Morgunblaðið - 05.02.1977, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRUAR 1977
19
Printsipalov
kærir
Ösló, 4. febr. NTB.
A. K. Printsipalov, 3. rit-
ari sovéska sendiráðsins
í Ósló og helzti KGB
tengill Gunvor Galtung
Haaviks, hefur kært
norsku lögregluna fyrir
líkamsárás og meiðingar
og stuld á 200 n. kr. úr
veski sínu, er hann var
handtekinn á fimmtudag
í s.l. viku. Honum var
sleppt síðar um daginn.
Ákæran hefur verið
send áfram.
Glistrup
sendir út
skattseðla
Kaupmannahöfn 4. febr. NTB.
HUNDRUÐ þúsund Dana
fá á næstu dögum sendan
heim tilbúinn falskan
skattreikning, sem Fram-
faraflokkur Mogens
Glistrup dreifir. Reikning-
urinn lítur út eins og hann
sé frá skattyfirvöldum, en
á bréfhausinn er ritað að
bréfið sé frá „tekjuskatts-
stofnuninni, þróunar-
deild“. Þetta bréf hefur
leitt til þess að Svend
Jakobsen skattamálaráð-
herra Danmerkur hefur
gefið út yfirlýsingu þar
sem segir að hér sé um
falsaðan skattseðil að ræða
og að fyrrnefnd stofnun sé
ekki til.
Þessi mynd var tekin í Lancaster í Kaliforníu nú um mánaðamótin og sýnir hvar
verið er að flytja fyrstu „geimskuilu“ Bandaríkjanna úr verksmiðjunni til Edwards-
herflugvallarins 30 km. í burtu.
Tillaga Giereks:
Iðrandi verkamönn-
um verði sleppt...
Varsjá, 4. febr. Reuter.
PÓLSKIR verkamenn
fögnuðu í dag tillögu Ed-
wards Giereks, formanns
pólska kommúnistaflokks-
ins, um skilyrðisbundna
náðun til handa þeim
Carter: -
en ekki
- Hæfileikar
fjárframlög
ráða sendiherraskipan
Washington, 4. febrúar Reuter— AP.
JIMMY CARTER Bandaríkjafor-
seti lýsti þvf yfir í dag, að meðan
hann væri forseti myndu sendi-
herrar Bandarfkjanna verða vald-
ir eftir hæfileikum, en ekki eftir
framfagi þeirra f kosningasjóði.
Carter sagði þetta eftir fund
með 20 manna nefnd, sem skipuð
hefur verið til að gera tillögur um
sendiherra. Carter sagði við hóp
af ungu fólki, sem kom i heim-
sókn í Hvlta húsið, að Bandarikja-
menn hefðu oft orðið að skamm-
ast sín, er sendiherrar og aðrir
mikilvægir starfsmenn rikisins
hefðu verið valdir á grundvelli
fjárframlaga i kosningasjóði.
Carter sagði að i framtiðinni
myndi nefndin leggja fyrir sig 5
tillögur í hvert sinn, sem skipa
ætti sendiherra, sem ekki væru
starfsmaður utanríkisþjónust-
unnar og skipti ekki máli hvort
viðkomandi væri repúblíkanar
eða demókratar.
verkamönnum, sem
fangelsaðir voru í júlí á sl.
ári í kjölfar óeirðanna
vegna matvælahækkan-
anna, sem þá voru tilkynnt-
ar. Jacek Kuron, talsmaður
„varnarnefndar verka-
manna", sagði í dag, að
nefndin liti á tillöguna sem
mikinn sigur fyrir sig.
Hann lýsti því hins vegar
yfir að nefndin, sem sett
var á stofn á sl. ári til að
aðstoða verkamenn, sem
fangelsaðir höfðu verið,
myndi halda áfram að
vinna að því að allir verka-
mennirnir yrðu skilyrðis-
laust náðaðir og þeir, sem
reknir voru úr vinnu, yrðu
ráðnir aftur svo og að lög-
reglumönnum, sem sýndu
ruddaskap, yrði refsað.
Kuron sagði, að þeir opinberu
embættismenn, sem ábyrgir voru
fyrir þvi að óeirðirnar brutust út,
ættu að viðukenna sök sina.
1 tillögu Giereks er gert ráð
fyrir að 58 verkamönnum frá
Radom og Ursus verði sleppt, en
mestu óeirðirnar urðu á þessum
stöðum. Segir, að hann hafi lagt
til að nefnd yrði sett á stofn til að
fjalla um náðun til handa þeim
verkamönnum, sem iðruðust
gerða sinna.
IRA-
menn
hand-
teknir
Liverpool, 4. febrúar. Reuter.
LÖGREGLAN i Liverpool fann í
dag mikið magn sprengiefnis og
vopna i borginni, sem talið er að
sé í eigu írska lýðveldishersins
IRA. Tveir menn voru einnig
handteknir. 30 vopnaðir lögreglu-
menn réðust i morgun inn I hús í
útjaðri Liverpool og að sögn tals-
manns lögreglunnar fundu þeir
mikið magn af fkveikjusprengj-
um, dynamiti, sprengjukveikjum,
byssum og skotfærum.
Lögreglumenn í Englandi leita
nú ákaft að hryðjuverkamönnum
ÍRA, sem hafa að nýju tekið til
við sprengjutilræði undanfarnar
vikur, en í tilkynningu frá yfir-
mönnum IRA í gær var sagt að
lokaáfangi striðsins gegn Bretum
væri nú hafinn og myndi meiri
hörku verða beitt en nokkru sinni
fyrr. 13. sprengjur sprungu sem
kunnugt er i London um siðustu
helgi og ollu miklu tjóni íverzlun-
um í Mayfair.
I tilkynningu lögreglunnar i
Liverpool segir að sprengjuefnið,
sem fannst, hafi verið nákvæm-
lega það sama og notað var í
sprengjurnar I London svo og
annar búnaður. Tveir írskir menn
voru handteknir og settir í fang-
elsi.
Nú standa yfir í London réttar-
höld yfir 4 irum , sem sakaðir eru
um sprengjutilræði og 7 morð á
vegum IRA 1975.
Nýjar ásakanir á
hendur Chiang Ching
Peking 4. febrúar Reuter.
DAGBLAÐ alþýðunnar í
Kína sakaði í dag Chiang
Ching, ekkju Mao Tse-
tung, og samstarfsmenn
hennar þrjá um að hafa
reynt að grafa undan aga í
her landsins. í forsíðugrein
í blaðinu segir að fjór-
menningarnir hafi reynt
allar hugsanlegar leiðir til
að koma róti á herinn og ná
yfirtökum þar, því að her-
inn hafi staðið i vegi fyrir
áætlunum þeirra.
Segir blaðið að fjórmenningarn-
ir hafi virt að vettugi reglur
flokksins um algera yfirstjórn
hans yfir hernum og þau hafi
jafnvel sett sig skör hærra en Mao
sjálfur og hagað sér eins og keis-
ari yfir hernum.
Rhódesía:
Vilja að
foreldr-
arnir f ái
að hitta
börnin
Salisbury, 4. febrúar. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Rhó^esfu hefur
óskað eftir leyfi yfirvalda í
Botswana uni að fá að fara með
150 þeldökk hjón yfir landa-
mærin til að hitta börn sín, sem
Rhódesíustjórn segir að hafa
verið flutt nauðug yfir landa-
mærin af skæruliðum
þjóðernissinna.
Skv. fréttastofufregnum
munu 400 skólabörn úr trúboðs-
skólum í Manama i Rhódesíu
hafa farið yfir landamærin til
Botswana, eftir að vopnaðir
skæruliðar höfðu komið i
trúboðsskólann. Yfirvöld f
Botswana segja að börnin hafa
farið yfir landamærin af frjáls-
um vilja. Rhódesíustjórn held-
ur þvi hins vegar fram, aó
skæruliðar ætli að þjálfa börn-
in upp I skæruliðahernað.
Talsmaður Rhódesíustjórnar
sagði i dag, að stjórnin væri
vongóð um að forseti Botswana
myndi gefa foreldrunum far-
arleyfi.
Ian Smith, forsætisráðherra
Rhódesfu, sagði á blaðamanna-
fundi fyrr I dag, að erfitt væri
að fullyrða að ekkert barnanna
hefði farið af frjálsum vilja yfir
landamærin, en stjórn sin væri
fullviss um að flest barnanna
hefðu verið flutt nauðug. Smith
sagði að ekki kæmi til greina að
gripið yrði til aðgerða gagnvart
Botswanastjórn eins og t.d. að
loka landamærum, eða loka
járnbrautarleiðinni sem liggur
frá Botswana gegnum Rhódesiu
til S—Afríku, því að ekki væri
hægt að saka Botswanastjórn
um að hafa átt aðild að ráni
barnanna.
Fishing News:
Rússar munu hafa að
engu tilraunir EBE til
að draga úr af la þeirra
London 4. febrúar AP.
BREZKA blaðið Fishing News
spáir því 1 dag, að Sovétmenn
muni hafa að engu tilraunir Efna-
hagsbandalagsrikjanna til að
draga úr veiðum þeirra innan 200
mflna fiskveiðilögsögunnar. 1
grein i blaðinu bendir ritstjóri
þess á ummæli David Owens, að-
stoðarutanrfkisráðherra, f brezka
þinginu f fyrri viku, þar sem
hann segir að Bretar geti ekki
hætt á átök við Sovétmenn vegna
fiskveiða. Ritstjórinn, Harry
Barrett, segir að þar hafi Owen
tekið sfzt of djúpt f árinni, er litið
sé að tölur frá Matvæla- og land-
búnaðarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna FAO um fiskveiðar árið
1975, þvf að þar komi glöggt fram
hin gffurlega stærð sovézka flot-
ans og mikilvægi fiskimiða þriðja
heimsins fyrir hann.
Rússar veiða tæpar 10 milljónir
lesta af fiski árlega og eru %
hlutar þess afla veiddir á fjarlæg-
um miðum. Dæmi um þetta eru
veiðar þeirra á miðum við Bret-
land, sem hafa rúmlega tvöfaldazt
á tveimur árum úr 140 þúsund
lestum 1974 1321.000 lestir 1975.
Barrett segir að tölurnar um
stærð fiskiskipaflotans séu ámóta
ógnvekjandi, 831 skip sé yfir 1000
lestir fyrir utan 547 risastór verk-
smiðju- og móðurskip. EBE-rikin
9 eiga aðeins 139 fiskiskip 1000
lestir eða stærci. Skv. tillögum
EBE um veiðar Rússa innan lög-
sögu bandalagsins er aðeins gert
ráð fyrir að 2% flota þeirra fái að
stunda þær. Segir Barrett að eng-
um verðlaunum sem heitið fyrir
að geta sér til um viðbrögð Rússa,
en ekki sé hægt að búast við að
þeir taki tillögunum vinsamlega.
Barrett segir að lokum, að þar
sem brezka utanrikisráðuneytið
vilji losna við deilur við Rússa
geti það aðeins þýtt, að ef þeir
samþykki að hefja viðræður muni
þeir standa upp frá samninga-
borðinu með miklu stærri kvóta
en nú sé talað um. Segir Barrett
að reglur sé eitt, en þegar á hól-
minn sé komið verði menn að geta
séð til þess að eftir þeim sé farið.