Morgunblaðið - 13.02.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.02.1977, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. FEBRUAR 1977 „Pólitík og k/íkuskapur ráða gífurlega mik/u ísambandi viðhvers konar fyrirgreiðsiu" — Mín skoðun er sú að betra sé að hafa fyrirtækin smærri í sniðum, þannig að eigandinn geti haldið utan um alla starfsemina. Það er margsannað mál að hjá stórum fyrirtækjum fer meira til spiilis en hjá þeim sem minni eru. Til dæmis í sambandi við bátaútgerð held ég að sé nauðsynlegt að skipstjórinn sé einn af eigendum, það tryggir betri útgerð og afkomu. Þetta gildir í rauninni um allan rekstur, en auðvitað er mér fyllilega Ijóst að ekki geta öll fyrirtæki verið af þeirri stærðargráðu, sem ég vil og ekki eru allir sammála mér í þessu efni frekar en öðrum. Það er Jón Karlsson fiskverk- andi í Innri-Njarðvík, sem hefur orðið, en hann rekur í rauninni eina fyrirtækið í þessu 200 manna plássi. Auk fyrirtækis hans, Brynjólfs hf, er þar vélsmiðja og starfa þar þrir menn, en hjá Jóni starfa um 30 manns á vertíðinni. Reyndar er vertíðin stutt hjá Jóni og bölvar hann því mikið. Frysti- hús fyrirtækisins missti vinnslu- leyfi fyrir þremur árum og hefur Jón ekki haft fjármagn til að endurbæta aðstöðuna til að fá leyfið aftur. Hefur Jón ýmislegt um þau mál að segja og gefum honum orðið aftur. Ekki dús við okkur og ástæðan er einfaldlega sú að við höfum ekki fengið lán úr Fiskveiðasjóði út á aðrar fram- kvæmdir eins og við höfum átt rétt á. —Árið 1974 var ég búinn að framkvæma hér fyrir 40—50 milljónir, en frá þvi að ég hóf starfsemi hér fyrir sex árum hef ég fengið 8 milljónir frá Fisk- veiðasjóði, en hefði átt að fá á þessu tímabili 20—30 milijónir samkvæmt reglun. Fiskveiðasjóð- ur er eini sjóðurinn, sem við hér um slóðir eigum aðgang að, við fáum ekkert úr byggðasjóði og tæpast úr atvinnujöfnunarsjóði. Auðvitað er ég fylgjandi jafnvægi í byggð landsins, en sú stefna má ekki bitna á okkur, sem erum að berjast á þessu landshorni. Þau foru að mála í hfbýlum starfsfólks, en stilltu sér þó upp íyrir framan skreiðarballana f næsta húsi fyrir Ijósmyndarann. Jón Karlsson annar frá hægri, lengst til vinstri er Ágúst Jóhannsson, sem starfað hefur með Jóni sfðan 1963. Jón Karlsson fiskverkandi í Innri-Niarðvík tekinn tali pólitískar lánveitingar —Húsið missti vinnsluleyfið árið 1973 vegna aukinna krafna í frysthúsum um allt land og skil ég í rauninni vel þær auknu kröfur. Þvi miður hefur nýr vinnslusalur enn ekki orðið að veruleika hjá —Eg er ósáttur við þá stefnu stjórnvalda hve litlu fjármagni er varið til fiskvinnslunnar. Yfir 90% af fjármagni Fiskveiðasjóðs fer í nýsmíðar og ef t.d. 4 nýir skuttogarar eru smiðaðir á árinu þá er fé Fiskveiðasjóðs það árið tarið. Þar að auki er það alröng stefna að mínu mati að smíða endalaust ný fiskiskip þegar flot- inn er orðinn meira en helmingi of stór fyrir æskilegar fiskveiðar á miðunum í kringum landið. Ut- koman verður sú að afkoman verður verri á hvert skip og með- án húsunum er eins ábótavant í landi og raun ber vitni verður ’ekki hægt að nýta þann afla, sem fæst eins og skyldi. — Þá er ég ekki dús við hve miklu af fé Fiskveiðasjóðs er ráð- stafað pólitískt. Menn eiga að sækja um sín lán, fara inn í röð- ina og fá lánin þegar þeirra tími kemur ef þeir uppfylla öll skil- yrði. Ég myndi aldrei þiggja póli- tiska hjálp til að fá fjármagn til míns fyrirtækis, myndi ekki standa í þvi að ganga á milli ráð- herra og þingmanna til að troðast með frekju fram fyrir aðra. — Mín skoðun er sú að pólitík og klíkuskapur ráði gífurlega miklu í sambandi við lánafyrir- greiðslu banka og sjóða. Það er ekki spurt hvernig menn reka sín fyrirtæki, nema síður sé. Kunn- ingsskapur Og þrýstingur á stjórn- málamenn er það sem fyrst og fremst hefur borið árangur, segir Jón Karlsson. Eitt það versta sem ég hef upplifað Það var árið 1971 að Jón Karls- son keypti fyrirtækið af dætrum Eggerts Jónssonar frá Nautabúi og Jóni Jónssyni úr Hafnarfirði. Hafði Jón rekið fyrirtækið í um 24 ár undir nafninu Hraðfrysti- hús Innri-Njarðvíkur. Brynjólfur hf. var reyndar stofnaður árið ^963 af Jóni og Halldóri Brynjólfssyni. Keyptu þeir mb. Lóm frá Noregi og síðar bátinn ijkúm. Ráku þeir saltfiskverkun í Ytri-Njarðvík og frá 1971 einnig húsin í Innri-Njarðvík. Árið 1973 skiptu þeir fyrirtækinu og komu Skúmur og húsin í Innri-Njarðvík í hlut Jóns. Jón rak Söltunarstöðina Mána á Neskaupstað á árunum frá 1962 til 1968 og voru saltaðar þar yfir 100 þúsund tunnur af síld á þessu tímabili. Þá var hann einn af hlut- höfum í Rauðubjargarverksmiðj- unni á Neskaupstað og hann segir okkur frá afdrifum þeirrar verk- smiðju og loðnubræðslunum eins og þær eru hér á landi um þessar mundir. — Árið 1967 vantaði okkur 1.7 milljón til að koma Rauðubjargar- verksmiðjunni af stað. og fengum ekki fyrirgreiðslu. Verksmiðjan var rifin niður á einni viku árið 1970 en við höfðum verið í 2 ár að byggja hana upp. Verksmiðjan var síðan seld Færeyingum sama ár fyrir 10 milljónir króna, nánast gefin, því í dag kostar svona verk- smiðja nálægt 300 milljónum Þegar vélarnar voru seldar kost- uðu sams konar vélar 50 milljónir króna. — Meðan vélarnar biðu á Viðtal: Agúst I. Jónsson Myndir: Ragnar Axelsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.