Morgunblaðið - 08.02.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 1977
23
Sóknamýting aðeins 14% Hjá UBK
í tapleik við Fram
EINS og vænta mátti hafði Fram
jdgera yfirbnrði í leiknum gegn
“otnliðinu Breiðabliki. Lokatöl-
urnar urðu 16:6, eftir að staðan
hafði verið 7:1 í hálfleik. Ekki
v°ru gæði leiksins mikil eins og
sést vel á talningu, sem undir-
r'taður gerði að gamni sfnu á
sðknarlotum og nýtingu þeirra.
Hvort lið reyndi 43 sóknarlotur
f þeim gerði Fram 16 mörk en
Breiðablik aðeins 6 og er það 14%
?yHng, sem er herfilegt, en
örugglega ekki einsdæmi f
kvennahandknattieik hérlendis.
Framstúlkurnar höfðu mikla
yfirburði allt frá byrjun og aug-
ljóst var strax hvorum megin
sigurinn lenti, það var aðeins
spurning um það hversu stór
hann yrði. Og hann hefði orðið
ennþá stærri ef Framstúlkurnar
hefðu verið í stuði, en það voru
þær ekki í þessum leik. Sérstak-
lega voru þær slakar i seinni hálf-
leik.
Beztar í liði Fram voru Kolbrún
markvörður, Guðrfður Guðjóns-
dóttir, Jóhanna Halldórsdóttir og
Oddný Sigsteinsdóttir.
Mörk Fram: Oddný Sigsteins-
dóttir 7 (2 v), Guðríður Guðjóns-
dóttir 4, Jóhanna Halldórsdóttir
J, Kristín Orradóttir og Guðrún
Sveinsdóttir eitt mark hvor.
Mörk UBK: Alda Helgadóttir 2,
Heiða Gunnarsdóttir 2, Sigurborg
Daðadóttir og Árdís Björnsdóttir
eitt mark hvor.
Eysteinn Guðmundsson og Þor-
varður Björnsson dæmdu leikinn
vel.
— SS.
Armann kafsigldi lélegt lið KR
ármannsstulkurnar
sýndu sinn bezta leik f vetur þeg-
ar þær sigruðu KR 13:6 á sunnu-
naginn. Armann hafði yfirhönd-
'na frá byrjun og sigur liðsins var
s‘*t of stór. Ef Ármannsstúlkurn-
ar verða eins ákveðnar f leikjum
s>num gegn Fram og Val ættu
P*r vissulega möguleika á þvf að
hrækja sér f tvö stig f þeim leikj-
um.
Það verður þó að hafa í huga, að
KR liðið sýndi sáralitla mót-
sPyrnu í þessum leik, og ýmislegt
heppnaðist hjá Ármannsliðinu,
seni ekki hefði gerst á móti sterk-
ara íiði. En aðra hluti fram-
j^væmdu Ármannsstúlkurnar á
Þann hátt að erfitt var að stöðva
Þær, til dæmis hraðaupphlaup, en
Þau eru miklu betur útfærð hjá
Arnianni en öðrum íslenzkum
kvennaliðum. Sum þeirra reyna
slíkt reyndar aldrei.
KR skoraði fyrsta markið, en
síðan gerði Ármann fjögur mörk í
röð og þar með var sigurinn
tryggður. Staðan í hálfleik var 5:2
Ármanni í vil. í upphafi seinni
hálfleiksins var leikurinn einna
jafnastur. Um miðjan hálfleikinn
var staðan 8:5 en þá náði Ármann
góðum leikkafla og skoraði 5
mörk í röð, en á þessum sömu
mínútum var allt í ólagi hjá KR-
stúlkunum: Lokatölur leiksins
urðu sem fyrr segir 13:6.
Beztan leik í liði Ármanns átti
Guðrún Sigurþórsdóttir, sem er
ein okkar allra sterkasta hand-
knattleikkona um þessar mundir.
Skoraði hún nokkur mörk í upp-
hafi með neglingum í bláhornin
uppi og tóku KR-stúIkurnar þann
kostinn að taka hana úr umferð.
Einnig áttu þær Magnea Magnús-
dóttir markvörður, Anna
Gunnarsdóttir og Sigríður Rafns-
dóttir ágætan leik, og í heild var
liðið gott.
Það sama er ekki hægt að segja
um KR-liðið, sem sýndi hræðileg-
an leik. Hjördís Sigurjónsdóttir
bar af öðrum leikkonum.
Mörk Ármanns: Guðrún Sigur-
þórsdóttir 6 (1 v), Anna Gunnars-
dóttir 3, Sigriður Rafnsdóttir 2,
Sigríður Brynjólfsdóttir og Erna
Lúðvfksdóttir eitt mark hvor.
Mörk KR: Hjördís Sigurjóns-
dóttur 4 (1 v), Halla Magnús-
dóttir og Sigrún Sigtryggsdóttir
eitt mark hvor.
Örn Guðmundsson og Bjarni
Gunnarsson dæmdu leikinn ágæt-
lega. —SS.
Guð
er
rún Sigurþórsdðttir skoraði nokkur gullfalleg mörk í leiknum gegn KR. Þarna
e*tt markanna að verða staðreynd.
Ljósm. Firðþjófur.
Övæntur sigur Víkings yfir FH
^töSu^^^ÚLKURNAR hafa veriS I
<*aBin*n ,ram*°r f vetur og á sunnu
s'9ru8u f?,'8,0. Þær sér ir,i8 fVrir og
lega . M 1 ' :10 og var það sannar
5:4 UT?n' StaSan I hálfleik var
höndiná ,n8sstél*turnar höf8u yfir-
var ve,* ?'lan t,rnann og sigur þeirra
E,ns8 u|dai5ur
kornnnn® ' fyrr' ieikjum Víkings var hin
dóttir s,érskytta Ingunn Bernódus-
^ékk ekkGrSta^r' 9æz*u' Þannig að hún
Hailarnp ' ,a*'færi til þess að sýna
Urr> skothörku sína. Þegar
ingunn er í gæzlu er sóknarleikur Vík-
ings fremur bitlaus, en liðið bætir það
upp með góðri vörn og í þessum leik
a.m.k. með góðri markvörzlu Guðrúnar
Bjartmarz. Sóknarleikur FH var miklu
beittari, en markmannsleysi háir liðinu
mest. Gyða Úlfsdóttir landsliðsmark-
vörður keppir ekkert með liðinu i vetur
Víkingsliðið hafði 1 — 2 marka for-
ystu lengst af, en mestur varð munur-
inn þrjú mörk í seinni hálfleik, fyrst 7:4
og síðan 9:6 En einmitt þegar staðan
var 9 6 var ein bezta varnarkonan í
Víkingsliðinu, Jóhanna Magnúsdóttir,
hvíld, og Guðrún Helgadóttir rekin útaf
í 2 minútur. Sóttu FH-stúlkurnar mjög
í sig veðrið og náðu að minnka muninn
niður i eitt mark Hefðu þær náð foryst-
unni ef Guðrún markvörður hefði ekki
varið tvö vitaköst í röð á þessu tímabili
Fimm mínútum fyrir leikslok tókst FH-
stúlkunum að jafna metin 10:10, en
Ástrós Guðmundsdóttir, fyrirliði Vík-
ings átti siðasta orðið með ágætu
marki eftir gegnumbrot og tryggði Vík-
ingi verðskuldaðan sigur
Sögulegur viðburður í
handknattleiksíþróttinni
- sagði Stenzel, þegar hann hætti
að afsaka sig
ÞAÐ var einn maður sem ekki
var í góðu skapi á blaðamanna-
fundi þeim sem efnt var til á
sunnudagskvöldið, eftir seinni
landsleikinn við Vestvjr-
Þjóðverja. Sá var þjálfari vest-
ur-þýzka landsliðsins, Júgóslav-
inn Vlado Stenzel. — Stenzel
vakti athygli meðan á leikjun-
um stóð fyrir fyrirgang sinn,
sérstaklega þó i leiknum á
laugardaginn, er hann tók að
reyta hár sitt er íslendingar
voru að kafsigla Þjóðverjana.
Eftir leikinn á sunnudaginn
komu svo furðulegar skýringar
hans á* tapinu, fyrst að
leikmenn þýzka liðsins hefðu
ekki fengið nóg að borða, og
síðan að þarna væri aðeins um
að ræða B-lið Þjóðverja. Þegar
á átti að herða dró Stenzel þó í
land með það að Þjóðverjarnir
hefðu verið sveltir, — sagði að
þeir hefðu reyndar ekki fengið
þann mat sem þeir báðu um, en
slíkt hefði ekki haft úrslita-
áhrif.
Þegar kom að skýringum á
hvort um B-lið væri að ræða,
kom í ljós að Stenzel gat aðeins
nefnt nöfn tveggja þýzkra leik-
manna sem verið hafa fastir
menn í Iiðinu, en komu ekki
með því hingað. — Okkur veitti
sannarlega ekki af því að vera
með okkar bezta lið á móti ís-
lendingunum, sagði Stenzel. —
Ykkar lið er nú geysilega
sterkt. Það hefur mikla bar-
áttu, ræður yfir góðri tækni og
likamlegt ástand leikmanna og
úthald þeirra virðist einnig
vera gott. Það er ekki unnt að
mæla á móti því að það er sögu-
legt I evrópskum handknattleik
að vestur-þýzkt landslið tapar
tveimur leikjum i röð fyrir
Vestur-Evrópuliði, og það er
lítið annað hægt að segja en aö
óska ykkur til hamingju með
þennan árangur.
Stenzel var spurður aö þvl
hvort hann áliti ekki að mark-
vörður þýzlCa Iiðsins hefði
bjargað því frá stórtapi i
leiknum á sunnudagskvöldið,
og sagði hann svo vera. — En
það má ekki gleyma þvi heldur,
þar sem það er mjög veiga-
mikið, sagði Stenzel, — að þið
lékuð á heimavelli, og
áhorfendur hföðu geysilega
mikið að segja í þessum tveim-
ur leikjum.
Þegar Stenzel var að því
spurður hvað hann áliti sterk-
ustu hlið íslenzka liðsins,
nefndi hann fyrst varnar-
leikinn, sem hann sagði að væri
mjög góður. Helzti veikleiki
íslenzka liðsins sagði hann vera
þann að það byggði spil sitt of
mikið á einum leikmanni, og
átti þar við Geir Hallsteinsson.
Það væri veikleikamerki hjá
liði þegar einn leikmaður væri
svo mikilvægur sem Geir væri
hjá íslenzka liðinu.
Sem kunnugt er reyndu Þjóð-
verjarnir að taka Geir úr um-
ferð í báðum leikjunum, en
heppnaðist það ekki sem skyldi.
Var því Stenzel spurður að þvi
hvort Geir væri það góður að
ekki væri unnt að ráða við
hann.
— Ég held að það sé fremur
það að okkar menn sem fengu
það hlutverk að gæta hans, og
reyna að tryfla spilið hjá ykkur,
stóðu sig ekki nógu vel, sagði
Stenzel, en bætti þvi siðan við
að það gæti vel verið að það að
ekki tókst að hemja Geir ætti
sér einnig þá skýringu að hann
væri illviðráðanlegur. —stj 1.
Vlado Stenzel — virðist taka ósigrana nærri sér og kom með alls
konar afsakanir eftir leikina — m.a. að Þjððverjarnir hefðu ekki
fengið nóg að borða.
Guðrún markvörður var langbezt I
Vikingsliðinu i þessum leik. en i heíld
átti liðið góðan dag og framfarirnar eru
greinilegar með hverjum leiknum hjá
þessu unga liði Svanhvit Magnús-
dóttir vár sem fyrr duglegust við
markaskorunina hjá FH, en Kristjana
Aradóttir kom einnig vel frá leiknum.
Vörnin var aftur á móti Iéleg
Mörk Víkings: Ástrós Guðmunds-
dóttit 3(1 v). Eirika Ásgrimsdóttir 2,
Heba Hallsdóttir 2, Jóhanna Magnús-
dóttir 2, Ragnheiður Guðjónsdóttir og
Ingunn Bernódusdóttir eitt mark hver
Mörk FH: Svanhvit Magnúsdóttir 4
(1 v), Kristjana Aradóttir 2. Sigfriður
Sigurgeirsdóttir 2, Margrét Brands-
dóttir og Katrín Danivalsdóttir eitt mark
hvor
Dómarar voru Geir Thorsteinsson og
Georg Árnason og dæmdu þeir vægast
sagt illa
— SS