Morgunblaðið - 08.02.1977, Side 1

Morgunblaðið - 08.02.1977, Side 1
48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 29. tbli 64. árg. ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Evensen spurdur um Hávik Öslí. 7. febrúar. NTB. NORSKA stjórnin ræddi f dag ýmsar hliðar njósnamálsins og bað Jens Evensen hafréttarráð- herra að gera grein fyrir um- mælum sfnum um Gunvor Galtung Haavik. Evensen hefur sagt að hann hafi látið flytja hana úr laga- deild utanrikisráðuneytisins 1961. Hingað til hefur Evensen hvorki staðfest né borið til baka að ástæðan hefði verið grunur um að Gunvor Galtung Haavik væri hættuleg öryggi. Bretar semja um fisk við Rússa fyrir EBE Aðmírál ætlað starfið í CIA Washingltm. 7. fehrúar Heuier CARTER forseti ætlar að tilnefna Stansfield Turner aðmírál, sem hefur verið yfirmaður flota NATO í Suður- Evrópu síðan í ágúst 1974, í stöðu yfirmanns leyniþjón- ustunnar CIA að því er tilkynnt var í Hvíta húsinu f dag. Turner aðmíráll var bekkjarbróðir Carters forseta í sjóliðsforingjaskólanum í Annapolis og var efstur þegar hann útskrifaðist þaðan 1946. Hann hefur verið forstöðu- maður flotaskólans í Newport, Rhode Island, og starfað í Pentagon. Jody Powell blaðafulltrúi sagði að Carter forseti teldi Turner aðmírál framúrskarandi hæfan í starfið þar sem hann hefði víð- tæka fræðilega og hernaðark'ga reynslu. Powell sagði að Carter forseti hefði ekki þekkt Turner aðmírál i sjóliðsforingjaskólanum og minntist þess ekki að hafa hitt hann þar. „Hann skaraði svo langt fram Framhald á bls. 47 London, 7. febrúar Reuter. EFNAHAGSBANDLAGIÐ tilkynnti Rússum f dag að það væri reiðubúið að hefja samn- ingaviðræður við þá fijótlega um samning um gagnkvæm fiskveiði- réttindi frá og með næstu mánaðarmótum f hinni nýju 200 mflna fiskveiðilögsögu banda- lagslandanna og fyrirhugaðri 200 mflna fiskveiðilögsögu Rússa. Fastanefnd EBE ákvað að fela Bretum að sjá um viðræðurnar og brezka utanrfkisráðuneytið skýrði Rússum frá ákvörðuninni f kvöld. Orðsending Breta er svar við tilboði Rússa um að semja við EBE fyrir milligöngu Breta sem eru um þessar mundir f forsæti ráðherranefndar EBE. Tilboð Rússa olli nokkrum áhyggjum i Brússel þar sem með því gengu þeir fram hjá fram- kvæmdanefndinni sem sér um samninga við ríki utan bandalags- ins. í svari EBE segir að banda- lagið fagni samningaviðræðum Salisbury, 7. febrúar. AP. Reuter. SVARTIR skæruliöar vopnaðir vélbyssum skutu fjóra hvíta kaþólska presta og þrjár hvítar nunnur til bana í trúboðsstöðinni Masumi um 55 km norðaustur af Salisbury f gær. Hvítur maður sem komst lífs af, séra Dunstant Myerscough, sagði fréttamönnum í dag að skæruliðarnir hefðu deilt um það innbyrðis hverjir ættu að skjóta. við Rússa svo framarlega sem þær fari fram i Brússel. Fulltrúar í framkvæmdanefnd EBE fá sæti i samninganefndinni sem verður undir forystu Breta. í orðsendingu Breta verða Rússar minntir á að þeir verði að samþykkja þær reglur sem tog- arar þeirra verði að hlíta i nýju lögsögunni. Austur-Þjóðverjar og Pólverjar hafa sagt Bretum að þeir séu fúsir til þess og hafi sent fyrirmæli til togaraskipstjóra sinna. EBE hefur fram til þessa leyft Framhald á bls. 47 Carter forseti ræðir við Stansfield Turner aðmfrál sem hann hefur tilnefnt f stöðu yfirmanns leyniþjðnustunnar CIA. Alexander Ginzburg Stjórn Carters lýsir ugg vegna Ginzburg-málsins Washington. 7 febrúar. Reuter. BANDARlSKA stjórnin lýsti f dag ugg sfnum vegna máls sovézka andófsmannsins Alex- anders Ginzburg og ftrekaði að hún mundi ekki þegja vfir áreitni f garð annarra andófsmanna f Austur-Evrópu. Utanrfkisráðuneytið f Washing- ton sagði f þriðju slíkri yfirlýs- ingu sinni sfðan Carter-stjórnin tók við störfum að sovézkum em- bættismönnum hefði verið skýrt frá afstöðu Bandarfkjamanna. Öryggislögreglan handtók Ginz- burg f Moskvu á fimmtudag. Hann er féfagi f samtökum sem sovézkir andófsmenn mynduðu til að fylgjast með þvf hvort sovézka stjórnin hefði f heiðri mannréttindaákvæði Ilelsinki- sáttmálans 1975 og forstöðumað- ur sjóðs sem Nóbelsskáldið Alex- ander Solzhenitsyn stofnaði til hjálpar fangelsuðum andófs- mönnum og f jölskyldum þeirra. Sovézk yfirvöld hafa ekki skýrt frá ákærunum gegn Ginzburg en Framhald á bls. 47 Þrir skæruliðanna skutu meira en 100 kúlum á trúboðana i árás- inni og lögreglan kveðst sjá á sár- unum að skæruliðarnir hafi hald- ið áfram að skjóta þegar trú- boðarnir voru fallnir. Myers- cough stóð í miðjum hópnum og varð ekki fyrir skoti. Einn skæruliðanna bað áttunda trúboðanna, nunnu, að yfirgefa herbergi. Hún datt þegar hann ýtti henni út um dyrnar og sagði honum að hún væri með liðagigt og sein í hreyfingum. Hann skildi hana eftir. „Seinna heyrði ég skothríðina,“ sagði hún. Páll páfi VI sendi Patrick Chakaipa, erkibiskup i Salisbury, samúðarskeyti þar sem hann læt- ur i ljós „djúpa hryggð“ sína og segir að hann „biðji fyrir þvi að friður og réttlæti komist aftur á á öllum svæðum sem þessir viður- styggilegu glæpir þjaki". Þeir sem biðu bana voru jesúítatrúboðarnir Christopher Shephard-Smith, Martin Thomas og John Conway frá County Kerry á írlandi, þýzku nunnurnar systir Epiphania, systir Magdaea og systir Czeslaus og enska nunnan systir Joseph, allar úr Dóm- inikanareglunni. Talsmaður jesúíta sagði að bróðir John hefði starfað í Rhódesiu í 23 ár og svo að segja byggt upp trúboðsstöðina af eigin rammleik. Engin sýnileg ástæða virtist búa á bak við árásina á trúboðs- stöðina þar sem trúboðarnir starf- ræktu barna - og unglingskóla, félagsmiðstöð, sjúkrahús og búgarði. Framhald á bls. 47 Cuthbert Chiveso, 68 ára kennari við trúboðsstöðina (annar frá vinstri) grætur er lfk trúboðanna eru fjarlægð. Til hægri er séra Dunstan Myerscough, sem lifði af f jöldamorðin. Trúboðsstöðin sem ráðizt var á. Trúboðarskotnir með köldu blóði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.