Morgunblaðið - 15.02.1977, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977
7
Þingmenn og
umbjóðendur
Vilhjðlmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra seg-
ir m.a. i helgarspjalli i
Timanum:
„Alþingismönnum er
þrásinnis álasað fyrir sam-
bandsleysi við kjósendur,
við kunnáttumenn á sér-
sviðum, forsvarsmenn
sveitarfélaga. við aðila
vinnumarkaðarins o.s.frv.
En á sama tima er þeim
hallmælt fyrir að vera
þrælar sérfræðinga og
embættismanna og þý
kjósenda sinna. — Sann-
leikurinn er auðvitað sá,
að hér verður að fara bil
beggja og að seint mun
takast að þræða hinn
gullna meðalveg, svo ekki
verði að fundið. En ýmis
frávik, sem ævinlega mð
benda á, gefa ekkert til-
efni til að hafa uppi þann
djöfulgang, sem nú dynur
yfir. Hann á ekkert skylt
við hollráð eða heilbrigða
gagnrýni. Sibylgjan um
siðleysi alþingismanna,
heimskupör og ræfildóm á
ótal sviðum er til þess
eins fallin að ófrægja Al-
þingi íslendinga sem
stofnun og grafa undan
áliti þingsins i augum
þjóðarinnar. Séu svivirð-
ingarnar hrns vegar krufn-
ar til mergjar I einstökum
atriðum kemur i Ijós, að
eitt rekur sig ð annars
horn ..."
Þjóðviljinn í
hlutverki
Ástralíuagents
Margur íslendingurinn
hefur flutzt búferlum til
annarra landa i timanna
rðs — og farnast vel eða
illa I nýjum heimkynnum
eftir atvikum. Svo er fyrir
að þakka að hér rikir
ferðafrelsi, sem er meira
en hægt er að segja um
öll þjóðskipulög samtim-
ans. Þrátt fyrir mismun-
:ndi aðstæðu i ýmsum
rikjum heims. er sum hver
hafa upp ð möguleika að
bjóða sem hér eru ekki til
staðar, verður þó niður-
staða flestra jslendinga
hin sama: að heima er
bezt. Engu að siður er það
gömul og ný saga, að hér
hafa jafnan verið til svo-
kallaðir „agentar" fyrir
landflóttastefnu. Þeir eru
frjálsir að sinum skoðun-
um, þó að stundum sé
lágt lotið.
Þjóðviljinn hefur nú um
sinn gerst boðberi land-
flóttastefnunnar. Af og til
birtast þar greinar, sem
þjóna undir þessa við-
leitni, þar sem „auðvalds-
þjóðfélagi" okkar er fund-
ið flest til foráttu. Það
skritna er. að blaðið hliðr-
ar sér hjá að bera saman
kjör og aðstæður hér og i
rikjum sósíalismans, eða
að beita sér fyrir fólks-
flutningum til „sælurikj-
anna" f Austur-Evrópu,
hvað sem veldur. Gjarnan
er vitnað til annarra „auð-
valdsrikja", þar sem sam-
félagsleg þjónusta og al-
mannaöryggi er siður en
svo þyngra á metum en
hér heima. Þetta er at-
hyglisvert „framhjáhald"
frá „hugsjóninni" en
e.t.v. bæði skiljanlegt og
fyrirgefanlegt.
Einkum og sér i lagi hef-
ur Þjóðviljinn beint frán-
um augum sinum að
Ástraliu — f landflótta-
boðskapnum. Eitt slfkt
dæmi þakti alla baksfðu
Þjóðviljans siðasta sunnu-
dag i liðnum janúarmán-
uði. Og þessari útsiðufrétt
(víðtali) var fylgt eftir i
leiðara blaðsins daginn
eftir. Þar var m.a. sagt að
menn hér heima væru
„hálfdrættingar f laun-
um" við innflytjendur i
Ástralfu. Ekki var þó
minnst i félagslegt öryggi
verkafólks eða stöðu
frumbyggja þar i landi.
Hins vegar var það lof-
sungið i viðtalinu. hver
kostur hvitra innflytjenda
væri, þ.e. þeirra „sem eru
duglegir og vilja vinna",
eins og það var orðað.
Einhvern veginn finnst
manni að þar „hæfi skel
kjafti", er Þjóðviljinn
kemur fram i búningi
Ástraliuagents. þótt e.t.v.
hefði staðið blaðinu nær
að lofsyngja búferlaflutn-
ing til sósialiskra þjóðfé-
lagshátta. þar sem
„Gulakeyjaklasin "
blómstrar, frjálst félaga-
starf er fyrir bi, og ferða-
frelsið tilheyrir löngu lið-
inni tið.
Úrklippa úr Þjóðviljanum
Auói 80
árgerð 1977 fyrirliggjandi.
HEKLAhf
Lðugavegi 170—172 — Simi 21240
Av.Ai 80 árgerð 1977 er glæsilegur fólksbíll í nýjum búningi,
sem hefir að baki sér hina viðurkenndu vesturþýsku tækni-
kunnáttu og gæðaframleiðslu sem tryggir þægilegan, öruggan
og ódýran akstur. — Audi 80 biður yðar nú í sýningarsal
okkar. -— Gjörið svo vel að líta inn og við munum gera okkar
besta til að leysa úr spurningum yðar varðandi Audt80.
Verð á Audi 80 LS ca. kr. 2:332 þúsund
Verð á Audi 80 GLS ca. kr. 2.435 þúsund
kynning
maxima
Helstu upplýsingar:
Hæð miðpunkts: 127 mm. Bil milli odda: 6S0 mm. Klóplan: 5" eða
6". Gat gegnum kló 20 mm. Mótor: 3-fasa 220/380 V. 1 hestafl.
1 fasa 220 V. 0.85 hestöfl.
Hraðar: 60/120/240/ 350/480/ 630/ 1250/2500/snún/mln.
Verð með söluskatti:
Mentor 10
kr. 390.000
Borð 10
kr. 37.000
Fræsari (0,25 hestöfl
kr. 98.000
Verið velkomin
á sýninguna okkar
Einkaumboðsmenn.
verkfœri & járnvörur h.f.
DALSHRAUN! 5, HAFNARFIROI SIMI 53332
Tann
ENSKIR
PENINGASKÁPAR
eldtraustir — þjófheldir
heimsþekkt
framleiðsla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888
yyi(g/a§
samlokurnar
dofna ekki
með aldrinum.
Þokuljós i og kastljós.
Halogenðljós
fyrir J-perur
ótrúlega mikið
Ijósmagn.
PERURí
ÚRVALI
NOTIÐ
tAÐBESTA
H
IILOSSI,
Skipholti 35
S: 81350 verzlun 81351 verkstæði 81352 skrifstofa