Morgunblaðið - 15.02.1977, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR Tð. FEBRUAR 1977
Svansprent hf.
igu í Kópavogi:
Svan og brosti Við hváðum hélt
hann áfram, „hún er eiginlega bæði
erindreki og sendiherra fyrirtækisins
og þegar hún gengur hvað vasklegast
fram get ég ekki stillt mig um að kalla
hana „foringja hvítu mannanna"
Það var hellt upp á könnuna á kaffi-
stofunni, spjallað og spurt Ýmislegt
bar á góma hjá starfsfólkinu eins og
gengur en við spurðum Jón Svan um
vöxt fyrirtækisins:
ÚR100 FM.
LEIGUHÚSNÆÐI í
1600 FM EIGIN HÚSNÆÐI
„Prentsmiðjan á 10 ára afmæli þann
1 maí n.k." sagði Jón Svan, „við
byrjuðum í 100 fermetra húsnæði á 2.
hæð í Skeifunni 3 í Reykjavik og
vélakosturinn var ein lítil Heidelberg
vél fyrir alls konar smærri verkefni í
prentþjónustu. Auk mín starfaði ein
stúlka í prentsmiðjunni þá Fyrsta verk-
efni hennar í prentsmiðjunni var að
skera 12 þús pylsubrauð fyrir 17. júní
1967, því við höfðum engin verkefni
fyrir prentvélina. En smátt og smátt
vex þetta, fyrsta lærlinginn tek ég
1968 og um 1970 er starfsmanna-
fjöldi kominn upp í 5—6 manns.
1971 keyptum við offsetvél fyrir stærri
verkefni og upp úr því fór húsnæðið í
Skeifunni að springa algjörlega utan af
okkur. Þá gekk í garð timabil með
feikilegum pappírsburði upp á 2. hæð
og alls konar hengjandi vandræði
„Verðum að fylgja örum
tæknibreytingum til að
dragast ekki aftur úr”
Rætt við Jón Svan Sigurðsson, forstjóra Svansprents
vegna húsnæðisins Með tilkomu off-
setprentvélarinnar gjörbreyttust öll
verkefni sem við fengum til vinnslu,
því áður höfðum við eingöngu unnið
smærri verk, en nú fóru að koma
vandaðri verk, alls konar, frá teiknistof-
um og mikið af þeim verkefnum voru
litprentanir. Við unnum þá bæði fyrir
fyrirtæki og einstaklinga og ugglaust
muna margir eftir litprentun á Vísi í
vikulokin, en við prentuðum hann um
nokkurt skeið."
KÓPAVOGUR MIÐSVÆÐIS
Á
„Hvernig þróuðust mál þegar hús-
næðið var orðið alltof lítið?"
„Þá var annaðhvort að hrökkva eða
stökkva. Ég var búinn að reyna mikið
trl þess að fá húsnæði einhvers staðar
nálægt Suðurlandsbrautinni í Reykja-
vik, en það var alltof dýrt og ég gat
ekki ráðið við það. Þá bauðst mér
húsnæði i Kópavogi með aðgengilegri
kjörum og það þýddi ekkert annað en
bera fyrir sig fæturnar úr þvi að maður
var kominn á loft á annað borð Ég var
anzi hræddur við að flyþa starfsemina i
Kópavog vegna þess að ég taldi liklegt
að ég myndi missa viðskipti. en sá ótti
var ástæðulaus. Bæðí var að gamlir
viðskiptavinir létu sig krókinn engu
muna og auk þess er maður þarna,
þegar allt kemur til alls, miðsvæðis á
Stór-Reykjavikursvæðinu. í gamla
daga var alltaf talað um að halda sig
með þjónustufyrirtæki sem næst Mið-
bænum gamla i Reykjavik, en nú er
svo viða orðið þröngt þar með blla-
STÓR REYKJAVÍKUR-
SVÆÐINU
í TILEFNI iðnkynningar f Kópavogi
heimsóttum vi8 Svansprent h.f. að
Auðbrekku 55. Forstjóri Svans-
prents, Jón Svan Sigurðsson prent-
ari, stofnaði fyrirtæki sitt fyrir 10
írum í 100 fm. leiguhúsnæSi f Skeif-
unni. Hann hafði áður unnið m.a. f
Eddu og hjá Hilmi h.f. við prent-
smiðjustjórn. i Skeifunni óx fyrirtæk-
inu skjótt fiskur um hrygg, enda þótt
byrjunin væri nokkuð óvanaleg, þvf
vegna verkefnaskorts fyrir prentvél-
ina var pylsuát Reykvfkinga 1 7. júnf
1967 undirbúið f Svansprenti.
Nú notar fyrirtækið hins vegar
600 fermetra af 1600 fermetra hús-
næði sfnu til prentþjónustunnar og
14 starfsmenn vinna f Svansprenti
um þessar mundir. Öll alhliða prent-
þjónusta er unnin þar, setning,
filmu- og plötugerð, prentun o.fl.
„FORINGI HVÍTU
MANNANNA"_____________
Það er persónulegur blær yfir starf-
seminni þar, dæmigerður fyrir vinnu-
stað þar sem allir starfsmenn þekkjast.
Fyrirtækið hefur verið byggt upp með
elju, atorku og áræðí og það hefur
kostað langan vinnudag þeirra sem
standa i forsvari. en dugmikið starfs-
fólk hefur létt róðurinn Það eru mörg
handtökin og margar vangavelturnar
sem fylgja prentiðninni og við vorum
einmitt að ræða þá hlið við Jón Svan
þegar eiginkonu hans, Þuriði Ólafs-
dóttur, sem kölluð er Dússý, bar að.
Hún hafði verið að sinna ýmsum mál-
um fyrir prentsmiðjuna úti í bæ.
„Þarna kemur formaðurinn' . sagði Jón
Jón Svan forstjóri
ræðir mðlin.
Hiuti af húsi Svansprents við Auðbrekku, en á jarðhæðinni hefur
Tréval aðstöðu.
Ur öðrum vélasalnum. Fremst er Sverrir Hauksson prentari, þð Jón
Ásgeir Hreinsson setjari, Jón Svan og Snæbjörn Þórðarson offset-
prentari.
Hrefna Jónsdóttir og Asta Sigurbjörnsdóttir vinna ð bókbandinu.
stæði og umferð að það er í raun og
veru mun hagstæðara að vera aðeins
utan við hringiðuna og ekki má gleyma
að mikið af samtölum við viðskiptavini
okkar getum við afgreitt símleiðis."
MIKIL HAGRÆÐING AÐ
RÚMGÓÐU HÚSNÆOI
„Þegar ég keypti húsið Auðbrekku
55 í Kópavogi í árslok 1973, fannst
mér það vera alltof stórt, en auk þess
að starfsemin hefur aukizt mikið þá
hefur það reynzt ákaflega mikil hag-
ræðing í því að hafa það rúmgott, því
húsnæði á prentsmiðjuhæðinni, en
það er mikill kostur að unnt er að keyra
inn á þá hæð og einmitt í því er fólgin
mesta breytingin frá gamla staðnum,
því það munar ákaflega miklu að hafa
allt á einni hæð sem bílar geta keyrt
að Til dæmis auðveldar það einnig
allar forfæringar á hjólavögnum og
lyfturum, léttir vinnuna og flýtir fyrir."
24 LETURTEGUNDIR MEÐ
33 LETURSTÆRÐIR
„Þetta hefur verið jafn og stöðugur
vöxtur í fyrirtækinu.
Jón Kristjánsson prentsmiðjustjóri ræðir við Guðrúnu Þorvarðardótt-
ur um væntanlega prentun.
þá þarf ekki að umstafla neinu og það
skiptir miklu máli. Þegar ég flutti inn
með prentsmiðjuna um áramótin
1973—1974 var búið að byggja
neðstu hæð hússins, sem er 400 fer-
metrar og 2 50 fermetra af miðhæð-
inni. Nú er prentsmiðjan hins vegar í
600 fermetra húsnæði á miðhæðinni,
Trésmiðjan Tréval leigir neðstu hæðina
og við erum að Ijúka við að steypa upp
þriðju hæðina, sem verður 600 fer-
metrar að flatarmáli.
Við eigum eftir að innrétta skrifstofu-
Snarasti þátturinn í vexti fyrirtækis-
ins er að sjálfsögðu vegna aukningar á
prentvélakosti. Við erum nú með tvær
offsetvélar fyrir stærri og vandasamari
verkefni í lit og svarthvítt, tvær prent-
vélar fyrir smærri verkefni, filmu og
plötugerð og nýjustu tegund af setn-
ingavél fyrir offset þar sem letrið kem-
ur fram á sjónvarpsskermi. Þá eigum
við von á offsethraðprentunarvél, en
svo örar eru breytingarnar í taékniþró-
un prentiðnaðarins að það er í rauninni
alltaf eitthvað nýtt að koma fram
Sigrtður Ólafsdóttir, Sirrý, skrifstofustdlka á hagræð-
ingarfundi með Dússý og Jóni Svan.
Sverrir Brynjólfsson offsetljósmyndari og skeytinga-
maður, t.v., og Björgvin Pðlsson offsetljósmyndari.
Jón Ásgeir Hreinsson setjari.