Morgunblaðið - 13.02.1977, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.02.1977, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. FEBRUAR 1977 atvirma — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Norska sendiráðið óskar að ráða afgreiðslu- og skrifstofu- stúlku, sem getur einnig annast þýðingar. Krafist er kunnáttu í norsku eða öðru norðurlandamáli, ensku og vélritun. Ráðning frá apríl-maí 1977. Laun fara eftir hæfni. Skrifleg umsókn sendist Norska sendiráðinu, Pósthólf 250, Reykjavík. Afgreiðslustarf Óskum eftir afgreiðslumanni til starfa við véla- og byggingavörur. Starf í verslun og á lager. Gott framtíðarstarf fyrir lipran og reglusaman mann. Tilboðum með upplýsingum um aldur og fyrri störf sé skilað fyrir 1 7. þ.m. á afgr. Morgunblaðs- ins merkt: „Afgreiðslustarf — 482 7". Afgreiðslumaður Ungur röskur maður óskast til afgreiðslu á bílum og búvélum og til ýmissa annarra starfa. Bílpróf skilyrði. Upplýsingar veittar á skrifstofunni. G/obusr LÁGMÚLI5, SÍMI81555 Fjölbreytt starf Stórt fyrirtæki óskar eftir að ráða starfs- mann í útflutningsdeild nú þegar. Starfið er einkum fólgið í gerð útflutningsskjala og krefst árvekni, vandvirkni og staðgóðr- ar kunnáttu í vélritun, ensku og reikningi, og þarf viðkomandi að geta unnið sjálf- stætt. Tilboð, er greini aldur, menntun og fyrri störf, óskast send Morgunblaðinu fyrir 19. febrúar 1977, merkt: „Erlend viðskipti — 1 673" Hagvangur hf. Sölumann fyrir einn af viðskiptavinum sínum. Fyrirtækið: — Stórt iðnfyrirtæki, sem selur mikið á erlenda markaði. — Á höfuðborgarsvæðinu. / boði er: — Staða sölumanns, sem jafnframt væri staðgengill sölustjóra. — Góð laun — Talsverð ferðalög erlendis. Við leitum að starfskrafti: — Sem er atorkusamur og getur starfað sjálfstætt. — Sem er reyndur sölumaður. — Sem hefur góða málakunnáttu. Skriflegar umsóknir, ásamt yfirliti yfir menntun, starfsferil og mögulega með- mælendur, sendist fyrir 22. febrúar 1 977 til: Hagvangur hf. c/o Sigurður R. Helgason, Rekstrar- og þjóðhagfræðiþjónusta, Klapparstíg 26, Reykjavík. Farið verður með allar umsóknir sem algert trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað Mötuneyti — Hótel Hjón, hann matsveinn, óska eftir að taka að sér rekstur á mötuneyti, hóteli eða öðru því um líku úti á landi. Tilboð sendist Mbl. fyrir 1. marz merkt: Áreiðanlegur— 1698. Öllum tilboðum svarað. Atvinna Ungur fjölskyldumaður óskar eftir vel- launaðri framtíðarstöðu, helst utan Reykjavíkur. Hefur stúdentspróf, auk reynslu við tölvuvinnslu. Tilboð sendist Mbl. merkt „Atvinna 1695". Bifvélavirki Óskum að ráða bifvélavirkja til að veita forstöðu bifreiða- og vélaverkstæði okkar á Þórshöfn. Húsnæði á staðnum. Upplýs- ingar í síma 96-81 200. Kaupfélag Langnesinga. Trésmiðir — verkamenn Viljum ráða trésmiði og verkamenn nú þegar. Byggingasamvinnufélag Kópavogs, sími 42595. Starfskraftur Óskast við gerð tollskjala og verðútreikn- inga. Æskilegt að umsækjandi sé vanur. Umsóknir með uppl. um menntun og fyrri störf, sendist Mbl. fyrir 19. febrúar n.k. merktar: Tollskjöl 2593. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður Landspítalinn AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til starfa í eitt ár á svæfingar- og gjörgæzludeild spítalans frá 1. maí n.k. Umsóknir er greini aldur, námsferil og fyrri störf ber að senda Skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 25. marz n.k. Kleppsspítalinn HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast á deild I. frá 15. apríl n.k. Umsóknum ber að skila til hjúkrunarframkvæmda- stjórans, sem veitir nánari upplýsingar HJÚKRUNA RFRÆ Ð/NGA R óskast á ýmsar deildir spítalans. Vinna hluta úr fullu starfi kemur til greina svo og ein- staka vaktir. Ennfremur óskast hjúkrunar- fræðingar á NÆTURVAKTIR eingöngu. Upplýsingar veitir hjúkrunarfram- kvæmdastjóri sími 381 60. Vífilsstaðaspítalinn SJÚKRAÞJÁLFARI óskast til starfa á spít- alanum nú þegar eða eftir samkomulagi. Vinna hluta úr fullu starfi kemur til greina. Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálf- arinn, sími 42800. Reykjavík, 1 1. febrúar, 1977 Endurskoðendur Óskum eftir löggiltum endurskoðanda sem meðeiganda að skrifstofu er annast mun lögfræði- og málflutningsstörf, bök- haldsþjónustu og eignaumsýslu. Þeir sem kynnu að hafa áhuga eru beðnir að leggja nafn sitt, heímilisfang og slmanúmer inn á auglýsingadeild Morgun- blaðsins eigi siðar en 18. febrúar n.k. merkt „Meðeigandi — 1699'. Með allar umsóknir verður farið sem trúnaðarmál. Fyrirtæki — Sölumaður Áreiðanlegur sölumaður frá Reykjavik sem ferðast mikið í kring um landið, óskar eftir vörum til umboðssölu. Til greina kæmi að taka með einhvern lager. Þeir sem áhuga hefðu á góðum viðskiptum sendi tilboð til Mbl. fyrir 1. marz merkt: Trúnaður — 1 697. Öllum tilboðum svarað. Blikksmiðir Viljum ráða nokkra blikksmiði eða menn vana blikksmíði. Fæði og húsnæði á staðnum. Umsóknareyðublöð á skrifstof- um vorum, Lækjargötu 12, Iðnaðar- bankahúsinu, efstu hæð og Keflavíkur- flugvelli. íslenzkir aðalverktakar s. f. Arkitekt og byggingarfræðingur óskast til starfa á teiknistofu á Akureyri. Æskilegt að umsækjendur geti tekið til starfa sem fyrst. Þeir sem hafa áhuga sendi umsóknir sínar í pósthólf 110 Akur- eyri fyrir 20. þ.m. Umsóknir skoðast sem trúnaðarmál. Hárskeri til Færeyja Duglegur ungur maður óskast á nýtízku rakarastofu í Þórshöfn. Laun 30 danskar kr. á tímann. Getum útvegað herbergi. Ókeypis ferð. Skrifið strax til: Ellingsgaard & Frandsen, Mylnugöta 3800 Thorshavn, Færeyjum. Sölumaður óskast Við viljm ráða frambærilegan einstakling með frumkvæði og jákvæð viðhorf til starfa í fyrirtæki voru. STARFIÐ er fólgið í: 1. Afgreiðslu viðskiptavina, er koma á skrifstofu vora. 2. Að hafa samband við viðskiptavini. 3. Að gera könnun hjá hverjum og einum viðskiptavini um þörf hans fyrir þjónustu þá, er við bjóðum. ÞJÁLFUN fer fram í formi: 1. Námskeiðasóknar 2. Leiðsögn á lausnum raunverulegra verkefna LAUN: Fyrstu þrjá mánuðina, meðan þjálfun og reynsla standa yfir eru ekki há laun í boði. Þeir sem áhuga hafa á ofangreindu starfi vinsamlega sendið umsókn á afgr. blaðs- ins merkt: „Hef áhuga á vátryggingu — 1519"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.