Morgunblaðið - 05.02.1977, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.02.1977, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRUAR 1977 Blaðamannafundur Amalrik og Vagin Blaðamannafundur, sem danska Sakharov-nefndin hélt I Kaup- mannahöfn sl. miðvikudag, ásamt rússneska sagnfræðingnum Andrei Amalrik og rússneska bókmenntafræðingnum Evgeni Vagin, hefur vakið athvgli vftt um veröld. Þessir forsvarsmenn mannréttinda- baráttu í Sovétrfkjunum greindu m.a. frá því, að um 1% sovézku þjóæðarinnar, eða tvær til þrjár milljónir manna, sætu nú f fangelsum og fangabúðum f Sfberfu. t þrengstu merkingu orðanna pólitfskur fangi teldust 10 þúsundir dæmdir fyrir skoðanir sfnar, en hundruð þúsunda að auki sætu inni fyrir ýmiskonar meint „afbrot", sem væru pólitísk í raun, þó annað væri látið f veðri vaka. Ástandið væri á margan hátt verra en á Stalínstímabilinu og siðferðilegur stuðningur frá Vesturlöndum væru andófshópum f ríkjum kommúnista mjög mikils virði. Báðir hafa þeir, Amalrik og Vagin, gist þrælkunarbúðir rússneska lögreglurfkisins, og þekkja af eigin raun hvað þeir eru um að fjalla, og báðir eru þeir landflótta, ásamt fjolda annarra rússneskra andófs- manna. Það eina nýja í aðgerðum sovézkra valdhafa, gegn frjálsri skoðanamyndun, frá því sem var á Stalfntfmabilinu, er að vfsa andófs- mönnum úr landi, oftast eftir margra ára fengelsisvist. Þannig eru að myndast rússneskar flóttamannanýlendur vfða í f Evrópu, Ifkt þvf sem var á keisaratfmabilinu. Hið nýja alræði hefur dregið dám af þvf gamla og sagan endurtekur sig. Amalrik sagði á umræddum blaðamannafundi f Kaupmannahöfn, að þrýstingur ríkisstjórna, dagblaða og almenningsálits f hinum lýð- frjálsu löndum hefði mikla þýðingu fyrir lýðræðissinna í Sovétrfkjun- um. Nefndi hann f þvf sambandi skiptin á chileanska kommúnistaleið- toganum Luis Corvalan og sovézka andófsmannininum Vladimir Bukovsky, sem átt hefðu sér stað fyrir starf frjálsra samtaka á Vesturlöndum. Amalrik Ifkti takmörkun á mannréttindum í Sovétrfkjunum við frelsisskerðingu svertingja f Suður-Afrfku. 1 Sovétrfkjuum mega venjulegir borgarar ekki dveljast lengur en þrjá daga á neinum stað utan heimkynna sinna, án oþinbers leyfis. Aðstaða ýmissa minnihluta- hópa sé og hliðstæð svertingja f S-Afrfku. Krfm-töturum sé haldið nauðugum fjarri heimkynnum sfnum og sama gilti um pólska Þjóð- verja. Kynþáttaofsóknir f Sovétrfkjunum minni og á hliðstæðu sfna f S-Afrfku. Vagin bætti þvf við, að frelsisskerðingin f Sovétrfkjunum væri að þvf leyti til verri, að hún bitnaði f raun á þjóðinni allri, ekki aðeins einum kynstofni. Á þessu væri stór munur, þó eðli aðgerða væri af sama toga. Aðspurðir um svokallaðan „Evrópu-kommúnisma", sem f orði kveðnu tekur afstöðu með frjálshyggjufólki f rfkjum Austur-Evrópu, sögðust þeir óttast, að þessir flokkar kærðu sig f raun lftt um grundvallarbreytingar f Sovétrfkjunum, og myndu hneigjast til skyldrar kerfisstjórnunar, ef þeir kæmust til valda f sfnum heima- rfkjum. Það mátti skilja á máli þessara rússnesku andófsmanna, að margt mætti betur fara á Vesturlöndum, en þar þróuðust mál þó í mannúðar- átt, eftir leikreglum lýðræðis. Þeir sögðust gjarnan hafa viljað alast upp f Sovétrfkjunum við svipaðar aðstæður og á Vesturlöndum rfktu. Þeir sögðu hins vegar að kæruleysi Vesturlandabúa gagnvart þeim stóra hluta heims, þar sem ófrelsi rfkti, væri varhugaverðast. Þeir gerðu sér ekki ljóst, að lýðræði spannaði aðeins Iftinn hluta heims, og að það væri umkringt stórveldum, sem vildu vestrænt frelsi og vestræna menningu feig. Norski myndlistarmaðurinn Viktor Sparre, sem hér var með yfirlits- sýningu á sl. ári, er einn af helztu frumkvöðlum stuðnings við mannréttindabaráttu f Austur-Evrópu. Hann sagði f viðtali við Morgunblaðið í fyrradag frá kunningsskap sfnum við Sakharov-hjónin, sem sætt hafa margs konar rangsleitni f heimalandi sfnu. Hundruð Norð anna hefðu sent þeim hjónum bréflegar kveðjur um jólin. Þegar þau bárust f hendur viðtakenda, höfðu þau farið um hendur KGB- manna. Búið var að má ritað mál úr þeim öllum, en setja f staðinn úrklippur úr vestrænum blöðum, þar sem sýnt var limlest fólk og annað af Ifku tagi. Þannig nær hið grimma kerfiseftirlit niður á svið venjulegra kunningjabréfa. Samhliða upplýsingum fyrrgreindra rússneskra hugsuða um mann- réttindaskerðingu f Sovétrfkjunum, og viðvörunum þeirra um kæru- leysi Vesturlandabúa gagnvart utanaðkomandi hættum, berast fréttir af víðtækum njósnum f Noregi, sem þó eru ekki einangrað fyrirbæri, heldur angi af njósnaneti, er nær til alls hins frjálsa heims. Þrátt fyrir friðartal eykst hernaðarmáttur Sovétrfkjanna ár frá ári, ekki sfzt flotastyrkur þeirra á N-Atlantshafi. Það eru þvf blindir menn á staðreyndir heimsmála í dag, sem horfa fram hjá nauðsyninni á varnarsamstarfi vestrænna rfkja. Það eitt getur komið f veg fyrir heimsátök, að varnarmáttur lýðræðisrfkja sé slfkur, að valdajafnvægið tryggi frið. Lýðræðið verður að þróast innanfrá f ríkjum alræðisins, með siðferðilegum styrk góðra manna um gjörvöll lönd. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Áskrif targjald 1100.00 j lausasölu 60 hf. Árvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. simi 10100. Aðalstræti 6. simi 22480. kr. á mánuði innanlands. 00 kr. eintakið. Sverrir Einarsson: Snefilefnið flúor Á nokkrum undanförnum ár- um hafa birtst greinar f dag- blöðum, þar sem mjög er hallað réttu máli varðandi fluor í drykkjarvatni. Nokkrar til- raunir hafa sömuleiðis verið gerðar til leiðréttingar. Full- yrðingar sumar hverjar, sem í þessum greinum birtast eru svo öfgakenndar og fáránlegar að í fljótu bragði virðist sem ástæðulaust sé að svara þeim. Þó er það svo að sumir trúa þvi, sem þar kemur fram og hjá öðrum skapar það efasemdir um ágæti fluors í drykkjar- vatni. Þeir menn sem þannig skrifa eru fórnardýr blekk- ingarskrifa andstæðinga fluors (þar á meðal John Birch Society), sem um áratugabil hafa látið frá sér fara algerlega órökstutt fullyrðingaflóð. Þess- ar fullyrðingar hafa þeir svo endurtekið óaflátanlega. I þeim tilgangi að gera þessar fullyrð- ingar trúlegar eru nefnd hin og þessi nöfn með ýmsum titlum, og jafnvel nóbelsverðlaunahaf- ar dregnir fram. Frá hinu er hinsvegar ekki skýrt að allar hafa þessar fullyrðingar verið hraktar og afsannaðar af rann- sóknarstofnunum sem unnið hafa að þessum rannsóknum um áratugaskeið. Þá hafa stofn- anir og samtök eins og WHO, sem er stofnun innan sameinu þjóðanna, einnig ADA (American Dental Association), AMA (American Medical Association), U.S. Puplic Health Service, Commision of Cronic Illness o. fl. virtar stofnanir lagt bless- un sína yfir þær niðurstöður, sem fengist hafa og er svo enn eftir rúmlega 30 ára reynslu. Stöðugar áframhaldandi rann- sóknir gefa ávallt sömu niður- stöðu um ágæti þessarar aðferð- ar við að minnka skemmdir I tönnum og um öryggi gagnvart almennu heilsufari. En þegar svo er komið málum að fullyrð- ingar eru settar fram á móti fullyrðingum er vissulega erfitt fyrir allan almenning að rata um í þessum fullyrðinga skógi. Þó má ætla og vona að fólk taki meir mark á þeim aðilum, sem eru sérlærðir fulltrúar fólksins I þessum efnum og á ég þá við hina opinberu embættismenn heilbrigðisstétta og stofnanir. Slikir ábyrgir aðilar taka ekki afstöðu án ítarlegra athugana, þegar um alvarleg mál er að ræða. Það er mjög algengt að and- stæðingar fluors reyni að rugla menn í ríminu með þvi að blanda saman tveim ólikum atr- iðum. Á ég þar við þá staðreynd að fluor hefir verið notað i stór- um skömmtum sem eitur við útrýmingu á rottum og skor- kvikindum og svo hina stað- reyndina að fluor er nauðsyn- legur í uppbyggingu likamans og þá sem snefilefni. í þessum greinum sumum er látið að því liggja að fluor sé eitthvert efni, sem verið sé að kynna fyrir mannslikamanum á allra sið- ustu áratugum. Þvi fer viðs fjarri. Varla er til það drykkjar- vatn, sem ekki inniheldur ein- hvern snefil af fluor. í vatni Reykvikinga er fluor allt að 0.1 p. p.m., (partur pr. million) í hitaveituvatni ca. 0.75 p.p.m. og í Hafnarfirði um það bil 0.9 p.p.m. Þessi styrkleiki fluors I drykkjarvatni Hafnfirðinga stafar ekki frá Álverinu eins og menn kynnu að halda, heldur ræður hér fyrst og fremst um úr hvernig jarðvegi vatnið er upprunnið. Þá er það staðreynd að vart finnst sú fæðutegund að hún ekki innihaldi fluor þótt i misjafnlega miklu magni sé. Hænsnakjöt inniheldur t.d. 1.40 mg. pr. kg., nautakjöt 0.2 mg. pr. kg., larnbakjöt 1.20 mg. pr. kg„ fiskur 1.49 mg. pr. kg„ mjólk 0.07 — 0.22 mg. pr. kg„ ostur 1.62 mg. pr. kg„ gulrætur 0.4 mg. pr. kg„ tómatar 0.24 mg. pr. kg. og te frá 4.10 mg. — 398.80 mg. pr. kg. Vart getur þetta talist óeðlilegt þar eð flu- or er eitt algengasta frumefni jarðarinnar. í þessari upptaln-| ingu er vissulega talað um mg. pr. kg. sama eining og um er að ræða þegar talað er um að fluor bæta drykkjarvatnið, en al- gengast er að styrkleikinn sé 1.0 — 1.5 p.p.m. (fer þó eftir hitastigi). Fluor er sem sagt ekki nýuppfundið gerviefni heldur er þetta frumefni, sem Sverrir Einarsson fylgt hefir mannkyninu svo lengi sem það hefir verið til. Hér gildir því sama um þetta efni eins og svo mörg önnur, sem eru likamanum nauðsynleg að þau geta verið bráðdrepandi ef þau eru notuð i stærri skömmtum, má þar tilnefna svo algeng efni sem venjulegt borð- salt og d-vitamín. Menn sem drekka sjó við þorsta deyja gjarna og veldur þar mestu um saltinnihald hans. Af vatni, sem inniheldur 1.0 p.p.m. fluor þarf hins vegar að drekka u.þ.b. 50 full baðker og það á nokkrum minútum ef eitureinkenni ættu að nást fram. Sá sem það reyndi mundi því löngu látinn úr vatnseitrun áður en eiturverk- anir fluorsins létu til sín taka. Um fluor i vatni hafa verið skrifuð heil ógrynni, enda fá efni verið rannsökuð jafn ítar- lega og er það að vonum. Auð- velt hefir verið að gera saman- burð milli hinna ýmsu staða miðað við margbreytilegan styrkleika fluors í drykkjar- vatni frá náttúrunnar hendi og gera sér þannig grein fyrir heilsufari fólks á þessum stöð- um. Er niðurstaðan sú að þar sem fluor er í drykkjarvatni að styrkleika 1—1,5 p.p.m. er heilsufar sist verra, jafnvel betra, en á þeim stöðum þar sem styrkleikinn er minni, en tennur áberandi betur á sig komnar. Hinsvegar sjást ein- kenni um fluorsis I tönnum i einhverju mæli þegar styrk- leikinn er orðinn 5 p.p.m. og þar yfir. önnur einkenni sjást ekki nema styrkleikinn sé ca. 20 p.p.m. og menn búi við slíkt drykkjarvatn í 15—20 ár. Stundum er því hreyft að fluor- bæting drykkjarvatns sé upp- finning áliðjujöfra í þeim til- gangi að losa sig við úrgangs- efni. Slíkt er fásinna. Ekkert álver framleiðir eða selur Na F til blöndunar í drykkjarvatn, né hefir nokkurn tíma gert, Þetta er marg yfirlýst stað- reynd og ætti að vera auðvelt fyrir hvern sem vill hafa sann- leikann að leiðarljósi að kynna sér þessi mál hjá t.d. Lyfja- verzlun Ríkisins, sem sér um innflutning á þessu efni. Þá er það mjög rikjandi misskilning- ur að eingöngu sé notað Na Ftil að fluorbæta drykkjarvatnið. Þar koma mörg önnur efni til greina. Má þar til nefna hydro fluosilisicacid (H2 Si F6), Natriumsilic fluorid (Nc2 Si F6) og jafnvel Ca F, en það síðast nefnda er enn lítið notað vegna þess hve dýran og flók- inn vélakost þarf til að það efni nýtist. Algengastar fullyrðingar aðr- ar eru t.d. að orsakir ýmiskonar sjúkdóma megi rekja til fluors I drykkjarvatni, svo sem hjarta- sjúkdóma, krabbamein, van- sköpun o.fl., o.fl. í öllum þeim rannsóknum sem fram hafa far- ið um allan heim hefir aldrei verið hægt að sýna fram á að fullyrðingar þessar standist. Sama er að segja um að fluor- inn setjist innan á vatnslagnir eða tæri vatnsrörin. Þannig mætti halda áfram að telja upp allskonar fullyrðingar, sem settar hafa verið fram en stand- ast ekki. Eins og minnst var á hér að framan getur verið erfitt fyrir almenning að rata um í þessum skógi fullyrðinga, en við ættum þó að gefa þessu meiri gaum og ihuga þessi mál út frá þeim staðreyndum, sem við þekkjum og treystum. Við getum gefið okkur nokkur atriði að hugsa út frá. I Bandarikjunum eru um og yfir 100 milljón manns, sem drekka daglega fluorblandað vatn. í þvi landi eru jafnframt færustu vísindamenn þessa heims með alla þá aðstöðu til rannsókna sem bezt verður á kosið. Þar er einnig sú blaða- mannastétt sem ekki mundi vila fyrir sér að gera þessu máli skil ef með þyrfti. Bandaríkja- menn eru einnig þekktir fyrir kröfuhörku i allri meðferð mat- væla, þar með talið drykkjar- vatn. Maður skyldi þvi ætla að mál þetta hafi gengið I gegnum þann hreinsunareld, sem nauð- synlegt er. Víða i heiminum er vatn, sem frá náttúrunnar hendi inniheldur fluor að styrk- leika 1 p.p.m. — 2 p.p.m. Slikir brunnar hafa verið þekktir um margra áratuga skeið, og hvern- ig er þá heilsufar þess fólks, sem þarna hefir búið alla sina sina ævi? Um það fjalla heil- brigðisskýrslur á hverjum stað og þær sýna ótvirætt að heilsa manna á þessum stöðum er sizt verri jafnvel betri, sérstaklega þegar ástand tanna er tekið með í reikninginn, en þar er um að ræða 50—80% minni tann- skemmdir en annarsstaðar, þar sem fluor er litið sem ekkert i vatni. I umræðum um fluor skyldi það þó aldrei gleymast að hér er um eiturefni að ræða, þegar magnið býður upp á slikt. En á sama hátt og léleg blaða- mennska getur komið óorði á hið lífsnauðsynlega prentfrelsi, þá skulum við forðast að láta Alver, eldfjöll og rottueitur koma óorði á hið lifsnauðsyn- lega snefilefni fluor.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.