvel aftur i tima Biblíunnar
eða enn aftar. Og hvernig gátu
menn á dögum Esekiels séð F.D.
og lýst þeim svipað og gert er nú á
tuttugustu öld, ef þekking jarðar-
búa á að ráða einhverju um
myndunarskilyrði þessara
„líkamninga"?
Samt má vel vera, að þessi til-
gáta sé á einhvern hátt nær hinni
réttu skýringu en aðrar, en það er
alveg fráleitt unnt að fullyrða
neitt um það ennþá. Það veit eng-
inn hér á jörð neitt um þessa
diska, hvorki hvaðan þeir koma
né hvernig eða hvort þeir hafa
yfirleitt nokkuð komið. Og auk
þess ekki heldur hvort fyrirbærin
eru jarðarbúum jákvæð eða ekki.
Mér virðist gagnrýnin og varkár
afstaða of litil en auðtrúin of
mikil og það er ekki beinlinis til
þess fallið að auka virðingu
manns fyrir flugdiskatrú, þegar í
ljós kemur, að langflestar þessara
æsifrétta um F.D. t.d. þær, sem
birzt hafa í hérlendum blöðum
upp á síðkastið, eiga sér hinar
Framhald á bls. 25
FRÁ LEIBBEININGASTÖfl HÚSMÆflRA
Sleppið ekki handfanginn á
vörnvagninnm í matvöruverzlnn-
inni eí barnið sitnr í vapinnm
Eftirfarandi saga var birt i
„Rád och Rön“ sem
Konsumentverket í Svíþjóð gef-
ur út og verður hún sögð hér
öðrum til viðvörunnar.
Kona hafði látið dóttur sína á
vöruvagninn en þar er sæti sem
ætlað er börnum eins og kunn-
ugt er. Hún brá sér frá andar-
tak, skyndilega valt vagninn,
barnið datt og lærbrotnaði.
Litla stúlkan varð að liggja á
sjúkrahúsi í fimm mánuði og er
hún nú byrjuð að ganga aftur
en annar fóturinn er ekki orð-
inn alveg góður enn.
Móðirin skýrði frá þvi að
barnið hafði vaggað sér dálitíð,
en hún hafði furðað sér á því
hve vagninn væri óstöðugur.
Verslunarstjórinn hafði þá sagt
henni að ef menn ýta fyrst
vagninum áfram og draga hann
síðan aftur á bak þá geta hjólin
undir vagninum snúist þannig
að einungis lftið átak þurfi tl
þess að hann velti.
Það þyrfti að vera við-
vörunarskilti á vögnunum þar
sem sagt er frá þvi, að þegar
börn eru látin á vöruvagninn
meðan verið er að versla, skuli
fullorðna fólkið aldrei sleppa
handfanginu.
Einu sinni var mánaðar-
gamalt barn lagt i botn vagns-
ins. Móðirin sleppti vagninum
til þess að ná i þann söluvarn-
ing í hillunni sem hana vanhag-
aði um. A meðan fór systir ung-
barnsins tveggja ára að klifra
upp á hjólagrindina með þeim
að hún fékk bæði vagninn og
litla barnið yfir sig. Til allra
hamingju meiddist enginn al-
varlega í það skiptið.
Við rannsókn á barnaslysum
sem fram fór i Uppsölum og þar
í grendinni kom i ljós að í sjö
tilvikum hafði vöruvagn átt
þátt I slysum.
S.H.
ALLAR TEGUINIDIR
IIMIMRÉTTIINIGA
Að gera nýja Ibúð úr gamalli er mjög heillandi
og skemmtilegt verkefnl Það útheimtir rfkt
hugmyndaflug og hagleik. Það er okkur sér-
stök ánægja að leiðbeina fólki i þessum efn-
um. Við komum ó staðinn, ræðum hugmynd-
ir beggja aðila, gerum áætlanir og síðan föst
verðtilboð A þennan hátt veit viðskiptavinur-
inn hver kostnaðurinn er og getur hagað flár-
hagsáættun sinni samkvæmt því.
ELDHUSINNRETTINGAR
Ef þér þarfnist ráðlegginga eða
aóstoóar, veitum við fúslega
allar upplýsingar. JffSm
SKAPAR
SÖLBEKKIR
gerum föstverötilboö i allar
tegundir innréttinga
IU0GRR
| allar legundir
innréttinga
Tréval hf.
Auöbrekku 55 40800
Hiinnebeck kerfismót og loftaundirsláttur — Byggingamáti nútímans
___ ___ ________ B. F. ÁRMANNSFELL, Funahöfða 19, s. 83307 — 83895.