Morgunblaðið - 05.02.1977, Page 37

Morgunblaðið - 05.02.1977, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. FEBRUAR 1977 37 .1) Wa VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10 — 11 FRÁ MÁNUDEGI M'MKTTFK'Utt'u ÍH -------------------- -------------------------------------------- yfir saltbornar götur safnast þessi asfaltkvoða undir skósólana og gerir þá hála. Og þegar komið er heim, sitja svartir blettir eftir á tröppum húsanna. Og margar húsmæður hafa orðið fyrir því óhappi að fá svarta bletti á gólf- teppi, ef ekki hefur verið gætt þess að fara úr útiskóm áður en inn er komið. Hinn mesti óþrifnaður stafar því af saltaustri á malbikaðar götur bæði að þvl er snertir bif- reiðar, gangandi fólk og heimili. 6) Úrgangssalti er ekið á vetrum úr verstöðvum víða úti á landi. Sá akstur hlýtur að kosta mikið auk þess saltdreifingar- kerfis sem hér er haldið uppi. 7) Ég er á þvl að saltaustur á götur hljóti að vera verri og dýr- ara úrræði til að halda hálum götum I ökufæru ástandi þegar allt kemur til alls, heldur en notkun snjónagla. Salt skemmir götur veldur ryði á bllum gerir hjólbarða hála, veldur óþrifum. Snjónegldir hjólbarðar skemma götur en á þeim má komast áfram I allri hálku og þeir veita ómetan- legt öryggi á hálum vegum. Þeir valda engum hliðarskemmdum eins og saltið. Veit ég að vísu að öðruvísi og með meiri varkárni verður að aka á negldum hjólbörðum en á auð- um vegum. En ég tel, að kostir snjónagla á vetrum taki langt fram þeim kostum, sem saltaustur býður upp á, enda aldrei hægt að saltbera nema lítinn hluta gatna. Ef velja ætti um annaðhvort saltburð eða snjónagla tel ég tvlmælalaust að velja ætti snjó- naglana. Þessu til áréttingar mætti einnig minna á álit og margar yfirlýsingar strætisvagnastjóra I þessu máli. Þeir hafa mikla reynslu I vetrarakstri og ættu að vita hvað þeir vilja. En varnir gegn slysum vegna hálku er þó aðalatriði I um- ferðinni. Þau ráð sem best reynast til að forðast slys, má ekki vanrækja, jafnvel þótt kosti tals- verða fjármuni. Ef banna ætti notkun snjónegldra hjólbarða teldi ég það stórt skref aftur á bak I slysavarnamálum. Ingvar Agnarsson“ Að loknu þessu bréfi tökum við upp annað mál sem nú er ofarlega á baugi eða a.m.k. tengt þvl, nefnilega mjólkursölumálið. Er það varðandi umbúðir og meðferð á varningi frá Mjólkusamsölunni: • Engar umbúðir? Fr. eða hr. Velvakandi. Við erum hérna tvær hús- mæður (m. meiru), sem getum ekki orða bundist. Hvar er Heil- brigðiseftirlitið I Reykjavlk? Skiptir það sér ekki af mjólkur- málinu? Þarf Mjólkursamsalan virki- lega ekki að senda slnar vörur innpakkaðar i verslanir? Eiga kaupmenn virkilega að pakka skyrinu innan um kjötfars o.fl) Er þetta nú ekki afturför I hrein- lætinu? Þetta höfum við séð gert hérna I verslun og vildum endi- lega fá úr þvi skorið hvort þetta er meiningin I framtíðinni. Við höfum ekki séð aðra eins afturför og erum (eins og sjá má) að springa úr hneykslun. Er ekki lágmark að Mjólkur- samsalan sendi sínar vörur pakk- aðar á markaðinn? NB Við erum ekki I þeim hópi sem var sagt upp I mjólkurbúðunum, heldur einungis viljum ekki kaupa kjötfars með skyri I og öfugt. Virðingarfyllst, Tvær húsmæður" Þessir hringdu . . . % Ranglega innheimt Farþegi með Dalarútunni: — Mig langar að greina frá því, að ég fór einu sinni sem oftar með Dalarútunni og ætlaði i Búðardal. Fargjald er tvenns kon- ar, kr. 2.160 — ef ekið er um Heydal — en 1.800 kr. ef farin er Brattabrekka. Þegar ég var á ferð var innheimt hærra fargjaldið vegna þess að útlit var fyrir að ekki yrði Brattabrekka fær, en svo var hún farin þegar til kom. t Búðardal var þess farið á leit við bílstjórann að hann endurgreiddi mismuninn, en það vildi hann ekki gera. Mig langar til að fá skýringu forráðamanna Vest- fjarðaleiðar á þessu, hvort hér er um einhvern misskilning að ræða. SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á Skákþingi Sovétríkjanna I fyrra kom þessi staða upp I viður- eign Guljkos og Grigorjans, sem hafði svart og átti leik. Eins og sjá má er svarta drottningin iokuð inni, t.d. 29. ... Dc4 30. b3. Grigorjan fann þó snjalla leið til að bjarga sér út úr ógöngunuum: % Stjórnirnar standi saman Kona I f jölbýlishúsi: — Það var varðandi skrif sið- an um daginn frá einhverri konu sem býr I fjölbýlishúsi, en hún var að kvarta yfir því að ekki væru íbúum fjölbýlishúsa kynnt lög um þau og einhver óeining væri innan hennar húss og erfið- leikar með greiðslur. Ég vil benda henni á að snúa sér til stjórnar fjölbýlishússins, stigagangsins, það er hennar mál að leysa úr svona vanda og ég get nefnt sem dæmi að I okkar blokk hér eru engar skuldir og húsfélagið kom út með á 2. milljón króna I gróða á s.l. ári. Og ef fólkið hér skuldar meira en tvo reikninga þá er það sent lögfræðingi til innheimtu. Sem dæmi um hagsýni stjórnar- innar hér vil ég lika nefna að hún lét setja upp sérstaka sparnaðar- krana og minnkaði þá notkun heita vatnsins úr 81 tonni niður I 70 tonn. Það er lika gert við fljótt og vel ef eitthvað bilar, en ég held að konan sem skrifaði hér um daginn ætti að leita til sinnar stjórnar með vandamálin, sam- starf og samheldni hverrar hús- félagsstjórnar verður að vera mikil og góð samvinna milli allra I hverjum stigagangi. HÖGNI HREKKVÍSI Upp með hendurnar! ■ i £ ■ ■ 4 ■ ■ m ■ ■ B A pf 3 Uj i B B *■ ■ ■ H ■ ■ DRATTHAGI BLYANTURINN Gisting á sveitaheimilum. Flugleiðir h.f. hafa á undanförnum árum annast fyrirgreiðslu vegna erlendra ferðamanna, sem óskað hafa eftir dvöl á íslenzkum sveitaheimil- um í sumarleyfum sínum. Þetta fyrirkomulag hefur reynst báðum aðilum mjög vel og er nú orðin þörf á aukinni gistingu Þeir bændur sem hefðu áhuga á að taka á móti ferðamönnum eru beðnir að snúa sér til Harald- ar Jóhannssonar, Markaðsdeild Flugleiða h.f., sem veita mun allar nánari upplýsingar. Flugleidir h. f. Sími 2 7800. Trjáklippingar Nú er rétti tíminn að huga að klippingu trjáa og runna. Látið fagmenn vinna verkið. Pantanir teknar í síma 86340 blómouol Gróðurhúsiö v/Sigtun simi skrúðgarðadeild. 29. ... Bxg4! 30. Rxb4 (Eftir 30. hxg4 Dxg4, á hvltur enga viðun- andi vörn gegn hótuninni 31. ... Hh3 mát) Hxh3+ 31. Kgl Bxe2 32. Rxe2 cxb4 33. Hb3 IIe8 og hvítur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.