Morgunblaðið - 08.02.1977, Qupperneq 12
12
MORdUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAUUR 8. FEBRÚAR 1977
SMÍÐI semcntsferjunnar nýju
er nú vel á veg kominn I Skipa-
smíðastöú Þorgeirs og Ellerts á
Akranesi. A ferjan að fara
niður I aprflmánuði næstkom-
andi. en þá verður eftir að
prufukeyra vélar ferjunnar,
setja i hana tvo sementstanka
úr gömlu ferjunni og ganga frá
ymsu smálegu. Þegar nýja ferj-
an verður komin í gagnið
verður allt sement flull laust
til Reykjavíkur, en sekkkjað
þar og pakkað.
Blaðamenn Morgunblaðsins
litu á diigunum við hjá Þorgeir
og Ellert á Akranesi og ræddu
viö Hallgrím Magnússon verk-
stjóra þar. Hann hefur verið
hjá fyrirtækinu síðan 1943. en
fyrirtækið var stofnað 1940. E'1
ferjan 33. af stærri skipum,
sem smíðuð hafa verið hjá
fyrirtækinu, en auk þess hefur
fvrirtækið smíðað fjiildann
allan af hátum undir 50 tonnum
að stærð. Við sp.vrjum Hallgrím
fyrst hvernig smiði ferjunnar
gangi.
— Eg held ntér sé óhætt að
segja að smiði ferjunnar hafi
gengiö mjiig vel, að vísu verður
hún það stór að hún rétt slepp-
ur inn i húsið, en það bjargast
alll saman. Hins vegar er ekki
eins bjart . framundan þegar
s,mí(>i ft-ijúnnar lýkur. þvi útlit
er fyrir verkefnaleysi. Að visu
er fyrirtækið með trébát i smíð-
um einnig, en smíði hans er
hugsud tíl að hafa eitthvað upp
á að hlaupa þegar lítið er að
gera í iiðrum verkefnum. En
er skipunum rennt beint inn i
slippinn, en einn kosturinn við
slippinn á Akranesi er að allt er
þar unnið á láréttu. Þar hafa
mest verið i viðgerð eða bygg-
ingu 6 skip á sama tima og að
sögn Hallgrims er mögulegt að
taka í slippinn 6 300 tonna skip.
Til að hægt sé að taka þangað
upp minni togaranna, um 450
tonna skip, vantar 2 spil á lyft-
una. Ekki er vitad hvort þessi
spil verða sett upp og einnig er
alls óvíst hvort eða hvenær
byggt verði við hús dráttar-
brautarinnar eins og ráðgert
hafði verid þar sem verkefna-
leysi virðist blasa við að sögn
Hallgríms. — Við vitum aö það
verður nóg að gera í vidgerdum
að vertiðinni lokinni, en eins
stórt fyrirtæki og þetta er orðið
verður að hafa örugg verkefni
allt árið um kring og því er ekki
nóg að stóla á vidgerðirnar,
segir Hallgrímur.
Margt hefur breytzt frá því
að hann hóf störf við slippinn á
Akranesi fyrir 24 árum, nú eru
t.d. flest skipin úr stáli, en áður
voru þau úr tré. — Þetta var
allt miklu persónulegra áður,
færri kallar, ekki nema 10, senv
unnu þá í slippnum og við
fylgdumst lengi með skipunum,
sem við byggðum, efti.r að þau
fóru frá okkur. T.d. man ég
eftir að fyrsta skipid sem var
smíðað hér var Sæbjörg, sem
gerð er út frá Vestmanna-
eyjum. Við fylgjumst eiginlega
með því skipi enn þann dag í
dag, enda sérstakt aflaskip,
Hallgrímur Magnússon i
sal þeim, sem notaður er
til að gera snið af hlutum
í skipin, sem byggð eru í
dráttarhrautinni.
I.jósm. frriðþjófur.
Svona lítur nýja sementsférjan út núna, en eftir um
tvo mánuði á að sjósetja skipið.
Séð framan á nýju
sementsferjuna, en enn
vantar framan á skipið
tvo geyma af fjórum.
með 150 manns í vinnu verður
að finna einhver meiri verkefni
þegar ferjunni sleppir, segir
Hallgrímur.
— Okkur þykir það blóðugt
þegar verið er að senda skip
utan til viðgerða og breytinga
þegar vel mætti vinna þessi
verkefni hér heima og sömu-
leiðis mætti smíða hér á landi
mun fleíri skip en nú er gert.
Síðastliðið haust var byggt yfir
Skírni hér í stöðinni og tók það
um mánuð, ætli það sé ekki
minna stopp, en hjá flestum
skipanna, sem fara utan til við-
geröa, segir Hallgrímur.
Slippurinn á Akranesi er eini
sinnar tegundar á Norður-
löndum að sögn Hallgríms og á
hann þar við lyftuna, sem lyftir
skipunum upp á braut, sem
skipin eru siðan dreginn eftir
inn í viðgerðarhúsið. Venjulega
bæði meðan skipið hét Sigur-
fari og var gert út héðan og eins
eftir að það kom til Vestmanna-
eyja og fékk nafnið Sæbjörg.
Þetta er i rauninni ágætt eins
og það er í dag, en var miklu
persónulegra hér áður fyrr,
bátarnir voru hluti af okkur,
segir Hallgrimur Magnússon að
lokum. —áij.
„ Verkefnaskortur
þegar smíði sements-
ferjunnar lýkur”
Ævar R. Kvaran:
Dularmögn
hugans
Harold Sherman. DULARMÖGN
HUGANS, þýðing: Ingólfur Árnason.
Útg: Skuggsjá, 1977.
Árið 193 7 var hinum heimsfræga
heimskautakönnuði Sir Hubert Wilkins
falið að gera út leiðangur fyrir sóvézku
ríkisstjórnina til að leita rússneskra
flugmanna. sem lagt höfðu upp í flug-
ferð frá Rússlandi. og skyldu fljúga án
viðkomu til Bandaríkjanna yfir Norður-
pólinn. Flugmönnunum hlekktist á og
voru taldir af Vitað var að þeir höfðu
orðið að nauðlenda flugvélinni, þegar
hún var 200 mflur fcá-Norð'urpólnum
Loftskeytatækni flugvélarinnar höfðu
taskazt og var nú sambandslaust við
hana Hugsanlegt var að flugmennirnir
væru á Iffi og í nauðum staddir í
ísauðninni. og var leiðangurinn því
gerður út og skyldi leggja upp frá New
York
Harold Sherman, höfundur ofan-
greindrar bókar, hafði kynnst Sir
Hubert Wilkins í City Club I New York,
þar sem þeir voru báðir meðlimir Sir
Hubert sagði H: rold frá ýmsu. sem
fyrir hann hafði borið á lífsleiðinni. en
ekki getað skýrt eða fundið lausn á
Sagðist hann vera sannfærður um að
..stórkostlegasta verkefnið sem mann-
kynið á fyrir höndum, er að rannsaka
sjálfan mannshugann
Þetta samtal leiddi til þess að þeim
Sir Hubert og Harold Sherman kom
saman um það að gera tilraunir með
hugsanaflutning Ákváðu þeir að
„mæla sér mót á hugsviðinu' meðan
leiðangurinn stæði þrisvar í viku á
nánar ákveðnum tímum
Hér er ekki rúm til að rekja þessar
tilraunir nánar, en aðeins skal vakin
athygli á þvi, að þegar tilraununum
lauk og samanburður var gerður á
dagbók Wilkins og þvi, sem Harold
Sherman hafði ritað niður kom í Ijós,
að af þeim hundruðum hugboða. sem
Sherman ritaði niður reyndust um 70
af hundraði vera rétt
Síðan þessar tilraunir fóru fram, en
þær voru skoðaðar brautryðjendastarf
á þeim dögum, hefur áhugi bæði leik-
manna og. vfsindamanna á þessum
efnum öllum sífellt aukizt Eins og við
höfum sjálf séð hér i sjónvarpinu okkar
er nú orðið algengt að gerðir séu
kynningarþættir I fjölmiðlum þar sem
lýst er margs konar fyrirbærum. sem
hafa verið sönnuð og staðfest svo að
óyggjandi er Þessi mál verða ekki
lengur afgreidd með axlaypptingum
eða fyrirlitningu ófróðra manna, sem
vaða i þeirri villu, að það sem þeir vita
ekki eða skilja geti ekki átt sér stað
Vísindastofnanir víða um heim gera nú
i sífellt vaxandi mæli tilraunir til
rannsókna á hinum ótrúlegu möguleik-
um mannsandans. Það má þvi segja.
að loksins sé farið að sinna rannsókn-
um þeim á mannshuganum, sem Sir
Hubert Wilkins kallaði „stórkostlegasta
verkefni mannkynsins" en Einar H
Kvaran skáld „Mikilvægasta málið í
heimi"
Ástæðan er augljós: Við erum farin
að gera okkur grein fyrir því, að við
getum ekki lengur fundið fullkomið
öryggi eða fullnægingu í veraldlegum
gæðum einum saman og það dylst
engum lengur að þessi fimm
skilningarvit okkar megna ekki að
skýra nema tiltölulega lítið af því, sem
fyrir okkur ber í þessum heimi. Enda
vita það allir. að mörg dýr hafa á
ýmsum sviðum miklu fullkomnari
skilningarvit en maðurinn Það er því í
meira lagi barnalegt, að halda, að
skynjun venjulegs manns veiti full-
komna mynd af raunveruleikanum.
Mikilvægi þessarar bráðskemmti-
legu bókar liggur ekki einungis í því,
að höfundur býr yfir óvenjulegum sál-
rænum hæfileikum, sem hafa haft um-
Iónkynning í Kópavogi — Iónkynning í
jjAnægjulegt að
vinna með þessu
unga f ólki * *
BYGGUNG — byggingarsam-
vinnufélag ungs fólks I
Kópavogi sendur nú f miklum
framkvæmdum I austasta hluta
Kópavogskaupstaðar. Þar er nú
verið að reisa tvö f jölbýlishús á
vegum félagsins, annað 8 hæða
með 48 fbúðum og hitt 3 hæða
með 12 fbúðum.
Bragi Mikaelsson er stjórnar-
formaður Byggungs og blm.
heimsótti hann á byggingar-
svæðinu við Engjahjalla. Bragi
rakti f nokkrum orðum upphaf
félagssins:
—Þetta félag var stofnað
hinn 18. júli 1974 og var strax
farið að íhuga hvernig standa
ætti að húsbyggingum fyrir
félagsmenn, og á árinu 1975
fengum við úthlutað lóðum hér
við Engjahjalla. í október sama
ár hófust framkvæmdir við
þetta 8 hæða hús, sem í eru 48
íbúðir — þriggja og fjögurra
herbergja, tvær fjögurra her-
bergja á hverri hæð og fjórar
þriggja herbergja.
Húsið teiknaði Kjartan
Sveinsson, arkitekt, og sam-
kvæmt visitölu þá er ráðgert að
kostnaður við húsið verði um
370 milljónir, sem eru 22 þús-
und kr. fyrir rúmmetrann, en
Bragi sagðist búast við að
heildarkostnaður við húsið yrði
ekki nema 337 milljónir kr. eða
20 þúsund kr. fyrir hvern rúm-
metra, og hugsanlega enn
lægri.
Sem dæmi má nefna að miðað
við áætlun nú i ársbyrjun er
ráðgert að 3 herbergja íbúð, 80
fermetra, kosti 6,4 milljónir
króna fullbúin, en öllum ibúð-
um verður skilað þannig. Fjög-
urra herbergja ibúð kostar 7,2
m. kr. fullbúin, skv. sömu áætl-
un.
—Þegar við hófum fram-
kvæmdir, sagði Bragi, var
kostnaður á rúmmetrann skv.
byggingarvisitölu ekki nema 14
þúsund kr. og því hefur þetta
hækkað mjög á byggingar-
Bragi Mikaelsson formaður Bygg-
ungs f Kópavogi og Árni Örnólfs-
son, skrifstofustjóri, fyrir framan
annað fjölbýlishúsið sem er að
rfsa við Efstahjalla. I.istaverkið á
húsveggnum gerði Sigurjón
Olafsson myndhöggvari.