Morgunblaðið - 13.02.1977, Page 1
48 SIÐUR
34. tbl. 64. árg.
SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Lítill ár angur af
ferð Waldheims
Kaíró, 12. febrúar. Reuter.
Kurt Waldheim, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, iauk við ferð sína til Miðaustur landa í dag og ljóst
er að þrátt fyrir ferðina eru enn slæmar horfur á að
Genfarráðstefnan verði aftur kölluð saman vegna
ágreinings um þátttöku Palestínumanna.
Ekkert benti til þess eftir fund
sem Waldheim átti i dag með
Ismail Fahmi, utanrikisráðherra
Egyptalands, að ágreiningurinn
um þátttöku Palestinumanna
muni leysast.
Waldheim sagði þegar hann
kom frá Jerúsalem að hann teldi
ennþá mögulegt að „brúa bilið“
milli ísraelsmanna og Araba
þannig að kalla mætti Genfarráð-
stefnuna saman. En hann svaraði
neitandi þegar hann var spurður
að þvi hvort Israelsmenn væru
reiðubúnir að viðurkenna Frelsis-
samtök Palestinu (PLO) semeina
fulltrúa Palestinumanna á ráð-
stefnunni.
Áður sagði Waldheim i
Jerúsalem að afstaða Palestínu-
manna væri „sveigjanlegri".
Hann hafði eftir Yasser Arafat,
leiðtoga PLO, að Palestinumenn
væru reiðubúnir að fallast á
stofnun eins konar smárikis i
tengslum við ísrael.
Á mánudaginn fer Cyrus
Vance, utanrikisráðherra Banda-
rikjanna, til Miðaustur landa til
að reyna að fá Araba og ísraels-
menn til að setjast aftur að samn-
ingaborði. Hann hefur lýst þvi
yfir að friðartilraunir i Mið-
austurlöndum hafi forgang hjá
stjórn sinni.
Hins vegar hefur Vance sagt i
viðtali við New York Times að
hann fari I ferð sina fyrst og
fremst í könnunarskyni. Hann
sagði að Bandarikin ættu að
Framhald á bls. 47
Ungfrú
Lillian”
til Indlands
Plains — 12. febrúar — Reuter
CARTER Bandaríkjaforseti
hefur skýrt frá þvl að móðir
hans, sem i daglegu tali er
kölluð „Ungfrú Lillian", verði
fulltrúi hans við útför Ahmed
Indlandsforseta.
„Ég hringdi I hana og
spurði: Mamma, hvað ertu að
gera?“ sagði forsetinn. „Hún
sagðist vera að reyna að láta
sér detta í hug hvað hún gæti
fundið sér til að gera, svo ég
spurði hana hvort hún gæti
hugsað sér að fara til Indlands.
Hún spurði hvenær. Ég sagði
að hún yrði að leggja af stað í
dag, og hún sagði að það væri
allt i lagi.“
Lillian Carter starfaði i
friðarsveitum Bandaríkjanna i
Indlandi fyrir tiu árum. Hún
er 78 ára að aldri.
17 sprengjur
sprungu í
Buenos Aires
Buenos Aires 12. febrúar. Reuter.
17 SPRENGJUR sprungu í mið-
borg Buenos Aires i dögun í morg-
un og ollu miklu tjóni og háttsett-
um verkalýðsleiðtoga var rænt að
þvi er lögreglan i borginni til-
kynnti I morgun. Maður þessi,
Oscar Smith, fyrrum formaður
samtaka sambands verkamanna i
orkuiðnaði, var einn dyggasti
stuðningsmaður Isabelu Peron
fyrrum forseta, sem steypt var af
stóli 24. marz sl. Ránið á Smith
kemur daginn eftir að 30 þúsund
orkuiðnaðarverkamenn aflýstu
mánaðaraðgerðum til að mótmæla
stefnu ríkisstjórnarinnar með því
að hægja á allri starfsemi.Stjórn-
málafréttaritarar segja að hugs-
anlegt sé að Smith hafi verið rænt
til að skapa úlfúð meðal verka-
mannanna og fá þá til að halda
mótmælaaðgerðunum áfram.
Islenzkur tfzkuteiknari I Parfs — Helga Björnsson.
Sjá bls. 2.
Búizt
náðun-
um f anga á Spáni
Madrid 12. febrúar Reuter NTB
FRELSUN spánsku ráða-
mannanna tveggja, Oriols, forseta
þjóðarráðsins, og Quilis hers-
höfðingja forseta æðsta dómsstóis
landsins, úr höndum öfgasam-
takanna GRAPO I gær hefur rutt
úr vegi mikilvægri hindrun fyrir
rfkisstjórn landsins að geta lýst
yfir almennri náðun til handa
þeim 200 pólitfsku föngum, sem
enn eru f haldi I fangelsum þar.
Rodoldo Martin Villa, innanrfkis-
ráðherra Spánar, sagði á blaða-
mannafundi i gær, að frelsun
mannanna hefði verið frábært
afrek lögrelunnar f Madrid en
varaði við að rfkisstjórnin væri
búin undir að mæta frekari
ofbeldisverkum. „Rikisstjórnin
er hreykin af frelsun mannanna
en gengur þess þó ekki dulin, að
þetta getur komið fyrir aftur.“
26 manns þar af 4 forystumenn
Pravda boðar handtökur
og f angelsanir andófsmanna
Moskvu — 12. febrúar —AP — Reuter.
PRAVDA birtir I dag harðorða
grein þar sem fjall^ð er um mál
andófsmanna. Boðaðar eru hand-
tökur og fangelsisdómar fyrir-
svarsmanna andófsmanna i Sovét-
rfkjunum, og þess krafizt að
Vesturiönd láti mál þeirra af-
skiptalaus.
Þá birtust greinar um þessi mál
I málgögnum rfkisstjórnar Aust-
ur-Þýzkalands og Tékkóslóvakfu,
og voru þær óvenju harðorðar I
garð andófsmanna.
— krefst afskiptaleysis Vesturlanda
Talið er að Pravda-greinin sé
svar sovézkra yfirvalda við þeirri
áskorun Bandarikjastjórnar, að
mannréttindi verði haldin i Sovét-
ríkjunum, og er bandarfska utan-
rikisráðuneytið gagnrýnt sérstak-
lega i þessu sambandi. Mál
Alexanders Ginzburgs og Yuri
Orlovs eru sérstaklega gerð að
umtalsefni í greininni, en þeir
voru báðir handteknir nýlega, án
þess að skýrt væri frá þvi hverjar
sakargiftirnar væru.
Vestrænir fréttaskýrendur í
Moskvu telja greinina bera þvi
vitni, að á næstunni hyggi sovézk
yfirvöld á meiriháttar aðgerðir
gegn andófsmönnum i landinu.
Nafn greinarhöfundar var ekki
birt, og þykir það benda til þess
að hún sé birt með vitund og vilja
æðstu valdamanna innan komm-
únistaflokksins. Lögð er áherzla
á, að sovézkir borgarar séu ekki
ofsóttir fyrir skoðanir sfnar, held-
ur krefjist sjórnmálakerfi lands-
ins þess að þeir sem stundi and-
sovézkan áróður séu látnir sæta
ábyrgð gerða sinna. Þá er því
haldið fram i greininni að stuðn-
ingur á Vesturlöndum við andófs-
menn í Sovétrikjunum sé i þvi
skyni að draga úr áhrifum
Framhald á bls. 47
GRAPO voru handteknir i gær, en
lögreglan hefur sagt, að sumum
þeirra verði sleppt aftur innan
skamms. Aðeins einu skoti var
hleypt af er lögreglumenn réðust
til inngöngu í húsið þar sem
mönnunum tveimur var haldið,
en enginn særðist. Martin Villa
sagði að liklegt væri að félagar
öfgasamtakanna hefðu verið
orðnir hræddir, þar sem lögregl-
an hefði á undanförnum dögum
og vikum handtekið fjölda
manna, sem voru félagar I sam-
tökunum, og því hefðu þeir
ákveðið að gefast upp án átaka
þótt þeir hefðu verið vel vopnum
búnir.
Mikið magn vopna var einnig
tekið þ. á m. vélbyssa sem stolið
var af lögreglumanni, sem skot-
inn var til bana 28. janúar sl.
Einnig fundust 6 stolnir bílar með
fölsuðum númerum og 1 milljón
peseta, sem rænt hafði verið úr
banka á sl. ári.
Stjórnmálafréttaritarar á Spáni
segja að frelsun þeirra Oriols og
Quilis hafi rýmkað mjög
samningsaðstöðu ríkisstjórnar-
innar gagnvart vinstriflokkum
stjórnarandstöðunnar um lýð-
ræðisþróunina í landinu.