Morgunblaðið - 05.02.1977, Page 29

Morgunblaðið - 05.02.1977, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1977 29 F. 7. 7.1889. D. 24.1. 1977. Skammt er nú stórra högga á milli úr röðum Veðramótssystra, er nú á fárra mánaða millibili falla tvær þeirra frá. Vart er minna skarð fyrir skildi Vigrunga, er með örfárra ára millibili kveðja bæði Björgu og Bjarna þótt þeir sem til þekkja, undrist ei þótt skammt hafi verið á milli fráfalla þeirra, svo kært og náið var þeirra samband. Á slíkum stundum gerast minn- ingar og þakkarhugur áleitin við þá, er kynni höfðu, og jafnvel svo, að stirðlatur penni fer á stað til að festa á blað fáeinar línur um hina mætu konu, móðursystur mlna, Björgu Björnsdóttur, húsfreyju i Vigur i ísafjarðardjúpi. Vist er, að æviferill Bjargar verður af öðrum rakinn, og verða því minningarnar ríkari I huga og pári, enda var aldurinn ekki hár, er ég fékk að vera fyrsta sumarið mitt i Vigur, þá 11 ára. Fyrstu kynni min af Vigrungum voru þó fyrr, er sum börn þeirra Vigur- hjóna dvöldust um hrið á æsku- heimili minu I Eyjafirði. Þá þegar varð þessi hluti lands okkar, lítil eyja með einu býli og óvenjulegu nafni, einskonar fjarlægur ævin- týrastaður, sem aðeins um var dreymt og ímyndunaraflið látið leika laust. Þótt mitt lán yrði að fá þar að vera unglingur I 3 sumur, og enn finnst mér sumur ekki öll nema hafa komið þar í heimsókn, er ennþá rikjandi þar yfir hinn sami ljómi og sérstæða andrúms- loft jafnt sem dulúð I kvikum huga lítils sveitadrengs um fjar- lægan stað. Þau sumur, sem ég fékk að dvelja i Vigur, eru, að öðrum ólöstuðum, með þeim beztu, ef ekki þau beztu, á ævj minni. Björg og Bjarni voru mér þá i foreldra stað og þótt fleiri væru „tökubörnin" gilti það sama um þau. Enda þótt svo væri, varð ég aldrei var við að börnum þeirra hjóna þætti nóg um eða fyndist þau vera vanrækt. Stór var sumarbarnahópurinn I Vigur þá og er enn, og þótti fátt í „skerinu" ef undir 20 manns sátu að málum. Á þessum árum tiðkaðist enn að færa frá og mun Vigur liklega með síðustu býlum þessa lands, sem þá búskaparhætti höfðu. En fyrir bragðið er hægt að stæra sig af þvi að hafa verið smali, þótt næsta létt hafi það starf verið á eyju og margir jafnaldrar til að deila þvi með. En rik er sú minn- ing, er komið var úr kvíum að kvöldi og Björg kallaði á hópinn í búrió stóra og gaf þeim, sem vildu, bolla af hinni rjómaliku sauðamjólk. Ekki verður það tal- inn slakur kostur á hraðvaxtar skeiði hvers og eins. Ferðalög hafa ávallt verið mér áhugarik og var sízt ekki svo á lítilli eyju með takmörkuðum möguleikum á því sviði, nema um saltan sæ. Þvi var það, að hvers konar áætlaðar ferðir frá eyjunni voru vinsælar meðal okkar krakk- anna og keppni um að fá að fara með. Komst ég fljótt upp á lagið með að fá Björgu frænku mina til að „stuðla" að þvi við Bjarna, að ég fengi að fara með og bar það oft árangur, svo góðan, að mér er ekki grunlaust um að jafnöldrum hafi þótt nóg um. Alltaf voru þetta ógleymanlegar ferðir og mikið fékkst þá af kynningu við ýmsa staði i Djúpinu. Rétt er nú að staldra við svo minningarnar verði ekki til að teygja þennan lopa um of. Af þeim, sem minnst er á, má ef til vill skilja hvernig hugarfar og andrúmsloft rikti í Vigur á þeim tima. Engin var lognmolla á bæn- um þeim, ávallt nóg við að vera og okkur krökkunum beint til starfa eftir getu og hæfni. Ekki var allt- af full ánægja með afköst né vinnuhraða og þá ekki verið að lúra á þvi, frá var greint og ástæð- una fyrir því, jafnvel talað um lóð af misjöfnum þunga hangandi eða dragandi i festu á vissum stöðum, en ávallt lygndi fljótt, allt fyrirgefið og andrúmsloftið hreint og örvandi. Oft var ð Björg til að lægja öldurnar og milda áhrifin, svo aldrei urðu nein sárindi eftir, heldur hugur til ihygli, að gera betur næst, geta gert gagn og verða maður. Slik eru áhrif og minningar mínar frá hinu þekkta og glæsta Vigurheimili, þá sem nú. Þótt aðr- ir séu nú húsbændurnir, eru þeir af sama stofni og hefur þeim tek- izt að viðhalda þessum sérstæða anda, sem þarna rikir, utan húss sem innan. Ef til vill á hið sér- stæða dýralif eyjarinnar þar nokkurn hlut að máli og um- gengni ábúenda við það mætti mörgum vera til fyrirar. Jarðneskar leifar frænku minn- ar fá nú sinn hinsta hvíldarstað við hlið frænda síns og eigin- manns i ögurkirkjugarði. Er það hið tilhlýðilegasta og ekki gat annað til greina komið. Vonandi hafa þau fengið að sameinast aft- ur einnig á einhvern annan hátt, annað væri óréttmætt. Hjartans þakkir eru hér fluttar þeim báðum fyrir allt sem þau fyrir mig og mina fjölskyldu hafa gert. Megi a'ndi þeirra og minning lengi lifa. Björn Sveinbjörnsson. Bjargar í Vigur, gætu sagt, ef segja mættu, mikla sögu og merka. Það gefi Guð.að þær hringi heillir og hamingju yfir gamlar, göfgar slóðir sem mér eru allt frá bernskuárum kærar. Jón Auðuns Nú legg ég augun aftur 6 Guð, þinn náðarkraftur mfn veri vörn f nótt. Æ virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka, þinn engil svo ég sofi róft. Sú fregn barst mér að morgni 24 janúar s.l. að Björg amma væri dáin. Hún kom mér raunar ekki á óvart, því amma hafði legið á sjúkrahúsi um skeið mikið veik. Samt sem áður verður manni allt- af illa við er dauðinn kveður dyra og vitjar þeirra sem eru manni kærir. Við systkinin I Vigur eigum ömmu mikið að þakka þar sem hún átti svo stóran þátt I uppeldi okkar. Eg minnist þess er við sátum i rökkrinu umhverfis ömmu meðan hún spann eða prjónaði, og hlýdd- um á hverja söguna á fætur ann- arri, bæði ævintýri og eins sögur frá hennar eigin bernsku heima á Veðramóti. Eins er mér minnis- stætt þegar ég sem barn svaf inni hjá afa og- ömmu, hve gott var að skriða upp i rúmið til þeirra ef mig dreymdi illa eða sá hvers kyns kynjaverur i hverju skoti. Alltaf var mér tekið opnum og hlýjum örmum þótt plássfrek væri og áður en varði voru allir illir draumar og sýnir á brott. Amma var með eindæmum blíð og góð kona. Henni var það mikið hjartans mál að innræta okkur sanna trú á Guð, heiðarleika og sannleiksást. Trúin á Guð og hið góða í manneskjunni var stór þáttur I lífi hennar og þær voru ófáar bíenirnar sem hún kenndi okkur barnabörnum sinum. Trúin var henni lika mikill styrkur þeg- ar afi dó. í öllum söknuðinum og sorginni eftir fráfall hans, var það hennar stærsta huggun að hún myndi hitta hann á ný þegar hú kveddi þennan heim. En það voru ekki bara við syst- kinin i Vigur sem nutum ástrikis afa og ömmu, þvi’hún var nokk- urskonar „sumarmóðir" hinna barnabarnanna sem dvöldust I Vigur á sumrin. Þau tóku lika miklu ástfóstri við ömmu og afa og báru djúpa virðingu fyrir þeim. Einnig hændust langömmu- börnin mjög að „gömlu ömmu“ eins og þau kölluðu hana. Við barnabörnin flytjum ömmu okkar innilegustu þakkir fyrir allt hið góða sem við nutum hjá henni. í okkar hugum mun hún ætíð lifa sem sönn og mikil kona sem hafði sannleikann og trúna á Guð að leiðarljósi. Guð blessi hana. Björg Baldursdóttir. Að sjálfsögðu fækkar þeim óðum og flestir af sjónsarsviði okkar horfnir, sem gerðu garðinn frægan á bæjum og höfuðbólum vestur við Djúp á bernsku- og æskuárum mínum. Einna hæst bar heimilin i Eyjunum tveim, perlunum í miðju Djúpi, Vigur og Æðey. Enn er á lífi hér, öldruð og sjúk, Sigriður fyrrum húsfreyja í Æðey, sem um langan aldur stýrði með bræðrum sínum tveim stórbúi og merkilegu heimili. 24. sl. andaðist eftir stutta legu I sjúkrahúsi á tsafirði frú Björg Björnsdóttir frá Veðramóti 88 ára gömul, sem frá ungum aldri og . fram á efri ár stýrði af skörungs- I skap og miklu ágætum sínu stóra heimili í Vigur. Þau hjón voru orðin við aldur, frú Björg og Bjarni Sigurðsson, þegar synir þeirra tveir, Björn og Baldur tóku við búsforráðum á hinu gamla hefðarsetri og búa þar síðan rausnarbúi. Önnur börn þeirra hjóna eru Sigurður sendiherra i London, Sigurlaug alþingismaður Þorbjörg skólastjóri á Isafirði og Þórunn kennari. Vigur hafði verið setin við mikla auðsæld og mikinn veg fram eftir siðustu öld, þegar örlög ollu þvi, að sá vegur þvarr og sú öndvegiseyja mátti muna fifil sinn fegurri. En þá urðu umskipti algjör, þegar sra Sigurður Stefánsson siðar þingskörungur og hefðarklerkur settist i Vigur, og kona hans frú Þórunn Bjarna- dóttir, mikil húsfreyja og gó^. Nokkru áður en þau merkis- hjón létu af löngum og virðuleg- um búskap hafði komið I Vigur frá Veðramóti systurdóttir sra Sigurðar, Björg, og gifzt Bjarna Sigurðssyni. Tóku þau ung við búsforráðum á föðurleifð Bjarna og sátu við mikla sæmd rausnar- garð fram á efri ár. Búskaparsaga þeirra verður hér ekki rakin, en fyrir vegsemd gömlu Vigrar sáu þau svo sköru- lega að ekki skorti á við það sem áður hafði verið. Bú þeirra stóð föstum fótum bæði á landi og sjó, meðan sjósókn var möguleg frá gömlu höfuðbdhinum við Djúp. Landkostir um nytjar og hið auð- uga fuglalíf voru fullnýttir, og heimilið var fjölmennt, bæði af starfandi fólki og öðrum, sem lítt eða ekki gátu unnið lengur. Hlutur frú Bjargar að þeirri sögu var mikill og meiri en hér verður sagt. Viðbrigði voru að ýmsu mikil fyrir hina glæsilegu skagfirzku heimasætu að taka við búnaðarháttum í Vigur ólíkum þeim, sem hún hafði alizt upp við í heimahögum. En það reyndist henni léttur leikur, svo að virðingu manna vestra hlaut hún frá byrjun. Þótt börn hennar fjögur væru fyrir löngu farin að heiman og hún ætti hjá þeim góðra kosta völ, sat hún I Vigur unz fáir dagar voru eftir ævi hennar, I 65 ár. Og nú er brotið blað i merkri sögu, þegar frú Björg hefur lokið sinum degi, höfðingskona dáðrik- um degi, ein virtasta húsfreyja héraðsins. í dag verða likamsleifar hennar lagðar í vigða mold i ögurkirkju- garði. Þar hafa áður hlotið hinsta leg bein margra öndvegiskvenna og -karla og í nálega þúsund ár, höfðingja og hjúa, bænda og búa- liðs. Gömlu klukkurnar, sem hringja til grafar i dag lik frú Petrína Jónsdóttir Akranesi — Minning Fædd 23. april 1894. Dáin 29. jan. 1977. í dag verður frænka mín og hálfgildings fóstra, Petrína Jóns- dóttir, Vogabraut 2 á Akranesi, borin til hinztu hvíldar i Garða- kirkjugarði. Hún var fædd 23. april 1894 i Gröf í Lundarreykjadal, dóttir hjónanna Jóns Jónssonar og konu hans Ingveldar Pétursdóttur. Þau voru bæði af kunnum og fjöl- mennum borgfirzkum bændaætt- um. Þegar foreldrar minir hófu búskap, réðst hún til þeirra, þá um fermingu, og átti þar heimili næstu árin. Þar bar fundum hennar saman við frænda sinn, Albert Gunnlaugsson, þau voru systkinabörn. Þau giftust árið 1921 og hófu búskap á litlu koti, Hrauntúni í Leirársveit. Þar bjuggu þau næstu sjö árin, en fluttu þá út á Akranes, og þar andaðist Albert 9. april 1935. Þeim hjónum varð níu barna auðið, og þegar faðirinn féll frá, stóð Petrína ein uppi með átta börn sin, og var hið elzta þeirra um fermingu. Elzti sonurinn sem fæddist áður en þau giftust ólst upp hjá vinafólki þeirra hjóna. Nú reyndi á kjark og dug hús- freyjunnar að halda hópnum sinum saman og koma honum á legg. Þá sýndi Petrína það bezt, hve kjarkurinn og dugnaðurinn var óbilandi. Þess er þó skylt að minnast, að ýmsir Akurnesingar réttu henni drengilega hjálpar- hönd á þessum árum, og mundi Petrina sízt óska, að þess væri ekki við getið. Þeir, sem muna kreppuna og vandræðin á síðara helmingi fjórða áratugsins, þegar hún stóð uppi örsnauð ekkja, munu vita og skilja, hve hart hún hlaut að leggja að sér, til þess að sjá börnum sínum farborða. Hún var ein af hinum hljóðu hetjum hversdagslifsins, sem aldrei bugaðist, þótt á móti blési og syrti í álinn, kona, sem harðnaði við hverja raun. Síðustu árin, þegar börnin voru farin, hélt hún heimili með yngsta syni sínum, og þangað komu börn hennar og tengdabörn þegar færi gafst. Hún kunni vel við sig í þessum hópi og ekki sizt þegar barnabörnin komu líka til sögunnar og fóru að heim- sækja ömmu sína. Þess á milli féll henni sjaldan verk úr hendi og ekki vílaði hún fyrir sér að fara i fiskvinnu ef svo bar undir, þótt árin væru orðin mörg. Nokkur síðustu árin átti hún við erfiðan, ólæknandi sjúkdóm að stríða. Honum mætti hún með sama æðruleysi og kjarki og öðrum ólögum er á henni skullu um ævina. Börn þeirra Petrinu og Alberts eru þessi: Sigurður Ingiberg, bóndi í Brúsholti i Flókadal, Jón Eggert, verkstjóri á Akranesi, Ingveldur, húsfreyja i Reykjavik, Gunnlaugur, vélvirki við Hval- stöðina i Hvalfirðir Hinrik, verka- maður í Hafnarfirði, Guðrún Karitas, húsfreyja á Akranesi, Aldís Petra, húsfreyja á Akra- nesi, Ásta húsfreyja á Akranesi og Pétur Hugi, verkamaður á Akranesi. Ungan studdi frænka min mig á völtum fótum fyrstu sporin á göngu, sem nú er orðin nokkuð löng. Lengst af ævinnar var það meginviðfangsefni hennar að styðja veikburða, vaxandi æsku og þoka henni nokkuð áleiðis. Og nú, þegar ekki er annað eftir en hinzta kveðjan, hlýtur hún að markast af þakklæti allra þeirra, sem nutu fylgdar hennar og leið- Framhald á bls. 25 Guðbjörn Pétursson Eftir því sem árum fjölgar, er það hlutskipti okkar að sjá á bak fleiri og fleiri samferðamönnum og vinum, og fyrr en varir er röðin komin að manni sjálfum. Guðbjörn Július Pétursson á Arnarhóli í Vestur-Landeyjum, sem hér verður minnst, andaðist á Landakotsspitala 27. jan. siðast- liðinn eftir 3ja mán. sjúkdóms- legu. Hann kenndi í sumar þess sjúkdóms er nú hefur dregið hann til dauða. Hann fór á spitala 5. nóv. Var fljótt sýnt, að hverju dró. Hann lifði þó í voninni um að komast heim aftur og fylgdist framan af vel með þvi er heima g;erðist. En hafði þó stundum á orði, að hann kæmist ekki lifandi heim. Hann bognaði ekki þrátt fyrir þjáningar, en brotnaði i bylnum stóra seinast. Guðbjörn var fæddur i Reykja- vík 12. júli 1911, og var því 65 ára, er hann lést. Foreldrar hans voru Pétur Jónsson, f. 4. jan. 1886 d. 7. sept 1911, og kona hans Ölafía Tómasdóttir frá Arnarhóli f. 16. jan. 1888, d. 4. sept. 1911. Guðbjörn var tæpra tveggja mánaða er hann missti foreldra sina svo til samdægurs og fór þá til afa síns og ömmu að Arnarhóli í Vestur-Landeyjum, Tómasar Jónssonar og konu hans. Þórhild- ar Ólafsdóttur og ólst þar upp, enda gengu þau honum i foreldra- stað. Guðbjörn átti 3 móðurbræður, sem hann ólst upp með, en allir Júlíus — Minning eru látnir, Tómas á Uppsölum, Guðmund á Bergstöðum i Vest- mannaeyjum og Þorgeir á Arnar- hóli. V'ann Guðbjörn heimili Þor- geirs og konu hans Þóru Þor- steinsdóttur, eftir að Þorgeir tók við búskap af föður sínum ekki síður en gamla heimilinu af mikl- um dugnaði. — Eftir að þau Þor- geir og Þóra hurfu af sviðinu hefur Guðbjörn búið á Arnarhóli. — Guðbjörn átti fóstursystur, Sigurbjörgu Guðmundsdóttur frá Glæsistöðum hér í sveit, nú búsetta í Reykjavik, sem ein lifir eftir af gamla heimilinu í austur- bænum á Arnarhóli. Þess skál getió að tvíbýli var á Arnarhóli lengst af, þótt nú á annan áratug hafi jörðin öll verið nytjuð af Þorgeiri og síðan Guðbirni. Fyrrverandi nábýlis- fólk Guðbjörns í vesturbænum á Arnarhóli, Sigriður Jóhanns- dóttir háöldruð og hin ernasta svo og Magnþóra og maður hennar, Guðjón Helgason, hafa jafnan reynzt Guðbirni mjög yel og ekki sizt I veikindum hans, og er það þakkarvert. Það hefur vissulega verið mikil reynsla fyrir hinn unga svein, þegar hann eltist að gera sér þess grein að hafa misst báða foreldra sina svo fljótt og sviplega og hafa aldrei séð þau. Margur hefur mátt þola að missa annað foreldrið snemma, en hitt er fátiðara sem betur fer. Afi og amma komu þarna vissulega í foreldrastað, og því gleymdi Guðbjörn aldrei. Hann þakkaði það líka með þvi að þjóna þeim og þeirra fólki alla tíð eftir beztu getu. Guðbjörn ól allan sinn aldur á Arnarhóli, en var til sjós á ver- tíðum í Vestmannaeyjum lengst af, en kom jafnan heim á vorin. Hann kunni helzt ekki við sig annars staðar. Við þennan reit hafði hann bundið ástfóstri og þar vildi hann una ævi sinnar daga. — Það er fagurt á Arnarhóli. Fjallasýnin er fögur. „Við austur gnæfir sú hin mikla mynd" (J. Hallgr.) og i suðri blöstu Eyjarn- ar „sem safirar greyptir í silfur- hring" (E. Ben), en þær voru líka hluti af lífi Guðbjörns. Og frá Arnarhóli blasir sjórinn við, sem hann þekkti svo vel, stundum lognkyrr og fagur en sælöðrið lika oft mikilfenglegt, þegar ægis- dætur eru í ham. Þegar Guðbjörn var á vertið í Eyjum reri hann lengst af hjá Framhald á bls. 25

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.