Morgunblaðið - 05.02.1977, Page 28

Morgunblaðið - 05.02.1977, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1977 Björg Björnsdóttir i Vigur — Minning F. 7. júll 1889. D. 24. jan. 1977. Þegar ókunna gesti bar að garði á æskuheimili mínu, Möðruvöll- um í Hörgárdal, leið sjaldan á löngu þar til afi kom og heilsaði gestunum, kynnti sig og spurði frétta. En I lokin lét hann þess getið, að hann ætti 16 barnabörn, svo ofarlega voru þau í huga hans. Á hverjum degi heyrði ég hann ræða um þau við ömmu. Auðheyrt var að hann bar framtið þeirra mjög fyrir brjósti. Þannig kynnt- ist ég fyrst frændfólkinu í Vigur og á Veðramóti. Mér þótti vænt um þetta fólk og fannst það standa mér nærri. Eitt hinna 16 barnabarna var Björg í Vigur, sem lézt i sjúkrahúsinu á Isafirði aðfararnótt 24. jan. s.l. Nú eru ekki eftir nema þrjú, Sigurlaug og Heiðbjört Bjarnadætur og undirrituð. Björg var fædd að Veðramóti i Gönguskörðum 7. júli 1889. For- eldrar hennar voru hjónin Þor- björg Stefánsdóttir frá Heiði í Gönguskörðum og Björn Jónsson frá Háagerði á Skagaströnd, hreppstjóri um langt árabil i Skarðshreppi og dannebrogsmað- ur. Björg var sjötta í röðinni af 10 systkinum, er upp komust. Tvö börn dóu í bernsku. Á Veðramóti ólst Björg upp í glaðværum syst- kinahópi. Voru systkinin á Veðra- móti öll vel gefin, tápmikil og fallegt fólk, sem átti stóra drauma. Veðramótahjónin voru bæði mesta greindarfólk og afburða dugleg. Bar heimilið vott um meiri menningarbrag en almennt gerðist á þeim tima. Bókakostur var þar töluverður og mikið lesið og numið. Ljóðskáldin voru I há- vegum höfð og hrifist af hugsjón- um þeirra. Til þess var tekið hvað húsfreyjan á Veðramóti var söng- elsk og hafði fagra rödd. Söng hún oft við langspilið sitt í rökkr- inu fyrir barnahópinn sinn. í bað- stofunni á Veðramóti var oft glatt á hjalla, en þar var einnig mikið rætt um landsins gagn og nauð- synjar. Augljóst var að mörgu var ábóta vaht og víða þurfti að vinna bót til að skapa bjartari framtfð Iandi og lýð. En stórhugur og bjartsýni einkenndi hjónin á Veðramóti og barnahópinn þeirra. Þegar Björg var um fermingu missti hún móður sína. Var það mikið reiðarslag fyrir hana og heimilið allt. Óvenju mikið ástriki hafði verið með þeim mæðgum. Svo sár var móðurmissirinn Björgu, að hún lagðist í rúmið af einskærri sorg. Henni fannst öll sund lokuð. Var henni ofraun að horfast í augu við þann bitra veruleika, að móðir hennar var með öllu horfin. Fram á elliár minntist hún móður sinnar með sama hugarfari og lét þess getið, að hún hefði aldrei beðið þess bætur að missa hana, enda hefði hún lifað frá því hún mundi fyrst eftir sér fyrir að gleðja hana og gera henni til geðs, svo heit var ást hennar til móður sinnar. Ef til vill hefur það verið upphaf ham- ingju Bjargar hve nærgætin og ljúf hún var við mömmu sína og kappkostaði að létta henni erfið uppeldis- og heimilisstörf. En sem betur fór rétti hún við og tók gleði sina á ný þegar frá leið. Undu börnin á Veðramóti illa kyrrstöðunni, þau þráðu menntun og meira víðsýni. Tveir elstu drengirnir fóru i Möðruvalla- skóla, tveir þeir næstu leituðu til Háskóla, og svo kom röðin að systrunum. Guðrún fór i Kvenna- skólann á Akureyri og haustið 1907 lagði Björg leið sina vestur fyrir fjöllin og settist í Kvenna- skólann á Blönduósi, lauk þaðan prófi eftir tveggja vetra nám. Kvennaskólinn á Blönduósi naut þá mikilla vinsælda, leituðu þang- að stúlkur viðsvegar að af landinu til að afla sér menntunar og þroska. Lét Björg vel yfir dvöl sinni á Blönduósi, eignaðist hún þar vináttu kennara og skóla- systra. Haustið 1911 fór Björg til Reykjavikur, kom sér fyrir í húsi, þar sem hún átti að sinna hús- verkum en jafnframt njóta til- sagnar í matreiðslu- og öðrum heimilisstörfum. En henni likaði illa vistin og fór til frænku sinnar Gyðu Jósefsdóttur, sem tók henni vel, og lærði þá fatasaum. Lét hún yfir því, hve Gyða hefði reynst sér vel. Útþrá gerði oft vart við sig, Björg hafði hug á að komast út fyrir landsteinana og hafði orð á því við frænda sinn, er hún hitti í höfuðstaðnum. En frændinn taldi öll tormerki á því, nema þá helst að leita til Ameríku. Nei, þangað vildi hún ekki fara. Hugurinn hvarflaði þá heim í baðstofuna á Veðramóti, þar áttu Ameríkufar- arnir ekki upp á pallborðið. Á árunum, þegar fólkið hópaðist til Ameriku, mundi hún að afi sagði „þið eruð að svikja landið“ og barði saman hnefunum framan i vesturfarana. Veðramótabörnin vildu síst að öllu svikja landið. Var þá ekki lengur hugsað um vesturferðir. Veturinn I Reykjavík varð henni að mörgu leyti til ánægju. Hún naut þar oft góðra stunda með systkinum sinum Haraldi og Heiðbjörtu, sem þá voru við nám I Reykjavik. Þegar voraði lá leið Bjargar vestur í Vigur, réðst hún þangað í kaupavinnu til sr. Sig- urðar Stefánssonar móðurbróður sins og frú Þórunnar Bjarnadótt- ur konu hans. Það kom i hlut Bjarna að sækja Björgu til Isa- fjarðar á Vigurbátnum. Tæplega hefur það hvarflað að honum þá, að hann væri þarna að sækja konuefnið sitt. Heyrt hef ég að skömmu eftir að Björg kom í Vigur hafi hana dreymt að kallað væri til hennar: „Þú verður umflotin sævi alla ævi.“ „Hvaða vitleysa er þetta,“ svaraði hún að bragði, og við það vaknaði hún. Og þannig fór, hún átti heima í Vigur upp frá því hún steig þar fyrst á land. Sama vorið og Björg kom í Vig- ur varð ég fyrir því láni um jóns- messuleytið að koma vestur I Vig- ur. Margt kom mér þar á óvart við fyrstu sýn, grösug eyjan, mergð fugla, vindmyllan á hólnum, „spilið" á sjávarbakkanum, fall- egi bærinn og svo allt blessað fólkið, sem tók mér opnum örm- um. Tókst þá óðara góð vinátta með okkur Björgu. Þessi Vigur- ferð hefur ávallt lifað í minni mínu sem fagurt ævintýri. Sjálfsagt hefur Björgu farið svipað og mér, að margt hefur komið henni á óvart fyrst i stað. Fram til þessa höfðu Gönguskörð- in verið hennar heimur, en hún samlagaðist fljótt nýjum staðhátt- um. Það er gjörólíkt að stunda búskap upp til dala eða úti við sjó, búskaparhættir allt aðrir. Heimil- ið stóð föstum fótum, þar var litið um fólksflutnínga. Sama vinnu- fólkið hafði verið í Vigur svo ár- um skipti. Setti það sinn sérstaka svip á heimilislífið, störf þess voru metin sem vert var og að þvi hlynnt, er með þurfti, allt til ævi- loka, enda virtist fólkið öruggt um sinn hag. Heyrði ég sagt að gömul vinnukona i Vigur hefði sagt, þegar stríðið braust út 1914: „Skyldi ekki blessaður presturinn geta stillt til friðar?" Þá hafði sr. Sigurður verið í Reykjavik, en slíkt var traustið til húsbænd- anna, nær ótakmarkað, blessaður presturinn var visastur til að hafa áhrif á heimsrásina. Sem fyrr segir fór Björg ekki aftur frá Vigur. Brúðkaup þeirra Bjarna var haldið 16. sept. 1914. Var þeim það þáðum mikil gæfa. Bjarni var eftir sem áður önnur hönd föður síns við búskapinn og Björg hafði hönd í bagga með innanbæjarstörfum og studdi tengdamóður sina eftir föngum. Báðar voru þær léttar í lund og fylgdi þeim hlýja og gleði. Vorið 1918 tóku ungu hjónin við búinu í Vigur. Þó skipt væri um ábúendur hélst sami heimilis- bragur, gömlu vinnuhjúin voru á sínum stað og nutu sama öryggis og áður. Segir það sína sögu. Það duldist engum, að Björg var mik- ilhæf húsmóðir, stjórnsöm og áhugasöm um allt er heimilið varðaði, hvort heldur var úti eða inni. Vinnusöm var hún með af- brigðum og féll aldrei verk úr hendi. Hún hafði brennandi áhuga á öllu er til framfara horfði og var viðbragðsfljót, ef til henn- ar var leitað. Og það voru ekki einungis mál heimilisins, sem hún lét sig varða, hún fylgdist vel með öllu, sem gerðist með þjóð- inni og fylgdi fast þvi, sem hún áleit að til heilla horfði. Síðustu dagana, sem hún lifði, hafði hún áhyggjur af því, hvenær þeir lykju við að leggja rafmagn i Djúpið. Þannig lifði umhyggjan fyrir sveitungum hennar til hinstu stundar. Henni þótti stundum ganga seint með nauð- synlegar umbætur, þvi áhuginn var ávallt brennandi. Björg mátti aldrei neitt aumt sjá, var hún örlát við þá sem voru hjálpar þurfi, en flíkaði því litt þó hún léti sitthvað af hendi rakna. Gestkvæmt var í Vigur og oft fjöl- menni. Var öllúm er að garði bar veitt af mikilli rausn. Einhverju sinni var sagt við mig þegar Vigurhjónin bárust I tal: „Þau keppast við að veita hvort öðru sem mesta hamingju." Fallegur vitnisburður og lær- dómsríkur. Guðrún systir Bjargar sagði líka oft er góðar fréttir bár- ust frá Vigur: „Það er eins og annað lánið hennar Bjargar." Björg var mikil trúkona. Dætur hennar segja mér að hún hafi aldrei látið undir höfuð leggjast að lesa Guðsorð áður en lagst var til hvildar á kvöldin, þakkað fyrir liðinn dag og Guðs gjafir. Þau Vigurhjónin eignuðust sex börn, þrjá syni og þrjár dætur. Eins og gefur að skilja eru margir erfiðleikar því samfara að búa úti í eyju. Iðulega gefur ekki á sjó og þá er ekki í annað hús að venda. Eyjabúar verða þvi að vera for- sjálir og fyrirhyggjan vakandi. Ekki minnast þó börnin frá Vigur þess, að nokkur vandi fylgdi eyja- búskap foreldra þeirra, þar var ávallt gnægð í búi. Þegar fram i sótti og börnin þurftu að fara í skóla, var ekki um annað að ræða en kenna þeim heima. Bjarni fað- ir þeirra kenndi þeim elstu, þegar frá leið var fenginn barnakennari í 5—6 vikur að vetrinum og þar á eftir kenndu þau hvert öðru, eftir þvi hvar þau voru á vegi stödd. Var síðan siglt upp í ögur að vorinu og gengið undir próf. Voru þær ferðir mikið tilhlökkunar- efni. Þessi fyrstu skref á mennta- brautinni voru leikur einn. En hugur þeirra systkina stóð til meiri lærdóms. Hvatti Björg mjög til þess, að dætur hennar héldu áfram námi ekki síður en bræðurnir. Björg var kvenrétt- indakona af lífi og sál. Hún mundi þá tíð er bændur riðu til kosninga en konurnar sátu heima. Aukin menntun kvenna hlaut að leiða til meira jafnréttis. Henni var einnig ljóst að ekki var hyggi- legt fyrir kvenfólk ef annars var kostur að treysta á hjónaband og forsjá heimilisföður. Konur yrðu að geta staðið á eigin fótum og bjargað sér, ef þvi væri að skipta, og þvi þyrftu konur að mennta sig til að geta spjarað sig á við karl- mennina. Framhaldsmenntun barnanna I Vigur varð heldur ekkert vandamál frekar en annað á þeim bæ, þvi allir voru samtaka og hjálpuðust að. Fimm systkinin fóru norður i Menntaskólann á Akureyri, þrjú tóku þaðan stúdentspróf en tvö hættu námi eftir að hafa lokið þar gagnfræða- prófi. Einn bróðirinn tók próf frá Héraðsskólanum á Laugarvatni. En börnin eru þessi: Sigurður sendiherra í London, kvæntur Ólöfu Pálsdóttur myndhöggvara. Björn bóndi I Vigur. Baldur gerð- ist barnakennari I nokkur ár eftir að hafa lokið gagnfræðaprófi við M.A., en er nú bóndi í Vigur, kvæntur Sigríði Salvarsdóttur frá Reykjarfirði. Hófu þau búskap í Vigur 1953 ásamt Birni bróður Baldurs. Var gott til þess að vita hvað bræðurnir og tengdadóttirin bjuggu þeim Bjarna og Björgu gott skjól i ellinni. Þorbjörg forstöðukona Hús- mæðraskólans Ósk á tsafirði, gift Brynjólfi Samúelssyni sjómanni. Þórunn Gagnfræðaskólakenn- ari, kennir við Hagaskóla i Reykjavík, gift Lárusi Árnasyni málarameistara. Sigurlaug menntaskólakennari, nú alþingismaður, gift Þorsteini Thorarensen rithöfundi. Auk sinna eigin barna og allra hinna mörgu barna og unglinga, sem dvöldu árum saman að sumr- inu til I Vigur, ólust þar upp til fullorðinsára hjá Björgu og Bjarna þau Þórey Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, gift Pétri Einarssyni og synir hennar tveir, Þórarinn Þórarinsson trésmiða- meistari í Kópavogi, kvæntur Ólöfu Bjarnadóttur og Árni Haraldsson húsgagnabólstrari á Húsavfk, kvæntur færeyskri konu Kaju Joannsen. Einnig Kjartan Magnússon verkamaður í Reykja- vík, kona hans er Kristín Guðjóns- dóttir. Þó ekki sé fleira talið er aug- ljóst að húsfreyjan i Vigur hefur haft í mörg horn að lita, en allt var unnið með glöðu geði. Björg eignaðist 13 barnabörn og fjögur langömmubörn, sem hún bar vel fyrir brjóti og bað Guð að varð- veita. Þó dvölin yrði þetta löng á fjar- lægum slóðum þar sem hún undi vel hag sínum hvarf Skagafjörður aldrei úr minnni Bjargar. Hún gladdist yfir góðum fréttum úr Skagafirði en harmaði ef miður fór. Ef til vill má segja að Skaga- fjörður hafi verið hennar draumaland, slík var tryggð henn- ar við gamlar æskustöðvar. Eftirtektarvert er, hvað systkin- in í Vigur hafa látið sér öll annt um heimili sitt. Á skólaárunum skiptust þau á um að vera heima og hjálpa til við bústörfin. Ekki koma að sök þó þau hyrfu að skólabekkjunum um tíma, það sýndu prófin þeirra á vorin, enda voru þau vel af Guði gefð og mik- ið námsfólk. Þegar ég spurði Sigurlaugu dóttur Bjargar að þvi á dögunum, hvað hún teldi að hefði verið þeim systkinunum mest virði I uppvextinum, svaraði hún: „Tví- mælalaust fagurt fordæmi for- eldra okkar og þrotlaus áminning um að vera heiðarlegt fólk. Aldrei notaði móðir okkar ljót orð við okkur krakkana á hverju sem gekk. Misklið á heimilinu þekkt- ist ekki. Ef um smáágreining var að ræða, var áður en varði allt fallið I ljúfa Iöð.“ Enn þann dag í dag leitar hugur þeirra systkina heim í Vigur. Þangað eiga þau rætur að rekja. Þaðan er einungis góðs að minn- ast. Hvergi var grasið grænna en á litlu eyjunni þeirra, kliður náttúrunnar fegurri né ylurinn hjá mömmu og pabba i gamla bænum í Vigur notalegri. Langar og merkrar ævi er minnst þegar Björg i Vigur er kvödd. Votta ég ástvinum hennar innilega samúð mina, jafnframt því sem ég gleðst yfir þeim dýr- mæta arfi er þeim hlotnaðist frá móður sinni og æskuheimilinu í Vigur, arfi, er hvorki mölur né ryð fær grandað. Vona ég að Guð gefi að ham- ingjan verði Vigurfólkinu hlið- holl hér eftir sem hingað til. Hulda Á Stefánsdóttir Faðir okkar, KJARTAN ÁSMUNDSSON, gullsmiður, lézt í gær, föstudag 4 febrúar Kjartan Kjartansson, Óskar Kjartansson, Þórdís S. Kjartansdóttir, Ragnar Kjartansson. Fóstusonur minn GUNNAR STEFÁN MAGNÚSSON, Rauðalæk, Holtahreppi, er lézt 2 7 janúar. verður (arðsunginn frá Fossvogskirkju þnðjudagínn 8 febrúar kl 3 Fyrir hönd eiginkonu og dætra, Eiríkur Isaksson. Systir okkar HELGA EINARSDÓTTIR Snorrabraut 32 andaðíst hínn 25 jan s I. Útför hefír farið fram i kyrrþey. samkv. ósk hinnar látnu Alúðar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks við Dvalarheim- ilíð Ás, Hveragerði, og Landspítalann, fyrir frábæra hjúkrun og umönnun F h systkina hinnar látnu ÓlafurTr. Einarsson. Móðir okkar SÓLVEIG LARSEN KRISTJÁNSSON verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 7 febrúar kl 10 30 f.h Karly K. Legere Elvar Krístjónsson Kristján S. Kristjónsson tengdabörn og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.