Morgunblaðið - 08.02.1977, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 1977
storma
• VEÐURGLÖGGIR lesendur
Slagbrands hafa væntanlega tekið
eftir þvi, að um nokkurt skeið
hefur verið ríkjandi lognmolla i
islenzka poppheiminum, lítið að
gerast, litlar hræringar. Þessi veð-
rátta hefur staðiðfrá þvi um jól og
hefur m.a. fyllt Slagbrand sjálfan
sliku sleni, að hann hefur ekki
komið sér til neinna verka
En þetta er aðeins logn á milli
storma. Stórviðrið sem geisaði
síðustu vikurnar fyrir jól og feykti
tugum hljómplatna á markað hef-
ur nú lægt, en ekki er alltaf logn á
þvi góða landi, íslandi, og fyrr en
síðar fer vindurinn að blása á ný.
Með óðrum orðum plöturnar fara
að birtast á markaðnum á ný.
Slagbrandur hefur fregnað af
ýmsum plötum, sem annaðhvort
eru komnaraf upptökustiginu og
þá væntanlegar á markað innan
tiðar eða eru enn á upptókustiginu
eða ókomnar á það. Skulu hér
nefndar þessar plötur:
0 BRIMKLÓ er langt komin með
hljóðritun nýrrar plötu.
0 ÓLAFUR ÞÓRÐARSON. fyrr
um Rió-liði, er sömuleiðis kominn
langt með hljóðritun plötu.
• OLGA GUÐRUN er að hljóðrita
plötu þessa dagana.
• VILHJÁLMUR VILHJÁLMS
SON er að hefja vinnu við nýja
plötu.
0 CELCIUS hljóðritaði nokkuð af
efni og flutti i Rokkveitu rikisins á
dogunum og mun hafa í hyggju að
nota þessar hljóðritanir að ein-
hverju leyti á plötu.
• RÚNAR JÚLÍUSSON er kom-
inn af stað með nýja plötu.
0 RANDVER er að leggja loka
hónd á plötu.
0 MANNAKORN eru komin tals
vert á veg með aðra plótuna sina
0 VIGNIR BERGMANN hljóðrit
aði plötu á sfðasta ári en beið með
útgáfu hennar þar til á þessu ári.
0 BJORGVIN GÍSLASON hóf á
síðasta ári hljóðritun plötu. en fór
sér aðengu óðslega Platan ætti
þó að geta komið út á þessu ári.
0 BERGÞÓRA ÁRNADÓTTIR
hljóðritaði lög sin á siðasta ári við
undirleik Celciusar. Til stendur að
vinna eitthvað af þessu efni aftur
og er útgáfa þvi óákveðin
Og sjálfsagt eru ýmsir aðilar að
undirbúa upptökurog útfáfu enda
þykir vorið hagstæður timi að
mörgu leyti til plötuútgáfu. Og
ekki má gleyma Gunnari Þórðar-
syni sem nú dvelst i Bandarikjun-
um og endurbætir plötuna sina
áður en hún verður send á Banda
rikjamarkað.
0 BRIMKLÓ AFTUR Á FERÐ
Hljómsveitin Brimkló átti eina
af vinsælustu plötum siðasta árs,
„Rock'n roll, öll min beztu ár",
sem Geimsteinn gaf út. Hljóm-
sveitin hefur verið i stúdióinu að
undanförnu og er langt komið
með nýja stóra plötu sem FACO
mun gefa út. Nýtur Brimkló starfs-
launa f rá fyrirtækinu á meðan
upptaka stendur yfir, en slikur
samningur var fyrst gerður milli
Þokkabótar og Máls og menningar
á sfðasta ári og reyndist vel. Meira
er af frumsömdu efni á nýju plöt-
unni en þeirri gömlu, en einnig
hefur Brimkló leitað aftur i tfmann
og tekur m.a. til flutnings lag frá
þvi um siðustu aldamót. Jónas R.
Jónsson, gamall liðsmaður Brim-
klóar, er upptökumaður, en þeir
Sigurjón Sighvatsson, Ragnar
Sigurjónsson, Hannes Jón Hann-
esson, Björgvín Halldórsson og
Arnar Sigurbjornsson skipa Brim-
kló á plötunni. Platan er liklega
væntanleg á markað f maibyrjun.
0 RANDVER FÆRIR
SIG YFIR HAFIÐ
Söngflokkurinn Randverer
þessa dagana að leggja lokahönd
á nýja plötu sem fyrirtækið Stein-
ar hf. mun gefa út. í samtali við
Slagbrand sagðí Jón Jónasson,
einn Randversmanna, aðá þessari
plotu færði Randver sig yfir hafið
og flytti einkum bandariska tón-
list, en áður var uppistaðan af
irskum uppruna. Textar eru allir
nema einn eftir liðsmenn Rand-
vers. Fleiri hljóðfæri eru notuð á
þessari plötu en þeirri fyrri og nú
eru trommur i hverju lagi. Liðs-
menn Randvers eru þeir sömu og
á fyrri plötunni. nema hvaðfækk-
0 EF MIÐA á aldur hljóm-
sveita við þann dag, er þær
kortiu fyrst fram opinberlega,
þá er hljómsveitin GOBRA án
efa ein sú yngsta á markaðnum
f dag. Hún er tfu daga gömul,
lék f fyrsta skipti opinbcrlega f
Klúbbnum á fimmtudagskvöldi
f janúarlok. En áður var hljóm-
sveitin auðvitað búin að æfa
um skeið og undirbúa innrás-
ina á markaðinn.
Liðsmenn COBRA eru þess-
ir: Rafn Sigurbjörnsson
söngvari, Geir Gunnarsson
söngvari, Björn Thoroddsen
gftarleikari, Ágúst Birgisson
bassaleikari, Einar Jónsson gft-
arleikari og Eyjólfur Jónsson
trommleikari. Þeir Einar og
Eyjólfur eru bræður og hafa
hingað til ekki leikið mikið
opinberlega, en hinir hafa allir
leikið f öðrum hljómsveitum
áður, þeir Geir og Björn í Lauf-
inu, Ágúst m.a. f Námfúsu
Fjólu og Sölskini og Rafn
Sigurbjörnsson f Gaddavfr.
Þeir félagar eru á aldrinum
18—22 ára. Þá er ótalinn eins
konar framkvæmdastjóri
hljómsveitarinnar I baráttunni
við að vinna henni sess á mark-
aðnum, Ágúst Heiðar.
að hefur um einn. Platan kemur
liklega á markað eftir nokkrar vik-
ur.
0 MANNAKORN AFTUR Á
KREIKI
Hljómsveitin Mannakorn átti
eina af vinsælustu plötunum á
siðasta ári og þótti þvi tilvalið að
gera aðra plotu. þar sem lög og
textar Magnúsar Eiríkssonar eru
uppistaðan eins og fyrri daginn.
Flytjendur eru þeir sömu og fyrr,
Magnús Baldur Arngrímsson,
Pálmi Gunnarsson og Björn
Björnsson. auk þess sem þeir Karl
Sighvatsson og Magnús Kjartans-
son hafa komið nokkuð við sögu,
að sögn Baldurs i samtali við Slag-
brand. Það er Fálkinn sem gef ur
þessa plötu út eins og þá fyrri.
Baldur kvaðst eiga erfitt meðað
lýsa tónlistinni, sem þeir spiluðu á
þessari plötu, tóiilist væri bara til
að hlusta á. en hann sagðist eiga
að skila þvi til Slagbrands frá
félögum sinum i Mannakorni, að
þetta yrði góð plata.
Og með þessu sláum við botn-
inn i þessi skrif.
Tónlistin sem COBRA flytur
er af ýmsum gerðum, funk,
soul, rokk og frumsamið efni. í
samtali við Slagbrand sagði
Rafn Sigurbjörnsson, að sér-
staða hljómsveitarinnar fælist
m.a. f þvf að hafa tvo aðalsöngv-
ara, sem gætu svo gripið f aðra
hluti f framtfðinni, til dæmis á
ásláttarhljóðfæri. Rafn hefur
staðið utan við hljómsveitalffið
f ein f jögur ár, frá þvf að hann
hætti f Gaddavfr, en hefur þó
leikið á hljóðfæri heima hjá
sér, samið lög og spilað inn á
segulband og haldið þessu við.
„Maður er alltaf með bakter-
funa,“ sagði hann, „hún fer
aldrei úr manni.“
Og svo er bara að vona, að
mönnum gefist færi á að hlusta
á þessa nýju hljómsveit á næst-
unni. Hún á að koma fram á
jasskvöldi f Glæsibæ á mánu-
dagskvöldið og hyggst sfðan
fara að leika á böllum eins og
unnt er, en að sögn Rafns er
það erfiður róður að fá starf
núna, fá hús eru opin og hafa
ekki úr miklu að moða. „En
þetta á ekki að vera nein
brennivfnshljómsveit," sagði
hann að lokum.
Mapos
Þór Sipnndsson:
MAGNUS Þór Sigmundsson hefur það að atvinnu að
semja lög Hann er á launum hjá einu þekktasta
tónlistarforlagi Bretlands, Chappells, og hyggst fyrir-
tækið reyna að koma lögum hans á plötur hjá öðrum
listamonnum Magr.ús Þór hefur einnig hljóðritað
mörg laga sinna sjálfur og á síðasta ári komu út hér á
landi tvær stórar plötur, þar sem hann flutti eigin lög.
Fyrri platan, „Happiness is just a ride away". var
eins konar prufuplata Með einn hljóðfæraleikara sér
til aðstoðar tók Magnús Þór hana upp í litlu stúdíói.
sem yfirleitt tekur ekki upp plotur, heldur kynningar
hljóðritanir og aðra einfalda hluti Þrátt fyrir þetta var
platan að morgu leyti áheyrileg og lög Magnúsar sum
hver prýðisgóð. En maður tók ekki almennilega mark
á þeirri plotu og beið eftir að heyra almennilegar
upptökur með fjölbreyttari útsetningum og fleiri
hljóðfæraleikurum.
Still
Photographs
Nýja platan, „Still Photographs", sem kom á mark
að rétt fyrir jól, er „alvöru" plata að þessu leyti
Hljóðritun er eins og bezt verður á kosið og Magnús
Þór hafði ýmsa hljóðfæraleikara séf til aðstoðar við
flutning tónlistarinnar
Og vissulega nýtur tónlist Magnúsar sín miklu
betur. Oll tæknivinna plotunnar er einkar góð og
hljóðfæraleikur allur með ágætum. En samt finnst
mér eitthvað skorta á, að platan sé eins góð og ég
hafði vonað.
Lög Magnúsar eru góð og nokkur mjög góð.
Magnús syngur vel og á köflum af slíkri innlifun, að
manni finnst hann syngja textann beint frá hjartanu
En eitthvað vatnar, því að platan hefur ekki það
seiðmagn að draga mann að fóninum til að spila hana
aftur og aftur.
Kannski er heildarsvipur plötunnar of einhliða,
lögin flest of keimlík. Kannski er flutningurinn of
dempaður, ekki nægur kraftur i honum Kannski er
rödd Magnúsar ekki nógu sterk, bara blið og mjúk.
Kannski .... Kannski . .
Þær eru satt að segja vandfundar islenzku plöturnar
sem standast sambærilegar kröfur og ég gerði til
þessarar plötu Þetta er sá herzlumunur sem íslenzkar
plötur vantar. Einstakir þættir i plötugerðinni, svo
sem lög, söngur, hljóðfæraleikur, upptokur, o.s.frv.,
eru að verða mjög góðir i mörgum tilvikum, en
heildarútkoman er þó ekki nógu góð.
Magn ús Þór Sigmundsson á ekki langt i land með
að ná þessu marki i rauninni mun skemmra en
eiginlega allir aðrir. Ef hann lætur sér nægja að gera
eina stóra plötu á þessu ári i stað tveggja, þá er hann
liklegur til stórra afreka.
— 0 —
A plotunni „Still Photographs" eru tiu lög, öll eftir
Magnús Þór Sigmundsson, en textahöfundar auk
hans eru B Nettles, B. Rolf og M Cobb. Textar eru
allir á ensku Eitt lagið er eingöngu spilað Magnús
lék sjálfur á 1 2 strengja gitar og kassagitar, en honum
til aðstoðar voru Barry Morgan, trommuleikari,
Herbie Flowers, bassaleikari. Mike Moran, hljóm
borðsleikar, Steve Sanders, slagverksleikari, Hughy
Burns, gítarleikar, og Terry Davies, hljómborðsleikari,
en sá siðastnefndi sá um hljómsveitarútsetmngu, var
einn af þremur upptökumönnum og annaðist upp-
tökustjorn og hljómblöndun ásamt Magnúsi Þór.
Upptakan fór fram i Chappell Studios i London i ágúst
1976 Tómas Jónsson hannaði plotuumslag og tók
Ijósmynd á framhlið, en Miles Parnell gerð mynd á
bakhlið Fálkinn gefur plötuna út. —sh