Morgunblaðið - 05.02.1977, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRUAR 1977
— Samningar
Framhald af bls. 40
og tel eðlilegt að þeir fái þessa
heimild. Fyrir liggja meðmæli
Hafrannsóknarstofnunarinnar,
því að við komum ekki til með að
fullnýta þá veiðimöguleika, sem
fyrir hendi eru. Hér er um tiltölu-
lega lítið magn að ræða af heildar-
veiðinni og skiptir okkur afar
litlu máli. Þá tel ég þýðingarmik-
ið að fá heimild til kolmunna-
veiða i fiskveiðilögsögu Færeyja.
íslendingar hafa ekki stundað
miklar kolmunnaveiðar til þessa,
en þetta er sú fisktegund, sem við
þurfum að auka veiðar á.
Með tilliti til Hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna, þá
er samkvæmt þeim hafréttarsátt-
mála, sem þar er í smíðum
óskoraður réttur strandríkja til
að nýta fiskimið og stjórna veið-
um á fiskstofnunum. En þegar
þeir eru ekki fullnýttir ber þeim
að taka tillit til annarra þjóða,
sem eiga allt sitt úndir fiskveið-
um. Það höfum við gert með þss-
um saningi."
Pétur Reinert, sjavarútvegsráð-
herra Færeyja, sagðist vera mjög
ánægður með þetta samkomulag.
Hann sagði að þegar íslendingar
og Færeyingar ræddu saman yrðu
lyktir ávallt góðar og hann sagðist
jafnframt vona að íslendingar
hefðu gagn af kolmunnaveiðum í
Færeyskri fiskveiðilögsögu eða
svartkjaftsveiðum eins og kol-
munnaveiðar heita á Færeysku.
Aðal kolmunnavertíðin við
Færeyjar er fá 20. apríl og fram í
endaðan maí — a.m.k. var svo á
síðastliðnu ári. Er kolmunninn þá
á leið norður um Færeyjar. Á
siðasta ári veiddu Færeyingar um
12 þúsund tonn af svartkjafti, en
5 skip stunduðu veiðarnar. Eitt
þeirra fékk um helming heildar-
falans. I ár áætla Færeyingar að
þeir veiði um 40 þúsund tonn af
kolmunna. Afli síðasta árs fór að
mestu í bræðslu, en tilraunir hafa
farið fram f Færeyjum á verkun
til manneldis. Hefur kolmunninn
verið flakaður i sfldarflökunar-
vélum og hefur hann smakkast
vel. Hefur hann og verið hálf-
þurrkaður. Bræðslan á sfðasta ári
fór að mestu fram í Fulgafirði og
kom verksmiðjan þar fjárhags-
lega mjög vel út eftir vertíðina.
Pétur Reinert kvað Færeyinga
myndu hefja þroskveiðar við ís-
lend aftur hinn 19. marz, en gild-
andi samningur milli landanna
kveður á um að þeir veiði allt að 8
þúsund tonn af þorski og 9 þús-
und tonn af öðrum tegundum.
Þeir hafa ekki veitt síðan um ára-
mót, þar sem þeir höfðu þá fyllt
kvóta sinn. Stærstu togarar Fær-
eyinga eru nú að veiðum við
Grænland og við Nýfundnaland,
en þar hafa Færeyingar þó of
lítinn króta.
Svo sem kunnugt er hefur fær-
eyska fiskveiðilandhelgin verið
færð út f 200 sjómílur, en hún er
ekki hluti af efnahagslögsögu
Efnahagsbandalagsins. Fiskveiði-
lögsögunnar munu gæta tvö skip
frá danska sjóhernum og tvö fær-
eysk varðskip. Jafnframt verður
dönsk flugvél við gæzlustörf og á
stærra danska herskipinu verður
þyrla. Verði skip tekin að ólögleg-
um veiðum verður dæmt sam-
kvæmt færeyskum lögum af
færeysk-dönskum dómara.
Þá voru þeir Pétur Reinert og
Atli Dam spurðir um Rockall-
málið svonefnda, en það er klett-
ur í Atlandshafi um 190 mílur frá
ströndum Skotlands og um 230
mílur frá Færeyjum. Bretar hafa
litið á þennan klett sem brezkt
land og fá þvi stóra sneið af
Lousy-banka, sem ella hefði orðið
innan færeyskrar fiskveiðilög-
sögu. Færeyingar hafa mótmælt
þessari innlimun Breta á Rockall i
skozkt lén, en þeir benda á að
Færeyingar hafi fyrstir manna
gengið á klettin árið 1911 og sett
þar upp danskan fána. Auðug
fiskimið eru umhverfis klettinn,
sem stendur á færeyska land-
grunninu og við hann hafa
Færeyingar veitt í 70 til 80 ár.
Bretar eignuðu sér klettinn 1953,
en árið 1972 létu þeir merkja sér
hann á sjókortum og hafa
Færeyingar síðan mótmælt því ár-
lega. ________ ,__________
— Ginzburg
Framhald af bls. 1.
utanríkisráðherra nýlega, að
enda þótt Bandaríkjastjórn
héldi áfram að ræða ranglæti I
Sóvétrikjunum af hreinskilnf,
væri ekki ætlunin að gefa yfir-
lýsingar þar um í smáatriðum.
Ginzburg, sem er fertugur að
aldri, var tekinn höndum í gær-
kvöldi er hann brá sér út úr
íbúð konu sinnar i Moskvu til
að hringja i almenningssíma
þar skammt frá. Kona hans
fékk þær upplýsingar i aðal-
stöðvum KGB að skammt frá.
Kona hans fékk þær upplýsing-
ar í aðalstöðvum KGB að hann
væri þar í haldi vegna þess að
hann hefði drýgt glæp, og rann-
sókn málsins hæfist bráðlega.
Alexander Ginzburg hefur að
undanförnu veitt forstöðu sjóði
sem nefnist „Solthenitsyn-
sjóðurinn fyrir pólitiska fanga i
Sovétríkjunum“, en hann
skýrði frá þvi á fréttamanna-
fundi fyrir skömmu, að siðan
sjóðurinn tók til starfa fyrir
tveimur og hálfu ári hafi hann
úthlutað um 270 þúund rúbl-
um, eða tæplega 70 milljónum
ísl. króna til pólitískra flótta-
manna og fjölskyldna þeirra.
Ginzburg sagði sjóðinn aðallega
hafa tekjur af sölu „Gulag-
eyjaklasans" á Vesturlöndum.
Talið er að ein ákæran á
hendur Ginzburg verði ólögleg
gjaldeyrirsviðskipti, en lögregl-
an kveðst hafa fundið vestur-
þýzk mörk og bandarískan
gjaldmiðil í íbúð konu Ginz-
burgs í síðasta mánuði. Ginz-
burg sagði á blaðamannafund-
inum, að peningunum hefði
verið komið fyrir í Ibúðinni I
þvl augnamiði að hægt væri að
ákæra hann, en I Sovétríkjun-
um eru ólögleg gjaldeyrisvið-
skipti alvarlegur glæpur. Hann
sagði um leið, að hann hefði
aldrei stundað slík viðskipti,
enda hefðu það verið ströng
fyrirmæli Solzhenitsyns er
hann fól honum umsýslu sjóðs-
ins.
Alexander Ginzburg var fyrst
handtekinn árið 1968, og var
sfðan dæmdur til fimm ára
fangabúðavistar. „Hvíta bók-
in“, sem hann ritaði um réttar-
höldin yfir Sinyavsky og Daniel
árið 1966 varð til þess að efla
mjög samtök sovézkra andófs-
manna.
— Kolmunni
Framhald á bls. 40
leiðsla tækist á íslandi, en Svf-
arnir vildu ekki kaupa minna
en 50 lestir f einu.
Þá sagði Óttar, að þeir hefðu
verið með tilraunir með að
herða loðnu og spærling og
komið hefði i Ijós að fiskafurð-
ir eins og þessar, auk kol-
munna, hentuðu mjög vel sem
dýrafóður, og betur en stærri
fiskur, þar sem ekki þyrfti að
búta þær niður, en nokkur
kostnaður fylgdi því.
— Loðnuganga
Framhald af bls. 40
Það var seint í gærkvöldi, sem
Morgunblaðið náði tali af Jakobi.
Sagði hann þá að torfurnar út af
Langanesi væru mjög stórar um
sig og að meðaltali um 15 faðma
þykkar. Þær hefðu verið á u.þ.b.
55 faðma dýpi, enda væri fullt
tungl, en engu að síður hefðu þeir
tekið sýnishorn f trollið. Þeir
hefðu aðeins togað í 4 mínútur, en
engu að síður hefði trollið verið
hálffullt er það kom upp, loðnan í
trollinu hefði öll verið stór
hryngningarloðna.
í samtalinu við Morgunblaðið
sagði Jakob, að þeir á Árna hefðu
haldið vestur að Grímsey á þriðju-
dag til að kanna lóðningar, sem
þar hefðu átt að vera. Ekkert
hefði fundist þar, og lfklegt að
loðnan hefði dreift sér. Síðan
hefðu þeir haldið á svig ANA og
NA af Kolbeinsey. Þar hefðu þeir
fundið mikið af peðrum. Sýni
hefðu sýnt að helmingur þeirrar
loðnu væri kynþroska loðna á
austurleið, en hinn helmingurinn
ókynþroska, sem myndi hrygna
næsta vetur. Þá hefðu þeir haldið
austur á bóginn og á öllu svæðinu
verið mikið um smærri torfur.
- Korchnoi ótt-
ast mannrán
Framhald af bls. 1.
greiniiega miður sfn, og hefur
jafnvel íhugað að koma ekki til
leiks," sagði Palladino.
Tigran Petrosjan, sem er
fyrrverandi heimsmeistari í
skák gagnrýndi Korchnoi opin-
berlega þegar hann óskaði eft-
ir hæli sem pólitískur flótta-
maður f Hollandi í fyrra.
— Lýsi
Framhald af bls. 40
Af mjölmörkuðunum hafa
þær fréttir borizt, að mark-
aðurinn er talinn mjög sterkur
um þessar mundir. Hins vegar
hefur ekkert mjöl verið selt
frá tslandi að undanförnu,
enda ekkert mjöl til að selja í'
bili, en talið er að allt að 7.05
dollara sé nú hægt að fá fyrir
proteineininguna af fiskmjöli.
— Skák
Framhald af bls. 18
Manila og hins vegar slæleg
frammistaða Spassky þar, en
hann hafnaði rétt um miðju og
olli nokkrum vonbrigðum,
freistast menn til að veðja á
Hort. En Spassky hefur mag-
sýnt þann hæfileika að eflast
þegar mikið er i húfi og fáir
tefla skemmtilegra en Spassky
þegar honum tekst vel upp. Það
tók Spassky talsverðan tfma að
ná sér aftur á strik eftir ósigur-
inn hér í Reykjavík, þegar hann
missti heimsmeistaratitilinn f
hendur Fischer. Hann tefldi
fljótlega í nokkrum mótum eins
og í Tallin, Dortmund og
Amsterdam en skákir hans
þóttu bera vott um breyttan
mann. Skákir hans þóttu skorta
baráttugleði, og hann sýndi lít-
inn vott um metnaðargirni og
áhuga. En i október 1973 gerði
hann sér lítið fyrir og sigraði f
Sovétmeistaramótinu, sem
ávallt er skipað öflugustu skák-
mönnum þjóðarinnar. Þar
tefldi hann af endurnýjuðum
þrótti og hugmyndaauðgi og
tefldi margar skákir með mikl-
um glæsibrag. I kjölfarið fylgdi
sfðan áskorendaeinvfgi við
ameríska stórmeistarann
Robert Byrne, en þar tryggði
Spassky sér sigur eftir 6 skákir
og sigraði með 4,5 á móti 1,5
vinningum. (Sigurvegari var sá
sem fyrstur vann 3 skákir). Sfð-
an tefldi Spassky einvígi við
Karpov f Leningrad 1974.
Sigurvegari f því einvfgi var sá,
sem fyrstur hlaut 4 vinninga,
en jafnteflin voru ekki talin
með. Spassky hóf einvígið með
þvi að sigra Karpov, en það
varð hans eini vinningur. Ein-
vfginu lauk eftir 11 skákir, en
þá hafði Karpov hlotið 4 vinn-
inga en Spassky 1 en heildarúr-
slitin urðu 7 —4. Síðan hefur
gengið á ýmsu hjá Spassky og
m.a. hefur hann kvænst á ný,
og býr nú i Frakklandi ásamt
hinni frönsku konu sinni. Ekki
er að efa að margir aðdáenda
hans hér á landi hlakka til að
sjá hann aftur og biða spenntir
eftir þessu einvígi.
— fslendingar
trúaðir
Framhald af bls. 17
lifenda lífi. Helmingur þessa
látna fólks Sem aðspurðir töldu
að hefðu birzt sér, voru náin
skyldmenni, um fjórðungur
vinir eða kunningjar og fjórð-
ungur ókunnugt fólk. Misjafnt
var hversu oft þetta hafði borið
við, þvf hjá rúmum þriðjungi
hafði þetta gerzt einu sinni, hjá
öðrum þriðjungi 2—4 sinnum
en oftar hjá afganginum.
Við samanburð samsvarandi
kannana erlendis bendir flest
til að töluvert fleiri hér á landi
telji sig verða fyrir reynslu af
þessu tagi en annars staðar, þar
sem upplýsingar liggja fyrir
um þetta efni.
Um aðrar tegundir dulrænna
fyrirbæra er það að segja að
rúmur fjórðungur manna taldi
sig á dulrænan hátt hafa fengið
hugboð um atburði sem gerðust
i fjarska, töluvert færri, eða
18%, töldu sig hafa komizt i
kynni við reimleika, og ber þar
töluvert á milli viðhorfa og
reynslu af reimleikum, því að
aðeins 9% töldu sig vissa um
tilveru þeirra. Nær sjötti hver
maður taldi sig hafa orðið var-
an við fylgju, 5% hafa séð álfa
eða huldufólk og 2% kváðust
hafa orðið fyrir óhöppum vegna
rasks álagabletta. Tólfti hver
maður hafði orðið fyrir þeirri
reynslu að komast úr líkama
sínum, sem er nokkru fátíðara
en i samsvarandi könnun frá
Bandaríkjunum og 2% áttu
minningar frá fyrra lífsskeiði.
Loks er að geta þess að um 4%
aðspurðra hafði einhvern tfma
fundizt látinn maður ná ein-
hverju valdi yfir líkama þeirra
og þannig orðið varir við vott af
einhvers konar miðilsgáfu.
I könnuninni var einnig
spurt hvort menn hefðu ein-
hvern tlma orðið fyrir sterkri
trúarlegri eða andlegri reynslu
og segir Erlendur að sér til
undrunar hafi fjórðungur að-
spurðra svarað því játandi. Hin
trúarlega reynsla hafði gerzt
við ýmsar kringumstæður,
langtíðast þó f bænargjörð, þá
úti f náttúrunni og f kirkju.
Eftirtektarverðast við könn-
unina í heild er þó vafalaust
hve oft íslendingar hafa orðið
varir við verur annars heims,
látna menn og huliðsverur í
samanburði við hliðstæðar
kannanir í öðrum löndum.
Einnig hitt að 698% aðspurðra
töldu annað líf vfst eða lfklegt,
og segir Erlendur að þessi trú á
framhaldslífið virðist vera í
miklum tengslum við almenna
trúhneigð, þótt helmingur
þeirra manna, sem telji sig lftt
eða ekki trúhneigða, búist engu
að síður við framhaldslífi.
— Belgar
Framhald af bls. 3
Þá kvað hann sölur á Belgiu
vart koma til greina, ef markaður-
inn í Bretlandi væri opinn íslend-
ingum. Þá hefði löndunarkostnað-
ur f Belgíu verið hærri en i Þýzka-
landi á sfnum tíma, en Belgar
hefðu nú lofað að lækka
löndunarkostnaðinn þar í landi.
— Messur
á morgun
Framhald af bls. 7
MOSFELLSPRESTAKALL
Lágafellskirkja. Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Séra Birgir
Ásgeirsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Messa kl. 2 síðd. Séra Garðar
Þorsteinsson.
FRlKIRKJAN Hafnarfirði.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Magnús Guðjónsson.
KÁLFATJARNARKIRKJA
Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Bragi Friðriksson
NJARÐVlKURPRESTAKALL
Guðþjónusta í Stapa kl. 2 sfðd.
Séra Páll Þórðarson.
KEFLAVlKURKIRKJA Messa
kl. 2 sfðd. Altarisganga. Skúli
Svavarsson kristniboði
prédikar. Siðasta samkoma
kristniboðsvikunnar kl. 8.30
sfðd. Séra Ólafur Oddur Jóns-
son.
GRINDA VÍKURKIRKJA
Barnasamkoma kl. 11 árd.
Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA Messa kl.
2 síðd. Séra Guðmundur
Guðmundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA
Almenn guðþjónusta kl. 2 siðd.
Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA
Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd.
Sóknarprestur.
HVERARERÐISKIRKJA
Barnamessa kl. 11 árd. Messa
kl. 2 sfðd. Sóknarprestur.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA
Guðþjónusta kl. 2 sfðd. og
barnaguðþjónusta kl. 2.45 sfðd.
Séra Stefán Lárusson.
AKRANESKIRKJA Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2
siðd. Vænzt er þátttöku
fermingarbarna og foreldra
þeirra. Séra Björn Jónsson.
- Samtal við Karl Schiitz rannsóknar-
lögreglumann
Framhald af bls. 21
rannsón málsins og því verður beðið með frekari leit um sinn."
„Er mögulegt að afbrotamennirnir vilji ekki gefa upp stað-
setningu vegna þess að um fleiri lík sé þar að ræða en þeirra
tveggja manna sem við höfum rætt um?"
„Ef við höldum okkur við staðreyndirnar þá eru líkin aðeins
tvö nú og sennilega er hraunið ekki fullt af líkum M a hefur
verið rætt um hvarf manns frá Færeyjum, en ég hef engar
upplýsingar um Færeyinginn í þessari rannsókn "
Blóðbletturinn af A blóðflokki!
Sem kunnugt er var lík Geirfinns geymt í kjallara við
Grettisgötu á annan sólarhring og þar fanns blóðblettur sem
var ekki af O— blóðflokki Geirfinns Við spurðum Karl Schútz
að því hvort mögulegt væri að önnur lík hefðu verið geymd í
kjallaranum og nefndum Guðmund Einarsson í því sambandi
„Okkur er ekki kunnugt um að lík Guðmundar Einarssonar
hefi verið flutt í kjallarann Varðandi blóðblettinn er margt sem
kemur til greina Þarna hafði verið unnið við slátur, menn
kunna að hafa fengið skeinur þarna, en auðvitað kemur
ýmislegt alvarlegra til greina Blóðbletturinn var A og hvorki
Sævar. Kristján Viðar, Tryggvi Rúnar né Erla eru með þann
blóðflokk "
„En Guðmundur Einarsson?"
„Því miður mun það hvergi hafa venð skráð í hvaða
blóðflokki hann var, en höfuðhár af honum úr hárbursta af
heimili hans og fleiri gögn voru send til nákvæmrar rannsókn-
ar í Þýzkalandt og eftir rannsókn á hári Guðmundar er talið að
blóðflokkur hans geti verið A eða AB
Ýmis gögn voru emnig send út, en m a var kannaður
blóðblettur sem fannst á frakka Kristjáns Viðars, en sá
blóðflokkur reyndist ekki tilheyra neinum úr afbrotahópnum
Það sem er á hreinu í þessu sambandi er að blóðið var ekki úr
Geirfmni "
Snúin sálfræðileg viðfangsefni
í samtalinu við Schútz kom það fram að hjá þýzkum
rannsóknarlögreglumönnum þykir það sjálfsagt að færa rann-
sóknarmál á milli manna ef sú staða væri komin upp að það
væri talið æskilegra
„Það er miðað við það." sagði Schútz, "að ekki sé skipt um
menn í rannsókn mála, því sá sem hefur rannsókn veit að öllu
jöfnu mest um málið og hefur lagt mesta vinnu í það, en það
getur margt komið til Þarna eins og í svo mörgu öðru er um
persónueinkenni manna að ræða Ef rannsóknarmaður nær
ekki personulegu sambandi við afbrotamenn í rannsókn máls
er sjálfsagt að skipta um rannsóknarmann. því öll alvarleg mál
eru snúin sálfræðileg viðfangsefni "
Mun skrifa um lausn
afbrotamála.
í lok samtals okkar spurðum við Schútz að því hvað tæki við
hjá honum þegar hann héldi af landi brott?
„Ég fer til Þýzkalands að skrifa. skrifa," sagði hann, "og
skrifa " Hann kvaðst alltaf hafa sama áhugann á afbrotamálum
þótt hann væri hættur í opinberu starfi og nú kvaðst hann ætla
að skrifa greinar í fagblöð lögreglumanna, þar sem hann mun
skrifa um hugmyndir sínar til að takast á við lausn afbrotamála
eftir nýjum leiðum „Hver afbrotasérfræðingur verður stöðugt
að kynna sér endurbætur og fjölbreytni möguleika í vinnu-
brögðum," sagði hann, "afbrotasérfræðingar verða stöðugt að
vera að mennta sig og búa sig undir að takast á við allt aðra
uppbyggingu glæpamáls en þeir hafa vanizt."
íslenzkri lögreglu áfátt.
„Er íslenzkri lögreglu áfátt í slíkri þjálfun starfsmanna
sinna?"
„Einmitt, það vantar menntun, reynslu og betri tækniað-
stöðu Tæknin skiptir miklu máli. Nýjar og nýjar aðferðir koma
upp og rannsóknarlögregla sem á að vera hlutverki sínu vaxin
verður að hafa vinnuaðstöðu "