Morgunblaðið - 05.02.1977, Síða 17

Morgunblaðið - 05.02.1977, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRUAR 1977 J J Islendingar trúhneigðir: TRUHNEIGÐ tslendinga og trú á ýmis dulræn fyrirbrigði er almennari hér á landi en I öðrum Evrópulöndum, þar sem samanburð er að fá, og eigum við meiri samleið I þessum efn- um með Bandarfkjamönnum en nágrannaþjóðum okkar sam- kvæmt niðurstöðum könnunar, sem gerð var hér fyrir um tveimur árum á vegum sálar- fræðideildarinnar innan Há- skólans og dr. Erlendur Har- aldsson, lektor, kynnti nýverið f tveimur útvarpserindum. Könnun þessi náði til rúm- lega ellefu hundruð manna um land allt á aldrinum frá þritugu til sjötugs,, og alls urðu 902 eða 80% hinna aðspurðu við til- mælum um að senda til baka útfylltan spurningalista. Að þvi er Erlendur sagði I viðtali við Morgunblaðið fjallaði könnun- in um almenna reynslu manna hér á landi af dulrænum fyrir- brigðum, um viðhorf þeirra til framhaldslífs og einnig var spurt um trúhneigð þeirra, hvort þeir teldu sig hafa orðið fyrir trúarreynslu og við hvaða aðstæður. Jafnframt var nokk- uð kannaður lestur hinna að- spurðu á dulrænu og trúarlegu efni og loks var spurt um draumalíf. Hér á eftir verður vikið að nokkrum helztu niðurstöðum framangreindrar könnunar, en að sögn Erlends hefur nú verið hafizt handa um að fara nánar ofan í einstök atriði þessarar könnunar. Þannig hefur nú í vetur verið ráðizt f að eiga við- töl við alla hina aðspurðu, sem búsettir eru á Reykjavikur- svæðinu og samkvæmt könnun- inni kváðust hafa orðið fyrir reynslu af látnu fólki. Magnús Jónsson, kvikmyndagerðamað- ur og blaðamaður, sem um þess- ar mundir er að ljúka BA-prófi f sálarfræði frá félagsvísinda- deild háskólans, hefur átt þessi viðtöl, en að sögn Erlends er þessu verki ekki að fullu lokið, svo að niðurstöður munu tæp- ast liggja fyrr en siðar á árinu. Jafnframt sagði Erlendur, að í könnuninni hefði verið innt eftir annarri tegund dulrænnar reynslu, sem Erlendur kvaðst hafa hug á að athuga betur, en það væri sú reynsla að fólk teldi sig vera utan eigin likama einhvern tíma. Þetta væri frem- ur sjalfgæft fyrirbrigði en engu að siður hefðu um 8% þeirra, sem spurðir voru i framan- greindri könnun, talið sig hafa orðið fyrir slikri reynslu. Er- lendur kvað nú stefnt að því að hitta einnig þetta fólk að máli og fá nánari lýsingu á þessari reynslu. Kannanir þessar og úrvinnsla þeirra eru töluvert kostnaðar- samt fyrirtæki, en fyrir nokkru var stofnaður sjóður til rann- sókna á sviði dulsálarfræði, og framangreindar rannsóknir eru að verulegu leyti kostnaðar af honum. Sjóður þessi hefur hlot- ið lögfestingu og framlög og gjafir til hans eru frádráttar- bærar til skatts. Tekjustofn þessa sjóðs eru fyrst og fremst frjáls framlög einstaklinga og áhugamanna um visindalegar rannsóknir á þessu sviði sálar- fræðinnar en stjórn sjóðsins skipa þeir dr. Erlendur Har- aldsson, sr. Jón Auðuns, fyrr- um dómprófastur, og Þorsteinn Þorsteinsson, lífefnafræðingur. Sjóðurinn, sem nefnist „Sjóður til rannsókna I dulsálarfræði, hefur gfróreikning 60600-6 og geta þeir sem vilja ljá rann- sóknum þessum lið greitt inn á hann. Morgunblaðið spurði dr. Er- lend hvort tiokkuð fleira væri á döfinni varðandi rannsóknir hans á framangreindu sviði sál- arfræðinnar. Erlendur kvaðst þá geta greint frá því, að áður en hann hefði hafið störf við háskólann hér, hefði hann unn- ið í New York að umfangsmikl- um rannsóknum á sýnum deyjandi sjúklinga. Rannsóknir þessar náðu til nær eitt þúsund slíkra tilfella bæði á Indlandi og i Bandaríkjunum. Erlendur kvað þessu verki nú að ljúka og kæmu niðurstöður þessarar rannsókna væntanlega út f bok- arformi næsta haust. Erlendur sagði að undanfarið hefði komið fram vaxandi áhugi á ýtnsu í reynslu deyjandi manna sem kann að snerta hugsanlegt framhaldslf. Hjá þeim kæmu fyrir einstök atriði sem e.t.v. mætti taka sem vísbendingu um annað líf. Hins vegar væri þetta rannsóknar- leið sem litt hefði verið farin fyrr en á síðustu árum. Þó mætti geta þess að læknir nokk- ur, er starfað hefði við háskóla- sjúkrahús í Virginíu hefði ný- verið skrifað bók, sem hann byggði á samtölum við fólk er hefði dáið svonefndum klfnfsk- um dauða en verið kallað aftur til lffsins. Bókin hefði vakið mikla athygli vegna þess hversu lýsingarnar hefðu verið innbyrðis lfkar og hún komist á metsölulista um tíma þar vestra. Erlendur tók þó fram, að allar rannsóknir á þessu sviði væru á byrjunarstigi, menn væru enn að þreifa fyrir sér og ekkert væri unnt að full- yrða enn sem komið væri um niðurstöður þeirra. En víkjum þá nánar að helztu niðurstöðum könnunar þeirrar sem dr. Erlendur lýsti f út- varpserindum sfnum. Varðandi skoðanir hinna aðspurðu á til- vist ýmissa hugrænna dul- rænna hæfileika, þ.e.a.s. á hug- boðum og hugskeytum, for- spám og berdreymi, þá reynd- ust viðhorf til þessara fyrir- bæra nokkuð á einn veg. Nær helmingur manna taldi tilvist þeirra annaðhvort vissa eða lfk- lega, 41% taldi hana mögulega en innan við 1% spurðra taldi óhugsandi að slfk fyrirbæri ættu sér stað. Samanlagt töldu aðeins 5% hinna spurðu tilvist þeirra ólfklega eða óhugsandi, þannig að draga má þá ályktun að meirihluti landsmanna trúi að meira eða minna leyti á til- vist þessara dulrænu hæfileika. Konur reyndust nokkuð trúaðri á þessi fyrirbæri en karlar. Ekki var unnt að greina mikinn mun á viðhorfum til þeirra eft- ir aldurshópum en lengd skóla- göngu virtist hafa nokkur áhrif f þá átt að minnka trú manna á þessi fyrirbæri eða þá að hinir langskólagengnu tjáðu sig ekki eins afdráttarlaust. Dr. Erlend- ur bar þessa niðurstöðu síðan saman við áþekkar kannanir sem gerðar höfðu verið annars vegar meðal Dana og hins vegar meðal Bandarfkjamanna, og sýndi það sig að meirihluti al- Dr. Erlendur Haraldsson mennings f þessum tveimur löndum trúir einnig á tilvist þessara fyrirbæra en viðhorf Islendinga á þessu sviði eru töluvert jákvæðari en viðhorf nágrannanna tveggja f austri og vestri. Spurt var um trú á tilvist álfa og huldufólks, svo og trú á fylgjur og álagabletti, og reynd- ist trú á þetta töluvert minni en varðandi hugskeytin og for- spárgáfu. Mest var trúin á fylgjur, þar eð rúmlega þriðj- ungur spurðra taldi tilvist þeirra líklega eða vissa en trúin álfa og huldufólk var töluvert minni, svo og reimleika en trú á álagabletti sem f þjóðsögum er nátengd huldufólki reyndist heldur meiri. Trú á framhald lífs eftir líkamsdauðann virðist mjög sterk meðal íslendinga sam- kvæmt könnuninni, þar eða í henni voru fleiri vissir um framhaldslíf en nokkuð annað sem spurt var um. Alls kváðust 40% spurðra viss um fram- haldslíf en 28% töldu það lík- legt. Aðeins 2% hinna spurðu töldu framhaldslíf óhugsandi og 5% ólfklegt. Konur voru heldur trúaðri en karlar á ann- að líf og einnig kom f ljós aó trúin á framhaldslífið fer hægt vaxandi með aldrinum. Lang- skólagengnir eru heldur van- trúaðri á framhaldslífið en hin- ir sem skemur hafa setið á skólabekk. í samanburði við erlendar kannanir eru tslendingar sann- færðari um framhaldslif en nokkur önnur Evrópuþjóð sem kannanir eru til um og raunar leiddi könnunin hér í ljós að á sviði nokkurra trúarskoðana og dulrænnar reynslu erum við líkari Bandarfkjamönnum en Evrópuþjóðum, og á þetta einn- ig við um almenna trúhneigð og guðstrú. Könnunin hér leiddi ótvfrætt í ljós að íslendingar telja sig trúhneigt fólk, þvf að hvorki meira né minna en 97% töldu sig trúaða eða trúhneigða að einhverju leyti en aðeins 3% töldu sig alls ekki trúaða, og er þetta hlutfall svipað og kom fram í hliðstæðum könnunum í Grikklandi og Bandaríkjunum en töluvert hærra hlutfall en f flestum nálægari Evrópulönd- um. Trú á endurholdgun reyndist lftil miðað við trú á flest önnur dulræn fyrirbæri og trúarskoð- anir, en hins vegar reyndist trú á skyggni, þeim hæfileika að skynja látna menn, meiri en nokkurt atriði annað sem spurt var um að undanteknu fram- haldslffi. Um þriðjungur manna taldi víst, að unnt væri að sjá látna menn og rúmur fjórðungur taldi það líklegt en aðeins 7% voru þeirrar skoðun- ar að óhugsandi eða ólíklegt væri að skynja mætti návist lát- inna manna. Það er þó ekki aðeins á þenn- an hátt sem ýmsir töldu að hafa mætti samband við framliðið fólk. Rúmlega fimmtungur manna kvaðst viss um að ná mætti slíku sambandi á vel- heppnuðum miðilsfundum og annar fimmtungur taldi það lík- legt. Fjórir af hverjum tfu áttu þannig von á þvf að ná mætti sambandi við hina látnu á vel- heppnuðum miðilsfundum. Að- ins einn af hverjum tiu telur slíkt samband ólfklegt eða óhugsandi. Erlendur minnti á f þessu sambandi að um þriðjungur þeirra landsmanna, sem komn- ir eru yfir þrftugt, hefur setið miðilsfundi, og átta af hverjum tíu töldu sig hafa haft nokkurt gagn af slíkum fundi. Telur Er- lendur að á þessu sviði séu ís- lendingar verulega frábrugðnir nágrannaþjóðunum og segir að honum sé aðeins kunnugt um álíka almenn kynni af starf- semi miðla í Brasilfu. Einnig var f könnuninni innt eftir þvf hvort þeir sem spurðir voru, hefðu sjálfir orðið fyrir reynslu af einstökum tilgreind- um tegundum dulrænna fyrir- bæra. Spurt var I þessu sam- bandi um berdreymi, fjar- skyggni og hugboð í vöku um fjarlæga atburði f tíma og rúmi, hvort fjarstödd lifandi persóna hefði nokkru sinni birzt við- komandi sem sýn, rödd eða á annan hátt, hvort hinn aðspurði hefði nokkru sinni orðið var við návist látins manns og einnig var spurt um þá reynslu að fólki finnist sem það sé utan við líkama sinn, hvort fólk hefi orð- ið vart við reimleika eða hvort það hafi séð hlut hreyfast af yfirnáttúrulegum eða óútskýr- anlegum orsökum og lok,s hvort það hefði séó álfa eða huldu- fólk eða talið sig verða fyrir erfiðleikum af raski álaga- bletta. Af þeim níuhundruð manna hópi, sem varð við tilmælunum um að fylla út spurningalista um þetta efni, sögðust 575 hafa orðið fyrir einhverri af hinum 13 tilgreindu tegunda dulrænn- ar reynslu, sem spurt var eftir. Var þetta um 64% þeirra, sem spurðir voru, þannig að sam- kvæmt þvf lætur nærri að tveir landsmenn af hverjum þremur telji sig einhvern tíma á lífs- leiðinni hafa orðið fyrir ein- hvers konar dulrænni reynslu. I samanburði við kannanir um svipað efni en að vísu takmark- aðri bæði f Danmörku og Þýzka- landi er tfðni dulrænnar reynslu meðal fólks hér á landi mun tiðari en í báðum þessum löndum, því að f Danmörku töldu um 11% sig', hafa orðið fyrir einhvers konar dulrænni reynslu og 19% f Þýzkalandi. Hins vegar leiddi mjög tfðtæk könnun i Bandarikjunum til niðurstaðna sem gefa til kynna, að Bandarikjamenn telji sig allt að þvi jafn reynslurfka á þessu sviði og við íslendingar. Samkvæmt könnuninni hér virtist alls konar fólk hafa orðið fyrir dulrænni reynslu, bæði ungt og gamalt, og jafnframt virtist búseta ekki hafa þar nein áhrif á því að dulræn reynsla gerðist jafnt f þéttbýli sem dreifbýli. Konur skýrðu hins vegar oftar frá slíkri reynslu en karlar, en lengd skólagöngu hefur þó mest áhrif þvi að meðal langskólageng- inna manna eru 2var til 3var sinnum færri sem telja sig hafa orðið fyrir dulrænni reynslu miðað við þá sem luku námi í barna- eða miðskóla. í könnun- inni i Bandaríkjunum kom hins vegar ekki fram neitt samband milli menntunar og dulrænnar reynslu, nema lftils háttar hjá konum og þá á annan hátt en hér. Við könnunina hér kom einn- ig fram að það var einkum þrennt sem greindi að fólkið sem taldi sig hafa orðið fyrir dulrænni reynslu og hitt sem ekkert hafði reynt af þessu tagi. Hinir fyrrnefndu virtust t.a.m. muna drauma sina betur og reyndu fremur að ráóa þá eða túlka. Hinir dylreyndu menn voru að jafnaði trúaðri en hinir og af þeim sem sögðust vera mjög trúaðir, höfðu fimm •af hverjum sex orðið fyrir dul- rænni reynslu. Við athugun trúarreynslu og dulrænnar reynslu kom einnig f ljós veru- legt samband milli þessara tveggja tegunda reynslu, því að af þeim sem sögðust hafa orðið fyrir trúarlegri reynslu, skýrðu nfu af hverjum tfu jafnframt frá dulrænni reynslu. Að öllu athuguðu virðist trúhneigð, dulræn reynsla og trúarreynsla að verulegu leyti samofin með- al landsmanna. Hver var svo hin dulræna reynsla sem % landsmanna kváðust hafa orðið fyrir? Flest- ir höfðu orðið fyrir dulrænni reynslu í draumum því að 36% höfðu reynt berdreymi i ein- hverri mynd. t könnun í Banda- rikjunum var niðurstaðan svo til hin sarna. Hins vegar kom á óvart að næst tfðust var reynsla af návist látinna manna því að 31% hinna spurðu skýrðu frá reynslu af þessu tagi. Nær helmingur þeirra sem þetta hafði reynt taldi sig hafa séð hinn látna, fimmtungur taldi sig hafa orðið fyrir snertingu og lítið eitt færri hafa heyrt til látins. Nokkrir töldu hinn látna hafa gert vart við sig með lykt er einkenndi hinn látna mann f Framhald á bls 22. 2/3 landsmanna trúa á annað líf oghafa orðið fyrir dulrænni reynslu Rætt við dr. Erlend Haraldsson, lektor, og fjallað um könnun á trúhneigð og dulrænni reynslu meðal Islendinga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.