Morgunblaðið - 15.02.1977, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977
21
ALLT EFTIR UPPSKRIFTINNIIKORFUKNATTLEIKNUM:
Fram veítti KR mótspyrnu til
að byrja með en tapaði 79-96
KR vann sigur á Fram í 1. deildar
keppninni í körfuknattleik nú
um helgina og lokatölur urðu
96—79 eftir aö staðan hafði verið
40—33 í leikhléi og höfðu Fram-
arar haft frumkvæðið mestan
hluta fyrri hálfleiks.
Gangur leiksins var svo sá að
Fram náði forystunni strax í upp-
hafi komst í 7—2 og 9—4, en á 11.
mínútu náðu KR-ingar forystunni
er staðan var 14—13 þeim í vil, en
Framarar komust yfir aftur og
höfðu þeir forystuna þar til á 18.
mínútu fyrri hálfleiksins að stað-
an var 31—28 þeim í vil, en það
sem eftir var hálfleiksins skoruðu
KR-ingar 12 stig gegn aðeins 2
Framstigum og náðu þannig for-
ystunni og í leikhléi var staðan
40—33, KR í vil.
Framarar hófu seinni hálfleik-
inn svo nokkuð vel og tókst að
minnka muninn niður i 1 stig,
44—43, á 4. minútu, en þrátt fyrir
það var sigur KR-inga aldrei í
neinni hættu og juku þeir mun-
inn jafnt og þétt og lauk leiknum
með öruggum sigri þeirra 96—79.
Þessi leikur var fremur tíðinda-
litill, sigur KR-inga virtist aldrei i
nokkurri hættu þó að Framarar
hefðu frumkvæðið um tima i fyrri
hálfleik.
KR-ingar léku þennan leik vel,
en þurftu reyndar ekki að eiga
neinn stórleik til að vinna. Beztu
menn liðsins voru þeir Einar
Bollason, Gunnar Ingimundarson
og Eiríkur Ingimundarson 18,
Eirikur Jóhannesson 17, Bjarni
Jóhannesson 15, Birgir
Guðbjörnsson 11, Gísli Gíslason 4
og Árni Guðmundsson og
Kolbeinn Pálsson 2 hvor.
Fram átti nokkuð góðan leik og
fer liðinu fram með hverjum leik
þó það dugi ekki til sigurs gegn
„stóru“ liðunum. Beztu menn liðs-
ins voru Guðmundur Böðvarsson
og Jónas Ketilsson, en stigin skor-
uðu: Guðmundur Böðvarsson 29,
Jónas Ketilsson 19 Þorvaldur
Geirsson 13, Ómar Þráinsson 6,
Helgi Valdemarsson og Þorkell
Sigurðsson 4 hvor og Sigurjón
Ingvason 2 stig.
Armenningar náðu 100 stiga
markinu í leiknum við UBK
ÁRMENNINGAR áttu ekki f
vandræðum með Blikana i 1.
deildar keppninni f körfuknatt-
leik nú um helgina og skoruðu
þeir hvorki meira né minna en
104 stig, sem er met þessa
keppnistfmabils, en lokatölur
urðu 104—70, eftir að staðan f
ieikhléi var 46—41.
Leikurinn var annars mjög
tiðindalítill. Ármenningar voru
ætíð yfir og sigur þeirra alltaf
öruggur þó að munurinn væri
ekki mikill i leikhléi og er ekki
nein ástæða til að rekja gang
leiksins í stuttu máli. Ármenning-
ar notuðu alla menn sína og kom-
ust þeir allir vel frá leiknum, sem
var rétt í meðallagi vel leikinn af
beggja hálfu. Allir leikmenn Blik-
anna fengu einnig að reyna sig og
nú eftir að þeir eru nánast örugg-
ir um fall reyna þeir að æfa sem
flesta leikmenn og öðlast sem
mesta leikreynslu því að þeir ætla
sér ábyggilega ekki að vera lengi í
2. deild.
Þeir Jón Sigurðsson og Simon
Ólafsson voru að venju atkvæða-
mestir Ármenninga, en aðrir leik-
menn léku þokkalega. Stigin fyrir
Ármann skoruðu: Jón Sigurðsson
og Símon Ólafsson, 26 hvor, Jón
Björgvins 13, Atli Arason 11,
Björn Christjansen 10, Guðmund-
ur Sigurðsson 8, Björn Magnús-
son 6, Haraldur Hauksson og
Helgi Sigurðsson 2 hvor.
Leikur Blikanna var þokkaleg-
ur og það er vissulega gott að
skora 70 stig gegn núverandi
íslands- og bikarmeisturum, en
beztur þeirra var Ágúst Lindal og
skoraði hann einnig mest þeirra
eða 24 stig, næstir voru: Erlendur
Markússon 13, Guttormur Ólafs-
son 8, Rafn Thorarensen og Ómar
Gunnarsson 7 hvor, Sigurbergur
Björnsson 6, Árni Gunnarsson 3,
Pétur Eysteinsson 2.
HG
Jón Jörundsson skorar án þess að Lárus Hólm og Torfi Magnússon fái
rönd við reist.
Auðvett hjá IR gegn Val
1R vann fyrirhafnarlftinn sigur,
92—77, yfir Val f leik liðanna f 1.
deild íslandsmótsins f körfuknatt-
leik nú um helgina. Ungu
mennirnir hjá IR fengu að
spreyta sig talsvert og skiluðu
þeir hlutverki sfnu með prýði í
þessum rólega og tfðindalitla
leik.
UMFN vann daufa stúdenta
NJARÐVlKINGAR unnu góðan
sigur, 93—77, á stúdentum f 1
deildar keppninni f körfuknatt-
leik nú um helgina, eftir að stað-
an í leikhléi var 47—43, þeim f
vil. Njarðvíkingar lentu í tals-
verðum villuvandræðum, misstu
4 menn útaf með 5 villur en þrátt
fyrir það tókst stúdentum ekki að
vinna leikinn og voru þeir fremur
slakir, einkum vörnin f lok seinni
hálfleiks og gerði það út um leik-
inn.
Gangur leiksins var svo þannig
stúdentar byrja vel og komast í
7—3 á 3. mínútu, en þá taka
Njarðvikingar góðan sprett og
breyttu stöðunni í 11—7 sér í vil,
en stúdentar voru ekki á því að
gefa sig og um miðjan hálfleikinn
jöfnuðu þeir 26—26. Siðan var
leikurinn mjög jafn þar til í lok
fyrri hálfleiksins að Njarðviking-
um tókst að ná 3 stiga forystu,
47—43, og var staðan þannig í
leikhléi.
I seinni hálfleik höfðu Njarð-
víkingar svo alltaf forystuna, en
munurinn varð aldrei mikill, oft-
ast um 4 til 6 stig þar til á 12
minútu að slæmur kafli kemur
hjá stúdentunum og Njarðviking-
ar ná afgerandi forystu, sem þeir
auka svo jafnt og þétt til leiksloka
og varð munurinn mestur 20 stig
þegar staðan var 92—72 i lokin,
en lokatölur urðu svo 93—77,
Njarðvik i vil.
’ Þ'etta var þiikkalega "'ie'ífemn
leikur einkum af Njarðvíkinga
hálfu, sem léku sterkan varnar-
leik og spiluðu mjög skynsamlega
í lokin þegar villuvandræðin voru
farin að segja til sin. Það er hins
vegar ekki hægt að segja að
stúdentar hafi leikið skynsam-
lega, það var allt of mikið óðagot á
þeim og eins og það ætti að skora
fjöldann allan af stigum í hverri
sókn og oft hreinlega gáfu þeir
Njarðvikingum boltann sem
þökkuðu fyrir sig með því að
bruna upp og skora.
Njarðvíkingar áttu eins og
venjulega jafnan leik og liðið átti
allt fremur góðan leik, þó að þeir
Gunnar Þorvarðarson og Þor-
steinn Bjarnason skæru sig nokk-
uð úr, en stigin fyrir liðið skor-
uðu: Gunnar Þorvarðarson 26,
Guðsteinn Ingimarsson 15, Þor-
steinn Bjarnason 14, Brynjar Sig-
mundsson 12, Kári Marísson og
Geir Þorsteinsson 8 hvor, Jónas
Jóhannesson 6 og Stefan
Bjarkason 4 stig.
Stúdentar voru nokkuð mis-
jafnir I þessum leik, áttu mjög
góða spretti, en duttu svo niður
þess á milli. Virðist sem liðið geti
ekki leikið einn einasta leik án
þessara geysilegu sveiflna, liðið
er annað hvort mjög gott eða þá
hrsiníega lélegt i sama leiknum.
Beztu menn stúdenta voru þc-ir
Steinn Sveinsson og Guðni Kol-
béinssón,' én' sfigin fyrir' 'líóíó
skoruðu: Steinn Sveinsson 27,
Bjarni Gunnar Sveinsson 17, Ingi
Stefánsson 17, Jón Héðinsson 12,
Ingvar Jónsson 4 og Guðni
Kolbeinsson3 stig.
Gangur leiksins var svo þannig
að ÍR-ingar höfðu frumkvæðið
allt frá byrjun, komust i 6—0 en á
7. mínútu tókst Valsmönnum að
jafna, 8—8, í eina skiptið í leikn-
um, en ÍR-ingar voru ávallt
sterkari og náðu frumkvæðinu
strax aftur og á 13. minútu var
staðan orðin 22—13, þeim i vil, og
i leikhléi var staðan orðin 40—28.
í seinni hálfleik höfðu ÍR-ingar
svo ávallt forystuna og var
munurinn oftast um 10 stig, en
varð þó aðeins 7 stig, 70—63, á 13.
mínútu en leiknum lauk svo með
92—77 sigri ÍR eins og áður sagði.
Leikur þessi var fremur til-
þrifalitill og yfirburðir ÍR-inga
það miklir að aldrei varð um
neina spennu að ræða. Beztu
menn ÍR í þessum leik voru bak-
verðirnir Kristinn Jörundsson og
Kolbeinn Kristinsson og svo
Stefán Kristjánsson. Stigin fyrir
liðið skoruðu: Jón Jörundsson 24,
Kristinn Jörundsson 18, Kolbeinn
Kristinsson 16, Þorsteinn
Hallgrimsson 12, Jón Pálsson 6,
Stefán Kristjánsson 10, og þeir
Kristján Sigurðsson, Steinn Logi
Björnsson og Þorsteinn Egilsson
skoruðu 2 stig hver.
Beztu menn Vals i þessum leik
voru Kristján Ágústsson, Torfi
Magnússon og Ríkharður Hrafn-
kelsson en stigin skoruðu:
Kristján Ágústsson 25, Torfi
Magnússon 17, Ríkharður Hrafn-
kelsson 15. Helgi Gústafsson 8,
Lárus Hólm 6, Gisli Guðmundsson
4 og Þorvaldur Kröyer 2 stig.
HG
UBK-stúlkurnar kræktu í stig
BREIÐABLIK bar sigur úr být-
um í baráttu botnliðanna i 1.
deildar keppni kvenna I hand-
knattleik, sigraði Viking með
12 mörkum gegn 11 í Garðabæ á
sunnudaginn, eftir að staðan
hafði verið 7—7 í hálfleik. Það
eina sem var skemmtilegt við
leik þennan var fögnuður
Breiðabliksstúlknanna í leiks-
lok, en engu var likara en þær
hefðu unnið til íslands-
meistaratitilsins. En fögnuður
þeirra var skiljanlegur, þar
sem þetta var jafnframt fyrsti
sigur liðsins i leik i vetur. UBK
mun hins vegar hafa kært fyrri
leik sinn við Viking, sem Vík-
ingur vann, þannig að mögu-
leiki er á því að sá leijtur verði
leikinn að nýju, og þar með má
segja að staða UBK-stúlkanna í
1 deildar keppninni sé ekki
með öllu voniaus.
Leikurinn sem fram fór í
Garðabæ á sunnudag átti ekk-
ert skylt við íþrótt þá er heitir
handknattleikur. Bæði þessi lið
eru afksaplega léleg og þegar
við bættist svo taugaslappleiki
hjá stúlkunum var varla von á
góðu. Víkingur hafði lengst af
yfir í leiknum, mest 3 mörk er
staðan var 7—4 um miðjan
fyrri hálfleikinn. Tókst Breiða-
bliksstúlkunum að jafna 7—7 a
síðustu sekúndum hálfleiksins
með skoti frá miðjum velli. I
seinni hálfleiknum náði Vfk-
ingur aftur forystu, og var mjög
skammt til leiksloka er Breiða-
blik tókst að jafna í 11—11 og
síðan skora sigurmark leiksins.
stjl.
HK vann unglingana
FORLEIKUR að leik islenzka
landsliðsins og pólska liðsins
SLASK í fþróttahúsinu í Hafn-
arfirði á sunnudagskvöld var
milli islenzka unglingalands-
liðsins sem skipað er leikmönn-
um 23 ára og yngri og 3. deildar
liðs HK (Handknattleiksfélags
Kópavogs). Kónavogsliðið I
þennan leik nokkurn veginn i
hendi sér og sigraði með 21
marki gegn 17. Margir mjög
efnilegir leikmenn eru i liði
þessu, sem vafalaust eiga ekki
minna erindi i unglingalands-
liðið en sumir þeirra leikmanna
sem þar eru fyrir.
—
(:)< hil‘ill I