Morgunblaðið - 08.02.1977, Síða 37

Morgunblaðið - 08.02.1977, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAC.UR 8. FEBRUAR 1977 37 THE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER tStít THE OBSERVER THE OBSERVER eftir GAVIN YOUNG Sanjay sonur forsætisráðherranns er talinn einn af valdamestu mönn- um landsins ef ekki sá valdamesti. um 60 milljón sterlingspund á ársgrund- velli, en ollukaup landsmanna nú nema 819 milljónum sterlingspunda. Tilkynningin um kosningarnar munu vafalaust styrkja gjaldeyrisstöðu lands- manna, en þann gjaldeyri verður llklega að nota til að auka matvælainnflutning vegna lélegrar kornuppskeru á þessu ári, en hún er talin munu verða 10 milljónum iesta minni en á sl. ári. Það þýðir að erfitt verður að halda verði á matvælum niðri. sem þegar hafa hækkað um 10% frá þvl I marz sl. Á stjórnmálasviðinu er það helzta tak- mark frú Gandhl að sýna stjórnum Vestur- landa, að hún stefni I lýðræðisátt. Hún hefur ekki heimsótt vestrænt rlki frá þvi að hún lýsti neyðarástandinu yfir og skilur hættuna á þvl að setja allt sitt traust á Sovétrlkin. Eftir að hafa gefið sjálfri sér öll beztu spilin á höndina hefur hún ákveðið að leyfa andstæðingum sínum að taka þátt I leiknum. en á þann hátt að ógerningur er fyrir þá að leggja fram raunhæfar. sterkar áætlanir og stefnuyfirlýsingar. Það eina sem þeir geta ráðizt á er neyðarástandið sjálft, handtökurnar og fangelsisvistir án réttarhalda, skertan rétt verkafólks og skjótan frama Sanjays sonar forsætisráð- herrans J.P. Narayan ávarpar útifund i júní 1975. hann var handtekinn strax eftir fundinn. Hann liggur nú mjög sjúkur í sjúkrahúsi í Bombay. Fjórir af stjórnarandstóðuflokkunum hafa þegar myndað kosningabandalag með sameiginlegri stefnu og áætlunum, enda ekkert annað fyrir þá að gera. Kommúnistar eru ekki með, því að þeir hafa haldið sig fast við frú Gandhl þrátt fyrir tilraunir hennar til að hrista þá af sér. Lfklegt er að Gandhl muni bjóða þeim þau fáu sæti sem þeir höfðu I þinginu áður en það var leyst upp. en kommúnistar hafa gefið til kynna þótt þeir hafi ekki staðfest það, að þeir muni ekki taka þátt I kosn- ingabaráttunni. Stjórnarandstaðan fékk sem fyrr segir aðeins 50 daga til að ganga frá fram- boðum I 542 kjördæmum, en frú Gandhi og stuðningsmenn hennar hafa undirbúið sig I marga mánuði. Stjórnin ræður yfir útvarpi og sjónvarpi og ritskoðunin hefur tamið dagblöðin. Eftir er að sjá hvort þau taka upp sömu gagnrýni og áður, nú er ritskoðun hefur verið aflétt. en þau tima- rit, sem harðast gagnrýndu stjórnina, hafa flest hætt útgáfu svo og blöð stjórnarand- stöðunnar. Erfitt verður að fá hjólin til að snúast aftur, en hvað sem svo kann að gerast er það Ijóst að jafnvel hugrökkustu fréttamenn koma til með að sýna varfærni eftir 19 mánaða ritskoðun. saman að taka við mikilvægum emb- ættum innan bankakerfisins, hersins, öryggismála og víðar og mörgum stendur stuggur af þeim. Kommúnistaflokkur Indlands, sem er eini flokkur landsins, sem styður Kongressflokkinn, óttast vandamál af þessum sökum. Margir af forystumönnum kommúnistaflokksins, sem ég ræddi við töluðu með litis- virðingu um Sanjay, en það er ekkert- undarlegt er á það er litið, að hann er á móti þjóðnýtingu og yfirlýstur andkommúnisti. Forsætisráðherrann lýsti þvi yfir fyrir nokkru í bræðiskasti, að árás á Sanjay væri sama og árás á sig. Sanjay er afkvæmi neyðarástandsins og það er einnig vaxandi starfsemi öryggis- lögreglunnar í landinu, sem hefur safnað heilum skjalasöfnum um andstæðinga stjórnarinnar. Þrátt fyrir þessa staðreynd fullvissaði V.C. Shukla upplýsingamálaráðherra landsins mig æ ofan i æ: ,,Ég vil endurtaka og endur- taka aftur að við erum lýðræðissinnar." stjórnarskrárbreytingarnar hafi orðið þess valdandi að forsætisráðherrann ákvað að fresta kosningunum, sem fram áttu að fara í marz nk. Önnur ástæðan kann að veraSanjay, sonur hennar, sem er nú er mjög valdamikill í Indlandi, sumir segja valdamesti maður landsins, sagði: ,,Er mikilvægara að halda kosn- ingar en að tryggja stöðugt efnahagslíf?“ „Við þurfum á konungi að halda“ Sú spurning er kjarni rökfærslu ríkis- stjórnarinnar fyrir neyðarástandinu í landinu. Sú rökfærsla var orðuð aðeins á annan veg fyrir nokkrum áratugum i bók E.M. Forsters: ,,Ferð til Indlands", þar sem Indverjinn Aziz er látinn segja: „Við þurfum á konungi að halda, hann myndi gera líf okkar miklu auðveldara. Indland verður að reyna að feta í fótspor Japans, sonum þess verður ekki sýnd virðing fyrr en það er orðið að þjóð.“ Hinir skeytingarlausu byrjuðu að kalla Indíru drottningu í júni 1975 og frá þeim tíma hafa of margir af flokksmönnum Kongressflokksins haft það of gott. En hefur Indland fetað í fótspor Japans? Já, og var byrjað á því áður en neyðar- ástandinu var lýst yfir. Indland er nú 9. stærsta iðnaðarþjóð heims. Verksmiðjur í landinu framleiða bókstaflega allt frá Worcestershiresósu upp í stál og og Whiskey. Indverjar flytja út stál til landa þriðja heimsins eins og t.d. Libýu. 1 landinu er geimferðamálaráðuneyti, geimflaugaskotpallur, kjarnorku- rannsóknastöð og Indverjar vonast til að geta skotið 4 þrepa eldflaug út í geiminn innan skamms. 80 milljón iðnverkamenn framleiða dráttarvélar, járnbrautar- lestir, tölvur og létta skriðdreka. Verðbólgu eytt Hverju getur frú Indíra státað af? Það er hægt að telja margt upp. Hún hefur takmarkað skattheimtu, stöðvað að mestu leyti blömlega smyglstarfsemi og gjaldeyrishömlur hafa lækkað 40% verðbólgu niður i bókstaflega ekki neitt. Iðnaðarframleiðsla hefur aukist um 10% og rekstur einkafyrirtækja i landinu gengur mún betur, einkum vegna þess að töpuðum vinnudögum vegna verkfalla hefur fækkað um tugi milljóna þrátt fyrir að verkföll eru ekki bönnuð. Vinur minn marxistinn sagði: „Indíra er ekki það gróf að banna verk- föll, fólk er bara andsnúið þeim. Verði er yfirleitt haldið niðri, nokkuð af illgresi hefur verið hreinsað úr opinbera skristofubákninu og nokkrum ungum og efnilegum mönnum leyft að spreyta sig.“ Úti á landsbyggðinni hafa orðið minni breytingar. Að visu hafa nokkrar jarða- bætur verið gerðar og skuldir smábænda þurrkaðar út. Það hefur hins vegar gert það að verkum að erfiðara er að tryggja sér nauðsynleg lán, en svo virðist þó sem fátækustu þegnarnir í landinu séu nú farnir að trúa þvi að forsætisráðherrann ætli í raun og veru að gera eitthvað fyrir þá. H.R. Godkale, lagamálaráðherra stjórnarinnar, sagði er hann var að reyna að afsaka ástæðuna fyrir því að tekið var fyrir frjálsar umræður um stjórnarskrárbreytinguna: „Við erum i kapphlaupi við tímann." Það er auðvelt að skilja, er á það er litið að í landinu fæðast 1300 börn á klukkustund allt árið um kring. Þegar maður virðir fyrir sér fátæktina, t.d. í V-Bengal eða Bihar, er ekki hægt að komast hjá þvi að samsinna þvi að nauðsynlegt sé að gera eitthvað og það fljótt, eins og t.d. það að fresta kosningum til að geta gert nauðsynlegar efnahagsráðstafanir. Fjós fyrir heilagar kýr Því fer einnig fjarri að stjórnar- andstaðan hafi boðið upp á einhverja betri leið. Hún var morkin af spillingu, getuleysi og sundurlyndi. J.P. Narayan sagði frá sjúkrabeði sinum, að stjórnmálaflokkarnir leiddu fólkið um Mathatma Gandhi og Nehru á fundi 1946. Blöðin Indian Express og The Statesman birta öðru hverju ummæli þeirra um prentfrelsi til að striða ráðamönnum i Indlandi. of á villigötur. Jan Sanghflokkurinn er gott dæmi um þetta, berst i aðra röndina fyrir kjarnorkuvopnum en í hina fyrir ókeypis fóðri og góðum fjósum fyrir gamlar heilagar kýr. Þetta er enginn brandari, þvi að eins og rithöfundurinn V.S. Naipaul segir: ,,Jan Sangh- flokkurinn er best skipulagði stjórnar- andstöðuflokkurinn." Indira Gandhi hefur verið gagnrýnd fyrir að leyfa syni sínum Sanjay, sem ekki er sérlega vinsæll með lands- mönnum, „að geisast eins og hala- stjarna" upp á stjórnmálahimininn í Indlandi, en maður kemst ekki hjá því að viðurkenna að yfirlýst stefna hans er aðdáunarverð. Mahtatma Gandhi hefði átt i erfiðleikum með að finn eitthvað að áætlun, sem hvetur alla til að gróður- setja eitt tré á ári, að kenna einurrr ólæsum á ári að lesa og takmarka fjölskyldustærð við tvö börn. Hann talar um að hjálpa þeim fátækustu í hópi fátækra. Hann er lofsunginn af Kongressflokknum sem leiðtoginn, er lengi hefur verið beðið eftir. Hann hefur rétt fyrir sér þegar hann segir að hinn gráðugi kjarni hins spillta og sjálfum- glaða Kongressflokks þurfi á harkalegri hirtingu að halda. I einni ræðunni sagði hann: „Ég hef aldrei sagt að það ætti að gera eldri meðlimi Kongressflokksins ófrjóa, né að þeir ættu að draga sig í hlé, hins vegar segi ég að þeir eigi ekki að standa í vegi fyrir framförum og um- bóturn." Ef til vill tekst hinum ákafa Sanjay að geta af sér þá ungu hugsjóna- hreyfingu, sem jafnvel J.P. Narayan heldur eindregið fram að sé lífs- nauðsynleg fyrir breytingaskeið þjóðar- innar. Sanjay hefur átt í útistöðum við ýmsa af hinum gömlu leiðtogum Kongressflokksins, og stuðningsmenn hans ungir og framgjarnir eru smám Hálfur lýðræðissinni, hálfur einræðisherra Ef svo er, er Indíra þá komin i ein- hvers konar sjálfheldu, hálfur lýðræðis- sinni og hálfur einvaldsherra. Ef litið er á söguna i sambandi við blaðið Indian Express virðist svo vera. Eigandi blaðs- ins, Ramnath Goenka, sem er harður og slunginn kaupsýslumaður hefur orðið fyrir fáránlegu aðkasti á undanförnum mánuðum. Ritskoðunarmenn hafa stöðugt verið á eftir honum, ríkis- stjórnin hefur tekið fyrir allar opinberar auglýsingar, lokað hefur verið fyrir raf- magnið og lögreglan hefur stundum stöðvað prentvélarnar. Þrátt fyrir að dómstólar hafi kveðið upp úrskurði blaðinu í óhag og dómarnir hafi komið einræðisstjórnarorði á forsætisráð- herrann heldur stjórnin ennþá áfram að reyna að knýja eigendur blaðsins Statesman til að selja hinu opinbera. Halda mætti að þessi blöð væru stjórn- völdum verulegir skaðvaldar, en svo er ekki, skrifin eru tiltölulega mild, þótt öðru hverju komi fram stríðnisleg gagn- rýni á ráðamenn með því að birta ummæli eftir Mahatma Gandhi og Nehrú um prentfrelsi. Það sem gerir málið ennþá flóknara er að ýmis vikurit, sem gagnrýna stjórnina stöðugt, hafa verið látin í friði. Einn af blaðamönnum við Marxist Review sagði mér að eit-t og eitt orð væri fellt niður, en aldrei þannig að efnisleg breyting yrði á greinum. Það er hins vegar rétt að mörg meiriháttar blöð hafa hætt að koma út og i desember hætti vinstrisinnað tímarit útkomu I mótmælaskyni við ritskoð- unina. Margir erlendir fréttamenn hafa verið reknir úr landi. The Times hefur t.d. engan fréttaritara þar og BBC fékk um áramótin að senda mann aftur eftir Framhald á bls. 47

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.