Morgunblaðið - 05.02.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.02.1977, Blaðsíða 30
30 iiaTSilSTBiieiiiMlSTE^ ALLT MEÐ EIMSKIP A NÆSTUNNI FERMA SKIP VOR TIL ÍSLANDS SEM HÉR SEGIR: ANTWERPEN: Úðafoss 9. febrúar Grundarfoss 14. febrúar Tungufoss 2 1. febrúar. Úðafoss 28. febrúar. ROTTERDAM: Úðafoss 8. febrúar Grundarfoss 1 5. febrúar Tungufoss 22. febrúar Úðafoss 1. marz FELIXSTOWE: Mánafoss 8. febrúar Dettifoss 1 5. febrúar Mánafoss 22. febrúar Dettifoss 1. marz Mánafoss 8. marz. HAMBORG: Mánafoss 10. febrúar Dettifoss 1 7. febrúar Mánafoss 24. febrúar Dettifoss 3. marz. Mánafoss 10. marz. jji PORTSMOUTH: Goðafoss 9. febrúar Bakkafoss 14 febrúar Selfoss 1 6. febrúar Brúarfoss 1. marz Bakkafoss 7. marz HALIFAX: Brúarfoss 4. marz KAUPMANNAHÖFN: Múlafoss 8. febrúar írafoss 1 5. febrúar Múlafoss 22. febrúar írafoss 1. marz Múlafoss 8. marz. GAUTABORG: Múlafoss 9. febrúar írafoss 1 6. febrúar Múlafoss 23. febrúar (rafoss 2. marz Múlafoss 9. marz HELSINGBORG: Fjallfoss 7. febrúar Álafoss 21. febrúar Álafoss 7. marz. KRISTIANSAND: Fjallfoss 8. febrúar Álafoss 22. febrúar Álafoss 8 marz STAVANGER: Fjallfoss 9. febrúar Álafoss 23. febrúar Áiafoss 9. marz GDYNIA/GDANSK: Reykjafoss 25. febrúar VALKOM: Reykjafoss 22. febrúar VENTSPILS: Reykjafoss 24 febrúar WESTON POINT: Kljáfoss 1 5. febrúar Kljáfoss 1. marz. Reglubundnar |ferðir jhálfsmánaðarlega 1 frá: STAVANGErJ P KRISTIANSAND |0G i HELSINGBORG, ALLT MEÐ EIMSKIP MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1977 Ad geyma raf- magn í hellum Aö geyma rafmagn í hellum er algjört nýmæli, Fyrsta raf- orkuverið í heiminum, sem nýt- ir sllka tækni, verður væntan- lega tekið í notkun á þessu ári í nágrenni Bremen i Vestur- Þýskalandi. Hér er um að ræða það þekkta sjónarmið, að hag- kvæmni orkuvera byggist á því að notkun þeirra sé sem jöfn- ust, nálægt' mesta vélaafli þeirra. Þetta á jafnt við um vatnsorkuver sem varmaorku- ver. Slíkri jöfnun í álagi vélanna geta orkuverin ekki stjórnað nema að mjög litlu leyti, því það er raforkunotandinn einn sem ákveður hvernig hann not- ar sin rafmagnstæki — á hvaða tíma hann gerir það og hvenær hann notar þau með fullum af- köstum.Sem dæmi um þetta má nefna að kl. 11—12 eru flestar eldavélar í notkun og samtímis vélar á verkstæðum. Á tímabil- inu kl. 12—13 er þetta hins vegar að mestu tekið ur sam- bandi og álag á orkuverið minnkar. Annað dæmi má nefna um hitun húsa með raf- magni. í kuldakasti eru allir ofnar rafmagnskyntra húsa á fullu álagi, en slðan dettur það niður þegar hlýnar í veðri. Vélar orkuveranna þurfa að vera byggðar fyrir mesta álag, en þegar álagið minnkar renn- ur vatnið framhjá orkuverun- um, engum til gagns, en sem tapaðir fjármunir, sem að öðr- um kosti hefðu komið raf- magnsnotendum til góða i lækkuðu rafmagnsverði. Svipað má segja um varmaorkuverin, að öðru leyti en því að þar koma við sögu brennslu- og fjár- magnskotnaður mann- virkjanna. Til þess að bæta úr þessu hafa víða um lönd verið byggð- ar dælistöðvar, þar sem mögu- leg umframorka er notuð til að dæla vatni upp i vatnsgeyma f mikilli hæð, en síðan er fall- orka þess notuð til að snúa afl- vélum til raforkuframleiðslu á þeim timum sem raforkunotk- un er mest. Um tíma voru uppi vangaveltur hér á landi um að byggja slíka dælistöð fyrir botni Hvalfjarðar með vatns- geymi þar upp til fjalla. Var með því hugað til bættrar hag- nýtingar Sogsvirkjunarinnar. Viða erlendis hafa verið byggðar slíkar dælistöðvar, en þó er það oft mjög kostnaðar- samt, og i mörgum tilvikum ógerlegt af landfræðiegum ástæðum. Þannig var það í Norður-Þýskalandi, og því lét rafveitan þar kanna möguleika á notkun þrýstiloftsþjöppunar og geymslu I stað vatns. Hann- anir sem gerðar voru um slíkt nýmæli, bentu eindregið til fjárhagslegrar hagkvæmni, og var fyrirtækinu Brown Boveri i Mannheim falin fullnaðarhönn- un og framkvæmd. Málin standa nú þannig að gert er ráð fyrir að hægt verði að taka stöð- ina í notkun fyrir lok þessa árs. 1 aðalþáttum er fyrirkomu- lagið þannig, að þegar orkuver á svæðinu eru aflögufær — hafa afgangsorku — senda þau raforku til stöðvarinnar. Raf- magnsvélar hennar knýja þrýstiloftshverfla, sem dæla loftinu inn á geyma, sem i þessu tilviki eru hellar og jarð- göng. Síðar, þegar þörf er á aukinni raforku á tímum mesta álags, er þessu geymda þrýsti- lofti hleypt inn á þrýstilofts- hverflana, sem snúa rafölum sem framleíða raforku. Stærð þessarar stöðvar er 290 MW., en til samanburðar má geta þess að stærsta orkuver á íslandi, Búrfell, er 210 MW. Hér er ekki unnt að lýsa stöð- inni nánar, en þeim sem áhuga hafa skal bent á tímaritið En- ergy International frá júni 1975. Sparnaður í notkun raforku? í kjölfar olíuhækkana undan- farinna ára, hefur víða um lönd verið hafinn mikill áróður fyrir sparnaði í notkun raforku. Með- al annars má geta þess, að í dönskum blöðum ber mikið á slíkum áróðrí og dönsk yfirvöld hafa skipað nefndir og veitt ríf- legar fjárhæðir til þess að örva sparnað á þessu sviði. Svipaða sögu má segja frá öðrum lönd- um— en hver er svo árangur- inn? Hann hefur orðið þveröfug- ur. Raforkunotkunin hefur ekki minnkað — heldur aukist. Á meðfylgjandi töflu má sjá þessa aukningu í nokkrum löndum Evrópu á fyrri helm- ingi ársins 1976, miðað við sama tíma árið 1975: Danmörk 11,5% írland 8,8% Þýskaland 8,1% ítalia 8,0% Belgia 7,6% Holland 7,4% Frakkland 7,1% og Luxemborg 4,6% Stjórnarstöð raforkukerfa Þegar við hins vegar komum hingað heim, eru málin nokkuð sérstæð, þvi Álverksmiðjan skiptir þar sköpum með raf- orkunotkun, sem er nær helm- ingar af allri raforkufram- leiðslu i landinu. Ef verk- smiðjan er meðtalin er aukn- ingin á þessu timabili aðeins tæplega 1,2% á öllu landinu. Ef við hins vegar sleppum verk- Air.Flow 400 RL !<g'$ec, J ~ ~ ~Ti - J 400;Kg/sec; ^SIoiage 50-75 oar^ Miðlunar-raforkuver starfrækt með þrýstilofti Veiðisvæðin við suðurskautið (Sjá: Rússland og fiskurinn) ORKA & TÆKNI eftir VALGARÐ THORODDSEN smiðjunni með öllu úr dæminu, er aukningin 13,2%. Þetta er hin alm. aukning i landinu, en á sama tima hefur orðið veruleg- ur samdráttur í álframleiðslu. Kjarnorkuver á hafi úti Bandarískt rafveitufyrirtæki, The Public Service Electic and Gas Comp. í New Jersey, hefur pantað 4 kjarnorkuver, sem byggja skal og starfrækja um 4 km undan austurströnd Banda- ríkjanna. Það er fyrirtæki í eigu Westinghouse, sem mun reisa þessi sérstæðu orkuver. Fyrsta orkuverið verður tek- ið í notkun árið 1984, annað 1986 en tvö hin síðustu árið 1990. Ókeypis rafmagn Lengi hafa Grikkir og Tyrkir elt grátt silfur saman á eyjunni Kýpur. Þeir lifa þar að mestu aðskildir hvorir á sínu svæði, en markalínurnar flytjast til eftir því hvernig viðrar í stjórn- málunum. Ein af stærstu raf- stöðvunum var til skamms tíma á griska hlutanum, og hún framleiddi rafmagn jafnt fyrir Tyrki sem Grikki. Svo slettist, sem oftar, upp á vináttuna, og Tyrkir neituðu að borga hið háa rafmagnsverð, sem Grikkir settu upp. Þeir ráku grísku rukkarana burt og griska raf- veitan lagði ekki í þá áhættu að loka fyrir rafmagnið. Þar við sat, þegar siðast til fréttist. Tyrkir fá ókeypis rafmagn. Hér á okkar norðlægu slóðum hafa lengi staðið erjur milli landshluta i raforkumálum. Hvað um Norðlendinga, að af- loknum Kröflu- og Laxárundr- um og tilkomu Hundsins að sunnan? Væri ráð að Norðlend- ingar grettu sig ærlega framaní sunnlenska rukkara? Ný orkulind Noregs — úran Aðalorkulindir Noregs hafa til skamms tíma verið fallvötn landsins. Vatnsaflsvirkjanir þar, sem framleitt gátu mjög ódýra raforku, lögðu grundvöll- inn að stóriðju á ýmsum svið- um, en auk almennra þarfa var og er orkan notuð i ríkum mæli til upphitunar húsa. Aðrar orkulindir höfðu ekki fundist I Noregi, að öðru leyti en þvi að á Svalbarða hafa um langan tima verið unnin kol, þó áður fyrr oft við fjárhagslega óhagstæð skilyrði. Svo sem kunnugt er hefur landinu þó á siðustu árum áskotnast ný orkulind í formi olíu og gastegunda á land- grunni sinu, en nú benda mikl- ar líkur til þess, að enn bætist því ný orkutegund i formi úr- ans. Norskt fyrirtæki, Arctic Exploration, hefur nýlega sent norska iðnaðarráðuneytinu skýrslur um leit þess á Sval- barða, að verðmætum málmum og öðrum jarðefnum. í skýrsl- unni kemur fram að fundist hefur efnið úran, en svo sem kunnugt er, er það orkugjafi við kjarnorkuver. Fyrirtækið hefur sent efnið til könnunar og greiningar á rannsókna- stofnanir í 3 löndum, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi, og mun niðurstaðan vera jákvæð. Áður, árið 1950, hafði Norsk Polarinstitutt kannað þetta svæði, en engin verðmæt efni fundið. Nú er unnið að þvi að mynda félagsskap til að framkvæma reynsluboranir á svæðinu til að kanna nánar magn úransins. Áætlað er að þær boranir muni kosta jafngildi um 70—100 milljóna ísl. kr. Auðæfi Noregs undan strönd- um þess og á hafi úti skapa þó viss vandamál. Hér er um að Framhald ábls. 25.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.