Morgunblaðið - 08.02.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.02.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 1977 3 Á róluvelli Snjóflóð féll á raflínuna í önundarfirði SNJÓFLÓÐ féll um helgina á raf- Ifnuna milli Flateyrar I Önundar- firði og Suðureyrar I Súganda- firði skammt frá Flateyri. Voru Súgfirðingar rafmagnslausir um helgina og enn I gær af þessum sökum. Flóðið fór á raflfnuna og setti hana niður á 5 staura bili. Þar sem skriðan féll er mjög erf- itt að ná henni upp og sækist það verk fremur seint að sögn frétta- ritara Mbl. á Flateyri, Jóns Gunnars Stefánssonar. Flóðið fór ekki á önnur mannvirki. Þá féll skriða einnig á Selabóls- urð inn undir Selabóli. Snjóflóð bar eru árvisst fyrirbæri og hefur þar hlaupið fram flest árin. Þá kvað Jón hættu á því að flóð hlypi fram við Sólbakka, þar sem mikill snjór væri kominn I fjallið fyrir ofan Flateyri. Þar hafa oft fallið flóð og hefur farið inn I kirkju- garð Flateyringa. Jón Gunnar kvað byggðina hafa þokazt þær þessum stað undanfarin ár og er nú svo komið aó efsta húsið í þorpinu er ekki alllangt frá þeim stað, sem flóðin hafa fallið. Menn óttast þetta þó ekki þar sem aldrei hefur veriö verulegur kraftur I þessum flóðum og eru húsin að auki sérlega styrkt. Fyrir fjórum Framhald á bls. 47 Misjöfn færð um landið FÆRÐ er nú vfða slæm á landinu og ófærð á Norðausturlandi. Sam- kvæmt upplýsingum Vegagerðar rfkisins er þó greiðfært um Suð- vesturland og Vesturland, jafn- framt þvf sem færð er góð um Suðurland og allt austur að Lóni. Um Bröttubrekku er aðeins fært stórum bílum og færð hefur þyngzt um Svinadal og Gilsfjörð. Fjármálaráðherra: Gagnrýnir blaðamenn fyrir þekk- ingarskort 1 RÆÐU sinni á Alþingi f gær um skattafrumvarpið fjallaði Matthfas Á. Mathiesen, fjár- málaráðherra, um skattum- ræðurnar sk sumar og haust og gagnrýndi blaðamenn og starfsmenn fjölmiðla fyrir þekkingarleysi á þeim málum, sem þeir hefðu fjallað um opinberlega. Ráðherrann sagði, að umræður þessar hefðu verið hvassar en gagn- rýnin hefði verið einstaklings- bundin og hefði þetta komið berlega f Ijós f sjónvarpsþætti sl. haust. Þá hefði svo virzt sem blaðamenn og starfsmenn fjölmiðla hefði skort grund- valiarþekkingu til þess að geta borið fram markverðar spurn- ingar, sem varpað gætu ljósi á þau mál, sem um var f jallað. Er stórum bílum fært í Reykhóla- sveit. Út frá Patreksfirði var i gær verið að moka veginn til Bildudals og stórum bílum var fært suður á Garðaströnd. í gær var unnið að því að moka snjó af veginum milli Þingeyrar og ísa- fjarðar um Breiðdalsheiði. Þá var fært frá Isafirði til Bolungarvíkur og ennfremur inn i Djúp. I gær var greiðfært um Holta- vörðuheiði allt norður til Hólma- vikur og í dag er ráðgert að moka af veginum norður á Dranganes. Þá er greiðfært um flesta aðal- vegi i Húnavatnssýslu, en aðeins stórum bílum var fært um Vatns- skarð. Þar er fyrirhugað að ryðja veginn I dag. í gær vár unnið að mokstri á veginum til Siglufjarðar. Þar er allmikill snjór og hafði vegurinn að mestu verió ruddur i gær. Þó var mikið verk eftir, sem fólst í því að jafna ruðninga. Öxnadals- heiði verður rudd í dag, en i gær var vegurinn til Ólafsfjarðar fær og sömuleiðis frá Akureyri til Húsavíkur, en báðar þessar leiðir voru ruddar i gær. Þá var fært frá Húsavik til Mývatns. í gær var verið að ryðja veginn fyrir Tjörnes og i Kelduhverfi. Fært var til Raufarhafnar, en flestir vegir á Norðausturlandi þar fyrir austan voru ófærir. Út frá Egilsstöðum var I gær mokað af veginum út að Fossvöll- um. Stórum bílum var fært um Fellin I Fljótsdal, en aðrir vegir voru ekki færir á Héraði. Þá átti að moka Fagradal i gær, en vegur- inn þar lokaðist I fyrradag. Þá var í gær fært suður með fjörðum, að Lónsheiði. Hún var lokuð en ráð- gert er að opna hana i dag. Úm suðurströndina allt til Reykjavík- ur var greiðfært. „Ég held, að þetta hafi fengið meira á fólkið hér heima fyrir en á okkur Ingibjörgu, dóttur mlna, þvf að það er ekki hægt að segja að við höfum lent I neinum hrakningum," sagði Sigurþór Hjörleifsson, Messu- holti við Sauðárkrók. I samtali við Morgunblaðið I gær en hann varð fyrir því óhappi að festa snjósleða sinn þar sem hann var við eftirlitsstörf uppi á hálendingu ásamt 12 áragam- alli dóttur sinni. Þau feðgin héldu þá fótgangandi til byggða, höfðu gengið I um 12 klst. og áttu aðeins 700 metra ófarna til næsta býiis þegar leítarmenn I þyrlu flugu fram á „Fékk meira á heimafólkið en okkur” —segir Sigurþór Hjörleifsson, sem ásamt dóttur sinni v arð að yfirgefa sn j ósleða á hálendinu og ganga til by ggða þau. Hannes Hafstein, fram- kvæmdastjóri Slysavarna- félagsins, sagði I samtali við Morgunblaðið, að þarna hefði getað farið verr ef ekki hefðu verið um að ræða þaulvanan ferðamann og gagnkunnugan á þessum slóðum eins og Sigurð- ur væri. Þau Sigurþór og Ingibjörg dóttir hans fóru frá Sauðár- króki upp úr hádegi á laugar- dag á snjósleða i þeim erindum að llta eftir tilraunalínu frá Orkustofnun, sem komið hefur verið upp i Heiðarhaus í Haukagilsheiði, vestur af Mæli- fellshnúk. „Þetta er lína sem strengd hefur verið milli tveggja staura og siðan er mæl- ir á öðrum endanum sem sýnir álagið sem verður á linunni. Þetta er liður I athugun vegna hugsanlegrar hálendislínu og er þó nokkuð af þessu, t.d. hér i Austurdalnum fyrir austan okkur og I Eyjafirði," tjáði Sigurþór Morgunblaðinu. Vanalega er farið sem leið liggur upp Mælifellsdal en vegna þess hve snjólétt var valdi Sigurþór að fara upp á Goðdalsfjall, enda þótt það sé töluvert lengri leið. „Við urðum fyrst fyrir þvi að missa sleðann niður i krapasvell en tókst að ná honum aftur upp,“ sagði Sigurþór ennfremur. „Siðan misstum við hann aftur niður og í þetta sinn ofan í gildrag, sem ég náði honum ekki aftur upp úr nema þá með mikilli fyrirhöfn. Það var skafhríð og illt að aka snjósleða við slíkar aðstæður, og þar sem ég var með dóttur mina með mér vildi ég ekki eyða tíma I það að reyna að ná sleðanum upp, heldur tók þann kostinn að fara fótgang- andi niður, m.a. vegna þess að ég var þegar þarna var komið búinn að vera miklu lengur en ég hafi ætlað mér. Ég átti hálft í hvoru von á því að það yrði farið að leita að okkur og ætlaði mér að reyna að komast til byggða áður en til þess kæmi. Það tókst þó ekki því að færið var býsna erfitt.“ Þegar þau Sigurþór og dóttir hans komu ekki fram á réttum tima, fóru tveir menn úr björg- unarsveit SVFÍ á Sauóarkróki árla á sunnudagsmorgun og fundu þeir fljótlega slóð þeirra. Vegna veðurútlits sneru þeir við aftur og höfðu samband við Braga Skúlason, formann sveitarinnar, sem þá fór þegar með allan búnað til leitar á snjóbíl og þremur snjósleðum. Bill var skilinn eftir við Mæli- fell sem fjarskiptamiðstöð en síðan var slóð Sigurþórs fylgt inn á hálendið. Undir hádegið óskaði Bragi eftir þvi við aðal- stöðvar SVFÍ að útveguð yrði flugvél til leitar og varð það úr að Guðbrandur Jónsson, flug- maður á þyrlunni TF-AGN, var beðinn að fara til leitar. Það dróst lítið eitt að þyrlan kæmist af stað en i millitíðinni bárust þær fregnir ofan af hálendinu að leitarmenn hefðu ekið fram á snjósleiða Sigurþórs mann- lausan. Leitarmenn gátu rakið slóðina og sáu að þau feðgin höfðu stefnt niður Mælifells- dalinn Að þvi er Sigurþór sagði höfðu þau feðgin verið á gangi um 12 klst, og áttu aðeins um 700 metra að næsta býli þegar þyrlan flaug fram á þau. „Engu að siður höfðu leitarmenn lagt á sig mikið starf okkar vegna,“ sagði hann, „og þeir náðu sleðanum minum upp og komu honum til byggða. Þetta eru allt félagar minir úr björgunar- sveitinni. Stelpan bar sig vel eftir gönguna og fór i skólann i dag. Hún var auðvitað þreytt eftir gönguna, en hún er þegar byrjuð að ferðast, þó að ekki sé hún nú vön svona álagi. Ég er hins vegar vanur ferðamaður og er oft á ferli á þessum slóðum. Leiðin sem við völdum til byggða er hin beinasta og öruggasta, og ég valdi hana með tilliti til skyggnisins, þvi að ég gjörþekki hana. Það er að visu styttri leið til eða niður í Gil- hagann en þar eru torfærur, Framhald á bls. 47 DRUPA77 Dusseldorf 3.-16. Juni 1977 Það er aðalsmerki góðra fagmanna að fylgjast með og tileinka sér nýjungar í sinni grein. Nú gefst aðilum prentiðnaðarins einstakt tækifæri til að sjá hvert stefnir I þróun tækja, efnis og aðferða, með þvi að sækja heim lífæð prentiðnaðarins DRUPA Notfærið ykkur reynslu okkar í skipulagningu ferða á sýningar erlendis. Pantið tímanlega því gistirými er takmarkað AUKIN ÞEKKING • BETRI VINNA • AUKIN VIÐSKIPTI Feröamiöstöóin hf. Aöalstræti 9 Reykjavik simi 11255

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.