Morgunblaðið - 05.02.1977, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1977
Rannsóknastofnun landbúnaðarins:
Fær 30 millj. kr. styrk
til matvælarannsókna
Sinfóníuhljómsveitin;
Völuspá Jóns Þórarins-
sonar á fyrstu tón-
leikum síðara misseris
RANNSÓKNARSTOFNUN
landbúnaðarins hefur hlotið
styrk að upphæð 154.000 banda-
rfkjadala, eða 30 milljónir fsl.
króna til matvælarannsókna, frá
W.K. Kellogg stofnuninni f
Bandarfkjunum. Er styrkur þessi
veittur sem liður f uppbyggingu
rannsókna og kennslu f matvæla-
fræðum, sem Háskóli tslands,
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
og Rannsóknastofnun landbún-
aðarins munu hafa samstarf um.
Sem kunnugt er, er fvrirhugað að
hefja kennslu f matvælafræðum
við Háskóla tslands á þessu ári og
er veitt fé til þeirrar starfsemi á
fjárlögum ársins 1977.
Styrkur W.K. Kellogg stofn-
unarinnar er veittur til fimm ára
og verður hann notaður til að
greiða rannsókriarmönnum, veita
náms- og þjálfunarstyrki í mat-
vælafræðum, til að fá hingað er-
lenda sérfræðinga til ráðgjafar og
til kaupa á tækjum og útbúnaði
fyrir Rannsóknastofnun landbún-
aðarins. Námsstyrkir verða notað-
ir til að veita þjálfun bæði í mat-
vælaefnafræði og i kjötrannsókn-
um. Er búist við að þrír rann-
sóknarmenn verði við þjálfun á
þessu ári en undir lok 5 ára tima-
bilsins verði fleiri starfsmenn
sendir út til þjálfunar.
Aðstaða til matvælarannsókna
á fiski og fiskafurðum er nú til
staðar hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, en matvælarann-
sóknair hafa ekki farið fram við
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins. Húsnæði er til staðar hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins á Keldnaholti en önnur álma
hússins hefur staðið fokheld en
óinnréttuð í nær áratug. í frétta-
tilkynningu frá Rannsóknastofn-
un landbúnaðarins segir að von-
ast sé til að fjármagn fáist til að
innrétta álmuna á næsta ári. Með
þessum styrk verður unnt að
koma upp a.m.k. byrjunaraðstöðu
til rannsókna á landbúnaðarmat-
vælum, að því er segir i fréttatil-
kynningu og ráða fólk og þjálfa til
rannsóknarstarfanna. Þá er fyrir-
hugað að nauðsynleg rannsóknar-
tæki verði keypt á næstunni en
hægt verður að nýta til matvæla-
rannsókna ýmis rannsóknartæki,
sem RALA á og notar nú til fóður-
rannsókna. Dr. Jón Óttar
Ragnarsson, dósent við Háskóla
íslands, mun standa fyrir rann-
sóknum RALA í matvælafræði.
W.K. Kellogg stofnunin er i
Battle Creek, í Michigan en stofn-
andi hennar var W.K. Kellogg,
sem auk þess stofnaði og átti eitt
þekktastá matvælafyrirtæki
heimsins. Fyrirtækið hefur m.a.
selt Kellog’s Corn Flakes. Hr.
Kellogg var náttúrulækningamað-
ur og þekktust þeir Jónas
Kristjánsson læknir og náttúru-
lækningamaður vel. W.K. Kellogg
stofnunin hefur styrkt ýmis mál,
en þó sérstaklega þróunar-,
kennslu og rannsóknarmál í land-
búnaði og hafa flest verkefni, sem
stofnunin hefur stutt, verið unnin
í Bandaríkjunum. Þá hefur stofn-
unin stutt verkefni utan Banda-
ríkjanna, m.a. á Norðurlöndum,
írlandi og Bretlandi. Að ósk
RALA kom hingað til lands verk-
efnastjóri stofnunarinnar og
kynnti sér rannsóknarstarfsemi á
þessu sviði. í framhaldi af þeirri
heimsókn sótti RALA um styrk og
samþykkti ríkisstjórnin á fundi
sínum sl. fimmtudag að veita mót-
töku styrknum.
SfÐARA misseri á þessu starfs-
ári Sinfonfuhljómsveitarinnar
er nú að hefjast og á fyrstu
tónleikunum hinn 10. febrúar
n.k. verður sú breyting á
upphaflegri efnisskrá, að I stað
Sjávarmynda eftir Britten
verður flutt Völuspá Jóns
Þórarinssonar með þátttöku
Söngsveitarinnar Fflharmonfu
og Guðmundar Jónssonar
óperusöngvara. Stjórnandi
verður Karsten Andersen.
Stjórnendur hljómsveitar-
innar á þessu misseri verða auk
Karstens Andersen, aðalstjórn-
anda hennar, og Páls P. Páls-
sonar aðstoðarhljómsveitar-
stjóra, þeir J.P. Jacquillat,
Samuel Jones og Hubert
Soudant. Þessir einleikarar og
einsöngvarar munu koma fram
með hljómsveitinni — Lárus
Sveinsson trompetleikari, Jón-
as Ingimundarson píanóleikari,
Pina Carmirelli fiðluleikari,
Manuela Wiesler flautuleikari,
Sheila Armstrong sópranleik-
ari, John Lill píanóleikari,
Erling Blöndal Bengtsson selló-
leikari og Peter Pears
tenórsöngvari.
Sala og endurnýjun áskriftar-
skírteina er þegar hafin á skrif-
stofu hljómsveitarinnar að
Laugavegi 120.
íslenzku stórmeistararnir
Þeir félagar Friðrik og
Guðmundur hafa nú lokið enn
einu skákmótinu, en voru ekki
farsælir að þessu sinni. Þátt-
takendur voru heldur ekki af
verri endanum enda sumir á
meðal sterkustu skákmanna
heimsins, eins og Geller, Kuraj-
ica, og Kavalek, en aðrir upp-
rennandi stjörnur eins og Eng-
lendingurinn Miles, sem nýlega
er orðinn stórmeistari að
ógleymdum sigurvegaranum
Sosonko. Þegar keppendur eru
svona jafnir að styrkleika,
freistast þeir til að fara varlega
í sakirnar og semja gjarnan
jafntefli í ótefldum skákum.
Þannig fóru þeir að félagar
Friðrik og Guðmundur, þeir
gerðu 8 jafntefli í mótinu af 11
tefldum skákum, og Friðrik
vann tvívegis en Guðmundur
vann hins vegar enga skák að
þessu sinni. Guðmund vantaði
ekki nema herzlumuninn til að
innbyrða vinning á móti t.d.
Miles sem hefði lagfært stöðu
hans í mótinu til mikilla muna.
í svo fámennu móti má ekkert
út af bera og hver vinningur og
tap geta gjörbreytt stöðunni. Sú
stefna þeirra félaga að tefla
saman í mótum er góð og skyn-
samleg, og eigum við eflaust
eftir að sjá árangurinn af þeirri
samvinnu. Hollendingar hafa
orðið gifurlegan áhuga á skák
og halda nú hvert stórmótið á
fætur öðru, enda skilar
árangurinn sé fljótlega, en þeir
senda nú fram á sjónarsviðið æ
fleiri öfluga skákmenn. Gallinn
við þetta mót er eins og áður
sagði, að það var of fámennt til
þess að keppendur þyrðu að
taka áhættu, þar sem tap skipti
sköpum i sætaröðinni. Sumar
skákirnar voru svo stuttar að
þær voru nánast hálfbroslegar
eins og t.d. eftirfarandi skák
Guðmundar við Kurajica.
Hvitt: Kurajica
Svart: Guðmundur
1. e4 — c5, 2. Rc3 — d6, 3. f4 —
Rc6, 4. Rf3 — Rf6 5. Bb5 —
Bd7, 6. 0-0 — e6, 7. e5 — dxe5,
8. fxe5 — Rd5, 9. Re4 — Be7 10.
d3 — 0-0, 11. Bxc6 — Bxc6 12.
a3 Jafntefli! Undir venjulegum
kringumstæðum myndu þessir
skákmenn vera að hefja mið-
taflið þar sem byrjunarleikjun-
um er nú rétt nýlokið, en þeir
hætta ekki á neitt, sýna hvor
öðrum mikla virðingu og semja
frið. Ekki sakar að geta þess að
Guðmundur og Kurajica eru
hinir mestu mátar! Þeir bættu
þetta upp seinna i mótinu með
þvi að tefla hinar æsilegustu
skákir, sem féll í góðan jarðveg
hjá áhorfendum, sem að sjálf-
sögðu vilja sjá skemmtilega
baráttu.
Andófsmótið
í Líbfu
Skákáhugamönnum er í
fersku minni hið fræga andófs-
mót, sem sett var á laggirnar af
Arabaþjóðunum í mótmæla-
skyni við Olympíu-mótið i Isra-
el. Mót þetta fór fram i Trípólí I
Líbíu með heldur litilli reisn,
enda haldið fyrst og fremst i
stjórnmálaskyni en ekki til að
heiðra skákmenntina. Engar
meiri háttar skákþjóðir eins og
t.d. Sovétrikin, Júgóslavía eða
Ungverjaland tóku þátt I þessu
móti og hunzuðu því bæði mót-
in. Þrjátíu og f jórar þjóðir tóku
þátt í andófsmótinu, en öllum
keppendum var boðið ókeypis
Skák
eftir GUNNAR
GUNNARSSON
ferðalagið og allt uppihald
ásamt ríflegum dagpeningum.
Englendingur nokkur, sém
keppti i liði Gambíu, sagði svo
frá að skákmenn í þvi landi
væru ekki fjölmennir, enda
væru þeir auðveldlega taldir á
svörtu reitum taflborðsins.
Skákmennirnir höfðu aldrei
séð skákklukku eða skákeyðu-
blöð og flestir voru frekar fá-
kunnandi um framhjáhlaup
sem oftast var beinlínis
ágizkunaratriði. Einn sið höfðu
þeir, sagði þessi Englendingur,
og beittu sem nokkurs konar
herbragði: þegar tækifæri gafst
að segja skák sögðu þeir það
hátt og skýrt svo undir tók og
reyndu á þann hátt að hafa
áhrif á andstæðinginn. Sigur-
vegari á þessu móti varð lið frá
E1 Salvador, sem skipað var
ungum mönnum, I 2. sæti Túnis
og í 3. sæti Pakistan.
Eftirfarandi staða kom upp i
skák milli Camillieri (Malta)
og Kouatly frá Libanon, en sá
síðarnefndi var einn af sterk-
ustu skákmönnum I mótinu
enda alþjóðlegur meistari:
Framhaldið varð þannig:
16. — Df6! 17. Rc3
(Ef 17. Bxc8 — Rxa2, 18. Kd2
— Dxf2 og svartur vinnur)
17. — Hxc3! 18. bxc3 — Rxa2,
19. Kd2 — e4! 20. Kel — Rxc3,
21. Hal — Ra4, 22. Ke2 — Dd4!
23. Hxa4 — Dxa4, 24. Hel —
Bc3! 25. Bd7 — Ke7, 26. Dh4 —
f6, 27. Dg4 — Dc4, 28. Kdl —
Dxd5, 29. Kcl — Dd2 og hvftur
gafst upp.
Hvor sigrar,
Spassky eða Hort?
Ymsir eru nú farnir að leiða
getum að þvi hvor þeirra
kappa, Spassky eða Hort, sé
sigurstranglegri í væntanlegu
einvígi þeirra sem hefst hér á
landi í lok þessa mánaðar. Eftir
hina frækilegu frammistöðu
Horts í Millisvæðamótinu í
Framhald á bls 22.
Forvitnisleg mynd frá „skákkeppni aldarinnar" sem háð var 1970 í Belgrad á milli Sovétrfkjanna og
sterkustu skákmanna annars staðar I heiminum. Hér eiga menn m.a. að þekkja Friðrik Ölafsson, sem
var fyrsti varamaður.
í' v * f » 14 i s iri an« « * * * ívru * ■ w t » u 11 bití s wm » » « r m m i
^TTTTTTTTTTTTTITnT