Morgunblaðið - 08.02.1977, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 08.02.1977, Qupperneq 38
38 . MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. FEfeRÚAR 1977 Ragnheiður Guð- mundsdóttir —Minningarorð Fædd 30. aprll 1924 Dáin 28. janúar 1977 Ljósið frá Svartagili. Eitt sinn var það hlutskipti mitt að verða farkennari í Norðurár- dal, sem er meðal hinna fögru og sérkennilegu byggða Borgarfjarð- ar. Þar kynntist ég mörgu gáfuðu og víðsýnu fólki, sem ég minnist ætíð með virðingu og þakklæti. Ekki tel ég ólíklegt að hið ágæta' fólk hafi litið á mig sem „kött f bóli bjarnar", þar sem ég varð eftirmaður hins fjölhæfa og skemmtilega kennara Skeggja Ás- bjarnarsonar. En ekki var ég látin gjalda þess. Börnin sem ég kynnt- ist I kennslustarfi mínu þar, mun ég ávallt telja til minna beztu vina. Nú hefur eitt af mínum kæru börnum verið kvatt burt héðan úr heimi, það er hún Heiða mín frá Svartagili með fallega bjarta brosið sitt. Heiða var hálfsystir Skeggja Ásbjarnarsonar, þau voru sam- mæðra. Heiða var elst af börnum foreldra sinna, Jónfnu Soffiu Davíðsdóttur, Davfðssonar bónda í örnólfsdal, bróður Þorsteins bónda á Arnbjargarlæk, en þeir voru synir Davíðs bónda á Þor- gautsstöðum Þorbjarnarsonar á Lundum (Lundarætt, Hurðar- baksætt og Klingenbergsætt), en móðir Jónfnu Soffiu var Guðrún Magnúsdóttir prests að Gilsbakka Sigurðssonar prests að Auðkúlu, en móðir séra Magnúsar var Rósa Magnúsdóttir f Myrkárdal Jóns- sonar prests að Myrká Ketilsson- ar, en frá þessum ættum eru komnir margir þjóðkunnir menn. Amma Jóninu, kona séra Magnús- ar, var Guðrún Pétursdóttir hreppstjóra og bændahöfðingja að Miðhópi í Húnavatnssýslu og konu hans Júlfönu Soffíu Þórðar- dóttur systur Guðrúnar konu Björns Blöndals sýslumanns í Húnavatnssýslu, en þær voru systradætur Björns Olsen á Þing- eyrum og uppeldisdætur hans. Guðmundur faðir Heiðu var Gíslason Sigurðssonar á Króki i Norðurárdal og Ragnheiðar Rögn- valdsdóttur. Góð og greind merk- iskona. Heiða bar nafn hennar. Að Heiðu stóðu góðar ættir, en sérstaklega var húsfreyjan Jón- ína talin stórættuð, enda leyndi það sér ekki í skapgerð hennar og framkomu að hún átti til góðra að telja. Heiða var mjög lík móður sinni og var þeim það sameigin- legt að taka andstreymi með brosi á vör án þess að mögla. Heiða fæddist í Fornahvammi i Norður- árdal þar sem foreldrar hennar hófu búskap og önnuðust þar gisti- og greiðasölu. Hefur mér verið tjáð af kunnugum að þau hjón hafi verið vinsæl og samhent í að greiða fyrir ferðafólki, og ekki sfst þeim sem í erfiðleikum áttu, og þá oft gefið meira en getan leyfði. Guðmundur var dugnaðarmaður og Jónfna óvenju fjölhæf og dugleg húsmóðir. Heiða mun hafa verið ung að ár- um er foreldrar hennar fluttust að Svartagili í Norðurárdal og seinna fluttust þau að Veiðilæk i Þverárhlíð. Þá hafði Heiða eign- ast tvö alsystkin: Guðlaun Bjarna og Guðbjörgu. Bæjarnafnið Svartagil ber ekki í sér birtu, en f huga mfnum er bjart yfir þessu bæjarheiti. Þar bjó gott fólk, er átti andlegan auð, sem er veraldar gulli verðmætara. Mun ég seint gleyma þeim góðleik er húsfreyjan þar sýndi mér og þeim skemmtilega heimilisbrag er þar ríkti. Fáum árum seinna varð Heiða nemandi minn er ég veitti for- stöðu húsmæðraskólanum að Staðarfelli f Dölum og enn var eins og sólskin gleðinnar og kær- leikans Ijómaði af andliti þessar- ar fallegu og glæsilegu stúlku. Einlægni hennar og trúmennska var einstök, enda vann hún sér strax vináttu kennara og nem- enda. Heiða stundaði nám sitt af samviskusemi og sýndi góða hæfi- leika, hún var listhneigð og drátt- hög. Fallegi hláturinn hennar og gamansemi var smitandi og gerði hana mjög vinsæla, auk þess hve vönduð hún var til orðs og æðis og háttvis í allri framkomu. Næstu vetur dvaldi hún í Reykjavik við nám og störf og átti þá heimili hjá frændfólki sínu og var undir handleiðslu Skeggja bróður síns er hún unni mjög og leit á sem sinn annan föður. En aðalheimili sitt átti hún í föðurgarði, þar til hún giftist 21. desember 1946, Magnúsi Kristins- syni forstjóra, hinum ágætasta manni ættuðum úr Vestmanna- eyjum. Með Heiðu og tengdafólki hennar tókst strax góð vinátta, einkum með tengdamóður hennar Ágústu Arnbjörnsdóttur, sem var henni alltaf mjög góð og mat Heiða hana mikils. Heiða og Magnús voru mjög samhent og ber fallegt heimili þeirra vott um vandaðan listasmekk. Þar ríkti skemmtilegt andrúmsloft og mik- il gestrisni, sem margir nutu og geyma góðar minningar um. Þau hjón tóku þátt f margvíslegum félagsstörfum og eitt var þeim sérstaklega hugleikið að verða öðrum að liði, sem með þurftu, einkum þeim er ekki gátu talað máli sínu sjálfir. Félagssamtök vangefinna var áhugamál þeirra og.hefur Magnús unnið þar mikið og gott starf, einnig tók Heiöa þar virkan þátt f félagsstarfinu með- an heilsan leyfði og siðan fylgdist hún af áhuga með þeim málum og gladdist yfir ef maður hennar gat orðið þar að liði. Þau eiga tvær myndarlegar dætur á lífi, Ágústu Kristínu, gifta Sigurði Jónssyni húsasmíðameistara og eiga þau þrjú mannvænleg börn, og Soffiu flugfreyju gifta Kristni Guðjóns- syni skrifstofumanni. Yngstu dóttur sina, Jóninu, misstu þau á tíunda ári. Heiða unni heimili sinu og fjölskyldu mjög og vann því allt er hún mátti, meðan henni entist geta til. Hún var óvenju hlý og elskuleg og mikil húsmóðir. Það var hluti af gæfu hennar að fá lengst af að dvelja á heimili sinu i langri sjúkdómsbar- áttu og njóta umhyggju og skiln- ings eiginmanns síns, elskulegra dætra og tengdasona og fylgjast með myndarlegu barnabörnunum sem hún unni mjög. Það virtist óvenjuleg samheldni og kærleik- ur ríkja i sambúð þessarar fjöl- skyldu, og er ósk mín að slfk ein- drægni megi rikja með niðjum þeirra. Heiða er horfin sjónum okkar í bjarma hækkandi sólar, vil ég þvi senda ástvinum hennar öllum innilegustu og dýpstu samúðar- kveðjur. Ljósið frá Svartagili mun ekki slokkna f minningu þeirra sem þess nutu og það þekktu. Ingibjörg Jóhannsdóttir frá Löngumýri. í dag er til moldar borin Ragn- heiður Guðmundsdóttir, Ægisíðu 96, Reykjavík. Hún lést eftir erf- iða sjúkdómslegu þann 28.01.77 á Landsspitalanum. Hún Heiða eins og við vinirnir kölluðum hana var fædd 30.04.24, dóttir hjónanna Jóniu Davíðsdóttur og Guðmund- ar Gíslasonar sem bjuggu á Veiði- læk í Norðurárdal. Við Heiða kynntumst þegar við fluttumst til Reykjavikur úr Borgarfirðinum fyrir rúmum 30 árum. Eftir það áttum við margai ánægjstundir saman í Borgfirð- ingakórnum, Borgfirðingafélag- inu og í leik og starfi. Það er ekki öilum gefið að hafa létta lund og láta ekki erfiðleika og veikindi draga úr sér kjarkinn fyrir bata og betra lifi. En þetta var hæfi- leiki sem prýddi Heiðu. Hún gift- ist efritlifandi manni sinum, Magnúsi Kristinssyni forstjóra, 21. des. 1946. Þau Heiða og Magnús bjuggu sér fallegt heimili með dætrum sínum Ágústu Kristínu, Soffíu og Jónínu sem lést 9 ára gömul. Þau voru sérlega samtaka um að búa sér sem best og hlýlegast heimili og á fáa staði komum við hjónin þar sem betur var tekið á móti okkur. Oft hef ég hugsað til þess hversu betri þessi heimur væri ef allir sýndu þá hlýju og um- hyggjusemi sem Magnús sýndi Heiðu í hennar veikindum og erfiðleikum. Öilum stundum var hann vakandi fyrir velferð henn- ar og heimilisins. Að sama skapi sýndi Heiða dugnað og kjark er dauðinn nálgaðist, með létri lund og óbilandi trú á bata. Með svona hugarfari er lífið fyllra og mun meiri ánægja fæst út úr hlutun- um, þótt erfiðleikar og veikindi steðji að. Um hátiðarnar komst Heiða heim og gat glaðst með manni sínum, dætrum og fjölskyldum þeirra, en barnabörnin voru þeim til mikillar ánægju og gleði. í þessi þrjátíu ár sem liðin eru frá þvi við Heiða kynntumst hef- ur aldrei skugga borið á vináttu okkar og minningin um hana verður mér alltaf kær minning um góða og hlýja vinkonu. Tryggð þeirra hjóna mun seint gleymast. Við hjónin vottum aðstandend- um samúð okkar og vonum að endurminningar um góða eigin- konu og móður létti þeim sorgina og sú vissa að Heiða er i betri heimi þar sem sorg og veikindi fyrirfinnast ekki. Blessuð sé minning hennar. Áslaug Þórólfsdóttir. í dag kveðjum við góða vinkonu okkar, Heiðu. Löngu og erfiðu veikindastriði hennar er lokið. Mikill tómleiki er eftir. Góða og glaða lundin hennar hjálpaði henni í erfiðri baráttu við sjúk- dóminn, sem sigraði að lokum þrátt fyrir góðar fyrirbænir og kunnáttu læknavísindanna. Til hinstu stundar bar hún sig éins og hetja og sagði jafnan: „Þetta hlýt- ur að fara að lagast." Þannig var Heiða. Það eru liðin um það bil tuttugu ár síðan Heiða tengdist hópi okk- ar, sem við kölluðum sauma- klúbb. í fyrstu var um sauma- klúbb að ræða, en eftir því sem árin liðu og við tókum i vaxandi mæli þátt í atvinnulífinu utan heimilis, varð minna um sauma- skap að dagsverki loknu. Þá hitt- umst við frekar til þess að styrkja vináttuböndin. Þessi hópur hefur alla tið verið sérstaklega sam- + Fósturfaðir minn. BJÖRN SKÚLASON, Baldursgötu 12, andaðist I Landsspftalanum 6 febrúar Knútur Höjriis. Bróðir minn, GÍSLI BJÖRNSSON, trésmiður. Hverfisgötu 86. verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 10 febrúar kl 3 Hóseas Bjömsson. + Konan min, SESSELJA BJÖRNSDÓTTIR lézt á hjúkrunardeild Hrafnistu 5 febrúar. Elísberg Pétursson + Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir SVERREKNUDSEN lést 4 febrúar Útför hans hefur farið fram Ragna Knudsen Lilly og Þórhallur Ásgeirsson Lillian og Raymond Knudsen + Föðursystír okkar SESSELJA SIGURÐARDÓTTIR Háteigsvegi 15. Reykjavlk, lézt 5 febrúar t Landspftalanum Stefanfa, Guðrfður, Sigrlðurog Sigrún Pétursdætur. + Fósturmóðir mfn GUÐBJÖRG ANDRÉSDÓTTIR frá Norður-Gröf. lést I Landakotspítala þann 4 febrúar Fyrir hönd vandamanna. Pétur Pálmason. + Utför eigínmanns míns og föður okkar, MARZELLÍUSAR BERNHARÐSSONAR. skipasmlðameistara, er andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu, Ísafirðí, miðvikudaginn 2 febrúar s I fer fram frá ísafjarðarkirkju, þriðjudaginn 8 febrúar kl 14 Alberta Albertsdóttir og börn. + Útför eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður, RAGNHEIÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Ægisslðu 96. fer fram frá Fossvogskirkju f dag, þriðjudag 8 febrúar kl 1 3 30 Magnús Kristinsson Ágústa Kristln Magnúsdóttir Sígurður Jónsson Soffla Magnúsdóttir Kristinn Guðjónsson + Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur ÞORSTEINN FRIÐRIKSSON. veggfóðrarameistari, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 9 febrúar kl 1 ^ Pállna Arinbjarnardóttir, Friðrik Þorsteinsson, Ágústa Friðriksdóttir. Hafsteinn Vilhelmsson. Þórunn Friðriksdóttir, Arinbjörn Friðriksson, íris Björk Hafsteinsdóttir, Erna Friðriksdódtir, Gunnar Guðmundsson, Sigurður Friðriksson. Valborg Bjarnadóttir. Lokað eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar. Efnalaugin Björg Háaleitisbraut 50—60 og Barmahlíð 6.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.