Morgunblaðið - 08.02.1977, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.02.1977, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 1977 M0RödK,-:v''v'’ r W- u J Ég er komin á þá skortun að kærastinn minn verði að vera hevrnardaufur líka að vera sjóndapur. Þú verður að draga úr majónes- álinu? Það er allt í lagi með hjartað og lungun — og nú er það spurn- ingin um hankainnistæðuna? — og fallegir fótleggir — ég meina falleg rithónd? — Áður en ég byrja á ræðu minni, sagði heiðursgesturinn I samkvæminu, — langar mig til þess að segja nokkur orð. Næsta skipti Brúðurin, að loknu mjög hátfð- legu kirkjuhrúðkaupi: — Uh-h, elskan mín, þetta er nú meira — næsta skipti ætla ég bara að hafa einfalt morgunbrúðkaup! Silfurhrúðkaupið Franskur stjórnarerindreki, sem vann við sendiráð lands sfns erlendis, var eitt sinn boð- inn f silfurbrúðkaup þekktra hjóna. Þeim franska var ekki fvllilega Ijóst, hvað silfurbrúð- kaup væri og á meðan á borð- haldinu stóð, hvfslaði hann að borðdömunni sinni, sem var frænka silfurhrúðarinnar: — Segið mér, hvað er eiginlega silfurbrúðkaup? Við þekkjum það ekki f Frakklandi? — Silfurbrúðkaup er haldið, þegar fólk er búið að búa sam- an hamingjusamlega f 25 ár, eins og frænka mín og maður hennar hafa nú gert. — Nú, já, einmitt það, sagði sá franski. — Og nú ætlar hann að kvænast frænku yðar? Á kvennafundinum Reynd ekkja við vinkonu sfna á kvennafundi: — Hvernig dett- ur henni f hug að koma hingað á fundinn og halda fyrirlestur um hjónabandið, hún hefur þó aldrei verið gift nema þessum eina karli sfnum? Það gat ekki verið eftir hann — Þetta getur ekki verið eftir mig, sagði Óli litli við mömmu sfna sem var reið út af svörtum fingraförum sem voru á hurð- inni. — Ég sparka hurðinni alltaf upp. Ilvers vegna ekki? Ergileg eiginkona segir við eig- inmanninn, sem situr, eða rétt- ara sagt hangir og fiktar við skeiðina sína. — Heyrðu góði minn, — hvað er eiginlega að þér, á mánudaginn þótti þér rauðgrauturinn góður, á þriðju- daginn þótti þér hann góður og f gær þótti þér hann góður, — og hvers vegna þvkir þér hann svo ekki góður í dag? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Stundum er eins og eitt leiði af öðru þegar sagnhafi reynir að finna út skriftingu litanna á höndum varnarspilaranna. Áustur gefur, allir utan hættu. Norður S. 8742 H. ÁG65 T. KD9 L. 83 Suður S. ÁD1063 H. 7 T. 75 L. KDG107 Mikið framboð Að undanförnu hefur verið all- mikið um fasteignaauglýsingar í blöðum og hafa fróðir menn sagt að það muni vera að nokkru leyti vegna þess að hálfgerð deyfð sé yfir fasteignamarkaðnum og því þurfi að auglýsa meira en oft áður. En út frá þessu ritar einn húseigandi eftirfarandi: — Alveg er það merkilegt hversu gífurlega mikið er af fast- eignaauglýsingum í sumum dag- blöðunum. Á síðu eftir síðu má sjá auglýstar íbúðir af öllum stærðum, frá einstaklings eða 2 herbergja íbúðum allt til 5—6 herbergja og einbýlishúsa. Verðið er lika fjölbreytt eftir þvi, allt frá 4—6 milljónum og uppi 25—30 milljónir króna og jafnvel enn hærra ef um „rétta eign“ er að ræða. Allar þessar auglýsingar leiða hugann að þvi hvað myndi t.d. gerast ef mjög mikið myndi minnka sala á fasteignum. Það er greinilegt að fjöldi manna myndi missa atvinnuna á augabragði og eiga erfitt með að fá aðra vinnu. Það hafa að ég held nokkrar nýjar fasteignasölur sprottið upp á sið- asta ári eða siðustu tveim árum, og það er liklegt að þær fremur en hinar gamalreyndu muni detta upp fyrir á undan. En hvað um það — nú er allt i gangi enda þótt hægar sé en áður. Þetta mikla auglýsingamagn segir manni það að nú þurfi að hafa meira fyrir hlutunum en áður og það er mikið af orðunum rétt eign, fallegt út- sýni, sérlega hagstætt verð, mjög góðir greiðsluskilmálar o.s.frv. Það verður að halda fólki við efnið og þvi er óhætt að eyða nokkrum krónum i að auglýsa. Annað atriði sem manni blöskr- ar eru þessar tölur, nokkrar milljónir fyrir eina íbúð. Fyrir nokkrum árum þegar maður var að standa i þessu voru þetta kannski nokkrir tugir þúsunda. Auðvitað þótti það alveg nóg og nógu erfitt var að standa í skilum rétt eins og það er sjálfsagt núna, en tölurnar voru minni og það liggur við að þessar tölur séu hálf ómanneskjulegar, fólki sem komið er af miðjum aldri óar við því að hreyfa sig nokkuð eða minnka við sig húsnæðið vegna þess að svo háar tölur eru í spil- inu. En þetta gildir svo sem ekki aðeins um íbúðir heldur og bila og næstum hvað sem er, — mikið er auglýst til að ná áhuga fólks því það hefur án efa minni aura- Sagnir ganga þannig, að austur opnar á einu laufi, suður segir einn spaða en vestur segir tvo tigla. Suður er síðan sagnhafi í fjórum spöðum. Vestur spilar út laufníu, sem austur tekur með ás og skiptir í tigultvist. Ás og austur trompar siðan tígul og spil- ar laufi. Vestur fylgir lit og nú tekur þú við, lesandi góður,. Er lausnin komin? Hafir þú ætl- að að taka á hjartaás og svina spaðatíu, þá færðu 10 i einkunn, því þannig vinnst spilið. En hvers vegna? Svarið er a finna i opnunarspgn austurs, sem segir að hann eigi mest 8 spil í hálitum. Við erum búin að sjá, að hann átti fjögur lauf, einn tígul og er búinn að neita fimmlit I hjarta. Hann á þannig 4 spil í báðum hálitum. Hendur varnarspilaranna eru því þannig. Vestur Austur S. _ S. KG95 H. 10843 H. KD92 T. AG 108643 T.2 L. 95 L. Á642 Þú færð þvi á spaðaníuna. Sið- an trompar þú lauf i blindum, svínar aftur spaða og átt slagina, sem eftir eru. ROSIR - KOSSAR - 0G DAUÐI Framhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 26 ég gleymi því aldrei. Það var ung kona, sem gerði tilraun til að svipta sig lífi. Hún hafði tekið hjartalyf móður sinn- ar. . .og það var óskaplegt að fylgjast með dauðastríði henn- ar. Og það var ekket hægt að gera fyrir hana.. .ekki einu sinni á sjúkrahúsinu f Örebro, þvi að hún leið 1 dá áður en hægt var að pumpa eitrinu upp úr henni.. ,Og þannig.. .þannig hefur einhver.. .þannig hefur einhverjum þótt hæfa að dauðastrfð bróður míns færi fram. Frederik! Én hvers vegna? IIVÉRS VÉiGNA? En f miðri örvæntingunni tókst þessari virðulegu gömlu konu þó að ná stjórn á sér og hún sagði: — IIjá flöskunni hefur alltaf verið glas á náttborðinu. Það var á sfnum stað þegar ég fór héðan klukkan tvö. Ilvað hefur þá orðið um það? Eftir nokkurra mfnútna leit fannst glasið í baðherberginu. Þar stóð það á vaskröndinni og skeið hjá og mátti sjá þess greinileg merki að hvort tveggja hafði verið skolað ný- lega. Ég minnti Christer á að ég hefði hevrt þyt f rörunum rétt fyrir klukkan hálf fjögur. — Þetta baðherbergi er beint fyrir neðan herbergið mitt. Það hlýtur að hafa verið þaðan sem hljóðið kom. — Ilvernig var þetta? Ileyrðir þú fyrst skolað niður og svo hrópin eða öfugt? — Fyrst veinin. Það fór hrollur um mig við tilhugsunina og ég starði á hreyfingarlausan Ifkama gamla mannsins, full samúðar. Var hann dáinn eða var hann enn með Iffsmarki? Það var að minnsta huggun að vita að kval- ir hafði hann ekki lengur. Mina frænka bærði ögná sér f hægindastólnum. — Við ættum kannski að fara með hana f rúmið og búa betur um hana, sagði Fannv frænka. — Én hún er náttúrlega þó nokkuð þung. .. Én Christer hafði tekið Minu í fangið áður en Fanny hafði sleppt orðinu og meðan ég gekk á undan án þess að gera annað gagn en opna fyrir hann dyrn- ar, bar hann byrði sfna upp stigann og lagði hana á rúmið sitt. Við drógum af henni skóna og settum heklað teppi yfir hana og þegar við höfðum dreg- ið rúllutjöidin gengum við út úr herberginu. Mér til undrun- ar la-sti Christer dyrunum og stakk lyklinum f vasann. Ilann brosti dauflega þegar hann sá svipinn á mér. — Þú hefur gert mér nógu illt við með þvf að tala um að hin gæfa Mina frænka væri dáin. Ég vil helzt ekki að skuggaleg hugarfóstur þfn verði að raun- veruleika... Ég vafði þéttar að mér nátt- sloppnum og enn á ný fann ég hroll fara um mig... — Heldur þú...? — Satt bezt.að segja held ég ekkert enn sem komið er. Én ef málið er þannig vaxið að morð- ingi gengur hér á meðal okkar býst ég ekki við að það skaði að vera dálftið gætinn. Rödd hans var f senn beizk og þreytuleg og ég sá að f morgun- skfmunni var andlit hans mark- að þreyturúnum. Ég greip ósjálfrátt um hönd hans og leit á hann full hluttekningar. — Christer minn, ég skil af- skaplega vel hvernig þér er innanbjósts. Frfið þitt.. .trúlof- unin.. þetta sumar sem þú hefðir átt að mega eiga án þess að þurfa að hugsa um annað en sjálfan þig og þína gæfu. ..og svo gerist þetta... — Það er engu Ifkara, sagði hann og gretti sig einkennilega — en að ég dragi að mér morð og ólán. Kannski skapa ég þetta andrúm. Kannski er eitthvað f fari mínu sem kallar fram óhugnarlegar og eitraðar hvat- ir... Við gengum hægt niður og f forstofunni kom Fanny frænka á móti okkur og sagði lágróma: — Frederik er dáinn. Ilvorugt okkar treysti sér til að stynja upp einhverjum kurt- eisislegum samúðarorðum. En Christer tók undir handlegg hennar og leiddi hana fram f eldhúsið, þar sem hún hné nið-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.